Morgunblaðið - 17.05.1989, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 17.05.1989, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1989 The King’s Singers. The King’s Singers í Islensku óperunni BRESKI sönghópurínn The King’s Singers, heldur tónleika í islensku óperunni á vegum Tónlistarfélags- ins fimmtudaginn 18. maí kl. 20.30. í fyrra héldu The King’s Singers upp á 20 ára afmæli ferils síns og eins og nafnið gefur til kynna eiga þeir rætur að rekja til kórsins í King’s College í Cambridge, og nefndu sig upphaflega Schola Cant- orum Pro Musica Profana in Cantabridgiense. Alastair Hume, kontra-tenór, og Simon Carrington, barítón, hafa verið með frá upphafi, aðrir söngvarar eru Jeremy Jack- man, kontra-tenór, Bob Chilcott, te- nór, Bruce Russell, barítón og Step- hen Connolly, bassi. Undanfarin 20 ár hafa The King’s Singers haldið fleiri þúsund tónleika, gefið út 40 hljómplötur með tónlist frá 16. öld til nútímans á fjölda tungumála, og komið fram ótal sinnum í útvarpi og sjónvarpi. The King’s Singers koma hingað á leið sinni heim úr tónleika- ferð um Bandaríkin, og hefur The British Council styrkt komu þeirra. Á efnisskránni á fimmtudagskvöld eru fimm þekkt bandarísk þjóðlög, útsett af Robert Chilcott, tvö spönsk verk frá 16. öld og verk eftir Gordon Crosse sem var frumflutt í fyrra við hátíðahöld í tilefni af því að 400 ár voru liðin síðan Francis Drake sigr- aði flota Spánveija. í næsta verki, Sjómennimir frá Kermor, halda þeir sig við hafið, og efnisskránni lýkur með velþekktum lögum af léttara taginu. Miðasala er í íslensku óperunni. (Fréttatilkynning) Léttsveit í Kringl- unni LÉTTSVEIT bandaríska fiotans er nú stödd hér á landi vegna yfir- mannaskipta hjá varnarliðinu á Keflavíkurfiugvelli. Hljómsveitin kemur í heimsókn í Kringluna í dag, miðvikudag, og mun leika nokkur Iög fyrir viðskiptavini Kringlunnar milli kl. 16 og 17. (Fréttatilkynning) Norskur fyrirles- ari í Kennarahá- skólanum UM ÞESSAR mundir er norskur sérkennslufræðingur, Knut Öst- rem, staddur hér. Hann er for- stöðumaður ráðgjafar- og sál- fræðiþjónustu í nágrenni Osló- borgar. Knut Östrem flytur fyrirlestur í Kennaraháskóla íslands fímmtudag- inn 18. maí nk. sem hann nefnir „Norræn viðhorf til frávika frá heiðni til vorra daga“. I erindi sínu íjallar Östrem um sögulega þróun hugmynda um frávik og viðbragða við afbrigðilegu fólki í Noregi og víðar á Norðurlöndum, allt frá heiðnum sið. Östrem leitar víða fanga, m.a. allmikið í íslenskar heimildir. Fyrirlesturinn, sem fluttur er á norsku, verður í stofu 201 og hefst kl. 16.30. Öllum er heimill aðgangur. Lögreglan á fundi með verktökum LÖGREGLAN í Reykjavík í sam- ráði við umferðarráð mun halda fund með verktökum er annast verklegar framkvæmdir á eða við gatnakerfi borgarinnar í dag kl. 14.00-16.30. Fundurínn verður haldinn í Brautarholti 30. Tilgangur fundarins er að kynna og fara yfir gildandi reglur um merk- ingar svo og önnur þau atriði sem að gagni mega koma og stuðlað geta að auknu öryggi vegfarenda sem og starfsfólks verktaka. (Fréttatilkynning) Helgarmót í brids Á VEGUM bridssamtaka _ í Reykjavík og Ferðaskrifstofu ís- lands er að hefjast röð helgarmóta i bríds um land allt. Spilað verður á 8 stöðum, tveimur á höfuðborg- arsvæðinu og á sex gististöðum Hótels Eddu víða um land frá maí til september. Fyrsta mótið verður í Gerðubergi í Breiðholti 20.