Morgunblaðið - 22.12.1988, Page 74
74
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
SIEMENS -gceði
DRAUMARYKSUGAN ÞÍN
FRÁ SIEMENS!
SMITH &NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
Þessir hringdu . .
Sögufélag ísfirðinga Hið íslenpka bókmenntafélag
Þær gerast ekki betri en
hafa þær.
■ Stillanlegur sogkraftur.
Minnst 250 W, mest 1100 W
■ Afar lipur, létt og hljóðlát
B 4 fylgihlutir í innbyggðu hólfi
B Margföld sýklasía í útblæstri
■ Sjálfinndregin snúra og
hleðsluskynjari
■ SIEMENS framleiðsla tryggir
endingu og gæði
■ Verð kr. 11.400,-
Skammdegið hefiir
sínar björtu hliðar
Guðmundur hringdi:
„Oft virðast fjölmiðlar hafa til-
hneigingu til að fjalla um málefni
á neikvæðan hátt. Til dæmis er
mikið búið að fjalla um svonefnda
kreppu {)ó engin kreppa sé í
landinu. Ég hef tekið eftir að oft
er fjallað neikvætt um skammdeg-
ið og jafnvel veturinn, sagt að
þessi árstíð sé þrúgandi og fleira
í þeim dúr. Þetta sjónarmið bygg-
ist á neikvæðni fyrst og fremst
því skammdegið hefur sfnar björtu
hliðar og veturinn á mikla fegurð
ekki síður en sumarið. Hugsum
okkur kyrran vetrarmorgun þegar
drifhvítur snjór þekur allt og hyl-
ur jafnvel greinar trjánna. Verum
ekki of neikvæð. Tökum eftir feg-
urðinni í kringum okkur.“
Gott viðtal
Kona hringdi:
„Ég vil þakka Jóhönnu Krist-
jánsdóttur fyrir gott viðtal við
Þorvald Guðmundsson sem birtist
í Morgunblaðinu sl. sunnudag. Ég
hafði mjög gaman af að lesa þetta
viðtal."
Bakpoki
Bam tapaði rauðum og gulum
bakpoka á leiðinni frá Boða-
granda í_ átt að Neskirkju fyrir
nokkm. Á bakpokanum er mynd
af trúð. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hafa samband við Rut
í síma 11616 að deginum eða
12212 á kvöldin.
Rúskinnsjakki
Síður ljósbrúnn rúskinnsjakki
með grænu fóðri tapaðist í Mið-
bænum sl. föstudagskvöld. Vin-
samlegast hringið í Terese í síma
673198. Pundarlaun.
ísfirðingar og Hnífsdælingar heima
og heiman. Þetta er saga forfeðra
ykkar og æskubyggðar!
Saga Ísaíjarðar og
Eyrarhrepps hinsforna,
3. bindi
Atvinnusaga 1867-1920
Bókin greinir frá
meginþáttum atvinnulífs
á ísaflrði, bólstöðum,
búendumogþróun
byggðar í Eyrarhreppi.
Bókin er prýdd Qölda
mynda og hafa margar
þeirra ekki sést
ábókáður.
þessi. Ryksuga eins og þú vilt
Yíkveiji skrifar
SUPER
9112
að vera. Þessi blessuð félög og ráð
hafa það að aðalverkefni að fjár-
magna starfsemi fyrir bömin og er
það ekki alltaf einfalt.
XXX
A
Adögunum fannst þessum
ágæta vini Víkverja eiginlega
nóg komið. Hann hafði verið eins
og útspýtt hundskinn tvö undanfar-
in kvöld við að dreifa áróðurs-
bæklingum fyrir húsgagnabólstrun
eða eitthvað slíkt á vegum íþrótta-
félags bamanna. Þá kom foreldra-
félagið í skólanum og dagskipunin
var að selja rækjur í hverfínu. Hefði
svo sem verið í lagi ef maðurinn
hefði ekki Q'órum vikum fyrr geng-
ið um hverfíð sitt með rækjupoka
fyrir skíðafélagið. Hugsaði sem svo,
að það fólk sem hefði látið sig hafa
það að kaupa rækjur þá léti varla
plata sig aftur.
