Morgunblaðið - 22.12.1988, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
Umræður um fækkun í herafla
Bandaríkjamanna í Evrópu:
Dregið úr viðbún-
aði á Miðjarðarhafi?
London. Reuter.
STJÓRNVÖLD 1 Bandaríkjunum virðast hafa afráðið að skera nið-
ur herafla Bandaríkjamanna í Evrópu og hugsaniegt er að dregið
verði úr viðbúnaðinum á suðurhluta varnarsvæðis Atlantshafs-
bandalagsins, að þvi er segir i nýju sérfræðiriti um Atlantshafs-
bandalagið (NATO), sem á ensku nefnist NATO Handbook og gefið
er út af breska fyrirtækinu Jane’s.
í formála ritstjórans, Davids
Fouquets, segir að aðildarríki
NATO þurfi að taka afstöðu til
ýmissa mála sem enn hafi ekki
verið tekið á með sannfærandi
hætti. Svo virðist sem bæði stjóm-
málamenn og almenningur í
Bandaríkjunum séu þeirrar skoð-
unar að gera þurfi breytingar innan
bandalagsins í samræmi við þá
þróun og breytingar sem orðið hafi
á undanfömum árum og áratugum.
„Vamarmálasérfræðingar í Wash-
ington leggja áherslu á að nú sé
spumingin ekki sú hvort hluti her-
liðsins verður kallaður heim frá
Evrópu heldur hvenær og hvemig
standa beri að því,“ segir ritstjór-
inn.
í máli Fouquets kemur fram að
lagt hafi verið til að um 16.000
hermenn verði kallaðir heim frá
Vestur-Þýskalandi. Telur hann
þetta óskynsamlega ráðstöfun og
segir líklegt að hún mælist ekki
vel fyrir meðal bandamanna
Bandarfkjamanna í Evrópu. Á hinn
bóginn virðist sem umsvif Banda-
rílqamanna á Miðjarðarhafí séu
óþarfiega mikil. Miðjarðarhafsfiot-
inn ráði yfir um 40 skipum og
kafbátum og alls telji herafli
Bandaríkjamanna á þessum slóðum
um 50.000 menn. Umsvif Sovét-
manna á Miðjarðarhafi séu hins
vegar fremur lítil og megi því gera
ráð fyrir því að NATO-ríkin í Evr-
ópu gætu í auknum mæli tekið að
sér vamir suðurhluta hins sameig-
inlega vamarsvæðis aðildarríkj-
anna.
Ritstjórinn segir ýmislegt benda
til þess að ráðamenn innan Atlants-
hafsbandalagsins séu reiðubúnir til
að samþykkja að kjamorkuherafl-
inn verði skorinn niður í Evrópu
og telji þeir þetta viðeigandi svar
við nýjustu tillögum Sovétstjómar-
innar. Nefnir Fouquet að vígbúnað-
arsérfræðingar hafi lengi viður-
kennt að skammdræg kjamorku-
vopn ógni öryggi Vestur-Þýska-
lands þar sem þessum vopnum yrði
beitt á þýsku lansdsvæði brytust
út átök milli austurs og vesturs.
Því kunni að fara svo að Atlants-
hafsbandalagið leggi til að stór-
skotaliðsbyssur, sem borið geta
kjamorkuhleðslur, verði fluttar frá
Mið-Evrópu.
Þótt ekki hafi tekist að útkljá deiluna um Kúrileyjar að sinni fór vel á með þeim Sosuke Uno, utanríkis-
ráðherra Japans, og sovéskum starfsbróður hans, Edúard Shevardnadze.
Sovéski utanríkisráðherrann í Japan:
Lítíð miðar enn í deílum
um yfirráð Kúrileyia
T6k£ó. Reuter.
JAPÓNSK stjórnvöld sögðu í
gær, að enginn raunverulegur
árangur hefði orðið af viðræðum
þeirra og Edúards Shevardnad-
zes, utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, um Kúrileyjar, sem Sovét-
menn tóku af Japönum á síðustu
heimsstyijaldardögunum. Því
var hins vegar fagnað, að Sovét-
menn skyldu nú loks vOja ræða
þetta mál.