-21. maí og er hafin skráning í það mót. Glæsileg verðlaun verða í boði, yfir 1,6 milljónir króna, auk þess er stefnt að lokuðu stórmóti í haust með þátttöku þeirra 10-12 para sem bestum árangri ná í mótunum og 4-6 sterkum pörum frá Bandaríkjunum og Evrópu. Sérstaklega er stefnt að því að fá hingað til lands hinn þekkta leikara og brids-spilara Omar Sha- rif. Þetta er í fyrsta skipti sem bridsá- hugafólki hér á landi er boðið upp á helgarmót af þessu tagi. (Fréttatilkynning) Námskeið fyrir ferðamenn Kvöldnámskeið fyrir ferðamenn verður haldið i Menntaskólanum í Kópavogi 17.-31. maí nk. kl. 19.00-22.00. Kennt verður á mánu- dags- og miðvikudagskvöldum. Námskeiðið er til fróðleiks þeim sem ætla að ferðast um óbyggðir landsins í sumar. Leiðbeint verður um gönguleiðir og ökuleiðir og um jeppaferðir. Gefnar verða ábendingar um nýjar og fáfarnar leiðir í óbyggð- um og um undirbúning jeppaferða. Einnig um gistimöguleika í óbyggð- um. Laugardaginn 20. maí verður opið hús í Menntaskólanum í Kópavogi kl. 14.30-17.00. Þá verða til staðar fulltrúar frá hinum ýmsu ferðamála- fyrirtækjum og veita þeir upplýsing- ar um hvers konar gisti- og ferða- möguleika á íslandi sumarið 1989. (Úr fréttatilkynningu) Stjórnarnefiid ríkisspítalanna: Steftiir í óþol- andi ástand á spítölum Á FUNDI stjórnarnefndar ríkisspítala 11. maí 1989 var geðr eftirfarandi bókun: „Stjórnarnefnd ríkisspítala lýsir áhyggjum sínum af því ástandi sem skapast hefur á sjúkrahúsunum vegna yfírstandandi verkfalls. Fram- hald vinnustöðvunar leiðir til ger- samlega óþolandi ástands á spítölun- um og verður því að linna sem allra fyrst.“ Nefndin beinir því til aðila kjara- deilunnar að þeir gangi til samninga sem allra fyrst. Síðustu vortónleikar Tónlistar- skóla Kópavogs verða haldnir í dag, miðvikudaginn 17. maí. Síðustu vortón- leikar Tónlistar- skóla Kópavogs SÍÐUSTU vortónleikar Tónlistar- skóla Kópavogs verða haldnir í dag, miðvikudaginn 17. maí, í sal skólans, Hamraborg 11, kl. 19.00. Á efnisskránni eru einleiks- og kammerverk og eru flytjendumir í hópi nemenda í efri stigum skólans. Að vera „þakklát- ur“ fyrir eldislax __________Veiði_____________ Guðmundur Guðjónsson Nú er hver dagurínn öðrum lengri þótt ekki sé um nema sek- úndur og fáeinar mínútur að ræða. Það styttist í veiðitímann og sumir eru reyndar byrjaðir að huga að dorggræjunum. Síðasta sem fréttist af dorgmið- um í Borgarfirðinum var, að nú ætti að fara að selja veiðileyfi út á ísinn. Hingað til hafa dorg- arar viðast getað rennt endur- gjaldslaust sjálfúm sér til rnikill- ar gleði. Sumir hafa reyndar atyrt bændur fyrir að vilja aura fyrir ísveiileyfin og sprt náung- ann hvort að stætt sé á því að selja veiðileyfi i veiðivatn þegar ekki er staðið á bakka, í landi einhvers bónda. Hvort að bóndi eigi ísinn á ánni líka? Ha? Við skulum nú lita á nokkur tiðindi sem orðið hafa i veiðiveröld íslenskra veiðidellukarla (og kerlinga). Að vera þakklátur... Mitt í allri umræðunni um flökkulaxagöngur í ám við Faxa- flóa og mögulegan skaða sem þær geta unnið á náttúrulegum villtum laxastofnum á svo og svo mörgum árum, gat að líta furðulega stað- hæfingu Guðmundar G.