Morgunblaðið - 21.03.1989, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 21.03.1989, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1989 35 Loðnuveiði: Brælaá miðunum BRÆLA var á loðnumiðunum í gær, mánudag, og engin veiði, að sögn Ástráðs Ingvarssonar starfs- manns loðnunefndar. í gær tilkynntu þessi skip um afla: Keflvíkingur 480 tonn til Valfóðurs, Fífill 620 til Lýsis og mjöls hf., Háberg 100 til Grindavíkur og Örn 550 til Hafn- arfjarðar. Á sunnudag tilkynntu þessi skip um afla: Sjávarborg 600 tonn til Njarðar hf., Guðmundur 900 til Kletts, Hákon 880 til Hafsíldar, Gígja 770 til Bolungarvíkur, Kap II 200 til Kletts, Bjami Ólafsson 700 til Neskaupstaðar, Harpa 400 til Valfóðurs, Hilmir 1.000 til Seyðisfjarðar, Þórshamar 420 til Neskaupstaðar, Bergur 230 til FIVE, Júpíter 1.230 til Kletts, Pétur Jónsson 540 til Kletts, Hólmaborg 1.330 til Seyðisijarðar og Höfrungur 400 til SFA. Á laugardag tilkynntu þessi skip um afla: Háberg 640 tonn til Grindavíkur, Sunnuberg 640 til Grindavíkur, Dagfari 520 til Njarðar hf., Grindvíkingur 950 til Siglufjarðar, Víkingur 800 til SFA, Sigurður 900 til FES, ísleif- ur 700 til FIVE, Huginn 580 til Bolungarvíkur, Valaberg 100 til Grindavíkur, Guðmundur Ólafur 580 til Reyðarfjarðar og Björg Jónsdóttir 150 til Hornafjarðar. Síðdegis á föstudag tilkynntu þessi skip um afla: Kap II 80 tonn til FIVE, Skarðsvík 640 til Raufar- hafnar og Jón Kjartansson 1.000 til Færeyja. Friðþjófur Helgason Guðrún Eyjólfsdóttir Fegurðardrottning Vesturlands eftir krýn- inguna á laugardagskvöld. Guðrún Ejjólfedóttir ungfrú Vesturland GUÐRÚN Eyjólfsdóttir, 19 ára frá Akranesi, var kjörin ungfrú Vesturland við hátíðlega athöfii á Hótel Stykkishólmi á laugar- dagskvöld. Dísa Lind Tómasdóttir, 19 ára frá Akranesi, var Iqjör- in ljósmyndafyrirsæta Vesturlands og jafiiframt kusu þátttakend- ur hana vinsælustu stúlkuna í sínum hóp. Sigurður Skúli Bárðarson hótel- að þessu sinni voru auk þeirra sem stjóri segir að kvöldið hefði heppn- ast eins vel og kostur var á. Skemmtiatriði voru m.a. tískusýn- ing stúlknanna sem þátt tóku og danssýning á vegum Dansskóla Auðar Haralds. Voru þar sýndir bæði rokkdansar og suður- amerí- skir dansar. Aðrir þátttakendur í keppninni að framan greinir, þær Elín Jóns- dóttir Borgamesi, Eydís Eyþórs- dóttir Stykkishólmi, Rannveig Anna Ólafsdóttir Ákranesi og Vigdís Stefánsdóttir Akranesi. Það var Halldis Hrönn Hö- skuldsdóttir, titilhafinn frá í fyrra; sem krýndi hina nýju fegurðar- drottningu. Skagaströnd: Varð undir aftur- hjóli vörubifreiðar Skagaströnd. ÞAÐ slys varð á Skagaströnd i gær að ungur maður varð nndir afturhjóli vörubifreiðar. Hann mun ekki hafii slasast alvarlega þótt sjónarvottur hafi óttast að hann hefði látist samstundis. Tildrög slyssins voru þau að Magnús Guðmannsson var að aka vörubifreið í samfloti við annan og ók Magnús aftari bílnum. Kolvit- laust veður var og erfið færð. Magn- ús festi bílinn sem hann var á í skafli. Tók hann þá það til bragðs að hlaupa uppi hinn bílinn til að fá hjálp frá honum. Hljóp Magnús fram með fremri bflnum og ætlaði að stökkva upp á þrep hans og grípa í hurðarhúninn. Hann missti takið í hálkunni og datt aftur fyrir sig. Þar sem þetta gerðist í þröng- um snjógöngum rann hann undir bflinn sem ók viðstöðulaust yfir