Morgunblaðið - 16.03.1989, Page 7
7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MARZ-1989
—i.
V erðlagsstofiiun:
Krafist verðlækkunar hjá 35
hárskera- og hárgreiðslustofum
Verðlagfsstofnun hefur ákveð-
ið að heimila hækkun á taxta
hárskera-, hárgreiðslu- og
snyrtistofum um allt að 5% frá
þeim taxta sem var í gildi við
upphaf verðstöðvunar, 27. ágúst
1988. Stofiiunin mun senda við-
komandi stofum bréf um þetta
og jafhframt óskað eftir að þær
sem höfðu hækkað umfram 5%
fækki verðið aftur. Dugi þau til-
mæli ekki verður leitað til dóm-
stóla um að stofurnar fylgi verð-
lagsákvæðum, að sögn Georgs
Ólafssonar verðlagsstjóra.
verðskrám sinum til samræmis við
framangreinda ákvörðun.“
Georg Olafsson sagði að stofnun-
in hafi athugað verð hjá um 100
stofum. Af þeim reyndust 35 hafa
hækkað verðið umfram 5%, flestar
um 15%, en sumar allt upp í 40%.
Hann sagði þessar hækkanir óeðli-
legar, einkum í ljósi þess að laun,
sem vega 50% til 70% í rekstrar-
kostnaði stofanna, hafa einungis
hækkað um 1,25% á þessum tíma.
Hann sagði að ef tilmæli um verð-
lækkun dugi ekki, þá verði stofnun-
in knúin til að leita til dómstóla
vegna brota á verðlagsákvæðum.
Borgarráð:
Bergshús flutt
í Arbæjarsafh
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að Bergshús við Skólavörðustíg
10, verði flutt í Árbæjarsafh.
Að sögn Gunnars Eydal skrif-
stofustjóra borgarstjórnar, hefur
ekki verið endanlega ákveðið hve-
nær húsið verður flutt en bygg-
ingaframkvæmdir á lóðinni og
næstu lóðum eiga að hefjast með
vorinu.
HÁTÍÐARÍSINN f Á R
í frétt frá Verðlagsstofnun segir:
„Á grundvelli ákvarðana verðlags-
ráðs 13. mars 1989 um að taka
verðlagningu hjá hárskera-, hár-
greiðslu og snyrtistofum undir verð-
lagsákvæði fram til 31. maí næst-
komandi hefur Verðlagsstofnun
ákveðið eftirfarandi: Hárskera-,
hárgreiðslu- og snyrtistofum er
óheimilt að hækka verðskrár þær
sem í gildi voru við upphaf verð-
stöðvunar þann 27. ágúst 1988
umfram 5% nema að fengnu sér-
stöku leyfi Verðlagsstofnunar.
Þeim stofum sem nú þegar hafa
hækkað gjaldskrár sínar umfram
5% frá því verði sem í gildi var 27.
ágúst síðastliðinn er skylt að breyta
Lyflum
stolið
BROTIST var inn í heilsu-
gæslustöðvarnar í Árbæ og
Álftamýri í fyrrinótt og stolið
þaðan einhverju af lyfium og
lítilli peningaupphæð.
Lögreglan í Reyjavík handtók
skömmu síðar mann um þrítugt
vegna gruns um innbrotin. Hann
var staðin að akstri og talinn
hafa verið undir áhrifum áfengis
eða lyQa. í fórum mannsins
fundust lyf sem talin eru tengja
hann við innbrotin. Síðdegis í
gær var ástand mannsins enn á
þann veg að yfirheyrslur voru
ekki hafnar. Hann hefur áður
komið við sögu lögreglu.
Staðgreiðsla skatta:
Janúarinn-
heimta nær
1,4 milljarðar
BÚIÐ er að innheimta 1380 millj-
ónir vegna staðgreiðslu skatta
fyrir janúarmánuð, sem er 24%
aukning miðað við janúar á síðasta
ári þegar búið var að innheimta
1105 milljónir króna. „Þetta er í
samræmi við það sem við reiknuð-
um með,“ sagði Skúli Eggert
Þórðarson forstöðumaður stað-
greiðsludeildar rikisskattstjóra.
Skatthlutfall staðgreiðslu er
nokkru hærra en var á síðasta ári,
er nú 37,74%, en var 35,2% í fyrra.
Skúli sagði launaaukningu milli jan-
úarmánaðar 1988 ogjanúarmánaðar
1989 vera um 11,5%, sem er mun
minna en verðbreytingar fyrir þenn-
an sama tíma, en þær eru um 20%.
Hlutfall staðgreiðslu af greiddum
launum hefur hækkað um 1% og
sagði Skúli skýringuna vera hærri
skattprósentu.
Um áramót skulduðu 199 fyrir-
tæki yfir eina milljón króna í stað-
greiðslu, en Skúli ’sagði að í kjölfar
harðari innheimtu og tilmæla fjár-
málaráðuneytis um stöðvun atvinnu-
rekstrar hjá þeim er skulduðu stað-
greiðslu hafi þessum fyrirtækjum
fækkað verulega.