Morgunblaðið - 21.03.1989, Síða 20

Morgunblaðið - 21.03.1989, Síða 20
20______________MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJÚDAGUR 21, MARZ 1989_ Hver ræður ferðinni í ör- yggis- og varnarmálum? eftirHrein Loftsson Athygli vakti þegar Ólafur Ragn- ar Grímsson, fjánnálaráðherra, hót- aði þeim forstöðumönnum ríkis- stofnana uppsögn úr starfí, sem færu fram úr heimildum flárlaga í rekstri stofnana sinna. Þetta gerði hann á fundi forstöðumannanna í síðasta mánuði. Við sama tækifæri sagði Ólafur Ragnar eitthvað á þá leið, að slíkt framferði yrði ekki þolað af stjómvöldum, sem þyrftu að standa þjóðinni reikningsskil gerða sinna. Það er einkum tvennt, sem er umhugsunarvert í þessu sambandi. í fyrsta lagi virðist lftið samræmi vera milli framangreindra orða og þeirrar athafnar Ólafs Ragnars, að- semja um ríflegar bætur í svoköli- uðu Sturlumáli, í stað þess að láta á það reyna fyrir Hæstarétti, en málið snerist einmitt um það, að forstöðumanni ríkisstofnunar var sagt upp starfi fyrir að brjóta fyrir- mæli ráðuneytis um, að halda sig innan heimilda fjárlaga. í öðru lagi, og það skiptir raunar meira máli fyrir efni þessarar grein- ar, má spyrja, hvaða þjóð það er, sem Ólafur Ragnar þarf að standa reikningsskil gerða sinna. Ólafur Ragnar Grímsson er ekki kjörinn fulltrúi á Alþingi íslendinga. Ætla verður, að sú þjóð, sem Ólafur Ragnar stendur ábyrgur frammi fyrir, sé það örlitla brot ísiendinga, sem réð úrsiitum um það, að hann var kjörinn formaður Alþýðubanda- Iagsins. Ábyrgðina á ráðherradómi Ólafs Ragnars Grímssonar bera þeir Jón Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra, og Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, og þingfíokkar þeirra. Sterkir oghlýir snjósleða- gallar. Loðfóðraðir snjósleðagallar með tvöfaldri ísetu og ytra byrði úr vatnsheldu nylonefni. Hlýir, þægilegir, sterkir og endingargóðir. OPIÐ laugardaga 9-12 aiLLiassaa Grandagarði 2, Rvík.. sími 28855 Þegar þannig er virt hver sú þjóð er, sem Ólafur Ragnar telur sig ábyrgan fyrir, þarf engan að undra með hvaða hætti hann rækir sín embættisverk. í þessarí grein er þó ekki ætlunin að fjalla um stefnu Ólafs Ragnars í ríkisfjármálum, en á þeim vettvangi hefur hann helst getið sér orð fyrir ný met í skatt- heimtu og aukafjárveitingum. Frumkvæði íslands eða einleikur Ólafs Ragnars? Tilefíii þessarar greinar er, að svo virðist sem utanríkisstefna þjóð- arinnar sé einnig í veigamiklum atriðum að sveigjast inn á brautir Ólafs Ragnars Grímssonar. Reynsl- an kennir, að það geti verið var- hugavert að treysta Jóni Baldvin til að framfýlgja stefnu, sem hann hefur boðað. Mjmdun ríkisstjómar- innar er gott dæmi um þetta, en fáir menn hafa talað meira um nauðsyn þess, að moka framsóknar- flórinn. Það efndi Jón Baldvin með því að ráða sig í vist hjá Framsókn- arflokknum og nú virðist hann ætla að sýna Ólafi Ragnari sömu auð- sveipni og Steingrími Hermanns- syni. Almennt var þó ekki búist við því, að Jón Baldvin Hannibalsson myndi svo skjótt afsala sér forræði í utanríkismáium til Ólafs Ragnars, a.m.k. ekki ef mið er tekið af ræð- um hans og skrifum um þau mál á undanfömum árum. Lítum aðeins nánar á staðreynd- ir. Á dögunum sótti Ólafur Ragnar Grímsson, ármálaráðherra, fundi í Moskvu og Ósló og