hann. Sjónarvottur að slysinu sagði að honum hefði ekki dottið annað í hug en Magnús hefði látist samstundis þar sem bfllinn var á keðjum og með 3ja tonna gám á pallinum. Þegar að var komið var Magnús að reyna að skríða upp úr hjólförun- um og var með fullri rænu. Eftir að menn höfðu fullvissað sig um að Magnús væri ekki skaddaður á höfði eða baki var hann settur á sjúkrabörur og komið í næsta hús. Þangað sótti síðan sjúkrabíll Magn- ús og flutti á sjúkrahúsið á Blöndu- ósi. Læknirinn sem annast hann þar segir það ganga kraftaverki næst að Magnús skuli hafa sloppið svona vel. Magnús er óbrotinn og ekki með innvortis blæðingar en er mjög mikið marinn. Að sögn læknisins hefur bíllinn farið yfir lærin á Magnúsi og má þar sjá keðjuförin. Telur læknirinn að Magnús hljóti að hafa þrýstst ofan í snjóinn og það hafi bjargað honum frá frekari meiðslum. Magnús átti að vera í sjúkrahúsinu í nótt en fær líklega að fara heim í dag. Bflstjórinn sem ók yfír Magnús hafði ekki hugmynd um slysið fyrr en honum var sagt frá því eftir á. Ó.B. 'O INNLENT „Höldum aðalfund þeg- ar við teljum heppilegt“ — segir Berta Kristinsdóttir formaður sljórnar Fríkirkjunnar „Ég get ekkert tjáð mig um þetta mál, enda veit ég ekkert Fiskverð á uppboðsmörkuðum 20. mars. FISKMARKAÐUR hf. í Flafnarfirði Hæsta Laagsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 45,00 34,00 41,02 101,555 4.165.440 Þorskur(óst) 43,00 39,00 40,68 21,503 874.819 Þorskur(dbl.) 33,00 33,00 33,00 2,700 89.100 Ýsa 81,00 35,00 51,21 25,513 1.306.290 Ýsa(ósl.) 75,00 16,00 50,98 0,854 43.539 Karfi 27,00 15,00 26,07 14,212 370.501 Ufsi 21,00 21,00 21,00 1,048 27.019 Langa 15,00 15,00 15,00 0,117 1.767 Langa(ósL) 15,00 15,00 15,00 0,058 878 Steinbítur 26,00. 15,00 21,05 2,151 45.291 Steinbítur(ósL) 12,00 12,00 12,00 0,315 3.786 Koli 49,00 35,00 44,22 0,749 33.151 Lúða 445,00 280,00 306,05 0,399 122.373 Skata 100,00 100,00 100,00 0,240 24.000 Keila 11,00 11,00 11,00 0,055 605 Keila(ósL) 11,00 11,00 11,00 2,320 31.026 Rauðmagi 45,00 45,00 45,00 0,022 1.013 Samtals 40,94 174,318 7.135.578 Selt var aðallega úr Otri HF, Stakkavík ÁR, Víði HF, Fram HF og frá Tanga hf. 1 dag verða meðal annars seld 18 tonn af þorski, 10 tonn af ýsu, 15 tonn af karfa, 4,5 tonn af ufsa og 1,2 tonn af hrognum úr Oddeyrinni EA, 5 tonn af steinbít frá Odda HF og óákveðiö magn af blönduðum afla frá Tanga hf. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík 18. og 20. mars. Þorskur 49,00 43,00 43,71 14,674 641.447 Þorskur(ósL) 37,00 30,00 32,46 38,375 1.245.721 Þorsk(ósl.dbL) 30,00 20,00 28,77 0,833 23.965 Ýsa 71,00 30,00 31,69 2,136 67.692 Ýsa(ósL) 73,00 30,00 51,46 0,353 18.167 Karfi 21,00 19,00 19,71 13,171 259.661 Koli 30,00 25,00 25,10 0,302 7.580 Lúða 190,00 190,00 190,00 0,153 29.070 Grálúða 80,00 79,00 79,17 2,820 223.250 Rauðmagi 60,00 35,00 39,26 0,667 26.184 Hrogn 170,00 50,00 137,47 0,125 17.184 Samtals 34,78 73,609 2.559.921 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA Þorskur 46,50 25,00 44,31 46,593 2.064.605 Ýsa 53,00 26,00 43,05 54,754 2.357.214 Karfi 30,50 15,00 27,76 61,809 1.715.652 Ufsi 25,00 10,00 24,09 14,749 355.260 Steinbitur 15,00 5,00 13,07 2,145 28.040 Skarkoli 53,50 30,00 46,49 2,050 95.300 Lúða 275,00 200,00 236,24 0,760 179.540 Lax 44,00 32,00 39,50 0,800 31.600 Hrogn 