Morgunblaðið - 22.12.1988, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
61
úðarkveðjur og bið Guð að blessa
þau og hjálpa í þeirra miklu sorg
en minningin um mætan mann lifir.
Ingibjörg Erlendsdóttir
í dag kveðjum við Sigga, son
okkar, bróður, mág og frænda.
Ungur nam hann húsgagnabólstrun
og starfaði við iðn sína til æviloka,
lengst af með eigið verkstæði. Siggi
var virtur iðnaðarmaður og fagi
sínu trúr, viðskiptavinir hans nutu
þess í verkum og viðmóti. Hann var
sá sem alltaf var hægt að leita til,
tilbúinn að veita alla þá hjálp sem
honum var unnt.
Honum var mikils virði að halda
nánum fjölskyldutengslum, hugsaði
um velferð okkar allra. Minningarn-
ar hrannast upp, allar þær sam-
verustundir og ferðalög sem við
áttum saman bæði sumar og vetur
voru gefandi fyrir alla aldurshópa.
Hann var hrókur alls fagnaðar ekki
síst meðal barnanna, mörg
skemmtileg atvik rifjast upp hjá
okkur öllum.
Vinda inn færí, vaða að bakka,
veiðiflugu krækja í hring;
leggja stöng við stag á tjaldi,
stjákla ögn um gras og lyng.
Kveikja í pípu, kyrrðar njóta,
kveða stöku um liðinn dag;
horfa á bláa hlíðarskugga
hlusta á straumsins þýða lag.
Bíða þess að þögn og friður
þokist djúpt í bijóstið inn;
huga vel að himni gullnum,
hátta svo í pokann sinn.
(Ól. Jóh. Sigurðsson)
Siggi hefur nú verið kvaddur til
starfa á öðrum stað, starfa sem við
vitum að hann mun leysa af hendi
með sömu einlægni og nærgætni
og við þekktum.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Elsku Addý, Gerður, Steini,
Siggi, Hrafnhildur, Fjóla, Jakob og
Svava, við sendum ykkur innilegar
samúðarkveðjur. Blessuð sé minn-
ing hans.
Kveðja frá foreldrum,
systkinum, mágum, mág-
konu og systkinabömum.
Fyrir lítil böm eins og okkur er
erfítt að skilja að afí er ekki lengur
hér.
Það er skrýtið að við skulum
ekki eiga eftir að koma til afa á
verkstæðið og fá að prufa að vinna
með skrýtnu tækin hans. Einnig er
erfítt að átta sig á því að nú skuli
hann ekki vera lengur hjá ömmu,
þegar við komum í heimsókn eins
og oft var gaman.
Minningamar um elsku afa era
margar. Þær munu geymast í hjört-
um okkar. Við vitum að þegar Guð
vantar einhverja til að vinna hjá sér
á himnum þá nær Hann í þá. Við
vitum líka að núna fylgist afí með
okkur þó við sjáum hann ekki. /
Leiddu mína litlu hendi
Ijúfi Jesús þér ég sendi
bæn frá mínu bijósti sjáðu
blíði Jesús að mér gáðu.
Elsku afa flytjum við ástarþakk-
ir.
Sigurður og Hrafiihildur
t
Þakka innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
móður minnar,
MARGRÉTAR ÁRNADÓTTUR
frá Gunnarsstöðum.
Kristfn Gfsladóttir.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
HEIÐREKS GUÐMUNDSSONAR.
Kristín Kristjánsdóttir,
Ragnheiður Heiðreksdóttir, Kristján Þ. Stephensen,
Guðmundur Heiðreksson, Magga Alda Magnúsdóttir,
Hólmgrfmur Heiðreksson, Sigurborg Ragnarsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
ÖNNU BRYNDÍSAR MARKÚSDÓTTUR,
sem lést á Sólvangi 'í Hafnarfirði 2. desember.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki Sólvangs fyrir ágæta
umönnun og hjúkrun síðustu árin.
Guðríður Björnsdóttir, Sigríður Jósefsdóttir,
Sigurbjörn Jósefsson, Markús Jósefsson.
Ert þú í húsgagnaleit
Ný sending
Borstofuhúsgögn úr eik og kirsuberjavið.
Borð, 6 stólar, skenkur og glerskápur.
Allt þetta aðeins kr. 205.000,- stgr.
VALHÚSGÖGN
ÁRK/IÚLA S. SÍMI 82275
MiFRlTT
Sanifas
ta/í 1 9 . & Wr Jjf í m ® ' . i
irrv'/^
|. - OJl
ywK&lM' Æ4 íM jÆm