Morgunblaðið - 22.12.1988, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
við lax sem var þó innan við 10
pund. En þetta er léttvæg gagn-
rýni, það má hafa mikla ánægju
af því að skoða þetta band.
Síðast nefnum við spóluna sem
inniheldur Laxá í Kjós. Hér hefur
ÍM-mönnum tekist verst upp og er
það synd, því þó Laxá sé talin hér
síðust, þá er hún þó síður en svo
síst. Svæðinu frá Sjávarfossi og upp
í Holu er lýst afar vel af Þórami
Sigþórssyni í viðtali við Hallgrím
Thorsteinsson. Aðeins er minnst á
Fossbreiðu, Laxfoss og Fossinn í
Bugðu. Öll spólan sýnir mokveiði á
umræddu svæði sem er gott og
blessað, en þetta er aðeins brot af
ánni allri og að flestra mati er áin
fallegri innar í dalnum. Eru það
næstum helgispjöll að gera spólu
um Laxá, en sýna aðeins brot af
ánni. Þama getur að líta mikla af-
reksmenn í veiði bókstaflega moka
laxinum upp og er ég ekki grunlaus
um að IM-menn hafi hreinlega
gleymt sér í öllum látunum og álit-
ið að svona skammtur af Laxá
væri nægur og vel það. Hvað undir-
ritaðan varðar, þá saknaði hann
þess að fá ekki að sjá miðsvæðin,
Neðra-Gljúfur, Efra-Gljúfur, Háls-
hyl, Stekkjarfljótin og Þómfoss-
gljúfrin. En það sem sýnt er er
sýnt vel, það hefði einfaldlega mátt
fara hraðar yfir og sýna meira,
sbr. Miðfjarðarárspóluna. Fjöl-
breytnin hefði aukist og þar af leið-
andi skemmtanagildi hennar.
' Morgunblaðið/Baldur Rafn Sigurðsson
Sýslunefiid Strandasýslu sat sinn síðasta fund 24. nóvember sl. á
Hólmavík.
Síðasti fundur sýslu-
neftidar Strandasýslu
Hólmavik.
SÍÐASTI aðalfúndur sýslunefiidar Strandasýslu var haldinn á
Hólmavík fimmtudaginn 24. nóvember sl. Á fúndinn mættu auk sýslu-
manns, Ríkarðs Mássonar, Jónas R. Jónsson bóndi á Melum, Bjarni
Eysteinsson bóndi á Bræðrabrekku, Sigurður Jónsson bóndi á Felli,
Grímur Benediktsson bóndi á Kirkjubóli, Hjálmar Halldórsson á
Hólmavík og Jón H. Elíasson á Drangsnesi. Fundarritari var kjörinn
Hans Magnússon á Hólmavík.
Eftir að sýslumaður hafði sett
fundinn og boðið fundarmenn vel-
komna, minntist hann jafnframt
látins, fyrrverandi . sýslunefndar-
manns, Magnúsar Gunnlaugssonar,
hreppstjóra, Ytra-Ósi, og bað menn
að rísa á fætur og votta hinum látna
virðingu.
Eitt af fyrstu málum fundarins
var að lqósa í hinar ýmsu nefndir
s.s. fjárhagsnefnd, menntamála-
nefnd og samgöngunefnd. Þá var
tekið til við hinar ýmsu beiðnir er
borist höfðu bréflega til sýslunefnd-
ar og voru þar ein 16 merk mál á
ferð. M.a. var bréf frá Láonsklúbbi
Hólmavíkur, þess efnis að reynt
yrði að byggja og gera upp í eins
upphaflegri mynd og þekkt er sælu-
húsið á Steingrímsfjarðarheiði.
Oddvjti Kirkjubólshrepps sendi
einnig inn bréf þess efnis að sýslu-
\ nefnd hlutist til um að brúin sem
\var á Miðdalsá, að Tindi, sem áin
tók af stöplum í flóði sl. vetur verði
endurbyggð og fjárveiting verði
veitt til verksins.
Torfi Guðbrandsson sendi inn
bréf þess efnis að varðveittum
gömlum heimildum yrði komið fyrir
í héraðsskjalasafni í eigu byggðar-
lagsins og hvatti til þess að álíkri
stofnun yrði komið á fót með aðset-
ur á Hólmavík.
Þegar hin ýmsu bréf höfðu verið
rædd var lögð fram áætlun um tekj-
ur og gjöld sýsluvegasjóðs á næsta
ári. Fundi var þá frestað til næsta
dags, en þá voru m.a. samþykktir
áætlaðir reikningar sýslusjóðs
Strandasýslu og lögð fram hin
ýmsu nefndarálit. Fundi var síðan
slitið síðla dags.
Um næstu áramót tekur form-
lega til starfa héraðsnefnd Stranda-
sýslu og mun hún leysa af hendi
sýslunefnd sbr. sveitarstjómarlög
nr. 8/1986 og einnig munu sveitar-
stjómir fá hluta þeirra verkefna er
sýslunefnd hafði áður með höndum.
- BRS
Samið um
norrænar
stoftianir
JÓN Sigurðsson, samstarfsráð-
herra, hefúr undirritað fyrir ís-
lands hönd samning um réttar-
stöðu norrænna stofiiana og
starfsfólks þeirra.
Samningurinn leysir af hólmi
Norðurlandasamning um réttar-
stöðu starfsfólks við norrænar
stofnanir sem undirritaður var í
Reykjavík fyrir 14 ámm. Hann nær
til 43 stofnana, þar af tveggja sem
starfa á íslandi, Norræna hússins
og Norrænu eldfjallastöðvarinnar.
GULLVÆCAR
BÆKUR
fyrir sál og líkama
Himinn og hel
Undur lífsins eftir dauðann
Emanuel Swedenborg
Sveinn Ólafsson þýddi
Swedenborg lýsir lífi í öðrum heimi
Skýrt er andlegt eðli umhverfis og
grundvallarlögmól andlegs
lífsveruleika sem og alvaldsstjórn
Drottins. Nýtt inntak birtist í
trúarskýringum hans sem hann
segir gefið af Drottni.
Undirheimar islenskra
stjórnmála
Reyfarakenndur sannleikwr um
pólitisk vigaferli
Þorleifur Friðriksson
Bókin lýsir einstæðum pólitískum átökum
eftir byltingu Hannibals í Alþýðu-
flokknum 1952.
Launráð voru brugguð og þvingunum
beitt gegn hinum ógnvænlega
„hannibalisma".
ORN OG
ORLYGUR
%°/í
SÍÐUMÚLA 11, SÍMI 8 48 66
Lækninga
handbókin
Erik Bostrup
Ólafur Halldórsson liffræðingur
þýddi
Efnisatriði bókarinnar eru í stafrófsröð. Bókin
fjallar skipulega um einstaka sjúkdóma eftir
eðli þeirra eða staðsetningu. Þetta auðveld-
ar leit að svörum við spurningum og gerir
þann fróðleik sem bókin hefur að geyma
vel aðgengilegan með uppflettingum.
Guðjón Magnússon dr. med., aðstoð-
arlandlæknir ritar formála.