Morgunblaðið - 17.05.1989, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 17.05.1989, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1989 Reuter Palestínumenn hópast upp í vörubíl sem flutti þá yfir á Gaza-svæðið í gær. ísraelsher hafði lokað svæð- inu fyrirvaralaust og rekið alla íbúa þess sem voru við vinnu í ísrael heim. Ríkisstjórn ísraels kemur sér saman um friðaráætlun: Boða aukna hörku verði áætlunin ekki samþykkt Kanada: Kreppa í nskiðju 4000 manns atvinnulausir Washington. Frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. EITT stærsta fiskiðjufyrirtæki Kanada, National Sea Products í Halifax, hefir tilkynnt, að félagið neyðist til að draga úr starfsemi sinni, sem verði þess valdandi, að 4000 manns missi atvinnu sína um styttn, eða lengri tíma. Formaður stjómar fyrirtækis- ins, Gordon Cummings, skýrði blaðamönnum svo frá í Halifax á dögunum, að flestir þeirra, sem sagt hefir verið upp atvinnunni verði að líkindum atvinnulausir í allt að eitt ár. Cummings sagði að félagið hefði getað þraukað eitt- hvað lengur með því að loka nokkr- um fiskiðjuverum fyrir fullt og allt en stjórn félagsins hefði ákveðið að halda starfseminni áfram í nokkmm verksmiðjum, með færri starfsmönnum í hverri verksmiðju fyrir fyrir sig í stað þess að loka mörgum Erfiðleikar fiskiðnaðarins í Kanada hafa aukist s.l. tvö ár aðal- lega sökum þess, segja útgerðar- menn, að veiðileyfakvótar em of þröngir, fiskverðið lágt auk þess sem erlend veiðiskip sæki á miðin utan 200 mílna svæðisins t.d. á Stóra- banka. Fiskifræðingar hafa bent á, að fiskstofninn hefir rénað til muna á aðalveiðisvæðunum við Nýfundnaland og Nova Scotia. Búist er við að enn þurfi að tak- marka fiskveiðar til þess að efla fiskistofnana en það myndi þýða aukið atvinnuleysi í fiskiðnaðnum. Útgerðarmenn hafa krafist þess að Kanadastjóm geri ráðstafanir til að draga úr ofveiði erlendra fiskiskipa rétt utan við 200 mílna landhelgi Kanada. Kanadískir sjó- menn telja, að fískveiðar Frakka og Bandaríkjamanna utan 200 mílna takmarkanna gangi mjög á fiskstofna t.d. við George-banka. National Sea fyrirtækið tapaði 5.8 milljónum Kanada-dollara (rúmum 260 milljónum ísl. kr.) á síðasta ári borið saman við 25 milljónir dollara hagnað (um 1.100 millj. ísl. kr.) á árinu 1986. Nokk- uð hefir ræst úr á fyrsta fjórðungi ársins, sem er að líða, er tap félags- ins reyndist vera ein milljón dollar- ar (um 46 millj. ísl. kr.) á móti átta milljóna dollara (um 370 millj. ísl. kr.) tapi á síðasta ársijórðungi 1988. PLO hafinar hugmyndum Shamirs Jerúsalem. Reuter. RÍKISSTJÓRN ísraels hefiir nú eftir fjögurra ára undirbúning mótað friðaráætlun sem að hluta til á að koma til móts við kröfiir uppreisnar- manna á hemumdu svæðunum. Frelsissamtök Palestínu, PLO, hafa lagst eindregið gegn áætluninni sem felur meðal annars í sér að íbúar hemumdu svæðanna kjósi sér fulltrúa til viðræðna við ísraelsstjórn. ísraelska stjórnin er samt vongóð um að vinna megi áætluninni fylgi meðai Palestínumanna, ella verði uppreisninni mætt af meiri hörku en nokkru sinni fyrr. Bretland: ísraelska stjómin samþykkti á sunnudag með 20 atkvæðum gegn 6 áætlun Yitzhaks Shamirs um kosn- ingar á hemumdu svæðunum þar sem valdir yrðu 10 fulltrúar til að ræða við Israela um takmarkaða sjálfsstjórn. George Bush Banda- ríkjaforseti hefur lýst yfir stuðningi við áætlunina en Sovétmenn hafa