Morgunblaðið - 22.12.1988, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
57
PEISINN
Kirkjuhvoli simi 20160
Búnaðarfélag íslands:
Alyktun um gróður-
vernd og beitarmál
STJÓRN Búnaðarfélagfs íslands
hefur sent frá sér eftirfarandi
ályktun vegna umræðna í fjöl-
miðlum undanfarið um gróður-
verndarmál og búfjárbeit:
„Stjóm Búnaðarfélags íslands
telur að þær miklu umræður um
búflárbeit og ástand gróðurs sem í
gangi em séu ekki óeðlilegar og
beri vott um vakandi áhuga almenn-
ings á skynsamlegri landnýtingu
og umhverfismálum almennt.
Á hinn bóginn harmar hún öfgar
og skilningsskort sem of oft setja
svip sinn á umræðumar.
Því telur stjómin nauðsynlegt að
bændasamtökin leggi sig fram um
að kryfja þessi mál til mergjar og
skýri stefnu sína og sjónarmið fyrir
bændastéttinni og öllum almenn-
ingi. Samkvæmt því mun hún hlut-
ast til um að gróðurvemd og beitar-
mál verði til umfjöllunar á Búnaðar-
þingi 1989.“
Snyrtivöruverslunin
SANÐRA
‘Kcykjavídurvegi 50
Sími: 53422
AÐVENTAN
Kynnum í dag
nýja ilmvatnið
- KNO WING -
frá
Estée Lauder
eftirHákon
Jóhannesson
Enn einu sinni erum við í að-
ventu. Aðventa þýðir „koma“ og
er bytjun kirkjuársins. Aðventa
beinir hugsunum okkar að fæðingu
Drottins Jesú. Aðventa er einnig
sá tími sem líður á undan endur-
komu Drottins Jesú.
Fyrir mörgum öldum var að-
ventutímanum líkt við lokaðan
tíma. Engar giftingar áttu sér stað
og enginn veraldlegur fagnaður var
leyfður. Ætlast var til þess að allir
helguðu sig með iðrun og föstu
0g að hver og einn undirbyggi sig
fyrir endurkomu Drottins og
minntust fæðingar Hans og vænt-
anlegrar birtingar.
Endurkoma Krists
Þegar Jesús sagði: Þegar ég er
farinn burt og hef búið yður stað,
kem ég aftur og tek yður til mín,
svo að þér séuð einnig þar sem ég
er, “ benti hann á endurkomu sína
í fyrri upprisunni. Þessi orð sem
Hann mælti vom loforð til þeirra
sem fylgdu Honum meðan Hann
var meðal okkar hér á jörðinni og
til þeirra sem síðar fylgdu Honum
í gegnum erindreka Hans, nánar
tiltekið postulum Hans.
Þannig segir af hinum fyrstu
kristnu mönnum: „Þeir ræktu trú-
lega uppfræðslu postulanna og
samfélagið, brotning brauðsins og
bænirnar.“
Undirbúningur fyrir endurkom-
una og það að vera þess verðugur
að fara með Drottni Jesús varð
þungamiðjan í trúarlífi hins end-
urfædda kristna manns.
Endurfæðingin
Um endurfæðinguna sagði Jes-
ús við Nikódemus: „Enginn getur
komist inn í Guðsríki nema hann
fæðist af vatni og anda.“ Heilög
skím (með vatni) og heilög innsigl-
un (með heilögum anda) koma
þannig sameiginlega til leiðar end-
urfæðingunni. Hinir fyrstu kristnu
menn meðtóku heilagan anda fyrir
bæn og handayfírlagningu lifandi
postula (heilög innsiglun), eftir að
hafa skírst vatnsskím (heilög skím)
samanber frásögn 8. kafla postula-
sögunnar, versi 14-17. Aðeins
handhafar hins postullega emb-
ættis, postulamir, höfðu vald og
umboð til þess að útdeila hinum
heilaga anda í sál hins trúaða.
