Morgunblaðið - 21.03.1989, Blaðsíða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1989
Morgunblaðið/Davíð Pétureson
Kvenfélagskonurnar á leiðinni til Akureyrar í leikhúsferð.
Skorradalur:
Kvenfélagskonur í leikhúsferð
Grund.
LAUGARDAGINN 11. mars
lögðu 23 konur úr Kvenféiag-
inu 19. júní af stað til Akur-
eyrar í helgar- og leikhúsferð.
Ferð þessi var ákveðin á sl. ári
í tilefni 50 ára afmælis Kvenfé-
lagsins og þrátt fyrir ófærð og
illviðri undanfamar vikur, létu
konunar ekkert breyta áætlun
sinni, yfirgáfu Hvanneyrarstað
klukkan 9 að morgni.
Þátttaka í ferðinni var afbragðs
góð því af 27 félagskonum fóru
23.
- DP.
Stykkishólmur:
Nóg að gera hjá
starfcliði bæjarins
Stykkishólmi.
ÞAÐ hefír verið nóg að gera lyá
starfsliði Stykkishólmsbæjar við
að moka snjó og ryðja götur. Sum-
staðar eru skaflar orðnir yfir
mannhæð og það gerist ekki á
hveijum degi.
Þetta nota böm og unglingar sér
°g byggja útsýnisskýli og fleira í
þeim dúr. Á einum snjóbílnum voru
þrír krakkar í óða önn að útbúa sér
góðan útsýnisstað til að horfa yfir
og þótti fréttaritara tiivalið að festa
þetta dugnaðarlið á mynd.
Það er gaman að vera íslendingur
sögðu menn áður þegar bylur geys-
aði og skaflar mynduðust.
- Ámi
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Börnin notfærðu sér snjóinn og bjuggu sér tU útsýnisstað.
Nemendur fá sér kaffisopa i frimínútum.
Skógarskóli:
Fullorðinsfræðsla í
ensku og tölvufræði
Holtí undir Eyjaljöllum.
NÝR þáttur i starfsemi Skóga-
skóla hófst um miðjan febrúar
þegar 26 fullorðnir nemendur,
bændur og bændakonur úr sveit-
unum í kring, settust á skólabekk
og hófii nám í tölvufræði og
ensku.
Aðspurður sagði Sverrir Magnús-
son skólastjóri að skólanum hefðu
borist fyrirspumir um fullorðins-
fræðslu og hvemig henni yrði kom-
ið á fyrir um ári síðan frá íbúum í
nærsveitum. M.a. hefði kvenfélagið
Fjallkonan í Austur-Eyjafialla-
hreppi formlega óskað eftir því að
"»fræðslu fyrir fullorðna yrði komið
á. í fyrstu voru kannaðir möguleik-
ar á námskeiðahaldi, en síðan hefðu
mál skipast á þann veg að þau voru
unnin í samvinnu við Fjölbrauta-
skólann á Selfossi. í desember sl.
hefðu verið send út könnunarbréf
frá Skógaskóla til að kanna hugsan-
lega þátttöku til allra heimila undir
Eyjaflöllum og í Mýrdal.
Undirtektir hefðu verið góðar og
í janúar hefði verið sótt um leyfi
til menntamálaráðuneytisins tii að
hefja kennslu í. ensku fyrir tvo
flokka, byijendur og lengra komna
og í tölvufræði á þessari vorönn
kennslunnar í skólanum.
Litið var inn í kennslustund hjá
Jóni Einarssyni, sem var að útskýra
framburðarreglur í ensku. Athygli
nemenda var óskipt og auðfinnan-
legt að nemendur vildu ekki láta
trafla kennsluna.
í kaffilhléi vora hin margvísleg-
ustu mál sveitanna rædd. Virtust
allir vera ánægðir með þessa nýjung
í skólanum sem væri sjálfsagt að
nýta sér. Þá var einnig rætt um
það menntunargildi sem fullorðins-
fræðsla gæti gefíð og nokkrir sögðu
að með þessari byijun væri ákveðið
stefnt að stúdentsprófi og að á
næsta skólaári hlyti að verða meiri
aðsókn f fleiri greinar sem gæfí enn
frekari möguleika.
