Morgunblaðið - 22.12.1988, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
„Síðasta freisting Krísts“:
Martín Scorsese missir
eftir Gunnar J.
Gunnarsson
Þá er hún komin til landsins,
kvikmjmd Martin Scorsese,
„Síðasta freisting Krists“, og sýn-
ingar hafnar. Og það fer hér eins
og annars staðar að spenna magn-
ast kringum myndina og margir
verða til að andmæla henni. Það
þarf engum að koma á óvart sem
hefur séð hana og ber efni hennar
. saman við Nýja testamentið. Nú
segir reyndar í upphafi mjmdarinn-
ar að hún sé ekki byggð á guðspjöll-
unum, heldur á bók gríska rithöf-
undarins Nikos Kazantzakis. Það
er hins vegar augljóst að höfundur
bókarinnar, og þar af leiðandi kvik-
myndin, sækir verulegt efni í guð-
spjöllin og fer síðan með það að
eigin geðþótta.
Kvikmyndin
Kvikmynd Scorsese er tæknilega
vel gerð mynd, leikur er góður og
fleira sömuleiðis. Það vekur hins
vegar athygli að hve langdregin hún
er og ruglingsleg. Það var jafnvel
hægt að látá sér leiðast undir sýn-
ingu hennar, þrátt fyrir áhuga á
efninu. Þá er margt í henni sem
orkar tvímælis hver svo sem afstaða
manna til Jesú Krists er. Það er í
raun kaldhæðið að leikstjóri á borð
við Martin Scorsese, sem á að baki
heimsþekktar myndir, skuli lenda í
þessum ógöngum með mynd sem
hann tekur, tvímælalaust verulega
áhættu með að gera. Skal nú vikið
nánar að því.
Hugmyndafræðilegur
grautur
Það semj fyrst stingur í augu í
kvikmynd Scorsese er hve hún er
mikið hugmyndafræðilegt rugl. f
henni ægir öllu saman. Við sjáum
hugmyndir úr hindúasið og ind-
verskri trúarheimspeki. Jesús er
látinn segja að Guð sé í öllu, hann
sjái ásjónu Guðs í skepnum jarðar,
allt frá maumum og til æðri skepna.
Hér er greinilega á ferðinni algyðis-
leg guðsmynd, sem á ekkert skylt
við guðsmynd Biblíunnar, gyðinga
og kristinna manna og því fráleitt
að leggja Jesú slík orð í munn. Þá
bregður fyrir „mótífum" úr búddha-
Gunnar J. Gunnarsson
„Kvikmynd, sem er full
af fordómum í garð
þess Jesú Krists sem
Biblían boðar og kristn-
ir menn játa tró á, get-
ur aldrei orðið grund-
völlur fordómalausra
og einlægra vanga-
veltna um hver Jesús
var.“
dómi og „occultisma". Þegar Jesú
er freistað í óbyggðinni er hann
látinn draga hring umhverfis sig
og þar situr hann í búddhastellingu
og bíður þess að hljóta „upplýs-
ingu". Annað dæmi um hugmynda-
fræðilegan ruglanda myndarinnar.
Fleira mætti nefna, s.s. uppákom-
una við „Jórdan", þar sem Jóhannes
skírari er að predika. Þá var helst
eins og menn væru allt í einu komn-
ir til Afríku á fund andahyggju-
manna. Það eina sem vantaði var
að menn væru svartir. Þá er í mynd-
inni daðrað við hugmyndina um að
Jesús hafi verið í tengslum við ess-
enana í Dauðahafsóbyggðum o.fl.
Það vekur því nokkra furðu að
menn skuli leyfa sér að kalla mynd-
ina „hættuför um ritninguna" og
„meistarastykki" eins og sá kvik-
myndagagnrýnandi gerir sem
Laugarásbíó vitnar í í auglýsingu á
myndinni. Ef hrærigrautur af þessu
tagi er meistarastykki og hann orð-
aður við heilaga ritningu er mönn-
um eitthvað farið að förlast sýn.
Dýraúrin
Snigill, fiðrildi, önd, mús eða gullfiskur.
Tölvuúrin með mjúku armbandi er jólagjöfin f ár.
Sendum í póstkröfu. Kr. 695,-
Leikfangasalan,
Laugavegi 91,2. hæð,
sími 623868.
marks
Kristsímyndin
Martin Scorsese hefur lýst því
yfir að hann hafi með þessari kvik-
mynd viljað draga upp mynd af
mannlegu hliðinni á Jesú. Auðvitað
er það gott og rétt að draga það
fram að Jesús var maður. En sú
viðleitni hlýtur að gerast með fullri
virðingu fýrir persónu hans og að
hann var líka Guð, kominn til
manna í mannlegu holdi. Þar bregst
Scorsese gjörsamlega bogalistin.
Myndin sem hann dregur upp er í
raun án allrar virðingar fyrir per-
sónu Jesú. Hér verður að hafa í
huga að hann er ekki að fást við
einhveija skáldsagnapersónu, þótt
hann telji sig byggja kvikmyndina
á skáldsögu. Jesú Kristur er raun-
veruleg persóna sem var uppi á til-
teknum tíma við tiltekna aðstæður.
Myndin sem kvikmyndin dregur
upp er af veikgeðja manni, sem
virðist vera hálf ruglaður og fullur
af efasemdum. Hann er veikur fyr-
ir hvers kyns freistingum á borð
við losta, reiði, stolt og valdalöng-
un. Hann lýsir því yfir að hann sé
lygari, hræsnari og óttist allt. Hann
gimist hveija þá konu sem hann
sér, en lætur þó ekki eftir sér að
taka hana og það fyllir hann stolti.
