Morgunblaðið - 21.03.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.03.1989, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1989 Forvextir víxla hækka um 4% í dag: Ný lánskjaravísi- tala mælir 27,6% verðbólguhraða FORVEXTIR víxla hækka almennt um 4% að meðaltali í dag. Víxil- vextir hjá sparisjóðunum fara úr 22% í 25%, víxilvextir hjá Lands- banka verða 23,5%, hjá Iðnaðarbanka 23% en hæstir verða þeir hjá Verslunarbanka eða 27%. Tryggvi Pálsson, bankastjóri Verslunar- bankans, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að banka- sijórn Verslunarbankans hefði byggt ákvörðun sína um vaxtabreyt- ingar á nýjum upplýsingum um lánskjaravísitölu, sem myndi hækka um 2,95% um næstu mánaðamót. Á ársgrundvelli jafngilti það 27,6% verðbólgu en verðbólguhraðinn siðustu 3 mánuði væri 20,5%. Víxilvextir og vextir af óverð- vaxtastig verður 28%. Þá hækka tryggðum skuldabréfum hækkuðu um 5%, það er úr 22% í 27% jafn- framt því sem vextir af almennum sparisjóðsbókum hækkuðu úr 11% í 15%. Verslunarbankinn hækkar sína vexti að meðaltali mest. „Þessi vaxtabreyting er gerð til þess að halda samræmi milli inn- og útlánsreikinga sem eru á nafn- vöxtum og þeirra reikninga sem eru á verðtryggðum kjörum," sagði Tryggvi Pálsson. Hann sagði jafn- framt: „Hin dapurlega staðreynd er sú að verðhækkanir að undan- fömu hafa verið miklar og farið vaxandi." Að sögn Baldvins Tryggvasonar, sparisjóðsstjóra, er tekið mið af verðbólgustigi nú þegar að vextir eru endurskoðaðir. Litið hafi verið þijá mánuði fram í tímann og þrjá mánuði aftur í tímann við þessa vaxtaákvörðun. Hjá sparisjóðunum hækka vextir á yfírdráttarlánum úr 26% í 28,5%, lægsta vaxtastig óverðtryggðra skuldabréfa verður 25% í stað 21,75% áður, en hæsta vextir af sparisjóðsbókum úr 10% í 11% en vextir af verðtryggðum skuldabréfum verða óbreyttir. Sjá miðopnu: „Vií afnema verðtryggingu.“ Ekiðádreng Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson Sex ára gamall drengur slasaðist illa er hann lenti fyrir bíl á Rauðarárstíg laust fyrir klukkan sex á laug- ardag. Hann slasaðist alvarlega og hlaut mikil beinbrot Hann var fluttur til aðgerðar á sjúkrahús en er ekki talinn í lífshættu. Myndin er tekin á slysstað. Viðræðum um kjarasamn- ing frestað fram yfir páska Viðræðuneftidir Alþýðusambands íslands, Vinnuveitendasam- bands íslands og Vinnumálasambands samvinnufélaganna urðu ásáttar um það í gær að fresta frekari viðræðum um kjarasamn- ing til skamms tíma þar til þriðjudaginn eftir páska. Var þetta gert að beiðni Alþýðusambandsins sem taldi að timinn fram að páskum væri orðinn of skammur til þess að hægt væri Ijúka samn- ingum. Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, sagði að það hefði verið mat Alþýðusambands- ins að tíminn væri of stuttur til þess að niðurstaða fengist fyrir páska og það hefði því verið sam- eiginleg niðurstaða að það væri jafn gott að hætta viðræðum nú og heíja þær á nýjan leik eftir páska. Viðræðum um meginatriði mið- aði hægt um helgina, meðal ann- Gamli Fjallfoss: Sökk í óveðrí á Ermasundi ars vegna viðræðna forsvarsmanna fískvinnslunnar við stjómvöld um hvað taki við þegar greiðslu á verð- bótum fyrir freðfísk lýkur í maí. Skýr svör þar að lútandi munu ekki hafa fengist. Hins vegar mið- aði ágætlega vinnu í fjórum undir- nefndum sem íjölluðu um skatta-, félags-, atvinnu- og verðlagsmál. „Við fórum vandlega yfir málið í viðræðunefnd Alþýðusambands- ins og urðum sammála um að sá tími sem er til stefnu fyrir páska er orðinn of knappur til að raun- hæft sé að gera sér vonir um að ná öllum endum saman,“ sagði Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ. Hann sagði að eftir væri að ljúka vinnu í þeim nefndum sem hefðu verið í gangi og að ræða ákveðna hluti við stjómvöld betur. Þá væri Ijóst að víðræður um beinar launa- hækkanir yrðu erfiðar, þó þar væru ekki komnar neinar tölur á borðið. Þetta allt saman væri of- verk á þeim tveim dögum sem eft- ir væru fram að páskum og því væri skynsamlegast að frésta við- ræðum fram yfír páska og reyna þá að klára þær í einni lotu. 300 þúsund krónum stolið úr söluskála 25 innbrot í Reykjavík um helgina UM 300 þúsund krónum var stol- ið í innbroti í söluskála Esso í Hveragerði