túlkaði sjónar- mið, sem em andstæð grundvallar- stefnu _ Atlantshafsbandalagsins. Talar Ólafur Ragnar á slíkum fund- um fyrir hönd ríkisstjómarinnar, með vitund og vilja utanríkisráð- herra? Hvaða reglur gilda milli að- ila ríkisstjómarinnar um það, þegar einn ráðherra tjáir sig um málefni, sem að réttu lagi heyrir undir ann- an ráðherra? í fregnum norskra fjöl- miðla frá ráðstefnu um öryggismál í Ósló um sl. helgi hafa þessi atriði ekki vafist fyrir mönnum. Þar er vísað í „tillögu íslands", talað um „íslenskt frumkvæði" og sagt, að íslenski Qármálaráðherrann hafí fyrir hönd íslendinga hvatt til þess, að ráðstefna yrði haldin á íslandi um afvopnun á höfunum. Nú vakn- ar enn spumingin, sem sett var fram í upphafí greinarinnar, hvaða þjóð er það, sem Ólafur Ragnar er fulltrúi fyrir? Em íslendingar ekki aðilar að Atlantshafsbandalaginu í Kaupmannahöfn FÆST I BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖDINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI og ber okkur ekki sem þátttakend- um í því samstarfi, að stíga slík skref og bera fram slíkar tillögur í samráði við önnur aðildarríki bandalagsins? Svarið er, að með aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu höfum við gengist undir þá skyldu, gagnvart öðmm aðildarríkjum, að hafa sam- ráð við þau um öll mál, sem geta haft áhrif á öryggi þessara ríkja, áður en til framkvæmda kemur, þ.e. áður en vakið er máls á þeim utan bandalagsins. Svarið er, að með aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu höfum við gengist undir þá skyldu gagnvart öðmm aðildarríkjum að hafa sam- ráð við þau um öll mál, sem geta haft áhrif á öiyggi þessara ríkja, áður en til framkvæmda kemur, þ.e. áður en vakið er máls á þeim utan bandalagsins. Ólafiir Raguar og G. Batenin samstíga í Ósló í Aftenposten hinn 13. mars, segir, að Óiafur Ragnar Grímsson hafí sagt á framangreindri ráð- stefnu, að viðræður um afvopnun i höfunum geti orðið þriðji homsteinn viðræðnanna, sem nú fara fram á milli austurs og vesturs um af- vopnun en hinir homsteinamir væm viðræður um kjamavopn og nýhafnar viðræður um niðurskurð hefðbundins herafla í Evrópu. í frá- sögn blaðsins segir, að þessi „tillaga íslendinga" hafi fengið blendnar móttökur. Einkum er þar greint frá viðbrögðum Jóhanns Jörgens Holsts, vamarmálaráðherra Nor- egs, en hann vísaði til þess, að Atlantshafsbandalagið er flota- bandalag en Varsjárbandalagið landveldi. Atlantshafsbandalagið hefur m.a. af þessum sökum lagt áherslu á, að stuðla beri að jafn- vægi landherja í Mið-Evrópu, en yfírburðir Sovétmanna á því sviði em ein helsta ógn friðar í álfúnni. Hafa Sovétmenn loks fallist á, að Qalla sérstaklega um þau mál á ráðstefnú, sem nýlega hófst í Vínar- borg og nánar verður vikið að hér á eftir. Þegar samkomulag hefur orðið um þetta leggst Ólafur Ragn- ar á sveif með Míkhaíl S. Gorbatsj- ov, Sovétleiðtoga, og hvetur til þess, að samhliða verði farið að ræða um mál, sem aðilar höfðu orðið sam- mála um, að ekki væm á dagskrá á þessu stigi. Það þarf hins vegar ekki að koma á óvart, að samkvæmt frásögn Aft- enposten af framangreindri ráð- stefnu er greint frá tillögu Ólafs Ragnars í sömu andrá og greint er því, að sovéskur herforingi, G. Bat- enin að nafni, hafi skýrt frá þeirri fyrirætlun