Morgunblaðið - 22.12.1988, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
48
DON GIOVANNI
MYHDBMD
af sýningu íslensku óperunnar frá sl. vori er komið út.
Myndbandið er með íslenskum texta.
Myndbandið er selt í Islensku óperunni og kostar 3.000
krónur fyrir styrktarfélga.
Það er einnig selt í eftirtöldum verslunum:
Taktur
Fálkinn, Laugavegi
Skífan, Kringlunni
Bókabúð Braga
Bóksala stúdenta
Nesco, Laugavegi
Hljóðfærahúsið
Bókabúð Máls og menningar
Eymundsson, bókaverslun,
Aústurstræti og Eiðistorgi
Penninn, Austurstræti og
Kringlunni
Opus __
Japis
Nánari upplýsingarí símum 27033 og 11475.
Styrktarfélag íslensku óperunnar.
í töfrapottinum geturðu steikt læri, svínakjöt og
kjúkling og fengið fallega brúningaráferð á kjötið.
Tvær stærðir. Komast í flesta ofna.
Sendum í póstkröfu
Heildsala - Smásala
Einar Farestveit&Co.hf.
BORGARTUN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NÆG BÍLASTÆÐ)
Hún er smá
en samt
svo kná!
Smith & Norland
Nóatúni 4, sfmi 28300
Fjölhæt Hrærir, hnoðar, blandar,
þeytlr, brytjar, rífur,
raspar, tætir og sker.
Kraftmikil: 400Wstöðugtafl.
FyrirferðaHrtíl: Þarf aðeins rými sem er
28x20 sm.
Hún erfrá SIEMÉNS og heitir COmpact
Myndbönd sem stytta skamm-
degið hjá veiðimönnum
Myndbönd
Guðmundur Guðjónsson
íslenski myndbandaklúbbur-
inn hefur sent frá sér flögur
myndbönd um íslenskar laxveið-
iár og að sögn forráðamanna
klúbbsins er þetta aðeins byrjun-
in, stefnan sé að gefa út allar
helstu árnar á myndböndum.
Eftir að hafa horft á mynd-
böndin Qögur er óhætt að segja
að þegar á heildina er litið hefur
tekist vel til og víst er að þessi
nýjasta tegund afþreyingar fyrir
þann þjóðflokk í þjóðflokknum
sem haldinn er veiðidellu, á eftir
að stytta skammdegið hjá þeim.
Út á eitt og annað má setja ef út
í það er farið, en heildarmyndin
er góð og þetta er jú frumraun.
Lítum svo á einstök bönd.
Ef við byijum á Vatnsdalsá, þá
fer ekki hjá því að maður er snort-
inn af undurfögru umhverfí og ótrú-
lega veiðilegri á. Þeir skiptast á um
lýsinguna Ami Guðbjömsson leið-
sögumaður í Vatnsdalsá til fjölda
ára og Hallgrímur Thorsteinsson
útvarpsmaður og dettur manni í
hug að rödd hans hafí í upphafi
verið hönnuð til að lýsa laxveiðiám.
Samvinna þeirra er með ágætum
er ánni er fylgt frá ósi og fram í
Dalsfoss, nánar tiltekið allt lax-
veiðisvæði árinnar. Nokkrar af
bestu tökum þessarar útgáfu er að
fínna á Vatnsdalsspólunni. T.d. er
Ámi setur í lax á flugu í Homhyl,
þegar að minnsta kosti 20 punda
fískur reiinir sér eins og hnísa við
fætumar, á veiðimanni sem er að
kasta flugu í Tunguhyl og eltingar-
ieikur og hörð glíma við 19 punda
leginn hæng við Rofabakka. Þessi
spóla er mjög góð.
Mjög góð er einnig Miðfjarðarár-
spólan. Þar er flogið upp með ánni
eins og á hinum spólunum og stung-
ið sér niður á markverðum stöðum
og þeir skoðaðir nánar. Fylgdar-
maður veiðimanna hér er Rafn
Hafnfjörð, þekktur fluguveiðimað-
ur, og hrífur hann menn með sér í
furðuveröld Miðfjarðarársvæðisins
sem telur í raun fjögur ár, Mið-
fjarðará, Vesturá, Austurá og
Núpsá. Tekst mjög vel til að lýsa
þessu svæði sé mið tekið af víðfeðmi
svæðisins annars vegar og hins
vegar að spólan er aðeins klukku-
stundarlöng. Best á spólunni er
endirinn, þar sem Rafn glímir við
stórlax í Núpsfossum, þjösnast á
honum til að „styggja ekki hylinn",
gerir grín að sjálfum sér allan
tímann fyrir djöfulganginn, rífur
svo auðvitað út úr laxinum í löndun
og fómar höndum! „Er þetta ekki
líka toppurinn?“ spyr hann þá
áhorfendur, en ekki er víst að svör
þeirra séu öll á sama veg.
Spólan sem inniheldur Laxá í
Dölum er hnökralítil. Áin virkar
fremur hæglætisleg og spök og
umhverfíð er ekki stórbrotið. Það
sem er stórbrotið er hins vegar
veiðin sem þessi meinleysislega á
getur gefið. Svo virðist sem veiðin
hafí samt ekki gengið sem skyldi
meðan upptökur fóru fram, því
miðað við hinar spólumar þijár er
heldur lítið um að vera hjá veiði-
mönnunum sjálfum. Er teygt á því
t.d. með því að sýna heila viðureign
Minning:
Áslaug Þorsteins-
dóttir, Böðvarsholti
Áslaug Þorsteinsdóttir, húsfreyja
í Böðvarsholti, Staðarsveit, Snæ-
fellsnesi, andaðist í Sjúkrahúsi
Akraness 17. þ.m. 59 ára að aldri.
