Morgunblaðið - 17.05.1989, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 17.05.1989, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1989 'í 17 Stangaveiðifélag Reykjavíkur 50 ára í dag - segir Jón G. Baldvinsson formaður SVFR Stangaveiðifélag Reykjavík- ur á hálfrar aldar afmæli í dag, 17. maí. Það eru nákvæmlega 50 ár síðan 48 menn komu sam- an og stofnuðu stangaveiðifélag sem þeir ákváðu þá og þegar að skyldi heita Stangaveiðifé- lag Reykjavíkur. Aðeins tveir þeirra eru lifandi, Valur Gísla- son leikari og Gísli Friðrik Ped- ersen. Að aðeins tveir skuli enn lifa segir nokkra sögu um stöðu stangaveiða á íslandi fyrir hálfri öld, hana stunduðu ein- ungis menn á besta aldri, því aðrir höfðu varla fjárráð. til þess og því síður bifreið til að koma sér á árbakkann. í dag teUa félagar í SVFR yfir 2.000 og eru það karlar og konur á öllum aldri. Og stangaveiði- menn í landinu eru taldir telja tugþúsundir. Stofnendur SVFR voru flestir fastagestir í Elliða- ánum og var félagið stofhað fyrst og fremst til að taka þær á leigu, sem tókst. I dag hefur félagið um tuttugu veiðisvæði á sínum snærum og hyggur á enn meiri umsvif, ekki síst með þeim hætti að gera silungsveiði hærra undir höfði svo og ferð- um á framandi staði, eins og Aðalvík, Héðinsijörð, Arnar- vatnsheiði, Veiðivötn, Græn- land og jafnvel Alaska. Formenn og stjórnarmenn hafa eðlilega verið margir á hálfri öld, en núverandi formaður er Jón G. Baldvinsson. Þegar Jón var spurð- ur í gær hvað honum væri efst í huga á slíkum hátíðisdegi í sögu félagsins, sagði hann að það væri þakklæti til þeirra frumkvöðla sem byggðu upp og lögðu rækt við Stangaveiðifélagið í byijun, stangaveiðimönnum bæði í Reykjavík og um land allt til heilla. Um stöðu og hlutverk slíks félags hálfri öld frá stofnun sagði Jón að SVFR myndi eftir sem áður vera í þjónustu veiðieðlisins og auka þá þjónustu jafnt óg þétt, Þau tímamót eru þessi misserin, að mörg þúsund landsmanna stunda stangaveiði þar sem aðeins voru tugir fyrir hálfri öld. SVFR vinnur að því að standa undir slikri byltingu. klakstöð, Skógarlax í Mosfells- sveit, á móti Guðmundi Bang. Þá hefur félagið staðið að baki ýmissa stórfelldra ræktunarátaka svo sem er gera átti vatnasvæði Lagarfljóts að laxveiðiparadís, byggt veiðihús og keypt önnur og laxastigagerð hefur og borið við, t.d. í Norðurá og Tungufljóti. Auk þess að halda sínu striki á slóðum sem þegar hafa verið troðnar, er stefna SVFR að auka þjónustuna við stangaveiðimenn eins og áður hefur verið vikið að. Trygging stangaveiða fyrir kom- andi kynslóðir er einnig ofarlega á baugi og hefur félagið barist með þeim vopnum sem til eru gegn sjókvíaeldi á laxi, en hin síðari ár hefur mikið magn af slíkum laxi sloppið úr kvíum og sannanlega gengið í laxveiðiár í miklu magni, einkum við sunnan- verðan Faxaflóa. Telja flestir sér- fræðingar að villtum laxastofnum stafi mikil hætta af erfðamengun sem í kjölfarið mun fylgja. Vegna þessa hefur stjóm SVFR rætt það af alvöru að beita sér fyrir stofn- un genabanka til að varðveita hina náttúmlegu laxastofna. Er stefnt að því að koma þessu í kring hið allra fyrsta. Svona mætti lengi halda áfram, en í dag verður haldið mikið af- mælishóf