Sosuke Uno, utanríkisráðherra
Bókaflokkurinn
íslensk þjóðmenning
er skipulagður sem níu binda
ritröð sem spannar yfir
rúm 1000 ár í íslenskri
menningarsögu.
1. og 5. bindi
eru komin út.
í heild verður þetta
mikla yfirlitsverk samið af
40 íslenskum fræðimönnum
Helstu efnisflokkar eru þessir:
Uppruni og umhverfi íslenskrar þjóðar, Jarðyrkja og kvikfjárrækt, Sjávarhættir,
Heimilisstörf, Trúarhættir, Alþýðuvísindi, Kvæða- og
sagnaskemmtun, Sjónmenntir, Samgöngur, Félagslíf og fólkið í bændasamfélaginu
(mótun einstaklingsins, svipmót og daglegt líf).
SÍMAR 13510- 17059, PÓSTHÓLF 147.
Japans, sagði á fréttamannafundi,
að ríkin hefðu orðið ásátt um að
skipa sameiginlega neftid til að
ræða um framtíð Kúrileyja en deilan
um þær hefur staðið í vegi fyrir
undirritun friðarsamninga milli
ríkjanna í rúm 40 ár. í sameigin-
legri yfirlýsingu utanríkisráðherr-
anna var einnig minnst á hugsan-
lega heimsókn Míkhafls Gorbatsjovs
sovétleiðtoga til Japans, líklega ein-
hvem tíma á næsta ári.
Shevardnadze sagði á blaða-
mannafundinum, að nýgerðir við-
skiptasamningar milli Sovétrílq-
anna og Suður-Kóreu þýddu ekki,
að ríkin ætluðu að taka upp fullt
stjómmálasamband. Að loknum
Ólympíuleikunum í Seoul urðu Ung-
veijar fyrsta Austantjaldsríkið til
að skiptast á sendiherrum við Suð-
ur-Kóreumenn og fór það svo fyrir
bijóstið á Norður-Kóreustjóm, að
hún kallað heim sendiherra sinn í
Búdapest. Júgóslavar, Búlgarar og
Pólveijar hafa einnig ákveðið að
taka upp bein viðskipti við Suður-
Kóreu.
Moskva:
Alnæmissmit-
beri í fangelsi
Moskvu. Reuter.
SOVÉSK kona, sem smitaði fyrri
eiginmann sinn af sárasótt, sýkt-
ist síðan af alnæmi og bar það
til átta rekkjunauta sinna, hefur
nú verið dæmd í Qögurra ára
fangelsi fyrir að bera út hættu-
lega sjúkdóma. Sagði eitt
Mosk vublaðanna firá þessu í gær.
Dagblaðið Sósíalskur iðnaður
sagði, að læknar hefðu fengið kon-
una, sem var kölluð Olga L., til
meðferðar eftir að hún hafði fallið
ofurölvi ofan af veitingahússsvölum
og þá komist að raun um hvers
kyns var. „Sjúkdómurinn er að
sjálfsögðu afleiðing þessa ósiðlega
lífemis," sagði í blaðinu.
Olga bjó í bænum Kakhovka í
Úkraínu og þegar hún hafði skilið
við fyrri eiginmanninn, þann, sem
hún sýkti af sárasótt, giftist hún
Afríkumanni og bjó í Kongó í fjög-
ur ár. Þegar hún kom aftur heim
til Sovétríkjanna vöruðu læknar
hana við öllu kynlífi vegna fyrri
sýkinga en hún lét það sem vind
um eyru þjóta.
í október sl. var skýrt frá fyrsta
dauðsfallinu í Sovétríkjunum af
völdum alnæmis og var þar um að
ræða vændiskonu frá Leníngrad.
Opinberlega em 64 taldir smitaðir
en læknar segja, að lfklega séu
nokkur hundrað nærri sanni.