Morgunblaðið - 22.12.1988, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
ERLENT
Bandaríkin:
Fimm daga hátíð
við forsetaskiptin
Miklar skrúðgöngur og veislur í höfuðborginm
Washington. Frá ívari Guðmundsayni, fréttaritara Morgunblaðsins.
FIMM daga hátíðarhöld eru fyrirhugnð hér í Washington í janúar
er George Bush tekur við embætti forseta Bandaríkjanna. Það
verða „brauð og leikir“ fyrir unga sem aldna, skrúðgöngur, veisl-
ur og alls tíu dansleikir sama kvöldið í helstu gistihúsum höfuð-
borgarinnar þann 20. janúar, daginn sem Bush sver embættis-
eiðinn. Fyrir þá athöí'n verður byggður pallur fyrir framan þing-
höllina, þar sem forseti Hæstaréttar sljórnar athöfhinni.
Hátíðin hefst þann 18. janúar
við Lincoln-minnismerkið. Efnt
verður til mikillar skrúðgöngu við
Stjómarskrárhöllina og haldnar
tvær miklar veislur. Verður önnur
í aðaljámbrautarstöðinni við þing-
hólinn en stöðin hefir verið end-
umýjuð og var verkinu hraðað í
tilefni af embættistökunni.
19. janúar verður hátíðarsýning
í Kennedy-leikhúsinu á bökkum
Potomac-fljótsins til heiðurs til-
vonandi forsetafrú. Skrautsýning-
ar verða síðari hluta dags og um
kvöldið í Stjómarskrárhöllinni. Þá„
verður fyrirmönnum boðið til mót-
töku í nýrri byggingu sögusafnsins
við 8. stræti.
20. janúar, daginn, sem George
Bush tekur við forsetaembættinu,
verður fyrst guðsþjónusta í Jó-
hannesarkirkjunni og síðan skrúð-
göngur, m.a. um Frelsistorgið og
í Lafayette-lystigarðinum. Um
kvöldið verða tíu dansleikir í helstu
gistihúsum borgarinnar, þar af
einn fyrir ungt fólk
21. janúár verður m.a. bama-
hátíð í Stjómarskrárhöllinni en
herlegheitunum lýkur með bæna-
stund í dómkirkjunni í Washing-
ton.
Lundúnalögregla lokar götu þar sem ungur maður var skotinn í maga af írskum hryðjuverkamanni.
Bretland:
Limdúnalögregla finnur
vopnabúr IRA-manna
hæfi sitt í Englandi þar sem þeir
njóta síður samúðar.
London. Reuter.
BRESKA lögreglan fann í gær sprengjuverksmiðju og vopnabúr á
vegum hryðjuverkamanna írska lýðveldishersins (IRA) í húsi í suður-
hluta Lundúna. Fundurinn jók mjög á ótta yfirvalda um að IRA, sem
berst fyrir endalokum breskra yfirráða á Norður-írlandi, hyggist
nú koma af stað öldu sprengjutilræða í Englandi. Lögregla hóf þeg-
ar leit að tveim mönnum sem álitnir eru hafa búið í húsinu og grunað-
ir eru um tengsl við hryðjuverkasamtökin.
sprengiefni sem IRA-menn hafa oft
notað á Norður-írlandi. Sérsveit lög-
reglunnar, er fæst við hermdar-
verkamenn, var kölluð á vettvang
og kom í ljós að minnst þrír menn
höfðu búið í húsinu undanfama
viku.
Talsmaður lögreglu sagði ljóst að
mennimir hefðu stundað sprengju-
gerð í húsinu og ekki væri útilokað
að þeir hefðu þegar komið einhveij-
um þeirra fyrir.