í Súlnasal Hótels Sögu. Stefán Á. Magnússon formaður fræðslu- og skemmtinefndar SVFR sagði í samtali við Morgun- blaðið, að veislan yrði hin vegleg- asta og reiknað væri með að gest- ir yrðu ekki færri en 500. I því skini hafa nokkrir bakarar innan vébanda SVFR bakað 500 manna tertu sem er hönnuð eins og fáni félagsins. Veitingar verða að auki fjölbreytilegar, svo og skemmtiat- riði. Til sýnis á staðnum verða auk þess uppstoppaðir risalaxar, veiðistangasafn SVFR og fleira. „Allir félagar era hvattir til að koma og taka með sér maka og gesti,“ sagði Stefán. SVFR er langt frá þvi að vera einungis veiðileyfamiðlun. Það er langstærsta stangaveiðifélag landsins og þjónar sem slíkt marg- þættu félagsstarfi, út koma Veiði- maðurinn þrisvar á ári og Veiði- fréttir mánaðarlega, haldin era skemmtikvöld mánaðarlega á vetram og kast- og fluguhnýt- inganámskeið era reglulegur hluti af starfseminni svo eitthvað sé nefnt. Félagið hefur verið meira og minna viðloðandi laxarækt, ekki síst síðan árið 1961, er það keypti klakhús við Stokkalæk á Rangárvöllum. 1967 tók félagið við rekstri eldisstöðvarinnar við Elliðaárnar og nokkur undanfarin ár hefur félagið rekið sína eigin SVFR til þjónustu veiðieðlisíns. Lax stekkur Sjávarfossinn í Elliðaánum, en SVFR var upphaflega stofiiað til þess að leigja árnar. enda hefði almennur áhugi lands- manna á stangaveiðiíþróttinni stóraukist og færi ört vaxandi. SVFR þyrfti að vera í stakk búið til að bera meðbyrinn og nýta hann vel. „Efst í huga þakklæti til frumkvöðlanna“ Gámafiskurinn: Tilteknir menn njóta forréttinda við veitingu útflutningsleyfa - Breytt skipulag nauðsynlegt, segir Kristján Ragnarsson LEYFI til útflutnings á isuðum físki er enn á hendi viðskiptadeildar utanríkisráðuneytisins. Krislján Ragnarsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að það fyrirkomulag ýti um of undir útflutning, og bendir á að verð á brezku mörkuðunum sé nú lægra en í fyrra. Kristján seg- ir ennfremur að haft sé á orði að tilteknir menn njóti forréttinda við veitingu útflutningsleyfa og upplýsingar utanríkisráðauneytisins til útflytjenda um leyfðan útflutning séu í litlu samræmi við staðreynd- ir. Því sé nauðsynlegt að tekin verði nú þegar ákvörðun um breytt fyrirkomulag og komið á þeirri aflamiðlun og skipan útflutnings, sem samkomulag hafi orðið um á útmánuðum síðastliðnum milli utanríkis- ráðherra og hagsmunaaðilja. „Upphaf hugmynda um aflamiðl- un má relqa til þess frumkvæðis sem sjávarútvegsráðherra hafði um samstarf viðskiptadeildar utanríkis- ráðuneytisins, sjávarútvegsráðu- neytisins, útvegsmanna, fiskvinnsl- unnar og sjómanna um stjórnun á útflutningi á ísuðum fiski,“ segir Kristján. „Ástæða þótti til þessa samstarfs vegna ítrekaðs verðfalls á erlendu ísfiskmörkuðunum vegna offramboðs héðan. Þetta samstarf hófst í upphafi síðasta sumars og stóð til ársloka. Þá átti nýtt fyrir- komulag að taka við. Utanríkisráð- herra lýsti því yfir þá, að leyfisveit- ingar til útflutnings á ísfiski yrðu að fara út úr ráðuneyti sínu. Hlut- verk þess væri meðal annars að framfylgja samningum við Evrópu- bandalagið og því gæti það ekki staðið í því að bijóta þá samninga með takmörkunum á útflutningi. Hann