Morgunblaðið - 21.03.1989, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.03.1989, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1989 LEITAÐU AÐSTOÐAR FAGMANNA Aöur en þú tekur ákvöröun um húsbyggingu eða íbúöarkaup, hvetjum viö þig til aö notfæra þér þjónustu fasteignasala, hönnuða og annarra sem þekkingu hafa, víö aö áætla greiðslubyrðina eins nákvæmlega og unnt er. GREIÐSLUBYRÐIOG GREIÐSLUGETA Greiöslubyrðina skaltu bera saman við greiðslugetu þína og láta þann samanburð hafa áhrif á hvaöa ákvarö- anir þú tekur. SKYLDUR OG ÁBYRGÐ FASTEIGNASALA Samkvæmt lögum um skyldur og ábyrgö fasteigna- sala, ber þeim aö gera íbúðarkaupendum grein fyrir áhvílandi lánum sem kaupendur taka viö, vöxtum af þeim, hvort lán séu verðtryggð, hvenær greiðslum eigi að vera lokið og hverjar eftirstöövar eru að viðbættum verðbótum. NÁKVÆM KOSTNAÐARÁÆTLUN HÖNNUÐAR Ætlir þú að byggja, er heppilegt að fá hönnuð íbúðarhúsnæðis til að gera nákvæma kostnaðar- áætlun. Láttu fagmenn aðstoða þig við að áætla greiðslubyrði vegna húsbyggingar eða íbúðarkaupa. Þannig eru góðar líkur á aö þú komist hjá skakkaföllum. ✓ / BYRJAÐU A RETTUM ENDA HAFÐU ÞITT A HREINU Bretland: Þokkagyðja í þinghúsinu sögð í tengslum við Líbýu Hefiir verið lagskona eins ráðherra og tveggja kunnra ritstjóra London. Reuter. BRESKIR þingmenn hafa krafíst þess, að ríkisstjórnin fyrirskipi tafarlausa rannsókn í kjölfar frétta um, að Pamella Bordes, starfsmaður neðri deildarinnar og fyrrum fegurðardrottning Indlands, sé jafnframt vændis- kona og í vinfengi við háttsettan, libýskan embættismann. Hafa bresku blöðin gert mikið úr þessu máli og sagði eitt þeirra, að ör- yggislögreglumenn hefðu yfir- heyrt einn ráðherra ríkisstjóm- arinnar vegna kunningsskapar hans við þokkagyðjuna. í síðustu viku flutti blaðið News of the World þá frétt, að Bordes, sem er 27 ára að aldri, drýgði tekj- umar með símavændi og sl. laugar- dag fullyrti blaðið, að hún hefði átt marga fundi með manni að nafni Ahmed Gadaff al Daim á glæsi- hóteli í París. Sagði ennfremur, að al Daim væri háttsettur í líbýsku leyniþjónustunni og frændi Mu- ammars Gaddafis Líbýuleiðtoga. Pamella Bordes þegar hún var kjörin Ungfrú Indland árið 1982. Bresku blöðin segja, að Bordes hafí verið lagskona Colins Moyni- hans íþróttamálaráðherra og rit- stjóra tveggja sunnudagsblaðanna, Andrews Neils, ritstjóra Sunday Times, og Donalds Trelfords, rit- stjóra Observers. Fékk hún starf í breska þinginu sem aðstoðarmaður íhaldsþingmannsins Davids Shaws og fyrir milligöngu annars manns og flokksbróður Shaws fékk hún í hendumar sérstakt öryggiskort. Leikur þingmönnum ekki síst hugur á að vita hvemig á því stóð enda eiga ekki aðrir að fá slíkt kort en þeir, sem öryggislögreglan sam- þykkir. Blöðin hafa birt myndir af Bor- des í fylgd þriggja fyrmefndra manna og var myndin af Moynihan og henni tekin þegar þau voru í veislu á vegum Ihaldsflokksins. Ýmsir þingmenn, jafnt úr stjóm sem