Góðvinurinn maldaði í móinn og
sagði að þetta yrðu aðrir að gera,
hann bara gæti ekki farið í fleiri
rækjuleiðangra. Ráðamenn í for-
eldrafélaginu tóku þetta svar
óstinnt upp og sögðu það ekki
ganga, að fólk neitaði að vinna,
foreldramir yrðu að standa saman
og allir að leggja sitt af mörkum.
Hefði hann kannski betri hugmynd-
ir. Nei, það hafði hann ekki, rækju-
salan var leiðin eins og hjá öðru
hverju félagi í borginni. Svo virtist
sem hann sæti kyrfilega í snörunni.
Bjargvætturinn sat þó hinum
megin við borðið á þessum fjáröfl-
unarfundi og hafði haft sig lítið í
frammi. Sá sagðist hafa hugmynd.
Hann vildi að foreldrarnir tækju sig
saman og fjárfestu í pilsner, færu
Það vill þannig til, að góðvinur
Víkveija er mikill þátttakandi
í starfi bama sinna og varla eru
þau foreldrafélög eða ráð þeim
tengd sem hann situr ekki í. Kona
mannsins hefur haft einstakt lag á
að koma bónda sínum í þessar
ábyrgðastöður og segir blákalt að
hann hafí bara gott af því. Kann
Alþjóðasam-
tök húmanista
voru stoftiuð
fyrir löngu
Til Velvakanda.
Vegna umfjöllunar Flokks
mannsins um stofnun Alþjóðasam-
taka húmanista, langar mig að upp-
lýsa fólk að slík samtök hafa verið
til í 36 ár. The Intemational Hum-
anist and Ethical Union (IHEU) er
bandalag yfír 60 húmanistafélög í
22 löndum með yfír 3,5 milljónir
meðlima. Meðal stofnenda IHEU
sem var stofnað 1952 vom menn
sem stóðu líka á bak við stofnun
Sameinuðu þjóðanna: Lord Boyd
Orr, fyrsti framkvæmdastjóri
UNESCO og Brock Chisholm, fyrsti
formaður Alþjóðalegu heilbrigðis-
stofnunarinnar (WHO). IHEU gefur
út tímarit sem heitir Intemational
Humanist. Bandalagið hefur fasta
fulltrúa hjá SÞ og Evrópuráðinu.
Aðalstöðvar IHEU em í Utrecht í
Hollandi. IHEU hefur haldið 10
heimsþing húmanista, það síðasta
í Buffalo, New York, pumarið 1988.
Næsta þing verður 1990 í Bmssels,,
Belgíu. * '
Fólk sem vill frekarí upplýsingar
getur skrifað:
IHEU
Oudkerkhof 11
3512 GH
Utrecht, Netherlands
eða
Free Inquiry Magazine
Box 5
Buffalo, New York 14215 USA.
Hope Knútsson
síðan í hópum um hverfið að morgni
nýársdags og byðu vömna þyrstum
grönnum. Hann sagðist ekki I efa,
að þessu yrði vel tekið og fjárhag
foreldrafélagsins þar með borgið.
Óhætt er að segja, að hugmyndin
hafí drepið umræðunni talsvert á
dreif.
XXX
F leiri þekkir Víkveiji, sem bók-
staflega em á kafí í svona
stússi og það er hjá fleiri en kaup-
mönnum sem jólin em uppgripa-
tími. Einn hitti Víkveiji í vikunni,
sem bauð honum jólaplötu, sérlega
vandaða og skemmtilega, sagði
hann að hætti sölumanna. Og hvers
vegna í ósköpunum var hann að
selja hljómplötur, jú skátaflokkur
krakkanna hafði tekið það að sér.
Ekki vildi Víkveiji plötuna, en mátti
þá bjóða honum dúkkuföt, konan
hafði tekið að sér að selja slíkt,
söftmn fyrir tölvu í skólanum hjá
krökkunum, þú skilur, sagði hann.
XXX
Víkveija fannst eiginlega nóg
um, hugsaði þó með sér hversu
duglegt þetta fólk væri. Hann væri
ekkert í svona stússi, hlyti að vera
neikvæður og lélegur faðir, alveg
laus við svona lagað. í þeim skrif-
uðu orðum kom samstarfsmaður
skrifara í gættina og spurði undur
blíðlega hvort hann vildi ekki kaupa
undirföt úr silki handa konunni,
sérlega vandaða vöm.
Víkveija láðist að spyija fyrir
hvem hún væri að safna.