Morgunblaðið - 22.12.1988, Page 52

Morgunblaðið - 22.12.1988, Page 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988 „Síðasta freisting Krísts“: Martín Scorsese missir eftir Gunnar J. Gunnarsson Þá er hún komin til landsins, kvikmjmd Martin Scorsese, „Síðasta freisting Krists“, og sýn- ingar hafnar. Og það fer hér eins og annars staðar að spenna magn- ast kringum myndina og margir verða til að andmæla henni. Það þarf engum að koma á óvart sem hefur séð hana og ber efni hennar . saman við Nýja testamentið. Nú segir reyndar í upphafi mjmdarinn- ar að hún sé ekki byggð á guðspjöll- unum, heldur á bók gríska rithöf- undarins Nikos Kazantzakis. Það er hins vegar augljóst að höfundur bókarinnar, og þar af leiðandi kvik- myndin, sækir verulegt efni í guð- spjöllin og fer síðan með það að eigin geðþótta. Kvikmyndin Kvikmynd Scorsese er tæknilega vel gerð mynd, leikur er góður og fleira sömuleiðis. Það vekur hins vegar athygli að hve langdregin hún er og ruglingsleg. Það var jafnvel hægt að látá sér leiðast undir sýn- ingu hennar, þrátt fyrir áhuga á efninu. Þá er margt í henni sem orkar tvímælis hver svo sem afstaða manna til Jesú Krists er. Það er í raun kaldhæðið að leikstjóri á borð við Martin Scorsese, sem á að baki heimsþekktar myndir, skuli lenda í þessum ógöngum með mynd sem hann tekur, tvímælalaust verulega áhættu með að gera. Skal nú vikið nánar að því. Hugmyndafræðilegur grautur Það semj fyrst stingur í augu í kvikmynd Scorsese er hve hún er mikið hugmyndafræðilegt rugl. f henni ægir öllu saman. Við sjáum hugmyndir úr hindúasið og ind- verskri trúarheimspeki. Jesús er látinn segja að Guð sé í öllu, hann sjái ásjónu Guðs í skepnum jarðar, allt frá maumum og til æðri skepna. Hér er greinilega á ferðinni algyðis- leg guðsmynd, sem á ekkert skylt við guðsmynd Biblíunnar, gyðinga og kristinna manna og því fráleitt að leggja Jesú slík orð í munn. Þá bregður fyrir „mótífum" úr búddha- Gunnar J. Gunnarsson „Kvikmynd, sem er full af fordómum í garð þess Jesú Krists sem Biblían boðar og kristn- ir menn játa tró á, get- ur aldrei orðið grund- völlur fordómalausra og einlægra vanga- veltna um hver Jesús var.“ dómi og „occultisma". Þegar Jesú er freistað í óbyggðinni er hann látinn draga hring umhverfis sig og þar situr hann í búddhastellingu og bíður þess að hljóta „upplýs- ingu". Annað dæmi um hugmynda- fræðilegan ruglanda myndarinnar. Fleira mætti nefna, s.s. uppákom- una við „Jórdan", þar sem Jóhannes skírari er að predika. Þá var helst eins og menn væru allt í einu komn- ir til Afríku á fund andahyggju- manna. Það eina sem vantaði var að menn væru svartir. Þá er í mynd- inni daðrað við hugmyndina um að Jesús hafi verið í tengslum við ess- enana í Dauðahafsóbyggðum o.fl. Það vekur því nokkra furðu að menn skuli leyfa sér að kalla mynd- ina „hættuför um ritninguna" og „meistarastykki" eins og sá kvik- myndagagnrýnandi gerir sem Laugarásbíó vitnar í í auglýsingu á myndinni. Ef hrærigrautur af þessu tagi er meistarastykki og hann orð- aður við heilaga ritningu er mönn- um eitthvað farið að förlast sýn. Dýraúrin Snigill, fiðrildi, önd, mús eða gullfiskur. Tölvuúrin með mjúku armbandi er jólagjöfin f ár. Sendum í póstkröfu. Kr. 695,- Leikfangasalan, Laugavegi 91,2. hæð, sími 623868. marks Kristsímyndin Martin Scorsese hefur lýst því yfir að hann hafi með þessari kvik- mynd viljað draga upp mynd af mannlegu hliðinni á Jesú. Auðvitað er það gott og rétt að draga það fram að Jesús var maður. En sú viðleitni hlýtur að gerast með fullri virðingu fýrir persónu hans og að hann var líka Guð, kominn til manna í mannlegu holdi. Þar bregst Scorsese gjörsamlega bogalistin. Myndin sem hann dregur upp er í raun án allrar virðingar fyrir per- sónu Jesú. Hér verður að hafa í huga að hann er ekki að fást við einhveija skáldsagnapersónu, þótt hann telji sig byggja kvikmyndina á skáldsögu. Jesú Kristur er raun- veruleg persóna sem var uppi á til- teknum tíma við tiltekna aðstæður. Myndin sem kvikmyndin dregur upp er af veikgeðja manni, sem virðist vera hálf ruglaður og fullur af efasemdum. Hann er veikur fyr- ir hvers kyns freistingum á borð við losta, reiði, stolt og valdalöng- un. Hann lýsir því yfir að hann sé lygari, hræsnari og óttist allt. Hann gimist hveija