Morgunblaðið - 17.05.1989, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 17.05.1989, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1989 Magnús Sveinsson, kennari - Minning Fæddur 6. september 1906 Dáinn 5. maí 1989 Magnús Sveinsson fæddist 6. september 1906 á Hvítsstöðum í Mýrasýslu. Foreldrar hans voru Sveinn Helgason bóndi og seinni kona hans, Elísabet Guðrún Jóns- dóttir. Systkinin á Hvítsstöðum urðu mörg. Árið 1913 var Sveinn búinn að missa heilsuna og varð þá að sundra fjölskyldunni. Sveinn lést svo ári síðar. Magnús var tek- JMin í fóstur að Valshamri. Þar ólst hann upp og dvaldist til fullorðins- ára hjá hjónunum Soffiu Hallgríms- dóttur og Níelsi Guðnasyni. Magnús leit alltaf á þessi hjón og böm þeirra sem sína fjölskyldu og mun hann hafa verið mjög lánsamur að lenda hjá svo góðu fólki. Snemma hafði Magnús hug á að afla sér menntunar. Sú leið var þó ekki greið snauðum unglingi. Samt tókst honum að dvelja tvo vetur, 1928-1930, á Alþýðuskólanum að Hvítárbakka og á Táma-Iýðháskól- anum í Svíþjóð dvaldi hann veturinn 1931-1932. Síðan lá leið hans í Kennaraskólann í Reykjavík. Þaðan lauk hann kennaraprófi vorið 1935. Framhaldsmenntunar aflaði hann sér einnig síðar. Lífsstarf Magnúsar varð kennsla bama og unglinga víðsvegar um land, síðast við Rétt- arholtsskóla í Reykjavík. Tólfta september 1948 giftist hann móðursystur minni, Guðnýju Margréti Bjömsdóttur frá Núps- dalstungu í Miðfirði. Þau stofnuðu heimili sitt á ísafírði, þar sem Magnús gerðist kennari við Gagn- fræðaskólann. Þau sumur, sem Magnús og Guðný Margrét áttu saman, komu þau alltaf í heimsókn hingað í Miðfjörð til ættingja Guðnýjar. Batt Magnús þá vináttu við okkur, tengdafólk sitt, sem hélst órofa til æviloka hans. Þann 5. júní 1953 andaðist Guðný Margrét, fáum dögum eftir að þau hjón höfðu eignast dóttur. Henni var gefíð nafn móður sinnar, Guðný Margrét og varð hún föður sínum til mikillar huggunar í þung- um harmi. Næstu árin urðu Magn- úsi nokkuð örðug. Samt tókst hon- um að halda heimili fyrir þau feðg- in. Á summm dvaldi hann á heim- ili föðursystur sinnar, Guðnýjar Níelsdóttur, sem reyndist þeim feðginum frábærlega vel. Eftir að Magnús missti Guðnýju konu sína, hélt hann þeirri venju að koma í heimsókn hingað í sveitina og sá þannig um að dóttir hans kynntist frændfólki sínu. Tólfta júní 1958 giftist Magnús Guðnýju Sveinsdottur frá Eyvind- ará í Eiðaþinghá. Sá ráðahagur varð Magnúsi til mikillar gæfu og ekki síður dóttur hans, sem Guðný Sveinsdóttir hefur gengið í móður stað með miklum ágætum. Guðný Margrét Magnúsdóttir (fædd 1. júní 1953) stundaði nám í Myndlista- og handíðaskóla ís- lands og síðar í listaskóla í Finn- landi. Hún er myndlistarkona og húsmóðir í Reykjavík. Hún giftist 16. júní 1973 Helga Guðbergssyni lækni og eiga þau þijú börn. Á efri árum fékkst Magnús tals- vert við ritstörf. Meðal annars skráði hann sögu og nemendatal Hvítárbakkaskóla. Slíkar bækur hafa mikið heimildagildi og því meira er frá líður og færri verða til frásagnar. Eg hygg að sterkustu eðlisþættir Magnúsar hafi alltaf verið fróðleiks- þrá, sjálfsbjargarviðleitni og trygg- lyndi, sem aldrei brást. Hann varð þeirrar gæfu aðnjótandi að geta dvalið við góða heilsu á ágætu heim- ili sínu til hinsta dags, en hann andaðist aðfaranótt 5. maí