Morgunblaðið - 22.12.1988, Side 60

Morgunblaðið - 22.12.1988, Side 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988 ádegisstuN^ fM!»»SINS 35O KB KA^' eða hei SÚKKULAÐ' 350 Í.O/C/AÐ 24. OG 25. DES. OPIÐ ANNAN í JÓLUM s LOKAÐ31.DES. 1 OPIÐ 1. JANÚAR ? NÝÁRSFAGNAÐUR PANTANIR I SÍMA 92-15222 VERIÐ VELKOMIN. HAFNAHGOTU 57 230 KEFOAVlK SlMI 92-15222 MYNDAMÓT HF ^^iglýsinga- síminn er 2 24 80 \ Elsku faðir okkar, tengdafaöir og afi, GUÐGEIR ÞORVALDSSON, ' ^ Æsufelli 2, andaðist í Borgarspítalanum 21. desember. Þorbjörg Edda Guögeirsdóttir, Kristinn Ómar Kristinsson, Baldur Guögeirsson, Björg Kristinsdóttir, Iðunn Guðgeirsdóttir, Guðmundur L. Þórsson, og barnabörn. t Sambýlismaöur minn, JÖRUNDURÞÓRÐARSON frá Ingjaldshóli, lést 19. desember. Guðný Magnúsdóttir og börn hins látna. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Oddeyrargötu 14, Akureyri, lést í Landspítalanum þann 20. desember. Jóhann Frímannsson, Stella Jóhannsdóttir, Edda Jóhannsdóttir, Matthildur Jóhannsdóttir, Kristbjörg Jóhannsdóttir, Herdís Jóhannsdóttir, Elinborg Jóhannsdóttlr, Frimann Jóhannsson, Soffía Jóhannsdóttir, MagnþórJóhannsson, Halldór Jóhannsson, Óttar Jóhannsson, Bergf ríður Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför eiginmanns míns, SÆMUNDAR G.ÓLAFSSONAR, Miðbraut 2, Seltjarnarnesi, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. desember kl. 13.30. Guðrfður Jónsdóttir. t Útför föður okkar, SIGMARS S. PÉTURSSONAR, Hrfsateigi 41, veröur gerð frá Fossvogskirkju 23. desember kl. 15.00. Herbjörn Sigmarsson, Sigrfður H. Sigmarsdóttir, Jóhann S. Sigmarsson. t Móðir okkar, systir, tengdamóðir og amma, GUÐJÓNA JAKOBSDÓTTIR, Meðalholti 7, sem andaðist 18. desember í Borgarspitalanum verður jarösungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 23. desember kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Börnin. Kristján Ragnarsson, Jón Matthfasson, Vilhelm Sverrisson, Guðrún Valgarðsdóttir, Hannes Hafsteinsson, Friðrikka Valgarðsdóttic, Hulda Einarsdóttir, Þorgerður Einarsdóttir, Útför bróður okkar, GUNNARS ÖSSURARSONAR húsasmfðameistara frá Kollsvfk f Rauðasandshreppi, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. desember kl. 10.30. Sigurvin össurarson, Guðrún Össurardóttir, Torfi Össurarson. Minning: SigurðurÁg. Hermanns- son húsgagnabólstrari Fæddur 16. janúar 1940 Dáinn 15. desember 1988 Þegar maður heyrir andlát vinar, sem hefur ræktað við mann vináttu frá fyrstu kynnum um tuttugu og sex ára skeið, setur mann hljóðan. Síðan fara þessi liðnu ár að renna í gegnum hugann eins og mynd á tjaldi og maður sér að öðlingur er horfínn af sjónarsviðinu. Þessi vinur var Sigurður Ágúst Hermannsson, alltaf kallaður Siggi Hermanns meðal vina sinna. Kynni okkar hóf- ust árið 1962 er ég hóf störf á bólsturverkstæði Skeifunnar hf. hjá Magnúsi Jóhannssyni. Þá störfuðu þar að jafnaði 6-8 fagmenn og fljót- lega bættist saumakona í hópinn en það var Svava Sigurbjömsdóttir, nú látin. Svava bast miklum tryggð- arböndum við Sigga og fjölskyldu hans og ber yngsta dóttir þeirra nafn hennar. Þótt þetta fólk færi seinna á aðra vinnustaði vissi það árum saman af högum hvert ann- ars vegna þess að allir héldu sam- bandi við Sigga sem vegna mann- kosta sinna var sá sem allir leituðu til og fréttu um leið af hinum. Siggi hafði trausta og einlæga framkomu og bar ríka ábyrgðartil- finningu. Hann var samúðarfullur og hjálpsamur öllum þeim sem leit- uðu til hans í vanda og grunar mig að oft hafi sá vandi orðið honum áhyggjuefni, þótt annarra væri. Hann hafði ríka þörf fyrir að fjár- hagslegt öryggi fjölskyldu hans væri ávallt tiyggt og atvinnuöryggi í lagi. Hann var nákvæmur og þau lof- orð og þær skuldbindingar sem hann tók á sig stóðu eins og stafur á bók. Menn þessara eiginleika eru . strax eftirsóttir til starfa þar sem ábyrgðar er krafist. Siggi var orð- inn verkstjóri Skeifuverkstæðisins 25 ára gamall og leysti það starf af hendi með prýði. Við vorum sam- "vistum á þessum stað í fjögur ár, báðum til ánægju. Kringum 1968 vorum við Sigurður báðir komnir í sjálfstæðan atvinnurekstur í bólstr- un hvor með sitt verkstæðið og þannig hélst það nánast óbreytt í tuttugu ár. Allan þennan tíma ann- aðhvort