ekki gert upp hug sinn. Palestínumenn hafa krafist þess að 140.000 arabar í Austur-Jerúsal- em, sem ísraelar innlimuðu árið 1967, fái að kjósa. Af ásettu ráði er ekki minnst á þetta atriði í plagg- inu sem samþykkt var á sunnudag. Ekki er heldur talað um þá kröfu Palestínumanna að hlutlausum aðilj- um verði leyft að fylgjast með kosn- ingunum. Aætlunin gerir ráð fyrir því að eftir þriggja ára sjálfstjórn Palestínumanna hið mesta yrði sa- mið um frambúðarfyrirkomulag hemumdu svæðanna. PLO hafnaði friðaráætluninni á mánudag eins og búist hafði verið við. í yfirlýsingu frá framkvæmda- LOGSUÐUTÆKI FREMSTIR I 100 AR ÁRVÍK ÁRMÚU I -REYKJAVlK - SfMI 687222 -TELEFAX 6672ÍS nefnd PLO í Túnis sagði að í áætlun- inni væri palestínsku þjóðinni og rétt- indum hennar ekki gert nægilega hátt undir höfði. Einnig væri litið fram hjá ályktunum Sameinuðu þjóð- anna um þetta efni. Yitzhak Rabin, varnarmálaráð- Bandaríkin: Nýsjálenskur hoki í stað þorsks og ýsu Wasliington. Frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Nýsjálendingar, sem reyndust dugmeiri en Islendingar við að selja Bandarikjamönnum dilka- kjöt, virðast nú undirbúa að skjóta okkur ref fyrir rass öðru sinni, að þessu sinni í fisksölu. Fiskurinn frá Nýja Sjálandi sem hér um ræðir kallast hoki. í heil- síðuauglýsingu frá einni af stærri kjörbúðakeðjum Bandaríkjanna er hokinn auglýstur á eftirfarandi hátt: „Ef þér þykir góð ýsa og þorskur þá muntu elska þessi gómsætu, léttu fiskflök. Auk þess að vera magur er hoki frá Nýja Sjálandi auðveldur í matreiðslu. Þú getur soðið hann, bakað hann, steikt hann eða ma- treidd hann í örbylgjuofni. Verðið er 2,59 dollarar enskt pund (135 ísl. krónur)“. herra ísraels, átti á mánudag fund með 15 fulltrúum Palestínumanna þar sem hann reyndi að telja þá á að fallast á friðaráætlun ríkisstjórn- arinnar. í ræðu sem ráðherrann hélt við Hebreska háskólann í Jerúsalem skoraði hann á Palestínumenn að ganga til samninga um kosningar ella yrðu viðbrögðin mjög harkaleg. „Þið, íbúar arabaheimsins, ættuð að muna að þið hafið tapað öllum orr- ustum gegn okkur,“ sagði Rabin meðal annars. ísraelsher greip til mjög óvenju- legra og harkalegra ráðstafana í gær þegar ákveðið var að loka Gaza- svæðinu og reka alla íbúa þess heim. Þar á meðal voru um það bil 60.000 manns sem vinna á daginn í ísrael og voru þeir reknir fyrirvaralaust úr vinnunni. Talsmenn hersins sögðust vera að leita að morðingjum ísraelsks hermanns sem hvarf 3. maí. Þeir neituðu því að aðgerðirnar tengdust yfirlýsingum Rabins um aukna hörku gagnvart Palestínumönnum ef þeir samþykktu ekki áætlunina um kosn- ingar á hemumdu svæðunum. Jafhaðarmannaflokk- urinn skreppur saman St. Andrews, frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Frammámenn Jafiiaðarmannaflokksins ákváðu um helgina að draga n\jög úr starfsemi flokksins. Andstæðingar hans te(ja þetta upphafið að endalokum flokksins. í yfirlýsingu flokksins um helgina kom fram að einungis 11.000 félagar eru í flokknum nú. Á síðastliðnu hausti voru meðlimir flokksins 30.000. Flokkurinn hefur því ekki lengur fjármagn til að bjóða fram í öllum kjördæmum í öllum kosning- um. Stöðug átök jafnaðarmanna og ftjálslyndra lýðræðissinna eru talin helsta skýringin á þessum flótta úr röðum flokksins; Formaður hans, dr. David Owen, sagði að stuðningur við miðjuflokkana hefði farið minnkandi að undanförnu og