Morgunblaðið - 22.12.1988, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
39
ÞOR WHITEHEAD
Hressir eflir 366
daga geimdvöl
Moskvu.-Reuter.
SOVEZKU geimfaramir Vladimír Títov og Músa Manarov lentu
geimfari sínu héilu og höldnu í gær eftir 366 daga vist um borð
i geimstöðinni MÍR. Voru þeir sagðir við hestaheilsu en á næstu
dögum munu þeir gangast undir læknisrannsókn þar sem áhrif
hinnar löngu dvalar á líkama þeirra verður könnuð.
Geimfar Títovs og Manarovs,
Sojuz TM-6, lenti klukkan 10 að
íslenzkum tíma í gærmorgun í
miðri Kazakhstan, um 180 kíló-
metra suðaustur af borginni
Dzhezkazgan. Lending átti sér
stað þremur klukkustundum
seinna en áætlað var vegna bilunar
í sjálstýribúnaði geimfarsins sem
orsakaðist af álagi í tölvum þess.
Títov og Manarov var skotið á
loft 21. desember í fyrra en um
sama leyti sneri Júrí Romanenko
heim eftir 326 daga vist í MÍR.
Enginn hafði dvalizt jafn lengi úti
í geimnum í einu en Títov og Man-
arov hafa nú slegið met hans.
Hann var sagður kvarta undan
þreytu og heimþrá á sínum tíma.
Títov og Manarov höfðu ferðafé-
laga á heimleiðinni; franska geim-
farann Jean-Loup Chretien, sem
lauk þar með annarri geimferð
sinni. Honum var skotið á loft 28.
nóvember sl. og dvöldust því sex
menn í MÍR-geimstöðinni í nær
fjórar vikur þar til í gær. Hafa
þeir aldrei verið fleiri í einu og
segja Sovétmenn að starfsemi
Grænland:
Kæra sig-
ekkium
sameiningTi
Kaupmannahöfh. Frá Nils Jorgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
TVÖ stærstu samtök togaraút-
gerða á Grænlandi, AAK og
AAP, eru á einu máli um að
berjast á móti því, að þau verði
sameinuð.
Eitt er það mál, sem heitast
brennur á stjórnum beggja sam-
takanna þessa dagana, en það er
sú ákvörðun stjórnavalda að tvö-
falda framleiðslugjald á rækju,
sem unnin er um borð í skipunum.
Gjaldið á að hækka upp í átta
danskar krónur (ríflega 54 ísl. kr.)
á kílóið. Mörg útgerðarfélög telja,
að gjaldþrot blasi við þeim, verði
framleiðslugjaldið hækkað í þessa
veru, en Kaj Egede, sem fer með
sjávarútvegsmál í landstjóminni,
hefur svarað því til, að rækjuút-
gerðimar græði á tá og fingri og
fari létt með að standa skil á þessu
nýja gjaldi.
Útgerðarfyrirtækin hótuðu á
tímabili að borga ekki skattinn, en
samtök útvegsmanna hafa horfið
frá því ráði og segja, að þau út-
gerðarfélög, sem geta borgað,
muni gera það. Landstjórnarmað-
urinn Lars Emil Johansen kallaði
togaraeigendur kveinandi kapítal-
ista og bragðarefí í síðasta tölu-
blaði Siumut-blaðsins og hvatti
lögreglu og dómsyfirvöld til að láta
hótanir þeirra til sín taka.
Reuter
Prinsessan
skírð
Dóttur hertogans og hertoga-
ynjunnar af Jórvík var gefíð
nafíi við athöfh í konungskap-
ellunni í St. James Palace í
London í fyrradag. Var þessi
yngsta prinsessa brezku kon-
ungsfjölskyldunnar skírð Be-
atrice Elizabeth Mary og mun
hún í daglegu tali verða kölluð
Beatrice prinsessa. Dr. John
Habgood, erkibiskup af Jórvik,
skirði og brúkaði vatn úr ánni
Jórdan, sem sérstaklega var
sótt til Miðausturlanda vegna
athafnarinnar.
stöðvarinnar hafí reynst vel.
Sovézkir embættismenn hafa sagt
að_ langdvalir geimfara um borð í
MÍR séu liður í rannsóknum á því
hvort geimfarar myndu þola ferða-
lag til reikistjömunnar Marz, sem
taka mundi nokkur ár.
EYMUHDSSOI
ÍSLANDSÆVINTYRI
Sameining íslands og Hitlers - Þýska-
lands var á dagskrá hjá Heinrich Himmler
yfirforingja SS og þýsku lögreglunnar í
Berlín 1936. Erindreki Himmlers, SS
foringinn Paul Burkert, fór um ísland og
reyndi að veiða innlenda ráðamenn í net
sitt.
Himmler mælti til vináttu við Hermann
Jónasson forsætisráðherra með sér-
stæðum hætti. Einnig sendi hann hingað
hóp SS-manna og Gestapoforingja sem
síðar urðu kunnir um allan heim fyrir
fjöldamorð, undirróður og njósnir.
Þjóðverjar höfðu uppi áform um stóriðju-
framkvæmdir á íslandi, landnám og
byltingarþjálfun.
Þór Whitehead fylgir í bókum sínum
ítrustu kröfum sagnfræðinnar en tckst
jafnframt að hrífa lesendur sína með
Ijósri og lifandi frásögn.
Vinnubrögð Þórs og stíll hafa áunnið
bókum hans sess á metsölulistum.
Engar stöðumælasektir
-í Ceiéitutc