virðist ekkert hafa meint með þessu. Ráðuneyti hans sleit sam- starfinu um áramót og hefur eitt annazt leyfísveitingar á útflutningi á ísuðum gámafíski með þeim hætti er veldur gífurlegri óánægju. Það er haft á orði að tilteknir aðilar njóti sérstakra forréttinda við leyfisveitingar. Það kemur fram með þeim hætti, að þessir aðilar hafa haft samband við útvegsmenn, sem ekki hafa fengið útflutnings- leyfi og boðizt til að annast útflutn- ing fyrir þá. Að auki hafa þeir falazt eftir fiski til kaups til eigin útflutnings. Andstætt því, sem gerist við út- flutning skipanna, fá útflytjendur á gámafiski hvorki að vita hveijir hafi fengið leyfi til útflutning né hve mikið. Þetta pukur og leynd er með öllu óþolandi og veldur að- eins óánægju og tortryggni. í ný- legu svari utanríkisráðherra við fyr- irspurn á Alþingi kom fram að veitt hafi verið leyfi til útflutnings á 26 gámum í 12. viku ársins til Þýzka- lands, þegar ráðuneyti hans sagði útflytjendum að leyfí hefði verið veitt til útflutnings á 6 gámum. Við höfum mörg dæmi um að þann- ig hafi verið staðið að útflutningi og upplýsingum um hann. Það er alveg ljóst að of mikið hefur á þessu ári verið flutt af ísfiski til Bretlands. Fyrstu fjóra mánuði þessa árs er meðalverðið 87 pens, sama tíma í fyrra var það 91 og 94 1987. Við höldum að núverandi fyrirkomulag á leyfisveitingum fyr- ir gámana ýti undir þennan útflutn- ing. Það þarf miklu betri upplýs- ingamiðlun, en nú er til að byggja hæfilegan útflutning á. Ákvörðun um þessa framkvæmd verður að taka mjög fljótt. Pukri og leynd verður að linna. Þeir, sem telja sig talsmenn opins þjóðfélags, verða að láta af vilja sínum til ofstjórnun- ar,“ sagði Kristján. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Frá athöfiiinni á Kefiavíkurfiugvelli. Frá vinstri: Hans Kristján Arna- son, stjórnarformaður Stöðvar 2, Eric A. McVadan og Thomas F. Hall, flotaforingi, sem varð yfirmaður stöðvarinnar á þriðjudag. Stöð 2 sendir út í kapalkerf- inu á Keflavíkurflujarvelli Koflnvífr ^ Keflavík. STOÐ 2 er nú meðal þeirra val- kosta sem bandarískir varnarliðs- menn á KeflavíkurflugveHi geta valið um í kapalkerfi sínu. Á föstu- dag hófust fyrstu sendingamar þegar Eric A. McVadan flotafor- ingi og yfirmaður flotastöðvarinn- ar kveikti á tæki því sem breytir útsendingu stöðvarinnar fyrir bandaríska sjónvarpskerfið. Fyrir á kapalkerfinu voru 4 rásir. Eric A. McVadan flotaforingi sagði við þetta tækifæri að hann hefði lengi haft áhuga á að íslenskt sjónvarpsefni stæði vamarliðsmönn- um til boða. Nokkrir hefðu komið sér upp loftnetum til að ná útsendingu stöðvarinnar og væri hann í þeirra hópi. McVadan, sem talar og skilur nokkuð í íslensku, sagði meðal ann- ars að hann fylgdist oft með frétta- þættinum 19:19 og hefði gaman af. Nú era um 5.500 Bandaríkjamenn á Keflavíkurflugvelli, en þeir munu þó ekki eiga þess kost að sjá nema þann hluta dagskrárinnar sem send- ur er út óraglaður. Þeir geta þó eins og aðrir fengið sér afraglara. Fyrir í kapalkerfmu vora tvær rásir sem senda út ýmiss konar efni og er önn- ur rásin allan sólarhringinn. Hinar tvær senda út kyrrmyndir með ýms- um upplýsingum. BB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.