130,00 130,00 130,00 0,130 16.900 Samtals 37,24 183,790 6.844.111 Selt var aðallega úr Hauki GK, Elínu Þorbiarnardóttur (S og Hrafni Sveinbjarnarsyni GK. I dag verða m.a. seld 20 tonn af þorski og óákveðið magn af ýsu, löngu og steinbít úr Skarfi GK, 1 tonn af smáum eldislaxi frá Silfurlaxi hf. og óákveöið magn af blönduðum afla úr Eldeyjar-Boða GK. í dag, miðvikudag, veröa m.a. seld 30 tonn af þorski úr Eldeyjar-Hjalta GK. um hvað maðurinn las yfir mönnum þarna í kirkjunni,“ sagði Berta Kristinsdóttir, formaður safiiaðarstjórnar Fríkirkjunnar í samtali við Morgunblaðið, en á sunnudag- inn gerðist það, að Þorsteinn Þorsteinsson formaður Safii- aðarfélags Fríkirkjunnar reis úr sæti í lok fermingar og guðsþjónustu og hélt tölu þar sem hann ítrekaði m. a. kröfu um að haldnir yrðu safiiaðar- fúndir og aðalfimdur. Berta sagði að engum úr safn- aðarstjórn né prestur safnaðarins hefðu verið boðaðir til þessarar uppákomu, þarna hefðu setið eftir nokkrir stuðningsmenn séra Gunnars Bjömssonar fyrmm Fríkirkjuprests og þeir einir væru til frásaenar um-Woit ---«1-1- út á. Hvað aðalfund varðaði, þá sagði Berta að safnaðarstjórnin væri að undirbúa þann fund og yrði hann haldinn þegar hún teldi það heppilegast. Brunapróf- anir og bruna- rannsóknir HAUKUR Ingason, verkfræð- ingur við Statens Provnings- anstalt í Svíþjóð, mun kynna brunatæknilegar rannsóknir og prófanir á fúndi sem haldinn verður við Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, fúndarsal á 2. hæð í nýbyggingu, miðviku- daginn 29. mars klukkan 15. — 18. Einnig verður fjallað um bruna- prófanir við Rb. Fundarstjóri verð- ur dr. Guðni Jóhannesson verk- fræðingur, fulltrúi íslands í Nord- test brand. Séra Gunnar Bjömsson fyirum Fríkirkjuprestur sagði í samtali við Morgunblaðið að ræða Þorsteins Þorsteinssonar á sunnudaginn hefði verið haldin til að kreíjast aðalfundar, sem hefði dregist allt of lengi að halda. „Það er ekkert nýtt að Safnaðarfélagið knýi á um aðalfund,“ sagði séra Gunnar Bjömsson. Fyrirlest- urumunga fólkið og kynlíf JÓNA Ingibjörg Jónsdóttir, hjúkrunar- og kynfræðingur heldur fyrirlestur í kvöld, þriðju- dagskvöld. Fyrirlesturinn Qallar um unga fólkið og þær breyting- ar sem eru að eiga sér stað i dag í kynferðismálum. Fyrirlesarinn Jóna Ingibjöig Jónsdóttir MS.Ed. rekur Kyn- fræðsluna og hefur starfað sjálf- stætt við kynfræðslu siðastliðið ár. Hún hefur haldið fiölda fyrirlestra og námskeiða, skrifað í blöð og tímarit og komið fram í útvarps- þáttum. Fyrirlesturinn, sem hefst klukk- an 20.00, er öllum opinn, en ungt fólk, kennarar og aðrir sem starfa að fræðslu til unglinga og ungs fólks em sérstaklega velkomnir. Aðgangseyrir er krónur 500. (Fréttatilkynning) Slökkvilið að störfúm við Kleifarsel. Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson Eldur í pizzaofui ELDUR kom upp i verslanamið- stöð við Kleifarsel laust eftir klukkan sex á sunnudagsmorg- un. Eldurinn er talinn hafá átt upptök sín í pizzaofhi á nýjum veitingastað í húsinu. Eldurinn læstist í vegg milli veitingastaðarins og blómabúðar og barst upp 'ahárgreiðslustofu á annarri hæð. Slökkvilið þurfti að ijúfa gat á milliloft og veggi til að ráða niðurlögum eldsins. Talsverðar skemmdir urðu í húsinu, einkum af sóti og reyk.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.