Morgunblaðið - 22.12.1988, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
4
Perestrojka í skákheiminum:
Teflt við óvígan sov-
ézkan her í Belgrad
Skák
Margeir Pétursson
ÞAÐ voru mörg met slegin og
margar brýr brúaðar á fyrsta
opna móti stórmeistarasambands-
ins sem fram fór í Belgrad í Júgó-
slavíu fyrr í þessum mánuði. 011-
- um stórmeisturum voru boðin sér-
stök kjör ef þeir vildu mæta til
leiks og 102 slikir þáðu gott boð,
sumir e.t.v. ekki síður til að bera
dýrðina augum, en vegna vonar
um hlutdeild í verðlaununum.
Ríflegur þriðjungur af öllum stór-
meisturum heimsins kom því á
mótið og er það algjört heims-
met, jafnvel á Ólympíuskákmót-
um eru ekki nærri svo margir
slíkir samankomnir. í Belgrad var
teflt um 100.000 Bandaríkjadali,
eða jafnvirði 4,5 milljóna ísl.
króna og er slíkur verðlaunasjóð-
ur algjört einsdæmi í kommúnist-
alandi.
Alls tefldu 260 skákmenn frá 25
löndum á mótinu og var stigalág-
HVÍTI PUNKTURINN
TRYGGIR GÆÐEN
markið þó 2.350 stig, sem er býsna
hátt á opnu móti. Mestu munaði um
þátttöku 70 Sovétmanna, þar af 35
stórmeistara. Margir þeirra voru
þama í fyrsta sinn að tefla utan síns
heimalands og fengu langþráð tæki-
færi til að spreyta sig í alþjóðlegri
keppni. Perestrojka Gorbatsjovs,
Sovétleiðtoga, hefur því ekki haft
lítil áhrif í skákheiminum; fyrir
nokkrum árum hefði slík hópferð
verið alveg óhugsandi.
Þetta reyndist líka vera mót tæki-
færanna, ungur og nærri alveg
óþekktur Sovétmaður, Igor Naumk-
in, með aðeins 2.445 stig var einn
af mörgum Sovétmönnum á mótinu
sem seldi skákbækur í byijun móts-
ins til að eiga fyrir dvalarkostnaðin-
um. (Ég keypti t.d. ófáanlega ævi-
sögu Leonids heitins Stein af honum
á 110 krónur og vorum við báðir
hæstánægðir með kaupin.) Hann lét
ekki tækifærið sér úr greipum
ganga, vann marga þekkta stór-
meistara, þar á meðal næststiga-
hæsta þátttakandann, Tékkann
Ftacnik, í síðustu umferð. í lokin
stóð Naumkin uppi sem einn af sig-
urvegurunum sem fengu hver jafn-
Dé Longhi djúp-
steikingarpotturinn
er byltingarkennd
nýjung
Helstu útsölustaðir utan
Reykjavíkur:
Bókabúðin Veda, Kópavogi
Bókabúð Olivers Steins,
Hafnarfirði
Bókabúð Böðvars, Hafnarfirði
Bókabúð Keflavíkur, Keflavík
Bókabúð Jónasar, Akureyri
Bókval, Akureyri
Bókabúð Jónasar
Tómassonar, ísafirði
QóÚ gjöp scm flleður
SHEAFFER
Hallandi karfa, sem snýst
meðan á steikingu stendur:
* jafnari steiking
*notaraðeins 1,2 Itr. afolíu
í stað 3ja Itr. í "venjulegum"
pottum
*styttri steikingartími
*50% orkusparnaður
Potturinn er lokaður meðan á
steikingu stendur. Fitu- og
kolsía tryggja hreinlæti og
eyða lykt. Hægt er að fylgjast
með steikingunni gegnum sjálf-
hreinsandi glugga.
Hitaval 140 -190 C. - 20 mín.
tímarofi með hljóðmerki.