Fréttaritari
Leikfélagið sýnir „Ærsladrauginn“
Húsavfk.
.iEIKFÉLAG Húsavíkur frum-
ýndi laugardaginn 11. mars
gamanleikinn Ærsladrauginn
eftir Noel Coward í þýðingu
Ragnars Jóhannessonar, undir
leikstjórn Hávars Siguijónsson-
ar. Ljósameistari var Jón Arn-
kelsson.
Leikstjórinn hefur náð góðum
tökum á þessum áhugamannaleik-
hópi, hlutverkin falla vel saman,
enginn sker sig sérstaklega úr, svo
heildarsvipur sýningarinnar
góður.
er
Húsið var fullsetið við góðar
undirtektir áhorfenda, sem fögn-
uðu leikuram og leikstjóra ákaft
í leikslok.
Leikendur eru Aldís Friðriks-
dóttir, Guðný Þorgeirsdóttir, Jó-
hannes G. Einarsson, Sigríður
Harðardóttir, Svava Viggósdóttir,
Þorkell Bjömsson og Öm Ólason.
Vinsældir leikritsins þegar það
var framsýnt í London vora svo
miklar að það var sýnt 2.000 sinn-
um, svo búast má við að leiknum
verði hér vei tekið og sýningar
verði margar, en hva margar
sjáum við að leikslokum.
- Fréttaritari
Leikstjóra og leikendum fagnað að leikslokum.
Húsavík:
Mývatnssveit:
Fundað um hálendisvegi
Björk, Mývatnssveit.
FERÐAMÁLAFÉLAG Mývantssveitar gekkst nýlega fyrir fundi í Hót-
el Reynihlíð. Aðalumræðuefni fundarins var lagning vegar um hálendi
Islands. Fundarstjóri var Arnþór Björnsson. Gestur fundarins var
Trausti Valsson skipulagsfræðingur. Flutti hann fróðlegt framsöguer-
indi og sýndi jafiiframt myndir og kort af hálendinu. Trausti er með-
al annars mikill áhugamaður um gerð vegar um hálendið og hefúr á
undanfórnum árum unnið að þeim málum.
Með slíkri vegalagningu er talið gerð. Annars vegar norður Bleik-
að mjög muni batna vegasamband
milli Suður- Norður- og Austurlands
og stytta leiðir að mun. Búið er að
semja skýrslu um hálendisveg og
kanna hvort Vegagerð ríkisins og
Landsvirkjun gætu sameinast um
að Jeggja veg yfir Sprengisand.
Á fundinum kom fram að gert er
ráð fyrir tveimur leiðum sem aðal-
lega koma til greina við þá vega-
smýrardal og Fnjóskadsal til Akur-
eyrar, hins vegar um Bárðardal.
Talið er að snjóflóðahætta sé mjög
mikil í Bleiksmýrardal og því vart
hægt að reikna með opinni leið þar
meira en sjö mánuði á ári. Þarf því
Bárðardalsleið til að koma til að
sinna fímm mánaða vetraramferð.
Kunnugir menn á fundinum töldu
hins vegar hagkvæmustu leiðina til
vegalagningar um hálendið vera
tvílmælalaust austan Skjálfanda-
fljóts. Þar væri snjólettast og besta
vegarst'æðið og síðan áfram austur.
að Mývatni, því þar er fyrir miðstöð
ferðamannaiðnaðar. í sambandi við
þennan veg yrði ennfremur hægt
að stytta leiðina til Austurlands með
vegi austur, norðan til Dyngjufjalla.
Öll þessi vegagerð er að sjálfsögðu
miðuð við fullominn veg, sem fær
yrði að mestu allan ársins hring.
Þeir ræðumenn sem töluðu á
fundinum töldu brýnt að sem fyrst
yrði ráðist í gerð vegar um hálend-
ið. Formaður Ferðamálafélags Mý-
vatnssveitar er Jón Illugason.
Kristján