Morgunblaðið - 22.12.1988, Page 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
ádegisstuN^
fM!»»SINS
35O KB
KA^'
eða hei
SÚKKULAÐ'
350
Í.O/C/AÐ 24. OG 25. DES.
OPIÐ ANNAN í JÓLUM
s LOKAÐ31.DES.
1 OPIÐ 1. JANÚAR
? NÝÁRSFAGNAÐUR
PANTANIR I
SÍMA 92-15222
VERIÐ VELKOMIN.
HAFNAHGOTU 57
230 KEFOAVlK
SlMI 92-15222
MYNDAMÓT HF
^^iglýsinga-
síminn er 2 24 80
\
Elsku faðir okkar, tengdafaöir og afi,
GUÐGEIR ÞORVALDSSON,
' ^ Æsufelli 2,
andaðist í Borgarspítalanum 21. desember.
Þorbjörg Edda Guögeirsdóttir, Kristinn Ómar Kristinsson,
Baldur Guögeirsson, Björg Kristinsdóttir,
Iðunn Guðgeirsdóttir, Guðmundur L. Þórsson,
og barnabörn.
t
Sambýlismaöur minn,
JÖRUNDURÞÓRÐARSON
frá Ingjaldshóli,
lést 19. desember.
Guðný Magnúsdóttir
og börn hins látna.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
JÓHANNA SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR,
Oddeyrargötu 14,
Akureyri,
lést í Landspítalanum þann 20. desember.
Jóhann Frímannsson,
Stella Jóhannsdóttir,
Edda Jóhannsdóttir,
Matthildur Jóhannsdóttir,
Kristbjörg Jóhannsdóttir,
Herdís Jóhannsdóttir,
Elinborg Jóhannsdóttlr,
Frimann Jóhannsson,
Soffía Jóhannsdóttir,
MagnþórJóhannsson,
Halldór Jóhannsson,
Óttar Jóhannsson,
Bergf ríður Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför eiginmanns míns,
SÆMUNDAR G.ÓLAFSSONAR,
Miðbraut 2,
Seltjarnarnesi,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. desember kl. 13.30.
Guðrfður Jónsdóttir.
t
Útför föður okkar,
SIGMARS S. PÉTURSSONAR,
Hrfsateigi 41,
veröur gerð frá Fossvogskirkju 23. desember kl. 15.00.
Herbjörn Sigmarsson,
Sigrfður H. Sigmarsdóttir,
Jóhann S. Sigmarsson.
t
Móðir okkar, systir, tengdamóðir og amma,
GUÐJÓNA JAKOBSDÓTTIR,
Meðalholti 7,
sem andaðist 18. desember í Borgarspitalanum verður jarösungin
frá Bústaðakirkju föstudaginn 23. desember kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Börnin.
Kristján Ragnarsson,
Jón Matthfasson,
Vilhelm Sverrisson,
Guðrún Valgarðsdóttir,
Hannes Hafsteinsson,
Friðrikka Valgarðsdóttic,
Hulda Einarsdóttir,
Þorgerður Einarsdóttir,
Útför bróður okkar,
GUNNARS ÖSSURARSONAR
húsasmfðameistara
frá Kollsvfk f Rauðasandshreppi,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. desember kl. 10.30.
Sigurvin össurarson,
Guðrún Össurardóttir,
Torfi Össurarson.
Minning:
SigurðurÁg. Hermanns-
son húsgagnabólstrari
Fæddur 16. janúar 1940
Dáinn 15. desember 1988
Þegar maður heyrir andlát vinar,
sem hefur ræktað við mann vináttu
frá fyrstu kynnum um tuttugu og
sex ára skeið, setur mann hljóðan.
