Morgunblaðið - 21.03.1989, Side 14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1989
Fyrrverandi ástand
Coligtrto(jöldi
pr. 100 ml.
JM' - l.H
! .00 - !0.«
:ö.o • m.
100. -1000.
> 1 000..
Rangfærslum svarað
Tveir áhugamenn um umhverfis-
mál, þeir Þorleifur Einarsson jarð-
fræðingur og Jónas Kristjánsson
ritstjóri DV, hafa nýlega látið ljós
sitt skína og upplýst almenning um
ástand fráveitumála í Reykjavík.
Sá fyrmefndi virðist hafa sann-
færst um að allir magakvillar Reyk-
víkinga eigi rætur sínar að rekja
til skolps, sem nú til bráðabirgða
rennur úr yfirfallsútrás er opnast í
kafí um 50 m frá landi á Kirkju-
sandi. Sá síðamefndi, ritstjórinn,
hefir mistekið sig á dælustöðvum
við Ingólfsstræti og Kirkjusand og
gerir úr þeim hreinsistöðvar og
ásakar borgaryfirvöld um að hafa
farið með blekkingar á þessu sam-
bandi. Hvomgur þessara aðila virð-
ist hafa fylgst með gangi fráveitu-
málanna, né hefur haft fyrir því að
leita til réttra aðila eftir upplýsing-
um, heldur kjósa að bera almenn-
ingi á borð rangfærslur varðandi
þessi mál. Sannir Islendingar vilja
þó ennþá fá að vita það sem rétt-
ara reynist. Óþolandi er að menn
sem vilja láta taka mark á sér af-
flytji á opinberum vettvangi eitt
merkasta framfaraspor í umhverfis-
málum á íslandi sem Reykjavíkur-
borg er nú að stíga.
í borgarráði og borgarstjóm var
á fyrri hluta árs 1986 lögð fram
og samþykkt áætlun um framtíðar-
lausn Reykjavíkurborgar í fráveitu-
málum er sýnir hvemig losna megi
við óhreinkun strandlengjunnar í
kringum borgina af völdum hol-
ræsaútrásanna. Lagðar verða niður
um 35 útrásir í núverandi mynd en
í þeirra stað koma 3 hreinsistöðvar
ásamt löngum plastlögnum frá
þeim fram á sjávardýpi, þaðan sem
straumar blanda upp vökvann frá
hreinsistöðvunum og bera hann
burt. Hefir borgin samþykkt árlegar
íjárveitingar til þessa verkefnis um
100 milljónir króna, þannig að
þessu verkefni á að vera lokið árið
1993. Hafist var handa við hreinsun
strandlengjunnar við Elliðavog og
Skúlagötu. Þar sem strandlengjan
innst í Elliðavogi og við Skúla-
götu/Sætún er nú orðin hrein af
útrásum frá Ingólfsgarði að Kirkju-
sandi var ákveðið að bíða með loka-
framkvæmdir þar, þ.e. hreinsistöð-
ina á Laugarnesinu, og löngu útrás-
ina þaðan út á dýpið og snúa sér
að strandlengjunni á nesinu sunn-
anverðu, en framkvæmdir þar hefj-
ast í sumar. í þesari biðstöðu við
norðurströndina fer skolp nú til
bráðabirgða út um yfirfallsútrás
eða neyðaryfírfall dælustöðvarinnar
á Kirkjusandi og aðra útrás austan
Sundahafnar, þar til hreinsistöðin
í Laugamesi kemur. Varðandi yfír-
fallsútrásina skal þess getið að hún
er ætíð á kafi og skolpið blandast
í gegnum 1—5 m djúpan vatns-
massa ofan á útrásarendanum,
u.þ.b. 50 m frá landi.
Með grein þessari fylgir upp-
dráttur er sýnir stöðu mála og fyrir-
komulag framtíðarlausnar fráveitu-
málanna. Allt frárennslið verður
grófhreinsað, þannig að um útlits-
mengun verður ekki að ræða. Við
fjörur þar sem gert er ráð fyrir
útivist mun gerla og sýklamengun
sjávar lúta tilmælum Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar WHO,
um hreinleika sjávar. Miðað er við
kólígerlafjölda minni en 100 pr. 100
ml. Sem dæmi um lausnina við
Laugames er hreinleiki vatnsins
sýndur miðað við 1.000 m langa
útrás frá hreinsistöðinni þar.
Ingi Ú. Magnússon
gatnamálastj óri