sl. Að leiðarlokum skulu Magnúsi þökkuð löng og góð kynni. Fjöl- skyldu hans og vinum sendum við hjónin samúðarkveðjur. Ásdís Magnúsdóttir Vinum fækkar eftir því sem líður á lífsgönguna og söknuðurinn sár- ari ogtómleikinn meiri sem vináttan og tryggðin hefur bundist traustari böndum. Jafnvel þótt öll ytri rök hnigi að því að dauðinn hljóti að vera í næsta skrefi, þegar löng ævi er að baki, verður jafn erfitt að sætta sig við staðreyndina að ekki er lengur hægt að njóta samskipta vináttu og gleði með þeim vinum, sem gæfa lífsins gaf okkur á göngunni miklu. Einn þessara vina okkar er Magnús Sveinsson, kennari og fræðimaður, sem lést 5. maí og okkur langar til að kveðja með ör- fáum orðum. ' Fyrir rúmum 30 árum lágu leiðir okkar Magnúsar saman er við flutt- um í sambýlishúsið í Álfheimum 64 hér í borg. Þar hófust samskipti og vinátta milli fjölskyldna okkar, sem aldrei síðan hefur borið skugga á. Þar lærðist okkur að meta mann- kosti hans, samviskusemi, heiðar- leik og góðlátlega kímni ásamt sérs- takri nákvæmni sem okkur fannst stundum nálgast sérvisku, en var þó aldrei þreytandi og gaf persónu- leika hans skemmtilegt svipmót. Ljúflyndi hans og glaðvært viðmót veitti öllum er með honum voru og störfuðu hlýju og friðsæla gleði sem vermir minningarnar um góðan vin nú að leiðarlokum. Bömin okkar og einkadóttirin, Guðnýju Margrét, lifðu bernskuárin saman bæði í starfi og leik og voru sem systkinahópur, og þar fundum við best hvað þessi augasteinn hans naut mikillar ástar og föðurlegrar umhyggju í öllu því er verða mátti henni til þroska og blessunar í lífínu og var þar ekkert til sparað. Ekki má þá gleyma þætti hins uppalandans, seinni konu hans Guðnýjar Sveinsdóttur, er tók að sér móðurhlutverkið og sinnti því af svo mikilli ástúð og næmleika að aðeins er á færi þeirrar konu, er svo á gott hjarta að þar er allt veitt án kröfu. Hún hefur verið honum stoð og stytta og skóp hon- \« NÝJUNG í BÍIAVIÐSKIPTUM! Sól hækkar stöðugt á lofti og allir komnir í VORskap. Og við höldum áfram með VORafslátt og VORgreiðslukjör. Nú ætlum við að bjóða þér sport- og fjölskyldubílinn frábæra Dodge Shadow Turbo með þessum góðu kjörum, ásamt met- sölubílnum Dodge Aries. Allir bílar á ▼•Itéll eru af árgerð 1989. ATHUGID! AÐEINS ÞESSA VIKU. jjpw Dodge Shadow Turbo er kraftmikill bíll búinn öllum möguleg- um aukahlutum og fáanlegum tökkum og á verði sem fær marga miklu dýrari bíla til að falla f skuggann. Dodge Shadow ES Turbo 2ja dyra Fullt verð Kr. 1.299.900.- VORverð Kr. 1.229.900.- Dodge Shadow ES Turbo 4ra dyra Fullt verð Kr. 1.325.500. VORverð Kr. 1.255.500. VORafsláttur Kr. 70.000. VORafsláttur Kr. 70.000.- Dodge Aries er metsölubíllinn hjá okkur. Einstaklega þægi legur bíll í allri umgengni og akstri. Dodge Aries LE 2ja dyra Fullt verð VORverð Kr. 1.028.900.- Kr. 978.200.- Dodge Aries LE 4ra dyra Verð áður Kr. 1.080.400. VORverð Kr. 1.010.400. VORafsláttur Kr. 50.000. VORafsláttur Kr. 70.000.- Við tökum allar tegundir notaðra bíia í skiptum, en Dodge, Plymouth og Chrysler bilar eru sérstaklega velkomnir í skiptum, og þá getum við lánað allan mismuninn i allt að átján mánuði. Líttu við og reynsluaktu og þú sannfærist! JÖFUR HF NÝBÝLAVEGI 2 • SÍMI 42600 JOFUR- ÞEGAR ÞÚ KAUPIR BfL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.