■50%
(DeLonghf)
Dé Longhi erfallegur
fyrirferdarlitill ogfljótur
iFOnix
HÁTÚNI6ASIMI (91)24420
virði u.þ.b. 8 þúsund Bandaríkjadala
í sinn hlut, eða sem svarar 400 þús-
und íslenskum krónum. Það má lifa
býsna lengi á slíkri fúlgu austan
tjalds. Að auki náði hann stórmeist-
araáfanga ásamt 10 skákmönnum
öðrum á mótinu, sumum hvetjum
lítt þekktum Sovétmönnum.
Það var ómetanleg reynsla að
tefla í þessu móti og mér hefur aldr-
ei orðið jafn berlega ljós gífurlegur
styrkur og breidd sovézka skákskól-
ans. Þama tefldu margir óþekktir
meistarar, sem hafa ekki fyrr þótt
hæfír til útflutnings, en myndu tefla
sig léttilega inn í ólympíulið margra
vestrænna landa, ef þeir fengju
tækifæri. Samkeppnin heima fyrir
er því gífurlega hörð, fremstu skák-
menn Sovétmanna eru frá blautu
bamsbeini hertir í frumskógi und-
anrása og milliriðla sovézka meist-
aramótsins. Sem betur fer virðist
ekki lengur skipta eins miklu máli
að koma sér vel við þá sem valdið
hafa, að minnsta kosti ef haldið verð-
ur áfram á þeirri braut sem hafin
var í Belgrad.
Það var fyrir tilhlutan stórmeist-
arasambandsins að þetta einstæða
mót var haldið, án þeirra Gary Ka-
sparovs, heimsmeistara og formanns
sambandsins og Hollendingsins
Bessel Kok, framkvæmdastjóra
þess, hefði það verið óhugsandi.
Dapurt ástand júgóslavnesks efna-
hagslífs leyflr ekki munað við borð
við þetta mót og verðlaunasjóðurinn
kom erlendis frá. Leitað var á ný
og óvænt mið um fjáröflun, sovézka
útflutningsfyrirtækið Contour coop-
erative lagði fram 60 þúsund dali,
en hina 40 þúsund dalina reiddi
Bessel Kok fram úr eigin vasa. Þar
sem júgóslavneska flugfélagið JAT
lagði til ferðir og uppihald gestkom-
andi stórmeistara gekk dæmið upp.
Heimamaður sigraði óvænt
Þrátt fyrir alla sovézku gestina
var það þó heimamaður sem stal
gjörsamlega senunni, stórmeistarinn
Krunoslav Hulak frá Zagreb, sem
fyrir fram var aðeins í 69. sæti í
styrkleikleikaröðinni, með 2.490
stig. Hann vann það ótrúlega afrek
að vinna sex fyrstu skákimar og var
kominn með _ vinnings forskot á
næstu menn. í sjöundu umferð kom
áfall, hann lék sig í mát eftir rúm-
lega tuttugu leiki gegn ungum Sov-
étmanni, Evgeny Bareev. Eftir þá
hroðalegu útreið gerði Hulak stutt
jafntefli í tveimur síðustu skákum
sínum, en Bareev tapaði hins vegar
fyrir kunningja okkar, Mikhail
Gurevich, stigahæsta manni móts-
ins, sem tefldi bæði í Reykjavík og
á Akureyri í febrúar og mars. Fimm
skákmönnum tókst að ná Hulak að
vinningum í lokin, en hann var úr-
Skólavörðustíg 17a, sími 25115.
Júgóslavinn Hulak kom mjög á
óvart og var úrskurðaður sigur-
vegari á stigum á mótinu í
Belgrad, þar sem hann tefldi við
stigahærri andstæðinga en Sov-
étmennirnir Smm sem fengu
jafnmarga vinninga.
skurðaður sigurvegari þar sem hann
hafði mætt erfíðustu andstæðingun-
um.