Lögregla hefur dreift ljósmyndum
af mönnunum tveim og segir þá
báða mjög hættulega. Hefur al-
menningur verið varaður við grun-
samlegum hlutum eins og yfírgefn-
um pokum og kössum á almanna-
færi. Sumir af leiðtogum IRA-
samtakanna hafa sagt að ein
sprengja í Englandi hafí jafn mikil
áhrif og 100 sprengjur á Norður-
írlandi. Hópar hermdarverkamann-
anna, sem oftast eru fímm saman,
eiga þó erfiðara með að stunda at-
Vopnafundurinn varð fyrir tilvilj-
un. Skömmu fyrir miðnætti á þriðju-
dag braust ungur maður inn í bíl
fyrir utan hús í Clapham-hverfí í
Suður-Lundúnum. Maður, sem að
líkindum hefur sofíð í bílnum, hóf
skothríð og særði þjófínn illa í maga.
Síðan flýði maðurinn á brott ásamt
öðrum manni en lögregla var kvödd
á staðinn. Er hún rannsakaði húsið,
sem bíllinn stoð við, fundust þar
tæki til sprengjugerðar. Einnig voru
þar vélbyssur og mikið af Semtex-
Bretland:
Viský og ekki viský
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frbnannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
í síðustu viku lauk sex ára baráttu skoskra vískýframleiðenda fyr-
ir þvi, að innan Evrópubandalagsins mættu einungis brennd vin af
ákveðnum styrkleika kallast viský. Frá og með áramótum má ekk-
ert viský vera veikara en 40% innan EB.
Viskýframleiðendumir töldu, að Þingmaður Verkamannaflokksins,
veikari tegundir kæmu óorði á
raunverulegt viský. Þeir telja, að
þessi ákvörðun ráðherranefndar
EB muni koma í veg fyrir, að fram-
leitt verði lélegt viský, er skaði það
orð, sem fer af gæðum drykkjarins.
Samband skoskra viskýframleið-
enda lýsti þegar í stað yfír ánægju
sinni með þessa ákvörðun. Bill
Bewsher, framkvæmdastjóri þess,
sagði, að þessi ákvörðun ylli því,
að skoskt viský yrði viðurkennt um
allt bandalagið sem gæðavara.
En gleðin yfír þessari ákvörðun
er alls ekki óblandin í Skotlandi.
George Faulkes, sagði, að raun-
veruleg ástæða ákvörðunarinnar
væri vinsældir veikara viskýsins. í
kjördæmi hans er framleitt eitt vin-
sælasta veika viskýið.
Samband framleiðenda veiks
viskýs lýsti því jrfír, að þetta væri
fráleit og afleit ákvörðun hjá ráð-
herranefndinni.
Sala á ódýrari tegundum viskýs,
með styrkleika allt að 37,2%, hefur
stöðugt aukist á síðustu 15 árum
bæði í Bretlandi og annars staðar
í Evrópu. Samvinnufyrirtækið Co-
Op, sem er stærsti vínsmásali í
Skotlandi og á 450 vínbúðir, studdi
samband framleiðenda veiks vi-
skýs. Talsmaður fyrirtækisins
vísaði því á bug, að veika viskýið
væri lélegra, og sagði, að það ætti
við um þessa vöru eins og aðra,
að hún seldist einungis, ef við-
skiptavinurinn vildi kaupa hana.
Ákvörðun ráðherranefndarinn-
ar, sem talin er verða til þess að
sala á sterku viskýi aukist, kom
nokkuð á óvart, vegna þess að ta-
lið var, að landbúnaðarráðherra íra
væri henni mótfallinn en írar fram-
leiða mikið af veiku viskýi. Sagan
segir, að breski landbúnaðarráð-
herrann, John McGregor, hafi
sannfært hinn irska starfsbróður
sinn yfír einum sterkum.
j:. m. / m m \ # irmk * l \ i Æwsmrk' . Y' ° \ k* w \ \ > || \ /M
1 \ tan T áJm K F . TB""“
V
*iltyar } m % * fk
v'' # n 1 HHg■' ■ m -á-'-^ . flR. 'a | ~..- v • ■ U
w&y' , 1 M ”i