Hann velkist í vafa um sjálfan sig,
hver hann er og af hveijum hann
stjómast. Guð hans er óttinn og
Lúsifer (Satan) er í honum og seg-
ur honum að hann sé ekki maður
heldur Guð. Allt fram á síðustu
stundu er hann tvístígandi og til
að losna úr klípunni fær hann Júd-
as, sem alla myndina er hinn sterki,
til að svíkja sig. Draumatriðið al-
ræmda á krossinum er í raun rök-
rétt framhald af þessari afskræmdu
mynd af Kristi.
Það er ljáot að í myndinni er
Jesús gerður jrfirmáta sjmdugur og
veikgeðja maður sem veit ekki hver
hann er eða hvað hann vill. Hafi
Martin Scorsese ætlað að sýna
mannlegan Jesúm þá inissir hann
algjörlega marks og situr uppi með
þá dapurlegu niðurstöðu að hafa
eingöngu dregið Jesúm Krist niður
í svaðið.
Guðspjöllin lýsa Jesú Kristi vissu-
lega sem raunvemlegum manni.
Hann hungrar, grætur, æðrast og
þjáist og hans er freistað. En um
leið er honum lýst sem sjmi Guðs,
hann er Guð orðinn maður, sem er
án syndar, meðvitaður um messías-
artign sína og drottinvald. Hann
deyr á krossi, saklaus í stað sekra
manna, og rís upp frá dauðum fyr-
ir kraft Guðs. Scorsese lýkur mynd
sinni þar sem Jesús deyr á krossin-
um. Sumir hafa talið það myndinni
til tekna. Það er þó hæpið. í henni
er engin upprisa, engin sigur. Mis-
heppnaður byltingarleiðtogi getur
ekkert annað en dáið á krossi. Þar
átti hann heima, eins og Júdas
komst að orði undir lok draumaat-
riðisins.
Hvers vegna?
Það er nærtækt að spyija: Hvers
vegna gera menn slíka mynd? Hvað
fær menn til að taka Jesúrh Krist,
sem í huga kristinna manna er heil-
ög persóna, og gera úr honum það
sem mjmdin gerir? Myndin er í raun
lævís árás á kristna trú. Það kemur
vel í ljós þegar skoðuð er Krists-
ímynd myndarinnar og ekki síður
þegar horft er á hvemig farið er
með Pál postula og predikun hans
um Jesúm Krist, sem dáinn og upp-
risinn frelsara mannanna, í
draumaatriðum á krossinum. Páll
og boðskapur hans er gerður hlægi-
legur. Hann er lygari og hræsnari
og þeir sem trúa orðum hans aumk-
unarverðir bjánar.
Með þetta í huga vekur það at-
hygli að greinarhöfundur í Morgun-
blaðinu 13. nóvember sl. skuli halda
því fram að kvikmynd Martins Scor-
sese geti aðeins verið til góðs. og
ef'eitthvað er kærkomin þeim sem
vilja og þora að velta fyrir sér
spumingunni „Hver var Jesú?“ á
fordómalausan, _ einlægan hátt.
Kvikmynd, sem er full af fordómum
í garð þess Jesú Krists sem Biblían
boðar og kristnir menn játa trú á,
getur aldrei orðið grundvöllur for-
dómalausra og einlægra vanga-
veltna um hver Jesus var. Sumir
segja myndina „gott innlegg í um-
ræðuna" um Jesúm Krist. Það get-
ur hún aldrei kallast, einmitt vegna
þeirrar skmmskælingar og hug-
myndafræðilega mglanda sem hún
hefur að geyma. Því er nær að taka
undir með biskupi íslands er hann
segir mjmdina óhæfuverk.
Niðurlag
Martin Scorsese endar mynd sína
á orðum Jesú á krossinum: „Það
er fullkomnað." Það gerir greinar-
höfundur Morgunblaðsins einnig og
sjálfsagt fleiri. Eftir að hafa séð
myndina og gengið út af henni
hryggur og sár og fullur undmnar
og vonbrigða komu önnur orð Krists
á krossinum upp í hugann sem mér
finnast betur eiga við. Hér em á
ferð menn sem vita ekki hvað þeir
em að gera, ekkert frekar en róm-
versku hermennimir sem krossfestu
Jesúm Krist forðum. Bæn Jesú á
krossinum er bæn fyrir okkur öllum.
Þeirra bænar er nú þörf: „Faðir,
fyrirgef þeim, því þeir vita ekki
hvað þeir gjöra."
Höfúndur er guðfræðingur að
mennt ogstarfar sem fram-
kvæmdastjórí KFUM ogKFUK í
Reykja vík og er auk þess stunda-
kennarííkrístnum fræðum við
Kennarah&skóla íslands.
TC0CAS8ETTE
lirþúímyndgæðin?
eruhágæða myndbönd,
á betra verði en eldri og
ófullkomnari myndbönd.
HighQualltyTape
Fáðumeira
fyrir krónurnar þínar, - spáðu í
Skipholti31 - Sími 680450
Innilegt þakklœti til allra þeirra, er sýndu mér
hlýhug og vinsemd ú 90 ára afmœli mínu.
Bestu jóla- og nýjársóskir.
Friðbjörg Eyjólfsdóttir.
Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem
glöddu mig á 70 ára afmœli mínu með heim-
sóknum, kveðjum og gjöfum.
Guð blessi ykkur öll!
Með bestu jólakveðju,
Þórhallur Halldórsson
frá A rngerðareyri.
Áskriftarsíminn er 83033