Morgunblaðið - 22.12.1988, Page 79
MORGUNBLAÐBD IÞROTT1R FEMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
79
ÍÞRÚmR
FOLX
■ HEIKE Drechsler, ftjáls-
íþróttakonan kunna frá Austur-
Þýskalandi, hefur ákveðið að
leggja skóna á hilluna. Drechsler
vann silfurverðlaun í langstökki og
tvenn bronsverðlaun í hlaupagrein-
um á Ólympíuleikunum $ Seoul.
Hún segir að tími sé kominn til að
snúa sér að eitthveiju öðru en
íþróttum eftir 12 ár. Hún er 24 ára
og hefur verið í fremstu röð fijáls-
íþróttakvenna síðustu árin.
■ SÍÐUSTU fregnir herma að
einhver snurða sé hlaupin á þráðinn
í sölu Gautaborgar á Erik
Thorstvedt til enska stórliðsins
Tottenham. Nú flýgur sú fregn,
að forráðamenn Gautaborgar-
liðsins vilji fá kaupverð markvarð-
arins greitt úr í hönd ekki seinna
en strax. Það mun vægast sagt
vera annað greiðsluform heldur en
forráðamenn Tottenham höfðu
ætlað sér. Höfðu þeir vonast til
þess að dreifa greiðslunni yfir nokk-
ur ár. Á sunnudagskvöldið var mik-
ið þrefað um þetta, en niðurstaða
varð engin. Spuming er hvort þetta
eyðileggi möguleika Thorstved á
að ganga til liðs við félagið?
KNATTSPYRNA
Spán-
verjar
burstuðu
N-íra
Spánveijar burstuðu Norður-
Ira, 4:0, í 6. riðli undankeppn-
innar í knattspymu í Sevilla á Spáni
í gærkvöldi og eru nú með fullt hús
stiga eftir tvo leiki. Þetta var 20.
sigur Spánveija, sem eru efstir í
6. riðli, {Sevilla í 23 leikjum í röð.
Vamarmaðurinn, Rogan, kom
Spánveijum á bragðið með því að
skora sjálfsmark í fyrri hálfleik.
Síðan fyigdu þijú mörk Spánveija
í kjölfarið í síðari hálfleik. Fyrst
skoraði Emilio Butragueno á 55.
mínútu. Michel bætti þriðja mark-
inu við úr vítaspymu sem dæmd
var á John McClelland fyrir að
bijóta á Aitor Beguiristain nokkmm
minútum síðar og Femandez gerði
fjórða markið á 65. mínútu.
HM6. RIÐILL
SPANN- N-ÍRLAND.................4:0
FJ. leikja U i T Mörk Stig
SPÁNN 2 2 0 0 6: 0 4
UNGVERJAL. 2 1 1 0 3: 2 3
N-ÍRLAND 4 1 1 2 3: 5 3
ÍRLAND 2 0 1 1 0: 2 1
MALTA 2 0 1 1 2: 5 1
HANDBOLTI
Jólamót
Jólamót B-liða yngri flokka
Fram, KR, Gróttu, Stjömunnar
og Víkings er hafið. Keppt er í 4.,5.
og 6. flokki karla og 4. og 5. flokki
kvenna.
Keppni hófst i f 5. flokki karia í gær og
verður keppt i dag kl. 10-14 í íþrótti Seltja-
skóla. I dag hefst keppni í 5. flokki kvenna
og verður einnig keppt á morgun kl. 9-13
í íþróttahúsinu f Garðabæ. Keppt verður
um Morgumblaðsbikarinn í 5. flokki kvenna.
Keppni í 4. flokki kvenna hefst i Álftamýra-
skóla kl. 17-22 I dag og siðan keppnj hald-
ið áfram 26. desember kl. 14-18. 6. flokkur
karla keppir í Réttarholtskóla 29. desember
og 4. flokkur karla keppir I fþróttahúsi KR
á milli jóla og nýárs.
