Morgunblaðið - 22.12.1988, Page 75
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
75
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
MOUUl
Hallarekstur Ríkisútvarps:
Bera yfírmennirn-
ir enga ábyrgð?
Til Velvakanda.
Það hefur verið gert uppskátt
að Ríkisútvarpið okkar eigi í um-
talsverðum fj'árhagserfiðleikum.
Skuld hljóðvarpsins er talin nema
500 milljónum króna. Háttvirtur
menntamálaráðherra hyggur á
björgunaraðgerðir um þessar
mundir og á hann þakkir skilið fyr-
ir framtak sitt. En slík
björgunaraðgerð er óframkvæman-
leg nema til komi aukið fé í stofnun-
ina, það er að segja vilji menn á
annað borð rétta fyrirtækið við.
Efni til viðgerðanna verður meðal
annars sótt í vasa almennings.
Ætlunin er nefninlega að hækka
afnotagjöldin um 28 prósent eða
upp í 1.500 krónur á mánuði. Nú-
verandi útvarpsstjóri sem og aðrir
ráðamenn innan ríkisútvarpsins
hljóta að vera meðvitaðir um það
að tími þeirra sem æðstu manna í
fyrirtækinu er liðinn og ættu þeir
sömu skilyrðislaust, og svo fljótt
sem kostur er, að segja starfí sínu
lausu. Það fyrirtæki sem sankað
hefur að sér jafn miklum skuldum
og hér að ofan var vikið að á að-
eins tveimur árum hlýtur að beina
athygli okkar að toppunum, altént
er engin ástæða til að forða þeim
frá allri ábyigð. Að vísu var klippt
á að aðflutningsgjöld viðtækja bær-
ust útvarpinu en það réttlætir eng-
an veginn 500 milljón króna halla-
rekstur. „
Konráð Fnðfinnsson
Geymt en ekki gleymt
Til Velvakanda.
Fyrir hönd Kvenfélags Nes-
kirlgu vill ég koma á framfæri
innilegu þakklæti til Gísla Sigur-
bjömssonar, forstjóra Grundar,
fýrir 10 frábæra hvíldardaga í Ási
í Hveragerði sl. sumar, þegar fé-
laginu var boðið að senda sex aldr-
aða úr Nessókn til hvíldar og
hressinar í boði hans. Naut þetta
fólk góðarar umönnunar starfs-
fólksins.
Við viljum tengja þakkir
okkar jólunum og óska Gísla for-
stjóra og fjölskyldu hans og starfs-
fólkinu í Ási gleði og gæfu um
ókomin ár.
Ef menn sæju þá löngu lista
yfír aldraða sem njóta góðvildar
Gísla færu menn ef til vill að hugsa
um það að margt gott er gert,
göfug störf unnin, ótal hjálpar-
hendur að starfi. Ekki örvænta
um menn og góð málefni, og ekki
tala of mikið um það sem miður
fer. Tölum um það sem vel er gert.
H.T.
Jólaglögg
þarf ekkí að
vera áfeng
Til Velvakanda.
Á síðustu árum hefur sá siður
breiðst út á vinnustöðum og í fyrir-
tækjum að menn drekki saman svo-
nefnt jólaglögg. Fyrir sumum kann
það að vera kærkomið tækifæri sem
tilefni áfengisneyslu. En hér þarf
ekki að vera um neitt áfengi að ræða.
Því skulu þeir sem standa fyrir slíkri
samdrykkju í fagnaðarskyni á jóla-
föstu minntir á að hafa jafnan á boð-
stólum óáfengt jólaglögg fyrir þá sem
heim vilja fara alsgáðir og ökufærir
frá þessum kveðjufagnaði.
Þingstúka Reykjavikur I.O.G.T.
Leikara-
skapur
Til Velvakanda.
Ég get ekki gleymt því sem barst
f fréttum út af fundinum á Lýsu-
hóli. Ég hef verið að velta fyrir mér
hveiju það sætir sem kom svo ljós-
lega fram í sjónvarpi frá Kvennalista-
fundinum og sem svo berlega auglýs-
ir leikaraskap þessara samtaka, því
ekki má kalla þær flokk. Ég hef
aðeins lesið eina umsögn um þennan
fund, mig minnir í DV, og fannst
mér rétt athugað sem þar var sagt.