stjómarandstöðu, hafa nú kraf- ist þess, að þetta mál verið kannað án tafar og sérstaklega hugsanlega tengsl Bordes við Líbýumenn en Bretar slitu stjórnmálasambandi við þá árið 1984 þegar bresk lögreglu- kona var skotin til bana fyrir utan líbýska sendiráðið í London. Bæjar- og sveitarstjórnarkosningar í Frakklandi: Þriðji kosningasig'ur Sos- íalistaflokksins á einu ári París. Reuter. FRANSKI Sósíalistaflokkurinn vann sigur í annarri umferð bæjar- og sveitarstjórnarkosninganna sem fram fóru i Frakklandi á sunnu- dag. Flokkurinn náði meirihluta i um 20 borgum sem hægriflokkur- inn, RPR, og miðflokkurinn, UDF, höfðu áður stjórnað. Þjóðfylking- in, flokkur Jean Marie Le Pen, sem þykir lengst til hægri í frönsk- um stjórnmálum og Græningjaflokkurinn bættu einnig við sig fylgi. Michel Rocard, forsætisráðherra Frakklands, sagði úrslitin vera sig- AFERÐ mcð Kópal Glitru r'.'jbiih'Aúm ur fyrir stefnu ríkisstjómarinnar og sagði Ijóst að almenningur í Frakk- landi væri sáttur við stjómarhætti Sósíalista. Þetta er í þriðja skiptið á einu ári sem Sósíalistaflokkurinn. fer með sigur af hólmi í kosningum í Frakklandi. Stjómarandstæðingar sögðu að tapið mætti rekja til inni- byrðis deilna milli miðflokksins og hægri manna. Stjómarandstaðan hélt þó völdum í tveimur stærstu borgunum, París og Lyon, en klofn- ingsframboð úr röðum sósíalista vann óvæntan stórsigur í Marseille. Flokkur Græningja fékk um 10 til 15 prósent atkvæða í bæjum í Austur- og Vestur-Frakklandi og er litið svo á að með þessu sé flokk- urinn orðinn raunverulegt stjóm- málaafl í Frakklandi. Jean-Marie Le Pen fékk um 11 prósent at- kvæða en hann bauð sig fram í París. Flokkurinn bauð fram lista í 45 bæjum og borgum og í þremur þeirra fékk hann yfir fimmtung greiddra atkvæða. Le Pen sagði úrslitin sýna að Þjóðfylkingin væri komin til að vera og kvað ljóst vera að ófarir stjómarandstöðunnar mætti rekja til þess að flokkamir tveir hefðu ekki verið reiðubúnir til að ganga til samstarfs við Þjóð- fylkinguna eftir þingkosningarnar á síðasta ári. Kommúnistaflokkurinn, sem átt hefur erfitt uppdráttar á undan- fömum ámm, tapaði enn fylgi. Flokkurinn tapaði fjómm borgum þ.á m. Amiens, sem kommúnistar höfðu stjómað í 18 ár. Leiðtogi kommúnista, Georges Marchais, sagði að ósigurinn mætti rekja til kosningaáróður sósíalista. „Því miður beindu leiðtogar sósíalista kröftum sínum að því að veikja Kommúnistaflokkinn í stað þess að einbeita sér að því að vinna sigur á hægri flokknum og öfgasinnuðum hægri mönnum," sagði Georges Marchais en flokksmenn hans höfðu ákaft biðlað til sósíalista um sam- starf fyrir kosningamar. ^Aúglýsinga- snnimier2_2480 Nýjar íslenskar bœkur um forritið EXCEL Fjallar um allar skipanir. Tekin eru fyrir atriði eins og: • Töflu og eyðublaðagerð • Fjármálaföll • Gagnasöfn • Uppsetning reikninga Veldu Kópal aieð gljáa við liæfi. Fræðslu og kennsluefni um og S: 10184 fyrir tölvur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.