Morgunblaðið - 22.12.1988, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
51
Yfirlýsing ft*á stjórn „Saftiaðar-
félags Fríkirkjunnar í Reykjavík“
Vegna yfírlýsingar í Qölmiðl-
um, sem undirrituð er af „Stjórn
Frikirkjusafiiaðarins í
Reykjavík“, vill stjórn Safiiaðar-
félags Fríkirkjunnar í
Reykjavík taka eftirfarandi
fram til að girða fyrir misskiln-
ing:
Samkvæmt 1. gr. laga safnaðar-
ins heitir söfnuðurinn „Hinn
evangelísk-lútherski frikirkjusöfn-
uður í Reykjavík", en hann gengur
hins vegar sem kunnugt er undir
nafninu Fríkirkjusöfnuðuri'nn í
Reykjavík. Söfnuðurinn er trúfélag
og taka lögin frá 1975 til hans.
Lögin vemda m.a. nafn trúfélaga
þannig að eitt trúfélag getur ekki
notað nafn annars trúfélags eða
mjög líkt nafn. Um þetta segir
svo: „Ekki er heimilt að taka upp
nafn á trúfélagi, sem er með þeim
hætti líkt nafni annars trúfélags,
að misskilningi geti valdið." Einnig
segir: „Trúfélag getur tryggt sér
einkarétt að nafni með því að til-
kynna það til dóms- og kirkjumála-
ráðuneytisins. Ráðuneytið skal
gæta þeás, að nafnið sé ekki notað
af öðmm, að það valdi ekki mis-
skilningi eða fari með öðmm hætti
í bága við allsheijarreglu." Stjóm-
arskráin tryggir mönnum rétt til
að stofna félög í löglegum tilgangi
og þ. á m. rétt til að stofna félög
innan trúfélaga enda hefur sá rétt-
ur verið óspart nýttur, líka í
Fríkirkjunni í Reykjavík. Eitt sinn
var þar starfandi Bræðrafélag
Fríkirkjunnar í Reykjavík. Nú hef-
ur verið stofnað Safnaðarfélag
Fríkirkjunnar í Reykjavík sem opið
er bæði körlum og konum í söfnuð-
inum. Slík safnaðarfélög em starf-
andi í öðmm söfnuðum, t.d. Safn-
aðarfélag Áskirkju. Landslög
banna slíkt ekki, heldur ekki lög
Fríkirkjunnar í Reykjavík. Sam-
kvæmt stjómarskránni þarf ekkert
leyfí til slíks, heldur ekki sam-
kvæmt lögum safnaðarins.
„Stjóm Fríkirkjusafnaðarins í
Reykjavík" hefur ekki amast við
notkun kvenfélagsins á nafni kirkj-
unnar. Er þá rökrétt að amast við
notkun ■ safnaðarfélagsins á nafni
hennar? Er ekki hið besta fólk
báðu megin? Eða em svartir sauð-
ir öðm megin? — Kvenfélagið hef-
ur haldið basar. Má þá ekki safnað-
arfélagið halda basar? — Kvenfé-
lagið hefur fengið prest á sam-
komu hjá sér til hugvekju. Má safn-
aðarfélagið ekki leita til kenni-
manna, fyrrverandi biskupa, starf-
andi presta? Eða leynast svartir
sauðir líka í þeirra hópi? — Kvenfé-
lag Fríkirkjunnar getur sinnt sínu
félagslífí í safnaðarheimilinu, Bet-
aníu. Hví er eigi rúm fyrir Safnað-
arfélag Fríkirkjunnar í þvf „gisti-
húsi" á jólaföstunni?
Safnaðarfélag Fríkirkjunnar í
Reykjavík er félag innan Fríkirkju-
safíiaðarins í Reykjavík. Það
stefnir ekki að klofningi safnaðar-
ins, eins og ranglega hefur verið
haldið fram, heldur sættum í deil-
unni vegna uppsagnar sr. Gunnars
Bjömssonar. Þar er stigið „skref
sem erfítt verður að stíga til baka,
en er þó mögulegt með góðum vilja
allra.“ „Stjóm Fríkirkjusafnaðar-
ins í Reykjavík" hefur að undanf-
ömu neitað að stíga skref til sátta,
vildi ekki ræða við nokkur sóknar-
böm á stjómarftmdi um tveggja
presta kerfi sem sáttaleið, og
reyndar ekki um neitt mál. Hún
vill heldur ekki ræða um aðgang
að safnaðarheimili, en vonandi
breytist þetta fljótt. „Skrefíð til
baka“ yrði skref fram á við.
Stjóm Safnaðarfélags Fríkirkj-
unnar í Reykjavík.
Þorsteinn Þorsteinsson
SÖNG- og
PIANÓBÓK
barnajwa;
UUttsemaUirþekty*
SETBERQ
SPENNA,ÁTÖK OG ÁSTIR
ÞROSKANDI BffiKUR FYRIR BÖRNIN
SÖNG- OG PÍANÓBÓK
Árni Elfar útsetti og valdi lögin.
í þessari sérstæðu bók eru tólf þekkt íslensk lög,
sem allir geta spilað og sungið. Bókin er með
hljómborði, sem hægt er að leika á. Sérstæð og
skemmtilegbók.
Hvad er
klukkan?
Hvemig líta þau út? Hvar eiga þau heima? Bókin
svarar þessum og fjölmörgum öðmm spumingum
á einfaldan og skemmtilegan hátt, með fjörlegum,
fræðandi texta og glæsilegum litmyndum í
hundraðatali.
Þýðing: Óskar Ingimarsson
KLUKKUBÓKIN
Þessi vinsæla bók, sem nú er endurútgefin, á eftir
að auðvelda mörgum ungum lesendum að læra á
klukku. Bókina prýða fallegar myndir, textinn er
einfaldur og síðast en ekki síst eru í bókinni
hreyfanlegir klukkuvísar, sem gera lesturinn enn
skemmtilegri.
r RobertLudlum:
OVÆNT ENDALOK
Frammi fyrir byssukjöftum ofstækisfullra
hermdarverkamanna bíða 236 konur, karlar og börn
, dauða síns.
jFriðsamur öldungadeildarþingmaður bíður fram aðstoð
sína við að leysa þetta skelfilega mál með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum. ÓVÆNT ENDALOK
er bók magnþrungin spennu sem gagntekur lesendur um
heim allan eins og önnur verk ROBERT LUDLUMS.
M Danielle Steel:
ORLAGAÞRÆÐIR
ÁSTARINNAR
Pegar ástin og hamingjan eru allsráðandi í hfi
söguhetjunnarBemie, taka örlögin í taumana. Hann
þarf nú að horfast í augu við nístandi sorg en um leið
heyja baráttu til að halda fjölskyldunni saman. En tekst
honum að sigra?
Að hætti DANIELLE STEEL eru ÖRLÁG APRÆÐIR
ÁSTARINNAR saga mikilla átaka og tilfinninga. Sá
sem les þessa bók, finnur skjótt hvers vegna höfundur
hefur skipað sér á bekk metsöluhöfunda Evrópu og
Ameríku.