Morgunblaðið - 21.03.1989, Side 61

Morgunblaðið - 21.03.1989, Side 61
61 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1989 Um leikfimikennslu í Verslunarskólanum Til Velvakanda. Öskureið móðir skrifar í Velvak- anda 3. mars sl. og spyr spuminga varðandi_ leikfimikennslu í Verzlun- arskóla íslands. Nokkuð hefur lent í undandrætti að svara, en nú skal úr því bætt. Spuming hinnar reiðu móður hljóðar svo: „Hvemig stendur á því að nemendur eru látnir hlaupa úti á morgnana í myrkri, kulda og síðast en ekki síst á algjörlega ófærri leið? Þá á ég við Miklubraut- ina og aðrar umferðargötur." Því er til að svara að nemendur eru látnir hlaupa úti vegna þess að þeim er það hollt, að áliti leikfimi- kennara. Það er hins vegar rangt að nemendur séu látnir hlaupa í ófærð á umferðargötum. Leið nem- enda liggur aðeins á einum stað yfir götu, það er yfir Listabraut beint fyrir framan íþróttahús skól- ans. Hlaupið er eftir gangstéttum sem hafa verið ruddar eftir hveija snjókomu og leikfimikennarar telja sig hafa fylgst vel með ástandi brautarinnar, enda hlaupi þeir hana sjálfir annað slagið. Ef nemendur sjást hlaupa eftir götum, eru þeir að hlaupa eitthvað annað en leik- fimikennarar hafa mælt fyrir um. Það er því ekki einber slembilukka eins og móðirin telur að nemendur hafa ekki slasast á hlaupunum. Raunar má bæta því við að enda þótt slys í leikfími séu vel þekkt og virðist ekki verða umflúin með öllu, þá er hvorki skólastjóra né leikfimikennurum kunnugt um að nokkur nemandi hafi slasað sig á hlaupabrautinni nú. Aftur á móti hafa nokkrir nemendur slasast við það að detta á hálku á tröppum skólahússins og á lóð skólans. Það er nú svo með slysin að þau verða helst þegar allir halda sig örugga fyrir þeim. Að lokum er rétt að bæta því við að áhugasamir nemendur hlaupa úti í matartíma sínum og í fleiri leikfimitímum en beinlínis er ætlast til. Skólastjóm hefur að sjálfsögðu ekki önnur afskipti af slíkum hlaup- urum en þau að benda á að hlaupa á gangstétturh og vera með glit- bönd. Þorvarður Elíasson, skólastjóri. "Hnífur og skæri — ekki barna meðfæri" Víkverji skrifar Ispjalli Olafs M. Jóhannessonar um efni útvarps og sjónvarps hér í blaðinu sl. laugardag, sagði m.a.:“Hins vegar verða sjónvarps- stöðvar að varast að sýna áróðurs- myndir fyrir böm, svo sem Selinn Snorra, sem var á Stöð 2, en þar voru veiðimenn nánast í hlutverki j glæpamanna." Víkveiji sá ekki þessa mynd og er því ekki dómbær um hana. i Sagan um selinn Snorra er ákaf- lega falleg bamasaga. Þessi bar- nasaga var bönnuð í Noregi á stríðsárunum. Astæðan var sú, að hún var talin annað og meira en falleg bamasaga. Hún var tal- in mjög hörð ádeila á kvislingana í Noregi og samstarf þeirra við þýzka nazista. Það er því kannski ekki að ástæðulausu, að veiði- mönnunum er lýst sem hálfgerð- um glæpamönnum! Sagan stendur fyrir sínu og vel það, þegar hún er lesin sem bamasaga. En hún verður ekki síður merkileg, þegar hún er lesin með þessa vitneskju i huga. En vel má vera, að þessi þáttur sögunnar hafí ekki verið sjáanlegur í