þá konu sem hann sér, en lætur þó ekki eftir sér að taka hana og það fyllir hann stolti. Hann velkist í vafa um sjálfan sig, hver hann er og af hveijum hann stjómast. Guð hans er óttinn og Lúsifer (Satan) er í honum og seg- ur honum að hann sé ekki maður heldur Guð. Allt fram á síðustu stundu er hann tvístígandi og til að losna úr klípunni fær hann Júd- as, sem alla myndina er hinn sterki, til að svíkja sig. Draumatriðið al- ræmda á krossinum er í raun rök- rétt framhald af þessari afskræmdu mynd af Kristi. Það er ljáot að í myndinni er Jesús gerður jrfirmáta sjmdugur og veikgeðja maður sem veit ekki hver hann er eða hvað hann vill. Hafi Martin Scorsese ætlað að sýna mannlegan Jesúm þá inissir hann algjörlega marks og situr uppi með þá dapurlegu niðurstöðu að hafa eingöngu dregið Jesúm Krist niður í svaðið. Guðspjöllin lýsa Jesú Kristi vissu- lega sem raunvemlegum manni. Hann hungrar, grætur, æðrast og þjáist og hans er freistað. En um leið er honum lýst sem sjmi Guðs, hann er Guð orðinn maður, sem er án syndar, meðvitaður um messías- artign sína og drottinvald. Hann deyr á krossi, saklaus í stað sekra manna, og rís upp frá dauðum fyr- ir kraft Guðs. Scorsese lýkur mynd sinni þar sem Jesús deyr á krossin- um. Sumir hafa talið það myndinni til tekna. Það er þó hæpið. í henni er engin upprisa, engin sigur. Mis- heppnaður byltingarleiðtogi getur ekkert annað en dáið á krossi. Þar átti hann heima, eins og Júdas komst að orði undir lok draumaat- riðisins. Hvers vegna? Það er nærtækt að spyija: Hvers vegna gera menn slíka mynd? Hvað fær menn til að taka Jesúrh Krist, sem í huga kristinna manna er heil- ög persóna, og gera úr honum það sem mjmdin gerir? Myndin er í raun lævís árás á kristna trú. Það kemur vel í ljós þegar skoðuð er Krists- ímynd myndarinnar og ekki síður þegar horft er á hvemig farið er með Pál postula og predikun hans um Jesúm Krist, sem dáinn og upp- risinn frelsara mannanna, í draumaatriðum á krossinum. Páll og boðskapur hans er gerður hlægi- legur. Hann er lygari og hræsnari og þeir sem trúa orðum hans aumk- unarverðir bjánar. Með þetta í huga vekur það at- hygli að greinarhöfundur í Morgun- blaðinu 13. nóvember sl. skuli halda því fram að kvikmynd Martins Scor- sese geti aðeins verið til góðs. og ef'eitthvað er kærkomin þeim sem vilja og þora að velta fyrir sér spumingunni „Hver var Jesú?“ á fordómalausan, _ einlægan hátt. Kvikmynd, sem er full af fordómum í garð þess Jesú Krists sem Biblían boðar og kristnir menn játa trú á, getur aldrei orðið grundvöllur for- dómalausra og einlægra vanga- veltna um hver Jesus var. Sumir segja myndina „gott innlegg í um- ræðuna" um Jesúm Krist. Það get- ur hún aldrei kallast, einmitt vegna þeirrar skmmskælingar og hug- myndafræðilega mglanda sem hún hefur að geyma. Því er nær að taka undir með biskupi íslands er hann segir mjmdina óhæfuverk. Niðurlag Martin Scorsese endar mynd sína á orðum Jesú á krossinum: „Það er fullkomnað." Það gerir greinar- höfundur Morgunblaðsins einnig og sjálfsagt fleiri. Eftir að hafa séð myndina og gengið út af henni hryggur og sár og fullur undmnar og vonbrigða komu önnur orð Krists á krossinum upp í hugann sem mér finnast betur eiga við. Hér em á ferð menn sem vita ekki hvað þeir em að gera, ekkert frekar en róm- versku hermennimir sem krossfestu Jesúm Krist forðum. Bæn Jesú á krossinum er bæn fyrir okkur öllum. Þeirra bænar er nú þörf: „Faðir, fyrirgef þeim, því þeir vita ekki hvað þeir gjöra." Höfúndur er guðfræðingur að mennt ogstarfar sem fram- kvæmdastjórí KFUM ogKFUK í Reykja vík og er auk þess stunda- kennarííkrístnum fræðum við Kennarah&skóla íslands. TC0CAS8ETTE lirþúímyndgæðin? eruhágæða myndbönd, á betra verði en eldri og ófullkomnari myndbönd. HighQualltyTape Fáðumeira fyrir krónurnar þínar, - spáðu í Skipholti31 - Sími 680450 Innilegt þakklœti til allra þeirra, er sýndu mér hlýhug og vinsemd ú 90 ára afmœli mínu. Bestu jóla- og nýjársóskir. Friðbjörg Eyjólfsdóttir. Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem glöddu mig á 70 ára afmœli mínu með heim- sóknum, kveðjum og gjöfum. Guð blessi ykkur öll! Með bestu jólakveðju, Þórhallur Halldórsson frá A rngerðareyri. Áskriftarsíminn er 83033

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.