„Atti ekki von á svo góðri by vjun
- sagði nýliðinn Guðjón Ámason
Eg átti ekki von á svo góðri
byijun og það var ekki svo
erfitt að koma inní liðið. Ég hef
séð þessa stráka spila hundrað
sinnum og kannast við kerfin. Ég
hugsaði bara um að gera mitt
besta ef ég fengi tækifæri en ég
átti ekki von á að spila svo mik-
ið,“ sagði Guðjón Ámason, sem
iék fyrsta landsleik sinn í gær.
„Þetta gat nú ekki orðíð verra
en fyrri leikurinn og þegar við
áttuðum okkur á að við vorum
að tapa aftur þá tókum við okkur
á,“ sagði Guðjón.
„Þurfum stuðnhng"
„Það er alls ekki sjálfsagður
hlutur að við vinnum þetta lið.
Við þurfum ekki að vinna Svía
þó að þeir séu með nýtt lið,“ sagði
Þorgils Óttar Mathiesen, fyririiði
ísíenska landsliðsins. „Ef við hefð-
um haldið okkur í A-keppninni
þá hefðum við líka breytt liði okk-
ar.
Það skiptir ekki máli hver and-
stæðingurinn er. Við erum alltaf
að vanmeta andstæðingana og
töpum á því. Svíarnir vora góðir
og ég er ánægður með sigurinn.
Ég er ekki að afsaka okkur
með þessu. Við þurfum að bæta
okkur og höfum ekki leikið vel.
En við þurfum stuðning. Hvað
sjálfan mig varðar þá er ég búinn
að fá mig fuilsaddan af handbolta
og vantar áhugann. En ég veit
að hann kemur aftur," sagði Þorg-
ils Óttar.
„Kom sjá*fum mör á 6wart“
„Það er að sjálfsögðu gífurlega
mikil viðbrigði að koma úr 2. deild
í landsleik og ég áfyi ekki von á
góðum leik. En ég er mjög ánægð-
ur og þetta kom sjálfiim mér
iíklega mest á óvart," sagði Hrafn
Margeirsson sem varði mjög vel.
„Fyrri hálfleikurinn var fyrir neð-
an ailar hellur en þetta var skárra
í þeim síðari.
Það er mikil þreyta í iiðinu og
ég er líklega sá eini sem kom
óþreyttur í. þennan Ieik,“ sagði
Hrafn.
Valdimar Qrfmsson er hér kominn í gegnum sænsku vörnina og í þann
mund að skora eitt af fimm mörkum sinum í leiknum.
Leikur
nýliðanna
Guðjón og Hrafn fóru á kostum
ISLENDINGAR sigruðu Svía í
gœr í spennandi leik, 23:22.
Náðu þannig að koma fram
hefndum fyrir tapið í fyrri leikn-
um. Sigurinn geta íslendingar
þó þakkað tveimur nýliðum,
Guðjóni Árnasyni og Hrafni
Margeirssyni, en þeir lóku
mjög vel. Þetta var fyrsti lands-
leikur Guðjóns, en Hrafn var
valinn f iiðið að nýju eftir nokk-
urt hlé.
Byrjunin lofaði reyndar ekki
góðu. Svíar gerðu tvö fyrstu
mörkin og náðu fjögurra marka
forskoti, 1:5. Á þessum kafla hvorki
gekk né rak hjá
LogiB islenska liðinu.
Eiðsson Vömin var opin og
skrifar sóknarleikurinn
fálmkenndur.
Um miðjan síðari hálfleik kom
Hrafn Margeirsson inná og hann
byijaði á því að loka markinu í tíu
mínútur. Það hafði þó ekki mikið
að segja þvi á þeim tíma gerðu ís-
lendingar aðeins eitt mark. Svo
tóku Svíar við sér að nýju og náðu
sex marka forskoti, 11:5. Valdimar
og Júlíus náðu þó að laga stöðuna
með tveimur mörkum á síðustu
mínútu fyrri hálfleiks og í leikhléi
var staðan 7:11.