Sovétmanna, að fækka herskipum Norðurflotans um 71 skip á næsta ári. Þessu frumkvæði er vitaskuld slegið upp í frásögnum norskra fjölmiðla, en ýmsir þeirra taka þó fram, að tíminn verði að leiða það í ljós, hvort um raun- vemlegan niðurskurð sé að ræða, eða hvort Sovétmenn séu aðeins að losa sig við gömul og úrelt skip. „Fmmkvæði" Ólafs Ragnars hef- ur vakið verðskuldaða athygli í Sovétríkjunum og hefur sovéska fréttastofan Tass farið um það lof- samlegum orðum. í fréttaskeyti Tass segir, að Sovétmenn séu reiðu- búnir að styðja þetta frumkvæði og talað er um ný „skref í íslenskum utanríkismálum", þar sem sérstak- lega er vitnað í þau ummæli Steingríms Hermannssonar, for- sætisráðherra, að kjamavopn verði ekki á íslandi, hvorki á friðar-, né ófriðartímum. Ríkisstjórnin hundsar Atlantshafsríkin Hér að framan var þeirri spum- ingu varpað fram, hvort ekki væri eðlilegt að hafa samráð við ríki Atlantshafsbandalagsins í þessum viðkvæmu málum. Að óreyndu hefði mátt búast við því af stuðnings- manni Atlantshafsbandalagsins, að stíga engin skref varðandi öryggis- og vamarmál án samþykkis ann- arra bandalagsþjóða. Samstaðan hefur verið og er styrkur Atlants- hafsbandalagsins og forsenda þess árangurs, sem náðst hefur í af- vopnunarmálum að undanfömu. Ýmislegt bendir þó til, að þessar- ar sjálfsögðu samskiptareglu sé ekki fylgt af hálfu íslenskra stjóm- valda um þessar mundir og mun ég nú víkja nánar að því. Á undanfömum ámm hefur verið unnið innan Atlantshafsbandalags- ins að því, að samræma stefnuna hvað varðar viðræður við Varsjár- bandalagið um niðurskurð hefð- bundins herafla. Mér er minnis- stætt frá fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í Halifax vorið 1986, en þann fund sótti ég sem aðstoðarmaður þáverandi ut- anríkisráðherra, Matthíasar Á. Mathiesen, en hann var þá heiðurs- forseti Atlantshafsráðsins, að sett var á laggir sérstök nefnd hátt- settra embættismanna (svonefndur HLTF-hópur) til að marka sameig- inlega stefnu í þessum viðræðum. Það var ýmsum áhyggjuefni hve seint miðaði í MBFR-viðræðunum, sem staðið höfðu allt frá árínu 1973 og miðuðu að því, að draga úr hefð- bundnum herafla og auka jafnvægi milli heija í Mið-Evrópu. A gmnd- velli vinnu HLTF-hópsins var stefna Atlantshafsbandalagsins mörkuð fyrir viðræður, annars vegar um hefðbundinn vígbúnað og hins veg- ar um „traustvekjandi aðgerðir". Féllust Sovétmenn á þá tilhögun, að fyrmefndu viðræðumar fæm fram milli aðildarríkja Atlantshafs- bandalagsins annars vegar og Var- sjárbandalagsins hins vegar en síðamefndu viðræðumar væm á milli allra aðildarríkja ráðstefnunn- ar um öiyggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE). Hófust viðræðumar í Vín í byijun þessa mánaðar. Það hefur verið stefna Atlants- hafsríkjanna, að semja þyrfti um samdrátt hefðubndins herafla, enda væri hið gífurlega ójafnvægi á því sviði í Evrópu Sovétmönnum í hag og ein helsta orsök spennu og erfið- leika í samskiptum ríkja álfunnar. Það hefur jaftiframt verið stefna Atlantshafsríkjanna, að leggja bæri áherslu á, að samhliða niðurskurði kjamavopna yrði að nást árangur í þeim efnum, sem viðræðumar í Vínarborg snúast um, þ.e. um nið- urskurð hefðbundins vígbúnaðar og aðgerðir til að efla traust og draga úr tortryggni milli