Morgunblaðið - 21.03.1989, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1989
Hagnaður Verslunar-
bankans 90,2 milljónir
Samþykkt að auka hlutafé um 100 milljónir
Morgunblaðið/Þorkell
FJölmenni var á aðalfiindi Versl unarbankans á laugardaginn.
HAGNAÐUR Verslunarbank-
ans á síðastliðnu ári varð 90,2
m.kr. og tæplega tvöfaldaðist
miðað við árið á undan. Innláns-
aukning bankans á síðastliðnu
ári varð 27,2%. Eigið fé var í
lok ársins 660 m.kr. og hafði
aukist um 56% á árinu. Þá voru
heildareignir bankans rösklega
6,6 milljarðar króna og jukust
um 32%. Á aðalfundi Verslunar-
bankans seni haldinn var á laug-
ardag var samþykkt að auka
hlutafé bankans um 100 m.kr.
Jafhframt samþykktu hluthafar
útgáfii jö&iunarhlutabréfa fyr-
ir 19,93% af hlutafé og 10%
arðgreiðslu.
í ræðu sinni á aðalfundinum
fjallaði Gísli V. Einarsson, formað-
ur bankaráðs, m.a. um viðræður
Verslunarbankans við Alþýðuban-
kann og Iðnaðarbankann. Sagði
Suðureyri:
Harður
árekstur
Fernt flutt á sjúkrahús
Suðureyri.
HARÐUR árekstur varð þegar
tvær bifreiðir óku hvor framan
á aðra með þeim afleiðingum
að fernt var flutt í sjúkrahús.
Áreksturinn var inn við svokall-
aða Kleif, 2 kílómetra fyrir utan
þorpið, s.l. sunnudag.
Fernt var í annarri bifreiðinni
ásamt ungbami. Slösuðust öku-
maður og farþegi í framsæti tals-
vert, en hin sluppu án teljandi
meiðsla.
Hinn ökumaðurinn, sem var
einn í bifreiðinni, slasaðist lítils-
háttar. Hann var ekki í bílbelti en
hin tvö sem slösuðust voru í
bílbelti. Báðar bifreiðimar em
ónýtar eftir áreksturinn.
- R. Schmidt
Þjóðleikhúsið - Iðnó:
Engar leik-
sýningaryf-
ir páskana
ENGAR leiksýningar verða í
Þjóðleikhúsinu eða Leikfélagi
Reykjavíkur yfír páskana sam-
kvæmt kjarasamningum sem
gerðir voru við leikara á síðasta
ári. Síðustu sýningar verða
þriðjudaginn 21. mars og fyrstu
sýningar eftir páska verða mið-
vikudaginn 29. mars.
Að sögn Gísla Alfreðssonar
Þjóðleikhússtjóra, verða aðrir
starfsmenn en leikarar við vinnu
sína í leikhúsinu. „Þetta er ný-
mæli í samningum leikara,“ sagði
Gísli. „Við missum þijá sýningar-
daga, því áður voru sýningar á
miðvikudegi, skírdegi og á annan
í páskum. Aðsóknin hefur verið
svona upp og ofan þessa daga
vegna þess að um páska er tölu-
vert um fermingar bæði á skýrdag
og á annan í páskum. Ég tel ekki
að það sé beint fjárhagslegt tjón
fyrir leikhúsið þó þessar sýningar
falli niður. Við náum þeim áhorf-
endum, sem vilja koma og sjá
okkar sýningar á öðrum dögum í
staðinn."
Gísli að allar þær viðræður sem
hefðu átt sér stað við þessa banka
hefðu verið óformlegar og til þess
eins ætlaðar að kanna þá mögu-
leika sem fælust í stöðunni. „Eng-
in afstaða hefur verið tekin í bank-
aráði Verslunarbankans um hvað
sé vænlegasti kosturinn sem bank-
anum býðst, en það er skylda
bankaráðsins eins og fram kemur
í 21. grein laga um viðskiptabanka
að taka ákvarðanir um mál eins
og þessi,“ sagði Gísli.
Hann lagði áherslu á að í dag
væri Verslunarbankinn sjálfstæð-
ur og í senn arðbær og í mikilli
sókn á markaðnum. Með mark-
vissu starfi hefði verið lagður
grundvöllur að því að bankinn
gæti eflst og dafnað sem sér-
hæfður banki og samtímis nýtt sér
þau tengsl sem hann hefði í atvinn-
ulífinu og með beinni eignaraðild
að fyrirtækjum. Engu að síður
bæri að kanna hvort hagstætt
væri fyrir hluthafa bankans og
framtíðarþróun fijálsra fjármagn-
sviðskipta að myndaður yrði stór
einkabanki.
Gísli sagði að gera mætti ráð
fyrir að haldinn yrði fundur með
bankaráði og bankastjóm Iðnaðar-
banka innan skamms. „Sá fundur
er mikilvægur þáttur í að kanna
aðstæður og þá möguleika sem
Verslunarbankinn á kost á. Ef svo
fer að sameiningarviðræður verða
teknar upp að nýju, þá gengi
Verslunarbankinn nú ólíkt sterkari
til þess leiks en áður. En menn
skulu ekki fyrirfram dæma aðra
möguleika úr leik og þá ekki síður
þann möguleika, að bankinn haldi
áfram sjálfstæðum rekstri."
A tímamótum, eins og fermingar eru í lífi flestra unglinga, er rétt
að huga að framtíðinni. Þekking er ein af undirstöðum framfara og
lífsfyllingar. Hjá Eymandsson fœrðu fermingargjafir sem efla hug
og hönd. Komið og skoðið úrval af fermingargjöfum í öllum
deildum. Hjá Eymundsson hefur þú leitina — og lýkur henni með
réttu fermingargjöfinni.
d