Síðan fara þessi liðnu ár að renna
í gegnum hugann eins og mynd á
tjaldi og maður sér að öðlingur er
horfínn af sjónarsviðinu. Þessi vinur
var Sigurður Ágúst Hermannsson,
alltaf kallaður Siggi Hermanns
meðal vina sinna. Kynni okkar hóf-
ust árið 1962 er ég hóf störf á
bólsturverkstæði Skeifunnar hf. hjá
Magnúsi Jóhannssyni. Þá störfuðu
þar að jafnaði 6-8 fagmenn og fljót-
lega bættist saumakona í hópinn
en það var Svava Sigurbjömsdóttir,
nú látin. Svava bast miklum tryggð-
arböndum við Sigga og fjölskyldu
hans og ber yngsta dóttir þeirra
nafn hennar. Þótt þetta fólk færi
seinna á aðra vinnustaði vissi það
árum saman af högum hvert ann-
ars vegna þess að allir héldu sam-
bandi við Sigga sem vegna mann-
kosta sinna var sá sem allir leituðu
til og fréttu um leið af hinum.
Siggi hafði trausta og einlæga
framkomu og bar ríka ábyrgðartil-
finningu. Hann var samúðarfullur
og hjálpsamur öllum þeim sem leit-
uðu til hans í vanda og grunar mig
að oft hafi sá vandi orðið honum
áhyggjuefni, þótt annarra væri.
Hann hafði ríka þörf fyrir að fjár-
hagslegt öryggi fjölskyldu hans
væri ávallt tiyggt og atvinnuöryggi
í lagi.
Hann var nákvæmur og þau lof-
orð og þær skuldbindingar sem
hann tók á sig stóðu eins og stafur
á bók. Menn þessara eiginleika eru
. strax eftirsóttir til starfa þar sem
ábyrgðar er krafist. Siggi var orð-
inn verkstjóri Skeifuverkstæðisins
25 ára gamall og leysti það starf
af hendi með prýði. Við vorum sam-
"vistum á þessum stað í fjögur ár,
báðum til ánægju. Kringum 1968
vorum við Sigurður báðir komnir í
sjálfstæðan atvinnurekstur í bólstr-
un hvor með sitt verkstæðið og
þannig hélst það nánast óbreytt í
tuttugu ár. Allan þennan tíma ann-
aðhvort hittumst við eða bárum
saman bækur okkar í síma nær
vikulega. Við unnum fyrir sömu
búðir oftsinnis, tókum iðulega verk
af öðru verkstæðinu yfir á hitt þeg-
ar myndaðist pressa á annan hvom
úr hófi fram. Lánuðum hvor öðrum
efni ef þannig stóð á og hallaði þá
oftar á mig og sama má segja um
flesta þá bólstrara sem leituðu til
Sigurðar því hann var öðrum mönn-
um greiðviknari. Þessi samvinna
þýddi það að eiginkonur okkar urðu
vinkonur 0g skyldmenni og vinir
Sigurðar urðu mér kunnugir og
öfugt.
Margir úr þessum blandaða
kunningjahóp fóru ámm saman í
veiðiferðir inn í Veiðivötn á Land-
mannaafrétti eða Þórisvatn áður
en virkjað var. Þessar ferðir vom
venjulega famar í lok júní. Við Sig-
urður áttum báðir góða jeppa á
þessum ámm og ávallt var glatt á
hjalla í þessum hóp sem bæði gat
verið stór eða bara 3 til 4 menn.
Oft minntumst við þessara ferða
með söknuði, eftir að þær lögðust
niður. Ég vil nefna einn mann úr
þessum hóp, æskufélaga Sigurðar
úr Bústaðahverfinu og heimilisvin,
sem Sigurður hélt sérlega mikið upp
á alla sína ævi, það er Guðmundur
Ingi Ingason. í þessum ferðum hélt
Guðmundur Ingi ávallt léttleika og
gamni á lofti eins og reyndar alls
staðar annars staðar. Einnig áttum
við Sigurður skemmtilegar stundir
með fjölskyldum okkar og vinum
við veiðiskap og leik úr Dölunum
og úr Borgarfirði.
