Morgunblaðið - 17.05.1989, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 17.05.1989, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVTKUDAGUR 17. MAÍ 1989 Yfírmannaskipti hjá Varnarliðinu: Sérhyggja kann að spilla fyr- ir nauðsynlegum endurbótum - sagði Eric McVadon flotaforingi í kveðjuávarpi sínu Keflavík. VFIRMANNASKIPTI urðu hjá /arnarliðinu á Keflavíkurflug- /elli í gær. Þá tók Thomas F. Hall flotaforingi við af Eric A. iVicVadon flotaforingja sem ver- ið hefur yfirmaður varnarliðsins undanfarin tvö og hálft ár. í kveðjuávarpi sínu sagði McVa- don m.a. að sérhyggja bæði af hálfu íslendinga og Bandaríkja- manna gæti leitt til þess að varnarmálaráðuneyti Banda- ríkjanna og Bandaríkjaþing Húsavík: Tvö atvinnu- fyrirtæki gjaldþrota Húsavik. TVÖ atvinnufyrirtæki á Húsavík sem þjóna sjávarút- veginum hafa verið Iýst gjald- þrota. Naustir hf. sem rekið hefur dráttarbrautina og viðgerða báta á Húsavík og víðar af Norð- urlandi. Foss hf., véla og bátaviðgerð- arverkstæði, er gamalt fyrirtæki sem réðst í miklar byggingar- framkvæmdir fyrir nokkrum árum sem telja má að hafi verið hluti orsaka þessa gjaldþrots. Bústjóri beggja þrotabúanna hefur verið skipaður Örlygur Hnefíll Jónsson, hdl., Húsavík. - Fréttaritari samþykkti ekki nauðsynlegar Qárveitingar til verkefiia sem koma myndu íslendingum til góða með beinum eða óbeinum hætti. Yfirmannaskiptin fóru fram við hátíðlega athöfn að viðstöddum mörgum háttsettum yfírmönnum og tignum gestum. Eric McVadon flotaforingi kom víða við í kveðjuá- varpi sínu en hluta þess flutti hann á íslensku. Sagði hann að fylgis- menn veru vamarliðsins hér á landi yrðu að láta raddir sínar heyrast jafnoft og af sama krafti og andstæðingar þess. Hugmyndir um endurskoðun vamarsamstarfs- ins þyrftu ef til vill frekar að snú- ast um skuldbindingar íslendinga en það hvers væri að vænta af hálfu Bandaríkjamanna í formi íjárveitinga m.a. til ýmissa verk- efna hér á landi sem komið gætu íslendingum vel. Mikilvægt væri að samningar milli íslendinga og vamarliðsins stæðust endurskoð- un þingnefnda ogjafnvel sérstakra rannsóknamefnda. Sérhyggja og ofúráhersla bæði Bandarílq'a- manna og íslendinga á ýmsa einkahagsmuni sína gæti orðið til þess að ekki fengjust nauðsynleg- ar ijárveitingar til vamarliðsins hér á landi. Leita þyrfti leiða til að draga úr kostnaði án þess að slakað yrði á viðbúnaði vamarliðs- ins. McVadon flutti hluta ræðu sinnar á íslensku og sagði m.a.: „Lítið á okkur hér á vellinum sem vamarliðið ykkar, í raun jafnt og að nafninu til. Heimsækið okkur, styðjið okkur, ræðið við okkur en VEÐURYFIRLIT Á HÁDEGI í DAG ÞETTA kort er byggt á veðurspá frá í gær, sent frá Englandi í gegnum gervihnött og tekið af veðurkortarita hjá Radíómiðun, Grandagarði, Reykjavík. Vegna verkfalls Félags íslenzkra náttúru- fræðinga eru ekki gerðar veðurspár hjá Veðurstofu íslands og verða lesendur Morgunblaðsins því sjálfir aö spá í veðrið, eins og þeim er lagið. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma Staður hhi veður Staður hiti veður Akureyri kl. 18 2 slydduél Genf 17 Reykjavíkkl. 