ríkja Evrópu. Þetta hefur verið forgangsröð mála. Hefúr ríkt samkomulag milli Atl- antshafsríkjanna um, að önnur mál verði látin bíða á meðan. í þessu sambandi verður að hafa þá stað- reynd í huga, sem áður var minnst á, að Atlantshafsbandalagið er flotabandalag og Atlantshafíð líflína þess. Því er eðlilegt að ríki bandalagsins leggi höfuðáherslu á, að draga úr spennu þar sem ófrið- arlíkur eru mestar. íslendingar hafa haft sömu aðstöðu og önnur ríki bandalagsins til að móta þessa stefnu og mér er ekki kunnugt um, að fulltrúar íslands hafí gert ágreining við þá forgangsröðun í samskiptum austur og vesturs, sem að framan hefur verið lýst í stuttu máli. Það skýtur því skökku við, að fulltrúi íslands á Vinarfundunum skuii við upphaf viðræðna ríkja Atlantshafsbandalagsins og Var- sjárbandalagsins um niðurskurð hefðbundins vígbúnaðar í Evrópu vekja máls á málefnum, sem eru alls óskyld umræðuefninu þar og í hróplegu ósamræmi við þá stefnu, sem lá til grundvallar viðræðunum af hálfu ríkja Atlantshafsbanda- Hreinn Loftsson „„Frumkvæði“ Ólafs Ragnars hefiir vakið verðskuldaða athygli í Sovétríkjunum og hef- ur sovéska fréttastofan Tass farið um það lof- samlegum orðum. I fréttaskeyti Tass segir, að Sovétmenn séu reiðubúnir að styðja þetta jfrumkvæði og tal- að er um ný „skref í íslenskum utanríkis- málum“, þar sem sér- staklega er vitnað í þau ummæli Steingrims Hermannssonar, for- sætisráðherra, að kjarnavopn verði ekki á íslandi, hvorki á frið- ar-, né ófriðartímum.“ lagsins. Málefnið, sem fulltrúi ís- lands vék að og lýsti í ræðu sinni, er hins vegar í fullkomnu samræmi við þau sjónarmið, sem Ólafur Ragnar Grímsson lýsti á ráðstefn- unni í Osló og í viðræðum sínum í Moskvu og minnst var á hér að framan. Hver ræður ferðinni? í ræðu Hjálmars W. Hannesson- ar, sendiherra í afvopnunarmálum, á Vínarfundinum 6. mars sl., sem hann flutti fyrir hönd utanríkisráð- herra, segir, að íslendingar vildu sjá viðræður hefjast í náinni framtíð um „traustvekjandi aðgerðir“ á. höf- unum og þá innan vébanda RÖSE. Hefði ekki verið eðlilegast að bera slíka hugmynd fram innan Atlants- hafsbandalagsins, t.d. í sambandi við störf HLTF-hópsins, áður en henni var fyrirvaralaust slengt inn á fund, þar sem viðræður voru að hefjast um allt annað mál. íslend- ingar höfðu í mörg ár haft full tök á, að móta dagskrá þessara funda. Eins og fyrr sagði, hugmyndin sem þama var borin fram af hálfu ís- lands sver sig í ætt við framan- greint „frumkvæði" Ólafs Ragnars Grímssonar. Höfundur hugmyndar- innar er Míkhaíl S. Gorbatsjov og hann kynnti hana fyrst í Murmansk í október árið 1987. Menn vissu um ruglingslegar og mótsagnakenndar hugmyndir Steingríms Hermannssonar í örygg- is- og vamarmálum, en er ekki kominn tími til að Jón Baldvin Hannibalsson geri það upp við sig í hvom fótinn hann ætlar að stíga í þessum efnum? Full ástæða er til að ræða málið á Alþingi og krefja ber utanríkisráðherra svara um það, hver ráði ferðinni. Jón Baldvin er þó Iqorinn fúlltrúi á Alþingi og þarf að standa íslendingum reikn- ingsskil gerða sinna, en ekki þeirri „þjóð", sem ólafur Ragnar Gríms- son tilheyrir og er fulltrúi fyrir. Höfundur er héraðsdómslögmað- ur og formaður utanríkisnefhdar Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.