Auk þess sem verið var að tefla
um há verðlaun var mótið undan-
rásariðill fyrir heimsbikarkeppnina
1991-92. Átta efstu sætin gáfu rétt
til að tefla í lokaúrtökumótinu, sem
fram mun væntanlega fara í New
York 1990. Eftir góða byijun mína
gerði ég mér vonir um að lenda í
þessum hópi, en í síðustu þremur
umferðunum lenti ég gegn þremur
sovézkum stórmeisturum, fyrst gegn
Dokhojan með svörtu, Polugajevsky
með hvítu og loks Sveschnikov með
svörtu í síðustu umferð. Mér þótti
ekki sérstaklega fysilegt að tefla á
tvær hættur gegn þessum mönnum
og öllum skákunum lauk með jafn-
tefli í innan við 20 leikjum. Fyrir
síðustu umferð mat ég stöðuna
þannig að rétt væri að stefna að
jafntefli á svart, þar sem ég stóð
vel að vígi hvað stigaútreikning
varðaði. Ég vildi heldur alls ekki
eyðileggja góðan árangur með
fífldirfsku í lokin. Jafnteflið reyndist
samt ekki duga nema í níunda sætið
og af þeim átta sem komust áfram
voru sjö Sovétmenn. Ég held ég
skilji þá afstöðu Bobby Fischers bet-
ur núna, þegar hann barðist fyrir
því að fjöldi manna frá sömu þjóð í
heimsmeistarakeppninni yrði tak-
markaður og samlöndum bannað að
tefla innbyrðis í lokaumferðum
móta.
Helgi Ólafsson tapaði óvænt fyrir
Naumkin í annarri umferð og virtist
það hleypa í hann mikilli hörku, fram
í næstsíðustu umferð átti hann
möguleika á að komast áfram, en
þá gerði hann jafntefli við komung-
an og efnilegan Sovétmann,
Dzandgava, sem náði þama stór-
meistaraáfanga.
Urslit mótsins:
1.-6. Hulak (Júgóslavíu), Naumk-
in, Psakhis, M. Gurevich, Pigusov
og Polugajevsky (allír frá Sovétríkj-
unum) 7 v.
7.-15. Timoshenko og Bareev
(báðir frá Sovétríkjunum), Margeir
Pétursson, Sveschnikov, Dzandgava
og Dorfman (allir frá Sovétríkjun-
um), Dizdar (Júgóslavíu), Helgi Ól-
afsson og Wilder (Bandaríkjunum)
6V2 v.
16.-45. Arkhipov, Azmaparas-
hvili, Bykhovsky, Chemin, Dokhoj-
an, Dolmatov, Eingom, Geller, Glek,
Karpman, Moskalenko, Orlov, A.
Petrosjan, Razuvajev, Shabalov,
Shneider, Taimanov og Vaiser (allir
frá Sovétríkjunum),
Cvitan, Drashko, Ivanovic og Ve-
limirovic (Júgóslavíu), Xu Jun og
Ye Yongcuang (báðir frá Kína),
Anand (Indlandi), Lobron (V-Þýzka-
landi), Van der Wiel (Hollandi),
Groszpeter (Ungverjalandi), Miles
(Englandi) og Todorcevic (Mónakó)
6 v.
í upptalningunni em keppendur
sem fengu 7 v. og 6V2 v. taldir upp
í röð eftir því sæti sem þeir fengu
úthlutað eftir stigaútreikningi, en
þeim sem fengu sex vinninga er
raðað eftir handahófi.
Það urðu margir þekktir skák-
menn neðar í röðinni. Jón L. Áma-
son varð að láta sér nægja 50% vinn-
ingshlutfall og hlaut 4V2 v. ásamt
13 öðrum stórmeisturum. Jón byij-
aði mjög illa á mótinu, vanmat
greinilega andstæðinga sína. í
venjulegum opnum mótum skiptir
slök byijun oft litlu máli, því eftir
töp fá menn oft nokkra létta and-
stæðinga í röð og eru fljótir að vinna
sig aftur upp. I Belgrad var hins
vegar ekki um neitt slíkt að ræða,
það var hreinlega allt of mikið af
sterkum mönnum. T.d. mátti oft sjá
tvo sovézka stórmeistara tefla sam-
an langt í burtu frá efstu borðunum.
Jón losnaði þvi aldrei við þá tilfínn-
ingu að hann væri staddur á jám-
brautarstöð í Moskvu, eins og hann
orðaði það sjálfur.