Faðirinn einn veit
En hvað er endurkoman og hve-
nær á hún sér stað? Hinu síðar-
nefnda er svarað í Matteusarguð-
spjalli 24.36: „En þann dag og
stund veit enginn, hvorki englar á
himnum né Sonurinn, enginn nema
Faðirinn einn.“ Við endurkomuna
mun Drottinn Jesús koma til sinna
eigin, samkvæmt áðumefndu lof-
orði sínu. Jóhannes postuli skrifar
til guðsbama um þennan himneska
atburð. „Það er ennþá ekki orðið
bert hvað vér munum verða. Vér
vitum að þegar Hann birtist, þá
munum vér verða Honum líkir, því
Höfimdur er safhaðarprestur
Nýju Postulakirkjunnar & íslandi.
að vér munum sjá hann eins og
Hann er.“ (1. Jóh. 3,2.) Þannig
verður endurkoman, eða hin fyrri
upprisa uppfylling á loforði Drott-
ins Jesú og munu þá líkamar frum-
burðanna og sigurvegaranna fyrir
tilstilli Hans umbreytast í dýrðlegri
ummyndun.
Þessi atburður var ofarlega í
hugum postulanna er þeir rituðu til
guðsbama. Páll postuli skrifar:
„ Vér munum ekki allir sofa, en ali-
ir munum vér umbreytast, í einni
svipan, á einu augabragði við hinn
síðasta lúður.“ (1. Kor. 15.51-52.)
Fyrri upprisan er væntanleg.
Guðleysi og óréttlæti aukast jafnt
og þétt og ógna öllum. Því sagði
Drottinn Jesú: „Ef dagar þessir
yrðu ekki styttir, kæmist enginn
maður af, en sakir hinna útvöldu
mundu þessir dagar verða styttir. “
(Mt. 24.22.) Jesús mun ekki birtast
á jörðinni þegar hann kemur við
fyrri upprisuna. Sálir endurfæddra
sem trúfastir hafa verið, sem horfn-
ar eru úr þessum heimi, munu öðl-
ast upprisulíkama og líkamar guðs-
bama sem lifa í þessum heimi munu
umbreytast. Saman munu þeir allir
verða hrifnir til fundar við Drottin
í loftinu. (1 Þ. 4. 13-18.)
Upprisa dauðra og umbreyting
lifenda standa í órofa sambandi við
upprisu Krists sjálfs, því upprisa
Hans er forsenda þess að þeir sem
tilheyri Honum fari með Honum við
endurkomu Hans. Tími endurkomu
Drottins Jesú varð ekki á tímum
frumkirkjunnar og Pétur postuli
huggaði guðsböm með því að Drott-
inn væri enn ekki kominn því hann
væri þolinmóður og vildi að enginn
tapaðist heldur kæmist til iðrunar.
Á degi fyrri upprisunnar mun
Hinn elskandi Guð setja í fram-
kvæmd hina mestu björgunarað-
gerð sem útvalin þjóð hefur upplifað
frá upphafi vega. Drottinn Jesús
sagði: „Mun þá Guð ekki rétta hlut
sinna útvöldu sem hrópa til hans
dag og nótt? Mun Hann draga að
hjálpa þeim? Ég segi yður: Hann
mun skjótt rétta hlut þeirra.“ Síðan
spurði Jesú: En mun manns-sonur-
inn finna trúna ájörðu, þegar hann
kemur?" (Lúk. 18. 7-8.) Sú trú sem
hann væntir hjá sínum eigin þegar
hann kemur, hefur ekki breyst.
Böm Guðs í Nýju Postulakirkjunni
þiggja í dag þau sakramenti (náð-
armeðöl) sem Jesús Kristur stofn-
aði, og hið lifandi orð sem Jesús
skipaði svo fyrir að væra veitt í
gegnum hið postulega embætti.
Embætti hins nýja sáttmála
Tilvist hins postullega embættis
framkirkjunnar lauk með dauða
síðasta postulans í framkirkjunni.
En fyrir náð Guðs var hið postul-
lega embætti endurreist 1830 og
áður nefnt hjálpræðisstarf gat hald-
ið áfram í Nýju Postulakirkjunni
undir forystu höfúðpostula.
Trú guðsbama í dag á endur-
komu Krists er greypt djúpt í hjörtu
þeirra, sú trú kemur af því að heyra
erindreka Krists, hina lifandi j>ost-
ula, flytja fagnaðarerindið. Á að-
ventu fá þessi skilaboð sérstakan
stað.
„Trú gnðsbarna í dag á
endurkomu Krists er
greypt djúpt í hjörtu
þeirra, sú trú kemur af
því að heyra erindreka
Krists, hina lifandi
postula, flytja fagnað-
arerindið.“