Fyrstu mínútur síðari hálfleiks
vora svipaðar og útlitið ekki bjart.
Þegar tíu mínútur voru liðnar af
síðari hálfleiks var staðan 15:11,
Svíum í vil. Þá loks tóku íslending-
ar við sér. Á frábæram kafla gerðu
íslendingar níu mörk gegn tveimur
og breyttu stöðunni í 20:17. Góð
markvarsla Hrafns og stórleikur
Guðjóns á miðjunni færðu að nýju
h'f í leik íslendinga sem tók stakka-
skiptum og engu líkara en skipt
hefði verið um lið.
Svíar höfðu þó ekki lagt árar í
bát og náðu að minnka muninn i
eitt mark, 22:21 þegar rúm mínúta
var til leiksloka. Guðjón jók muninn
að nýju en aftur skoruðu Svíamir.
Þegar 25 sekúndur vora til leiksloka
misstu íslendingar boltann en
Svíum tókst ekki að nýta sér síðustu
Morgunblaðið/Bjarni
GuAjón Árnason átti mjög góðan leik i gær i fyrsta landsleik sinum. Hér
á hann í höggi við Jonas Persson og virðist ekki ýkja hrifinn af móttökunum.
sókn sína.
Það er alltaf gaman að vinna
Svía, en þrátt fyrir sigur er ekki
hægt að segja að íslenska liðið hafí
leikið vel. Vömin var slök og
Svíamir fengu of mikinn frið við
íslenska vamarvegginn. í síðari
hálfleik breyttist vömin til hins
betra er Þorgils kom út og traflaði
Svíana. Sóknarleikurinn var einnig
siakur, einkum þó í fyrri hálfleik.
Liðið var þreytulegt og virtist
skorta leikgleði.
Björtu hllAamar
Björtu hliðamar vora hinsvegar
Hrafn og Guðjón. Það hefur án efa
verið erfitt fyrir þá að koma inní
iiðið, en báðir áttu þeir mjög góðan
leik. Guðjón var með mjög góða
nýtingu úr skotum sínum og stjóm-
aði leik íslenska liðsins af rögg-
semi. Hrafn varði mjög vel og lagði
granninn að sigri íslendinga. Þá
átti Valdimar Grímsson ágætan leik
og Þorgils Óttar góða spretti í síðari
hálfleik.
Island—Svíþjóð
23 :
Laugardalshöllin, vináttulandsleikur í
handknattleik, miðvikudaginn 21. des-
ember 1988.
Gangur leiksins: 0:2, 1:2, 1:5, 3:5,
4:6, 4:9, 5:11, 7:11, 8:12, 9:14, 11:16,
16:15, 18:17, 20:17, 22:19, 22:21,
23:21, 23:22.
Ísiand: Guðjón Ámason 5, Valdimar
Grfmsson 5, Sigurður Sveinsson 3,
Þorgils Óttar Mathiesen 3, Aifreð
Gíslason 3/1, Júlíus Jónasson 2, Guð-
mundur Guðmundsson 1 og Héðinn
Gilsson 1. Kristján Arason og Bjarki
Sigurðsson.
Varin skot: Hrafn Margeirsson 16/1.
Guðmundur Hrafnkelsson.
Utan vallar: 6 mínútur.
Sviþjóð: Jonas Persson 5, Staffan Ols-
son 3, Ðaniel Roth 3, Per Larsson 3/2,
Anders Eliasson 2, Patrick Nygren 2,
Robert Venaláinen 2, Stefan Engström
1 og Stefan Kennegard 1. Bert Gust-
afsson.
Varin skot: Jan Ekman 13. Rolf Wain-
ikka.
Utan vallar: 4 mínútur.
IJómarar: Pedersen og Jensen frá
Danmörku. Dæmdu vel.
Áhorfendur: 900.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