18 8 léttskýjað Hamborg Kalró Helsinkl 14 Kanarí 22 Kaupmannah. London 20 Narssarssuaq Madrid 26 Nuuk Malaga 20 Osló 14 Mallorca 22 Stokkhólmur Þórshöfn 20 Marseille Moskva París 15 21 Aþena 25 Amsterdam 20 Prag 19 Berlin 21 Róm 18 Belgrad Briissel 18 Varsjá Vín 19 11 Frankfurt 21 Zurich 17 látið ekki eins og við séum ekki til né verið ósanngjamir eða kom- ið fram við okkur eins og ókunn- unga.“ Eric McVadon tók við stöðu yfírmanns vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli 10. október 1986. Við athöfnina í gær sæmdi Henry C. Stackpolle III hershöfð- ingi McVadon orðu fyrir vel unnin störf á íslandi. Þá þakkaði Þor- steinn Ingólfsson sendiherra, skrifstofustjóri vamarmálaskrif- stofunnar, McVadon fyrir gott samstarf og bauð hinn nýja yfir- mann, Thomas F. Hall, velkominn. BB Eric A. McVadon flotaforingi og fráfarandi yfirmaður varnarliðsins til hægn og Thomas F. Hall flotaforingi og nýr yfirmaður vamarliðs- ins á Keflavíkurflugvelli skera sér sneið af tertu sem gestum var boðið upp á í tilefni dagsins og notaði McVadon sverð sitt til að skera tertuna. Aðalkjarasamningur flugmanna rann út 15. maí: Viljum álíka launahækk- anir og* aðrir hafe, fengið - segir Kristján Egilsson formaður FÍA KRISTJÁN Egilsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflug- manna, segir kröfúr félagsins vegna aðalkjarasamnings við viðsertyendur verða á svipuðum nótum og það sem hefúr verið samið um að undanförnu í þjóð- félaginu hjá öðmm hópum laun- þega, en aðalkjarasamningur flugmanna gekk úr gildi á mánu- daginn var. Nú er farið að ræða aðalkjarasamning jafnframt samningi um vinnufyrirkomulag á nýjum Boeing flugvélum Flug- leiða. Fundur stóð í gær hjá ríkissáttasemjara og annar fúndur hefúr verið boðaður í dag. Með tilkomu nýju flugvélanna, Boeing 737-400 og 757 fækkar um einn í stjómklefa, úr þremur í tvo. Flugmenn hafa gert kröfu um 7% almenna launahækkun vegna þessa og sagði Kristján aðspurður um röksemdir að þetta skapaði aukið vinnuálag. Flugmenn væru með eitt launakerfi og sömu laun á hvaða flugvélum sem þeir flygju óg þess vegna deildist þetta á alla. Flugmenn hjá Amarflugi væru með 7% hærri laun en flugmenn Flugleiða og þess utan mætti bú- ast við því að innan mjög fárra ára yrðu aðeins tveir í stjómklefa flugvéla almennt. Aldís, hina nýja Boeing flugvél Flugleiða, hefur ekki verið flogið í rúma viku vegna deilunnar og verður ekki fyrr en niðurstaða fæst, að sögn Kristjáns. Hann sagði að á samningafundum hefðu flugmenn ítrekað óskað eftir við- ræðum um önnur atriði en vinn- utíma vegna tilkomu nýju vélanna, en því ætíð verið hafnað. Þessi launakrafa hefði ekki átt að koma forsvarsmönnum Flugleiða í opna skjöldu, hún hafi lengi legið í loft- inu. Félagið hafi veitt undanþágu til þjálfunar á vélunum og heim- flugs og því miður hafi ekki verið hægt að bíða lengur með að stöðva vélina úr því að ekki samdist. Fregnir hafa borist um það að erlend flugfélög hafi gert fyrir- spumir til Flugleiða um það hvort nýja vélin sé til sölu. Um það sagði Kristján: „Ég er sannfærður um að tilboð í þessar vélar hefur engin áhrif á hvort Flugleiðir semja við okkur eða ekki. Þeir koma til með