Ég tefldi við hvorki meira né
minna en sex Sovétmenn í Belgrad
og Helgi við fímm. í framhaldi af
þessu má nefna að á New York
Open-mótinu í vor tefldi ég sjö skák-
ir og þar af við lj'óra Júgóslava. Það
verður fróðlegt að sjá af hvaða þjóð-
flokki andstæðingamir verða þegar
við mætum til leiks á svipuðu skák-
móti sem boðað hefur verið í Moskvu
næsta vor.
Aðstæður á mótinu í Belgrad vom
býsna góðar, sérstaklega í kemur
það vel út í samanburði við fjölmenn
opin mót vestanhafs. Keppendur
bjuggu og tefldu á einu stærsta gisti-
húsi borgarinnar, hótel Jugoslavija,
sem stendur á bökkum Dónár. Áð-
búnaður þar var ágætur. Yfírdómar-
ar mótsins voru tveir, Bozidar Kazic
frá Júgóslavíu, og Hollendingurinn
Geurt Gijssen, sem sá um að raða
saman andstæðingum í hverri um-
ferð. Gijssen er virtasti skákdómar-
inn um þessari mundir, enda gekk
mótið snurðulaust fyrir sig.
Stefna stórmeistarasambandsins
er að halda tvö önnur slík mót og
munu átta skákmenn til viðbótar
komast áfram úr hvoru þeirra. Er
ætlunin að opna mótið í New York
um páskana verði næst og hugmynd-
ir eru uppi um að halda mót í Moskvu
í maí.
Hér fylgja tveir íslenskir sigrar
frá mótinu í Belgrad. Ég á í höggi
við sovézkan huldumann, sem hafði
þó 2.500 stig og náði áfanga að stór-
meistaratitli í Belgrad, þrátt fyrir
þessa skák. Helgi teflir við gamlan
kunningja, enska stórmeistarann
James Plaskett. Skákin var tefld í
síðustu umferð, þegar báðir þurftu
nauðsynlega á vinningi að halda til
að næla í bitastæð verðlaun.
Hvitt: Margeir Pétursson
Svart: Glek (Sovétríkjunum)
Kóngsindversk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - g6 3. Rc3 -
Bg7 4. e4 - d6 5. Be2 - 0-0 6.
Bg5 - Ra6 7. Dd2
Svartur svarar Averbakh-afbrigði
hvíts á býsna óvenjulegan hátt. Hér
mátti einnig leika 7. f4!? og reyna
að blása til stórsóknar.
7. - e5 8. d5 - De8 9. Bf3 - Rh5!
Frumleg taflmennska svarts í
byijunni hefur heppnast nokkuð vel.
Hann tekur á sig tvípeð á h-línunni,
en fær í staðinn biskupaparið og
möguleika 4 sóknarfærum eftir hálf-
opinni g-línunni.
10. Bxh5 — gxh5 11. Rge2 — f5
12. exf5 — Bxf5 13. Rg3
Upp er komin mjög athyglisverð
staða þar sem baráttan stendur fyrst
og fremst um yfírráð yfir e4 reitn-
um. Ég hafði þurft að nota mikinn
tíma í byijuninni og hafði eytt u.þ.b.
50 mínútum þegar hér var komið
sögu. Andstæðingi mínum höfðu
hins vegar nægt 15 mínútur, en nú
lagðist hann sem betur fer í þunga
þanka og eyddi klukkustund á næsta
leik
13. - e4 14. 0-0?!
Hér var nákvæmara að leika 14.
Bh6! oglíklega stendur hvítur heldur
betur. Ég hafði hins vegar enn ekki
áttað mig á því að bezta áætlun
hvíts er að skipta upp á svartreita-
biskupum, hróka og leika Khl,
sprengja síðan upp miðborðið með
f2-f3. Eftir þessa ónákvæmni verður
hvítur að eyða tveimur leilqum (Be3
og Bd4) í að skipta upp á biskupum,
en hefði getað látið einn nægja.
14. - Dg6 15. Be3 - Hae8 16.
Khl - Bd7
Eftir skákina taldi Glek að þessi
leikur væri rangur og benti á 16. —
h4 17. Rxf5 - Hxf5 18. f3 - exf3
19. gxf3 — Dh5. Möguleikar hvíts
eru þó betri eftir 20. f4.
17. f3! - exf3 18. gxf3