Var það alvara sem Þórhildur Þor-
leifsdóttir sagði um karlmenn, að
ætti að setja þá í þegnskylduvinnu.
Þeir gera það nú þegar, reyndar.
Ekki er að undra þó Alþingi sé
orðið sjö flokka leikhús að margra
mati síðan Kvennalistinn komst þar
inn. Sé það alvara sem þar var haft
í flimtingum og vakti mikla kátfnu
í samsætinu, þá skulu þær vita að
mál þeirra verða metin eftir því sem
þær hafa stofnað til. Það er fullkom-
ið ábyrgðarleysi eins og margt annað
hjá þessum hópi að segja hreint út
að seija eigi karlmenn í þegnskyldu-
vinnu og er það meira en lítil lítil-
lækkun að senda þvílíkt og annað
eins út í sjónvarpi til allrar þjóðarinn-
ar.
Sé þetta í alvöru talað, þá hafa
þær auglýst sig rækilega sem sér-
hagsmuna- og ofbeldissamtök sem
eiga sér ekki stoð nema í einræð-
isríkjum. Gott er að fá skýrari mynd
af þessum samtökum samt, en ég
trúi því varla að þetta sé skoðun
meirihluta kvennanna sem þarna
hlýddu á. Ég vil bara benda Kvenna-
listakonum á, að ef þær vilja ekki
síféllt vera sér til skammar með þessi
samtök sín og vilja að takandi sé
mark á þeim, þá skulu þær sjálfar
sýna af sér gott fordæmi.
Kona sagði f samræðuþætti í
ríkisútvarpi þann 19. nóvember og
sem ég hlustaði á, að ríkið, sam-
félagið, eigi að sjá fyrir þörfum þeirra
og bama þeirra. Þessi kona tók’ til
sérstaklega, að enginn peningur
væri til fyrir bömin og þau væm
bókstaflega vannærð í skólunum.
Þessi og þvílík tilætlunarsemi á
hendur þjóðfélaginu kveður stöðugt
við hjá konum almennt. Ekkert lát
er á meiri og nýjum kröfum til sér-
hagsmuna kvenna. Enga ábyrgð telja
þær sig bera á bömum sínum, en
þú, nágranninn og samborgarinn, ert
skyldugur að leggja allt fram, það
er tónninn í jafnréttisbaráttu fíöl-
margra kvenna.
Þorleifur Kr. Guðlaugsson
J
ISLENSK FRAMLEIÐSLA,
SEM ER BETRIEN ÞAÐ BESTA FRÁ
ERLENDUM KEPPINAUTUM
Islensku pottarnir og pönnurnar eru nú á
yfir 15 þúsund heimilum. Look-pönnurn-
ar og pottarnir eru framlciddir úr áli með
sérstakri fargsteypuaðferð. Pannan hefur óvið-
jafnanlega hitaleiðni. Botninn er þykkur og
verpist aldrei. Pottarnir og pönnurnar eru
húðuð með níðsterkri húð sem ekki festist
við. Húðin er styrkt með ryðfríu stálneti, sem
hindrar slit og margfaldar endingu.
10 FRABÆRIR
LOOK
Yfir 80 útsölustaðir um allt land.
Framleitt af Alpan hf., Eyrarbakka.
Heildsöludreifing Amaro hf., Akureyri, s. 96-22831.
TEGUNDIR
Steikarpönnur
Pottréttapönnur
Pottréttapönnur
Pottar með loki
Skaftpottar með loki
Glerlok
Glerlok
Kína panna (WOK)
STÆRÐIR
20, 24, 26, 28, 32 cm
24, 26, 28 cm
27, 28 cm
3, 4, 4.5, 5 lítrar
1.4, 2.1,2.8 lítrar
16, 18, 20, 24, 26 ,28 ,32 cm
27 cm
30 cm
c I982 Unlvirul Pr«ti Syndlcili
2-la
„ Ey j?et±a. sá sem gleymdl briibKtujis-
0.-Pnn«elinu slr»u f*"
ást er.,.
... fjársjóður ga.ma.Ua minn-
inga.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved
° 1988 Los AngelesTimesSyndicate
Er hann ekki fullungur til
að vera að gifta sig ...?
HÖGNI HREKKVÍSI
íS<é&
„ PAP ER ÓR4KFI AP HAFA MARGA
VITUNPARVOTTA."