Þessi ár vom okkur Sigurði eins
og svo margra jafnaldra okkar ár
húsakaupa sem þýddi mikla vinnu
og þungt álag. Þegar ég bilaði í
baki rétt áður en ég átti að flytja
í nýbyggt hús mitt vom Sigurður
og A«Iís mætt daginn eftir ásamt
fleiri vinum með rúllur og pensla
og máluðu allt í hólf og gólf og
hjálpuðu síðan Ingu með búslóðina
inn. Síðan þegar bakið sveik aftur
hjálpuðu þessir vinir mínir mér með
öðmm ráðum aftur.
Þau hjónin Sigurður og Ardís
keyptu fyrir nokkmm ámm litla
heildsölu, „Kaj Pind hf.“, sem flytur
inn efni til bólsturgerðar og ráku
hana með verkstæðinu. Öllum sem
enn starfa við húsgagnagerð var
kunnur sá mikli dugnaður þeirra í
því að bæta það fyrirtæki og vinna
upp þjónustu við eigendur leðurhús-
gagna.
Oft hældi Sigurður konu sinni í
mín eyru fyrir dugnaðinn og kjark-
inn sem efldist af sama skapi og
heilsu hans hrakaði. Sigurður hafði
ámm saman verið slæmur í maga
og illa haldinn af vöðvabólgu og
þegar við bættust verkir fyrir brjósti
urðu andvökunætumar margar.
Rann mér oft til rifja að sjá hann
stunda vinnu sína úrvinda af svefn-
leysi og sárþjáðan.
Fyrir tæpu ári gekk Björgvin,
bróðir Sigurðar, til samstarfs við
hann en því miður vannst þeim
ekki langur tími tjl samstarfs þar
sem Sigurður féll frá þann 15. des-
ember öllum sem hann þekktu til
hrýggðar.
Ég vona að þessar fátæklegu
línur geti eitthvað hjálpað þeim sem
nú syrgja kæran ástvin.
Inga, ég og böm okkar vottum
Ardísi, dætrum hennar og tengda-
sonum svo og öllum aðstandendum
Sigurðar Ágústs Hermannssonar
innilegustu samúð og biðjum þeim
guðs blessunar á þessum erfiðu
tímamótum.
Bjarní Guðmundsson
Mágur minn, Sigurður Ágúst
Hermannsson, húsgagnabólstrari,
er látinn, aðeins 48 ára að aldri.
Mig langar að minnast hans með
nokkrum orðum.
Sigurður var mjög traustur mað-
ur, einstaklega greiðvikinn og góð-
ur. Hann hefur verið mín stoð og
stytta í lífinu síðan við kynntumst
fyrír 27 ámm, en þá tengdist hann
fjölskyldu minni. Sigurður var
kvæntur Ardisi Erlendsdóttur, syst-
ur minni, og eignuðust þau 3 böm,
Gerði, f. 1961, Fjólu, f. 1964 og
Svövu, f. 1971.
Ég á Sigurði mikið að þakka og
svo er um fleiri, sem nutu aðstoðar
hans á einn eða annan hátt.
Tengdaforeldrum sínum reyndist
hann sem besti sonur og var þeim
hjálpsamur með afbrigðum, hafa
þau misst mikið.
Ástvinum Sigurðar sendi ég sam-
Eiginmaöur minn, faðir, fósturfaöir, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR R. BJARNASON
frá Látrum íAðalvík,
til heimilis á Ásbraut 19, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 27. desember
kl. 13.30.
Pálína Friðriksdóttir,
Matthildur Guðmundsdóttir, Jón Freyr Þórarinsson,
Erna Guðmundsdóttir,
Bjargey Guðmundsdóttir,
Kristin Guðmundsdóttir,
Vaidimar K. Valdimarsson,
börn og barnabörn.
Gunnar Örn Gunnarsson,
Jakob Þór Jónsson,
Guðmundur Þórðarson,
Rósa Sigurjónsdóttir,