hittumst við eða bárum saman bækur okkar í síma nær vikulega. Við unnum fyrir sömu búðir oftsinnis, tókum iðulega verk af öðru verkstæðinu yfir á hitt þeg- ar myndaðist pressa á annan hvom úr hófi fram. Lánuðum hvor öðrum efni ef þannig stóð á og hallaði þá oftar á mig og sama má segja um flesta þá bólstrara sem leituðu til Sigurðar því hann var öðrum mönn- um greiðviknari. Þessi samvinna þýddi það að eiginkonur okkar urðu vinkonur 0g skyldmenni og vinir Sigurðar urðu mér kunnugir og öfugt. Margir úr þessum blandaða kunningjahóp fóru ámm saman í veiðiferðir inn í Veiðivötn á Land- mannaafrétti eða Þórisvatn áður en virkjað var. Þessar ferðir vom venjulega famar í lok júní. Við Sig- urður áttum báðir góða jeppa á þessum ámm og ávallt var glatt á hjalla í þessum hóp sem bæði gat verið stór eða bara 3 til 4 menn. Oft minntumst við þessara ferða með söknuði, eftir að þær lögðust niður. Ég vil nefna einn mann úr þessum hóp, æskufélaga Sigurðar úr Bústaðahverfinu og heimilisvin, sem Sigurður hélt sérlega mikið upp á alla sína ævi, það er Guðmundur Ingi Ingason. í þessum ferðum hélt Guðmundur Ingi ávallt léttleika og gamni á lofti eins og reyndar alls staðar annars staðar. Einnig áttum við Sigurður skemmtilegar stundir með fjölskyldum okkar og vinum við veiðiskap og leik úr Dölunum og úr Borgarfirði. Þessi ár vom okkur Sigurði eins og svo margra jafnaldra okkar ár húsakaupa sem þýddi mikla vinnu og þungt álag. Þegar ég bilaði í baki rétt áður en ég átti að flytja í nýbyggt hús mitt vom Sigurður og A«Iís mætt daginn eftir ásamt fleiri vinum með rúllur og pensla og máluðu allt í hólf og gólf og hjálpuðu síðan Ingu með búslóðina inn. Síðan þegar bakið sveik aftur hjálpuðu þessir vinir mínir mér með öðmm ráðum aftur. Þau hjónin Sigurður og Ardís keyptu fyrir nokkmm ámm litla heildsölu, „Kaj Pind hf.“, sem flytur inn efni til bólsturgerðar og ráku hana með verkstæðinu. Öllum sem enn starfa við húsgagnagerð var kunnur sá mikli dugnaður þeirra í því að bæta það fyrirtæki og vinna upp þjónustu við eigendur leðurhús- gagna. Oft hældi Sigurður konu sinni í mín eyru fyrir dugnaðinn og kjark- inn sem efldist af sama skapi og heilsu hans hrakaði. Sigurður hafði ámm saman verið slæmur í maga og illa haldinn af vöðvabólgu og þegar við bættust verkir fyrir brjósti urðu andvökunætumar margar. Rann mér oft til rifja að sjá hann stunda vinnu sína úrvinda af svefn- leysi og sárþjáðan. Fyrir tæpu ári gekk Björgvin, bróðir Sigurðar, til samstarfs við hann en því miður vannst þeim ekki langur tími tjl samstarfs þar sem Sigurður féll frá þann 15. des- ember öllum sem hann þekktu til hrýggðar. Ég vona að þessar fátæklegu línur geti eitthvað hjálpað þeim sem nú syrgja kæran ástvin. Inga, ég og böm okkar vottum Ardísi, dætrum hennar og tengda- sonum svo og öllum aðstandendum Sigurðar Ágústs Hermannssonar innilegustu samúð og biðjum þeim guðs blessunar á þessum erfiðu tímamótum. Bjarní Guðmundsson Mágur minn, Sigurður Ágúst Hermannsson, húsgagnabólstrari, er látinn, aðeins 48 ára að aldri. Mig langar að minnast hans með nokkrum orðum. Sigurður var mjög traustur mað- ur, einstaklega greiðvikinn og góð- ur. Hann hefur verið mín stoð og stytta í lífinu síðan við kynntumst fyrír 27 ámm, en þá tengdist hann fjölskyldu minni. Sigurður var kvæntur Ardisi Erlendsdóttur, syst- ur minni, og eignuðust þau 3 böm, Gerði, f. 1961, Fjólu, f. 1964 og Svövu, f. 1971. Ég á Sigurði mikið að þakka og svo er um fleiri, sem nutu aðstoðar hans á einn eða annan hátt. Tengdaforeldrum sínum reyndist hann sem besti sonur og var þeim hjálpsamur með afbrigðum, hafa þau misst mikið. Ástvinum Sigurðar sendi ég sam- Eiginmaöur minn, faðir, fósturfaöir, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR R. BJARNASON frá Látrum íAðalvík, til heimilis á Ásbraut 19, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 27. desember kl. 13.30. Pálína Friðriksdóttir, Matthildur Guðmundsdóttir, Jón Freyr Þórarinsson, Erna Guðmundsdóttir, Bjargey Guðmundsdóttir, Kristin Guðmundsdóttir, Vaidimar K. Valdimarsson, börn og barnabörn. Gunnar Örn Gunnarsson, Jakob Þór Jónsson, Guðmundur Þórðarson, Rósa Sigurjónsdóttir,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.