myndinni, sem Ólafur M. Jóhannesson talar um. XXX j að eru ótíðindi, að áfengi- Jr sneyzla hefur aukizt svo mik- ið sem raun ber vitni um og sagt er frá í Morgunblaðinu í fyrradag. Þar kemur fram, að heildameyzla áfengis hafi aukizt um 61% frá h' árinu 1966 til 1986. Ástæðan fyr- ir þessu er vafalaust breyttur lífsstíll. íslendingar hafa verið að temja sér daglegar lífsvenjur ann- arra þjóða. Þetta þýðir, að meira er drukkið af léttum vínum með mat og sennilega er töluvert um, að fólk hafi tekið upp þann sið þjóða í Suður-Evrópu að drekka vín nánast daglega með mat. Þá fer fólk meira á veitingastaði en áður, enda hefur þeim fjölgað og það hefur aukið áfengisneyzlu. Stundum er talað um, að við eigum að temja okkur “menning- arlegri" umgengni við áfengi, en þjóðir á norðlægum slóðum hafa vanizt. Það má vel vera, að eitt- hvað sé til í því. Hitt fer ekki á milli mála, að umtalsverð áfengi- sneyzla kemur fólki í koll, þótt síðar verði. Það kemur kannski ekki í ljós fram eftir öllum aldri en skyndilega kemur fram, að fólk, sem hefur drukkið verulegt magn af áfengi um dagana, þótt ekki teljist til alkóhólisma, eldist ver en aðrir og heldur ekki sömu heilsu á efri árum og þeir, sem hafa tíðkað áfengisneyzlu í minna mæli. Þetta ættu þeir að hugleiða, sem telja sér alla vegi færa í áfengisneyzlu. Annars hefur Víkveiji oft furð- að sig á þreki þeirra, sem telja sig geta drukkið áfengi, hvort sem er létt vín eða sterk, í hádegi og haldið áfram að vinna síðdegis. Hér skal fullyrt, að lítið verður úr þeirri vinnu. Það er óhugs- andi, að þeir, sem drekka 2-3 ■vínglös með mat í hádegi, haldi fuliu vinnuþreki, það sem eftir er dagsins. Það er mikil sjálfsblekk- ing, ef menn halda það. Enda eru fleiri og fleiri, sem líta á það sem gamaldags og úrelt fyrirbæri að drekka í hádeginu! Það mætti gjarnan efna til þjóðarhreyfingar gegn slíkri drykkju. xxx Iþessum dálki var sl. sunnudag gerð að umtalsefni tillaga á Alþingi um að fela menntamála- ráðherra að láta halda íslenzku námskeið fyrir almenning í sjón- varpi. Víkveiji lýsti síðan þeirri skoðun, að sennilega væri Stöð 2 betur treystandi í þeim efnum en Ríkissjónvarpinu. Einn af lesend- um Morgunblaðsins hafði sam- band við Víkvetja og lýsti furðu sinni á þessari skoðun. Hann benti á, að Stöð 2 væri ekki sízt ábyrg fyrir því að demba yfir landslýð erlendu efni, fyrst og fremst amerísku afþreyingarefni, sem væri um 80% af efni þessarar sjón- varpsstöðvar. Það væri undarlegt sjónarmið, að fyrirtæki, sem væri helzti farvegur fyrir þessi erlendu áhrif inn f landið væri betur til þess fallið að taka upp vöm fyrir íslenzkt mál en Ríkissjónvarpið, sem væri þó komið með erlent efni niður í 50-60% af útsendu efni. Frekar ætti að gera þá kröfu til Stöðvar 2 að draga úr þessari umfangsmiklu útsendingu á er- lendu ruslefni. Þessu er hér með komið á framfæri. og bollarnir að vera í þvottavélinni...? Viltu heyra i henni Dúllu okkar. Hún er fundin ...! HÖGNI HREKKVÍSI „ NÁÐI þEIM?... 3JÁÐU 6aRA þ’ESSI FOTAPÖR'

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.