aðfaranótt sunnu- dagsins. RLR vinnur að rannsókn málsins. Alls voru 25 innbrot til- kynnt Iögreglu í Reykjavík um helgina. Þrír menn, tveir 15 ára og einn þrítugur, voru hand- teknir aðfaranótt mánudagsins þegar þeir reyndu að brjótast inn í verslunina Sportval við Hlemmtorg. \ Sá þrítugi var settur í fanga- geymslur en piltunum var komið í skammvistun á Unglingaheimili ríkisins. í bíl þeirra fannst ýmiss konar þýfí. Úr gæludýraversluninni Amazon var stolið sjaldgæfum skrautfulgi, caccatou, hvítum með gula fjöður á kolli. Söluverð fugls af þessu tagi mun vera um 35 þúsund krónur. Brotist var inn í þjálfunarstöð fatlaðra við Háaleitisbraut, stolið þaðan sjónvarpstæk: og ýmsum raftækjum. Úr ljósmyndavöruversl- un við Skipholt var stolið fjórum myndavélum. Úr tónlistarskóla FIH við Brautarholt var stolið Kenwood hljómtækjasamstæðu, sem metin er á um 100 þúsund krónur. Tos- hiba útvarpstæki var stolið úr bíla- leigunni Ás við Skógarhlíð. Áfengi var stolið úr veitingahúsinu Abracadabra. Brotist var inn í nokkra sölu- tuma, við Hagamel, Skipholt, Freyjugötu og í Breiðholti og stolið þaðan sælgæti og tóbaki. FJALLFOSS, sem Eimskipafé- lagið seldi Samudera-skipafélag- inu fyrr í þessum mánuði, sökk í óveðri um 6 sjómílur vestur af eyjunni Guernsey á Ermasundi 13. mars síðastliðinn, nokkrum dögum eftir að það hafði verið afhent nýju eigendunum. Ellefu manna áhöfin skipsins var bjarg- að. Skipið, sem hét Perintis efír eig- endaskiptin, var skráð í Panama. Eimskip keypti skipið árið 1984 frá Þýskalandi og var það aðallega í siglingum á milli íslands og Bret- landseyja. Skipið var smíðað árið 1977 og var 1700 tonn. £> INNLENT Páskahretíð skollið á Illviðri og ófærð á öllu norðanverðu landinu Norðurleiðin ekki mokuð vegna veðurs BLINDBYLUR var allt frá Vestfíörðum norðanverðum austur á Hérað í gær. Gekk á með snjókomu og skafrenningi og allhvössum vindi. Á sunnanverðu landinu var lltið eitt hægari vindur og skaf- renningur. Veðrið lægði nokkuð þegar Uða tók á daginn. Spáð er svipuðu veðri út vikuna, en þó dregur úr úrkomu, samkvæmt upp- lýsingum frá Veðurstofunni. Ófært var um allt norðanvert landið í gær og varð Vegagerðin að hætta við snjómokstur vegna veðurs. Innaniandsflug tafðist og til sumra staða var með öllu ófært. Versta veðrið var á svæðinu frá él á norðanverðu landinu. Að líkind- Dýrafírði austur til Egilsstaða, sjö til átta vindstig með skafrenningi og ofankomu. Fimm til sex vind- stig voru á Puðurlandi og víða skaf- renningur. Veðrinu veldur lægð sem fór yfir landið og mun stað- næmast norður af Langanesi og valda norðan- og norðaustanáttum á landinu út þessa viku og fylgja um verður úrkomulaust sunnan- lands. Færð spilltist mjög í gær vegna veðursins. Að sögn Vegagerðar var hætt við snjómokstur norður um, allt frá Borgamesi til Vopnafjarð- ar, vegna veðursins. Þá var hætt við mokstur á Snæfellsnes og í Dali og alófært var á Strandir og á Vestflörðum. Fært var frá Reykjavík á Suðumes og fyrir Hvalflörð. Þegar leið á gærdaginn fór færð að spillast austur frá borg- inni og var erfitt fyrir litla bfia að fara yfir Hellisheiði og um Þrengsli. Fært var á Suðurlandi austur að Vík, en þaðan var aðeins fært jepp- um og stórum bfium austur á firði. í dag á að moka ef hægt verður vegna veðurs. Norðurleiðarútur snem við í gær vegna veðurs og vissu Vegagerðar- menn ekki til að bflar hafí verið á ferð þar sem ófærðin var mest. Ekki höfðu þeir heldur spumir af að fólk hefði lent í vandræðum vegna ófærðar. Innanlandsflug gekk illa í gær. Ófært var fram eftir degi norður í land. Flugleiðir fóru til Vest- mannaeyja og Patreksfjarðar, síðdegis var flogið til Egilsstaða og undir kvöld var orðið fært til Húsavíkur og átti að athuga með færð á Akureyrarflugvelli og á Sauðárkróki. Ófært var til ísafjarð- ar og Þingeyrar. Amarflug fór til Bfldudals, Patreksfí'arðar, Stykkis- hólms og Rifs, en ófært var til Flat- eyrar, Hólmavíkur, Gjögurs og Siglufjarðar. Allmargir bátar voru á sjó í gær, einkum undan Vestur- og Suðvesturlandi, samkvæmt upplýs- ingum frá Tilkynningaskyldunni. Þeir voru famir að tínast inn seinni- partinn í gær. Togarar vom aðal- lega undan Suður- og Vesturlandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.