Er útför hennar gerð í dag frá
Búðakirkju.
Hún var fædd í Straumfjarðar-
tungu 15. apríl 1929, dóttir hjón-
anna Guðrúnar Eyjólfsdóttur og
Þorsteins Þórðarsonar bónda, síðar
að Stakkhamri, hinna mætustu
hjóna. Móðir Áslaugar lagði rækt
við fróðleik fyrri tíðar og sagði mér
margt af æskuárum föður míns og
af ættmennum úr Staðarsveit, en
þaðan var hún runnin. Þorsteinn
var einstakt ljúfmenni, mildur og
mjúklátur, smiður góður og mikill
starfsmaður alla ævi. Bróðir hans
er Jón Þórðarson, rithöfundur og
kennari.
Áslaug ólst upp hjá foreldrum
sínum á Stakkhamri í Miklaholts-
hreppi, Hnapp, en fluttist með þeim
til Reykjavíkur árið 1944, er Þor-
steinn gerðist starfsmaður Vél-
smiðjunnar Héðins. Vann Áslaug
að ýmsum störfum hér syðra, var
m.a. á Víði, er gekk á milli Borgar-
ness og Rvíkur, og undi sjóferðum
vel._
Árið 1952 giftist Áslaug eftirlif-
andi eiginmanni sínum, Gunnari
Bjamasyni, bónda og hreppstjóra í
Böðvarsholti. Er hún kom að Böðv-
arsholti mætti henni þar ástríki og
friðsemd heimilis, sem mótast hafði
af tengdaforeldrum hennar, Bjam-
veigu Vigfúsdóttur og Bjama Nik-
ulássjmi. Þar kom ég ungur og
kynntist heimilisbragnum, mikilli
vinnusemi og ósérhlífni húsfreyju
og húsbónda og kærleiksríku þeli
þeirra beggja. Er mér það minnis-
stætt er ég heimsótti Bjama, föður-
bróður minn, á sjúkráhús í
Reykjavík á unglingsárum mínum,
hversu hann blessaði mig heitum
orðum og sterku atlæti. Mátti ég
siðar af því ráða um blessunina sem
hinir fomu patríarkar veittu sonum
sínum og af spratt gæfa þeirra.
Tveir bræðranna ílentust heima,
Gunnar tók við Böðvarsholti að
hluta og Þráinn byggði sér nýbýli
og nefndi Hlíðarholt. Við hið besta
samlyndi með heimilunum tveim og
húsfreyjunum báðum, þeim Ás-
laugu og sæmdarkonunni Kristjönu
Sigurðardóttur og traust vinátta
milli bamanna á bæjunum báðum.
Ár Áslaugar urðu mörg í Böðv-
arsholti, en ekki voru þau þrauta-
laus, því að mikið heilsuleysi hijáði
hana löngum, en hún stundaði bú-
störfín og heimilið af elju og ástríki.
Son átti Áslaug áður en hún gifti
sig, Þorstein Svavarsson, sem
tengdur var traustum böndum fjöl-
skyldunni í Böðvarsholti. Böm
þeirra Gunnars em fimm, Bjam-
veig, Eyjólfur, Bjami, Þórður og
Rúna^r, en dreng misstu þau í fram-
bernsku.
Áslaug Þorsteinsdóttir var glað-
sinna og gestrisin. Þökkum við
hjónin góðar stundir á heimili þeirra
hjóna í Böðvarsholti og gistivináttu.
Hún var kærleiksrík kona, ræktar-
söm um hag ættmenna og vina,
einnig mikill dýravinur, og birtast
í þeirri einkunn ríkari eðlishættir
en margan grunar nú á dögum.
Hún var góð hannyrðakona og vann
failega úr íslenskri ull.
Mikill harmur er kveðinn að
Gunnari í Böðvarsholti og bömun-
um, er eiga á bak að sjá ástríki
eiginkonu, móður, tengdamóður og
ömmu.
Hún hvíli í eilífum friði Guðs.
Þórir Kr. Þórðarson
t
Móðir okkar,
SVEINSÍNA GUÐRÚN STEINDÓRSDÓTTIR,
lést í Hafnarbúðum 13. desember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd vandamanna,
Klara Sigurðardóttir,
Sigríður Sigurðardóttir.
t
Frænka okkar,
SESSEUA JÓNSDÓTTIR
frá Hnífsdal,
andaðist á Hrafnistu í Reykjavik 19. þessa mánaðar. Jarðarförin
auglýst síðar. Fyrir hönd ættingja,
Pálfna Helgadóttir,
Sigríður Þorláksdóttir,
Jón Páll Halldórsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
SVEINN ÓLAFSSON,
Faxabraut 66,
Keflavfk,
lést í sjúkrahúsi Keflavíkur 20 desember.
Jarðarför auglýst síðar.
Svanhvft Trygg vadóttir,
Guðrún Sveinsdóttir, Guðmundur Gunnarsson,
Linda Marfa Guðmundsdóttir,
Guðný Birna Guðmundsdóttir,
Bryndfs Jóhanna Jóhannesdóttir.