að selja þessar vélar, ef þeir telja sér hag í því umfram það að reka þær sjálfir. Þetta era miklir reikni- og viðskiptamenn sem stjóma þessu fyrirtæki og þar gildir krón- an og aurinn." Húsavík: Tap Fiskiðju- samlagsins 62 milljónir Húsavík. “ AÐALFUNDUR Fiskiðjusamlags Húsavíkur var haldinn fimmtu- daginn 11. maí og kom þar fram að tap á rekstri félagsins var um 62 mifijónir króna. Heildarvelta samlagsins var um 593 miiyónir og svo til hin sama og árið áður. Innlagður bolfiskur var 6.100 tonn og innlögð rækja um 1.000 tonn. Samdráttur varð í bolfiski um 13% og rækjuafla um 47%. Háir vextir, gengistap, lækkandi markaðsverð erlendis og samdráttur í innlögðum afla olli þessum verulega hallarekstri á árinu sem var eins og áður segir 62,3 milíjónir. Fyrstu Qórir rnánuðir þessa árs virðast gefa vonir um betri rekstur á yfírstandandi ári. - Fréttaritari Djúpkarfínn á Reykjaneshrygg: Grálúðuuppbót kemur fyrir tilraunaveiðarnar Sjávarútvegsráðuneytið styður útgerðir 5 togara til tilraunaveiða á djúpkarfa á Reykjaneshrygg utan fiskveiðilögsögunnar. Stuðningurinn felst í því, að veiðidagar teljast ekki til sóknardaga í sóknarmarki og afli reiknast hvorki inn í aflamark né aflahámark, enda er hann tek- inn utan lögsögunnar. Að auki kemur viðbótarkvóti á grálúðu, 10 tonn á hvem dag, sem veiðarnar em stundaðar eftir fyrstu vikuna, en þó ekki í fleiri en 14 daga. Frystitogaramir Sjóli og Haraldur Krisljáns- son hafa báðir notið stuðnings þessa. Árni Kolbeinsson, ráðuneytisstjóri ráðuneytið tekið ákvörðun um skipin í sjávarútvegsráðuneytinu, sagði í samtali við Morgunblaðið, að ákveð- ið hefði verið að styðja 5 skip til þessara tilraunaveiða þar sem þær gætu skilað okkur mikilvægum upp- lýsingum um hugsanlega veiði þarna og aukið með því möguleika flotans til athafna. Það væri því vissulega tilvinnandi að stuðla að þessum til- raunum. Hann gat þess að leitað hefði verið til LÍU eftir ábendingum um skip til tilraunaveiðanna og hefði í kjölfar þess. Fiskifræðingar hefðu talið heppilegast að veiðisvæðin yrðu könnuð í apríl og júní og hefðu frystitogararnir Sjóli og Haraldur Kristjánsson orðið fyrir valinu í apríl. Sfðan væri rætt um þrjá nafn- greinda togara í júní, en endanleg ákvörðun lægi ekki fyrir. Árni lagði áherzlu á það, að hér væri ekki um „opinn víxil“ að ræða. Þessi stuðn- ingur næði aðeins til skipanna fimm. Haraldur Kristjánsson var að þessum veiðum í 15 daga og hlaut því 80 tonna viðbót við grálúðukvóta sinn. Karfaafli hans í allt var 50 tonn. Sjóli var að veiðum í 23 daga og aflaði alls 210 tonna af karfa og jók við það grálúðukvóta sinn um 140 tonn. Helgi Kristjánsson, út- gerðarstjóri togaranna, sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að sér þætti þessi stuðningur ekki nægur og ein- kennileg væri sú ráðstöfun að ekk- ert kæmi fyrir fyrstu vikuna, sem væri bæði erfiðust og kostnaðarsö- must. Hann sagði ennfremur, að útgerðin hefði fullan hug á fram- haldi þessara tilraunaveíða, en þá þyrfti meðal annars að huga betur að pakkningum og mörkuðum til að fá nægilegt verð fyrir karfann.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.