Þórarins- sonar alþingismanns og fiskeld- isforkólfs í blaðaviðtali. Hann sagði þá m.a. að hann sæi ekki betur en að stangaveiðimenn ættu að þakka fyrir þá auknu laxgengd sem flökkulaxamir stæðu fyrir meðan hennar nyti við, því auðvitað myndu fiskeldismenn vinna að því öllum árum að koma í veg fyrir að eldisfiskar þeirra slyppu úr prísundinni. Hljóta svona ummæli að teljast ábyrgðalítil, því búast má við að vel flestir eða allir stangaveiðimenn vilja heldur vita framtíð villtra laxastofna tryggða heldur en að bæta nokkrum feitum og uggaétnum eldislöxum í veiðipo- kann að kvöldi veiðidags. Hvar voru eldislaxar? Eldislaxamir vom aðallega í Elliða- ánum, Korpu, Leirvogsá og Hvítá í Borgarfirði. Kunnugir telja að Laxá í Leirársveit hafi verið laus við pláguna þrátt fyrir góða veiði, en orð margra um að lítið hafi verið af slíkum fiskum í Laxá í Kjós hafa verið rengd af jafn mörg- um. Einn vel þekktur aflamaður sem oft fór í Kjósina sagðist hafa veitt mjög marga slíka laxa, lang mest neðst í ánni. Sá hinn sami hélt að einhver brögð hefðu verið að því að eldislaxar hefðu gengið fram ána. Því andmæla hins vegar mjög margir. Þessi sami aflamaður fullyrti að töluvert magn af eldislaxi hefði veiðst í Grímsá í Borgarfirði og útskýrði það að nokkru leyti hvers vegna hún skar sig svo mjög úr frá hinum Borgarfjarðaránum sem allar voru með aðeins þokkalega meðalveiði þótt metveiði væri í flestum ám allt í kring. Maður þessi veiddi h'ka að eigin sögn tvo aug- ljósa eldislaxa í Laxá á Ásum síðasta sumar. Áður hefur þess verið getið, að Garðar H.Svavars- son hafi einnig veitt tvo eldisfiska í Laxá og telja margir að eldislaxar séu síður en svo bundnir við Faxaf- lóa þótt augljóslega sé mest um þá þar. Best að hafa enga hrygningu? Á fundi sem fiskeldismenn og Veiðimálstofnun héldu fyrir skömmu kom margt fróðlegt fram bæði í fyrirlestrum og almennum umræðum. Einhveiju sinni er rætt var almennt um seiðasleppingar í laxveiðiár, bar mjög á góma sá árangur sem náðst hefur mælan- lega í vatnakerfi Miðfjarðarár, en árum saman hefur Tumi Tómasson unnið þar að margvíslegri ræktun ásamt veiðifélaginu sjálfu. Einn sem stóð upp sagði, að svo góður árangur næðist með smáseiða- sleppingum, að engin spuming væri að hægt væri að tryggja mun meiri laxagöngur í Miðfjarðará heldur en nú með því að veiða allan laxinn að hausti, halda nokkrum eftir til undaneldis, en slátra hin- um. Sleppa síðan réttu magni smá- seiða. Sem sagt, Miðfjarðará væri viðhaldið með seiðasleppingum, en engin náttúruleg hrygning færi þar fram. Maðurinn sló þessu fram sem staðhæfingu, en bætti við að þar með væri ansi langt gengið og tóku fundarmenn undir það. Samt vekur svona nokkuð ýmsar spurningar um framtíð stangaveiði á íslandi. Verður þetta einhvern tíman svona eins og lýst var hér að framan? Svona að lokum: Sportveiðiblaðið er nýlega komið út, á besta tíma fyrir langt leiddar veiðimannasálir, fullt af litríku og skemmtilegu efni. Þess má einnig geta, að á vegum þess blaðs var gefin út fyrsta ár- bókin um stangaveiði fyrir síðustu jól og var tekið fyrir nýlega liðið ár. Bók þessi mun koma út hér eftir og er nú komið tækifæri til þess að fylgjast með þróun ýmissa mála sem upp koma tengd stanga- veiðinni, svo sem verðlagsmálum, eldislaxagöngum, veiðitölum, veiði- sögum og mörgu fleira. Er þetta hin eigulegasta bók fyrir áhuga- menn um stangaveiði, hvort heldur þeir kjósa silung eða lax, nema hvort tveggja sé. -t-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.