það endurspeglað- ist í félagatölum flokksins. Hann sagði einnig að Jafnaðarmannaflokk- urinn yrði ekki lagður niður og myndi halda áfram að berjast fyrir stefnu- málum sínum. Ýmsir frammámenn Frjálslynda lýðræðisflokksins hvöttu jafnaðar- menn til að ganga til liðs við sig svo að_ miðjumenn í breskum stjórn- málum stæðu sameinaðir á ný í ein- um flokki. Frammámenn í Verka- mannaflokknum hafa einnig boðið jafnaðarmenn velkomna í sínar raðir. Almennt er talið að þetta sé upp- hafið að endalokunum á glæsilegum ferli dr. Davids Owens í breskum stjómmálum. Mjög ólíklegt er að hann gangi til liðs við annan stjórn- málaflokk. Spilling á meðal sovéskra valdamanna?: Lígatsjov segir að ásak- anirnar séu pólitísk árás Moskvu. Reuter. FYRRUM hugmyndafræðingur sovéska kommúnistaflokksins, Jegor Lígatsjov, sem nú á sæti í stjórnmálaráði flokksins, hefur vísað því á bug að flugufótur sé fyrir þvi að nafti sitt tengist rann- sókn á skipulögðum glæpum í Grænland: Nýr stjómmálaflokkur Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgfunblaðsins. UNNIÐ er að stofnun nýs stjórnmálaflokks í Grænlandi. Steftiuskrá flokksins verður á svipuðum nótum og danska Framfaraflokksins. Hið grænlenska nafn flokksins verður Ineriartorneq og er frumkvöðullinn að stofiiun hans Arne Ib Nielsen, sem fyrir skemmstu sagði sig úr smáflokknum Issitup Partiaa, eins þingmanns hægriflokki. Ib Nielsen segir, að hann hafi sagt vinna af alefli gegn sívaxandi só- skilið við Issitup Partiaa af persónu- síalískri innrætingu í Grænlandi," legum ástæðum. - „Markmið mitt sagði Ame Ib Nielsen í viðtali við með stofnun nýja flokksins er að grænlenska útvarpið. Sovétrílqunum, að því er sovéska fréttastofan Novosti greindi frá í gær. Lígatsjov sagði að yfirlýsing- ar Nikolajs Ivanovs, sem vinnur að rannsókn málsins á vegum rikissaksóknarembættisins i Moskvu, væru liður í pólitískri aðför sem beint væri gegn sér. Lígatsjov hefur verið talinn helsti keppinautur Míkhaíls Gorbatsjovs um æðstu völd í Sovétríkjunum. Ivanov olli miklu fjaðrafoki í kosn- ingakappræðum í sjónvarpi á föstu- dag þegar hann sagði að í kjölfar rannsóknar á skipulagðri glæpa- starfsemi í Sovétríkjunum hefðu böndin borist að valdamestu mönnum Sovétríkjanna. Hann sagði að Lígatsjov væri viðriðinn málið sem og fyrrum félagar í stjórnmálaráð- inu, þeir Míkhaíl Solomentsev og Grígoríj Romanov. Einnig væri þátt- ur Vladimirs Terebilovs, fyrrum hæstaréttardómara, rannsakaður. Ivanov, sem sakað hefur stjórn- völd í Kreml um að reyna að hylma yfir málið, var í framboði til hins nýja fulltrúaþings sem kosið var til öðru sinni á sunnudag. Ivanov bar sigurorð af 27 öðrum frambjóðend- um í Leningrad og hlaut 60% at- kvæða. Embættismenn í Leningrad sögðu að fýlgi Ivanovs hefði komið frá kjósendum sem hefðu verið ósátt- ir við árásir valdamestu stofnunar Sovétríkjanna, forsætisnefndar æðsta ráðsins, á Ivanov í flokksmál- gagninu Prövdu á laugardag. Ivanov og yfirmaður hans Telman Gdlyan hafa lengi haldið því fram að valdamenn innan kommúnista- flokksins tengdust því sem nefnt hefur verið Uzbekistan-málið. Ný- lega var fyrrum háttsettur embættis- maður kommúnistaflokksins í Moldavíu, sem bendlaður var við málið, handtekinn og Júrí Tsjúr- banov, tengdasonur Leoníds Brez- hnevs, fyrrum Sovétleiðtoga, hlaut nýlega dóm fyrir mútuþægni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.