Morgunblaðið - 22.12.1988, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 22.12.1988, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988 við lax sem var þó innan við 10 pund. En þetta er léttvæg gagn- rýni, það má hafa mikla ánægju af því að skoða þetta band. Síðast nefnum við spóluna sem inniheldur Laxá í Kjós. Hér hefur ÍM-mönnum tekist verst upp og er það synd, því þó Laxá sé talin hér síðust, þá er hún þó síður en svo síst. Svæðinu frá Sjávarfossi og upp í Holu er lýst afar vel af Þórami Sigþórssyni í viðtali við Hallgrím Thorsteinsson. Aðeins er minnst á Fossbreiðu, Laxfoss og Fossinn í Bugðu. Öll spólan sýnir mokveiði á umræddu svæði sem er gott og blessað, en þetta er aðeins brot af ánni allri og að flestra mati er áin fallegri innar í dalnum. Eru það næstum helgispjöll að gera spólu um Laxá, en sýna aðeins brot af ánni. Þama getur að líta mikla af- reksmenn í veiði bókstaflega moka laxinum upp og er ég ekki grunlaus um að IM-menn hafi hreinlega gleymt sér í öllum látunum og álit- ið að svona skammtur af Laxá væri nægur og vel það. Hvað undir- ritaðan varðar, þá saknaði hann þess að fá ekki að sjá miðsvæðin, Neðra-Gljúfur, Efra-Gljúfur, Háls- hyl, Stekkjarfljótin og Þómfoss- gljúfrin. En það sem sýnt er er sýnt vel, það hefði einfaldlega mátt fara hraðar yfir og sýna meira, sbr. Miðfjarðarárspóluna. Fjöl- breytnin hefði aukist og þar af leið- andi skemmtanagildi hennar. ' Morgunblaðið/Baldur Rafn Sigurðsson Sýslunefiid Strandasýslu sat sinn síðasta fund 24. nóvember sl. á Hólmavík. Síðasti fundur sýslu- neftidar Strandasýslu Hólmavik. SÍÐASTI aðalfúndur sýslunefiidar Strandasýslu var haldinn á Hólmavík fimmtudaginn 24. nóvember sl. Á fúndinn mættu auk sýslu- manns, Ríkarðs Mássonar, Jónas R. Jónsson bóndi á Melum, Bjarni Eysteinsson bóndi á Bræðrabrekku, Sigurður Jónsson bóndi á Felli, Grímur Benediktsson bóndi á Kirkjubóli, Hjálmar Halldórsson á Hólmavík og Jón H. Elíasson á Drangsnesi. Fundarritari var kjörinn Hans Magnússon á Hólmavík. Eftir að sýslumaður hafði sett fundinn og boðið fundarmenn vel- komna, minntist hann jafnframt látins, fyrrverandi . sýslunefndar- manns, Magnúsar Gunnlaugssonar, hreppstjóra, Ytra-Ósi, og bað menn að rísa á fætur og votta hinum látna virðingu. Eitt af fyrstu málum fundarins var að lqósa í hinar ýmsu nefndir s.s. fjárhagsnefnd, menntamála- nefnd og samgöngunefnd. Þá var tekið til við hinar ýmsu beiðnir er borist höfðu bréflega til sýslunefnd- ar og voru þar ein 16 merk mál á ferð. M.a. var bréf frá Láonsklúbbi Hólmavíkur, þess efnis að reynt yrði að byggja og gera upp í eins upphaflegri mynd og þekkt er sælu- húsið á Steingrímsfjarðarheiði. Oddvjti Kirkjubólshrepps sendi einnig inn bréf þess efnis að sýslu- \ nefnd hlutist til um að brúin sem \var á Miðdalsá, að Tindi, sem áin tók af stöplum í flóði sl. vetur verði endurbyggð og fjárveiting verði veitt til verksins. Torfi Guðbrandsson sendi inn bréf þess efnis að varðveittum gömlum heimildum yrði komið fyrir í héraðsskjalasafni í eigu byggðar- lagsins og hvatti til þess að álíkri stofnun yrði komið á fót með aðset- ur á Hólmavík. Þegar hin ýmsu bréf höfðu verið rædd var lögð fram áætlun um tekj- ur og gjöld sýsluvegasjóðs á næsta ári. Fundi var þá frestað til næsta dags, en þá voru m.a. samþykktir áætlaðir reikningar sýslusjóðs Strandasýslu og lögð fram hin ýmsu nefndarálit. Fundi var síðan slitið síðla dags. Um næstu áramót tekur form- lega til starfa héraðsnefnd Stranda- sýslu og mun hún leysa af hendi sýslunefnd sbr. sveitarstjómarlög nr. 8/1986 og einnig munu sveitar- stjómir fá hluta þeirra verkefna er sýslunefnd hafði áður með höndum. - BRS Samið um norrænar stoftianir JÓN Sigurðsson, samstarfsráð- herra, hefúr undirritað fyrir ís- lands hönd samning um réttar- stöðu norrænna stofiiana og starfsfólks þeirra. Samningurinn leysir af hólmi Norðurlandasamning um réttar- stöðu starfsfólks við norrænar stofnanir sem undirritaður var í Reykjavík fyrir 14 ámm. Hann nær til 43 stofnana, þar af tveggja sem starfa á íslandi, Norræna hússins og Norrænu eldfjallastöðvarinnar. GULLVÆCAR BÆKUR fyrir sál og líkama Himinn og hel Undur lífsins eftir dauðann Emanuel Swedenborg Sveinn Ólafsson þýddi Swedenborg lýsir lífi í öðrum heimi Skýrt er andlegt eðli umhverfis og grundvallarlögmól andlegs lífsveruleika sem og alvaldsstjórn Drottins. Nýtt inntak birtist í trúarskýringum hans sem hann segir gefið af Drottni. Undirheimar islenskra stjórnmála Reyfarakenndur sannleikwr um pólitisk vigaferli Þorleifur Friðriksson Bókin lýsir einstæðum pólitískum átökum eftir byltingu Hannibals í Alþýðu- flokknum 1952. Launráð voru brugguð og þvingunum beitt gegn hinum ógnvænlega „hannibalisma". ORN OG ORLYGUR %°/í SÍÐUMÚLA 11, SÍMI 8 48 66 Lækninga handbókin Erik Bostrup Ólafur Halldórsson liffræðingur þýddi Efnisatriði bókarinnar eru í stafrófsröð. Bókin fjallar skipulega um einstaka sjúkdóma eftir eðli þeirra eða staðsetningu. Þetta auðveld- ar leit að svörum við spurningum og gerir þann fróðleik sem bókin hefur að geyma vel aðgengilegan með uppflettingum. Guðjón Magnússon dr. med., aðstoð- arlandlæknir ritar formála.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.