Morgunblaðið - 17.05.1989, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 17.05.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAI 1989 29 Morgunblaðið/Júlíus Miklar skemmdir af eldi Húsið númer 24 við Vesturgötu, tveggja hæða járnklætt timbur- hús, skemmdist mikið í eldi síðdegis á laugardag. Talið er að kveikt haií verið í húsinu og samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins sáust unglingar á hlaupum frá því skömmu áður en eldsins varð vart. Um nokkurra ára skeið hefur enginn búið í húsinu. Það var í slæmu ástandi og rafmagn var ekki tengt. Útigangs- menn hafa átt þarna afdrep. Kaupmannahöfii; Bókagjöf frá Grund tíl safiisíns í Jónshúsi Jónshús. BÓKASAFNI íslendinga í Kaupmannahöfn barst stærsta bókagjöf, sem safnið hefur fengið í áraraðir þegar Gísli Sigurbjömsson forstjóri Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar gaf 160 bækur frá Bókasafni Grund- ar til bókasafnsins í Húsi Jóns Sigurðssonar fyrir skömmu. Kristín Oddsdóttir Bonde lýsir ánægju sinni yfir þessari rausnarlegu gjöf í þakkarbréfi til forstjórans og hefiir merkt allar bækurnar: Ur bóka- gjöf Bókasafns Elhheimihsms Sýnir Gísli enn hug sinn til Hafnar íslendinga, ekki sízt roskinna, en hann hefur oft hreyft hugmyndinni um stofnun íslenzks elliheimilis hér. Fékk hugmyndin ekki nægar undir- tektir á sínum tíma, þótt full ástaéða væri til, en hér búa hátt á annað hundruð íslendingar á eftirlauna- aldri. Margir minnast með gleði ferð- ar eldra fólksins íslenzka til Hvera- gerðis 1987 í boði Gísla og svo hefur íslenzka söfnuðinum í Kaupmanna- lar 1989. höfn árlega borizt glaðningur frá Grund, jólabækur og ullarvörur til fjáröflunar og gjafa til eldra fólks. Þá má nefna messukaffi á degi eldra fólksins hér, sem Elliheimilið Grund hefur hvað eftir annað boðið til og öllum kirkjugestum með hinum öldr- uðu. Fyrir hina margháttuðu rausn og vinsemd um mörg síðustu ár eru færðar innilegar þakkir. - G.L.Ásg. Vonskuveður og ófærð á Vestfjörðum um hvítasunnu SANNKALLAÐ vetrarveður, snjókoma og hvassviðri, gekk yfir Vestfirði um hvítasunnuna og tepptust fjallvegir. Veður skánaði í gærmorgun og tókst að opna flesta þeirra en síðdegis var víða farið að skafa aftur. Búið var að moka Steingríms- fjarðarheiði og var ákveðið að halda henni opinni að minnsta kosti fram á kvöld. Þar var mikill skafrenning- ur í gær og þurfti að fara nokkrar ferðir fram og aftur um heiðina því jafnóðum skóf yfir veginn. Einnig þurfti að moka Ennisháls en annars var færð sunnan Hólmavíkur góð. Að sögn vegagerðarmanna á ísafirði þurfti að moka vegina til Súðavíkur og Bolungarvíkur en þar hafði bæst við 30 sentimetra jafn- fallinn snjór. Breiðadalsheiði og Botsheiði voru báðar ófærar en í gær var Breiðadalsheiðin rudd. Einnig var mokað frá ísafirði að Eiði í Seyðisfirði en þaðan var opið inn Djúp. Brunabótafélag Islands: Fjórir hlutu heiðurslaun FJÓRIR hlutu _ heiðurslaun Brunabótafélags íslands sem formlega voru afhent í gær. Heið- urslaun BÍ hafa verið afhent ár- lega frá'árinu 1982 og er það stjóm félagsins, sem velur heið- urslaunaþega hveiju sinni, venju- lega úr hópi tuga umsækjenda, að sögn Inga R. Helgasonar, for- stjóra BÍ. Andrés Arnalds, beitarþolsfræð- ingur í Mosfellssveit, hlaut heiðurs- laun í fjóra mánuði í því skyni að auðvelda honum að taka saman efni og upplýsingar um hvað þurfi til að koma gróðurverndarmálum hér á landi í viðunandi horf. Guðjón Pedersen, leikari og leik- stjóri í Reykjavík, hlaut þriggja mánaða heiðurslaun til að auðvelda honum að fuilnema sig í leikstjóm. Hannes Hlífar Stefánsson, skák- meistari í Reykjavík, hlaut tveggja mánaða heiðurslaun til að auðvelda honum að efla skákíþróttina með þátttöku í skákmótum erlendis. Hlíf Siguijónsdóttir, fiðluleikari í Reykjavík, hlaut heiðurslaun í þijá mánuði í því skyni að auðvelda henni að undirbúa sig og taka þátt í alþjóðlegri samkeppni fiðluleikara á yfirstandandi ári. Morgunblaðið/Sverrir Frá afhendingu heiðurslauna Brunabótafélags íslands í gær. Sitjandi frá vinstri eru: Sigurður Amalds, faðir Andrésar, sem tók við heiðurslaununum fyrir hönd sonar síns, Hlíf Siguijónsdóttir, Þráinn Vigfus- son, bróðir Hannesar Hlífars, sem tók við laununum í forföllum hans, og Guðjón Pedersen, í aflari röð era frá vinstri: Matthías G. Pétursson deildarsljóri markaðs- og söludeildar BÍ, Ólafiir Jónsson í líftrygg- ingadeild, Guðmundur Oddsson ritari stjórnar, Ingi R. Helgason forsljóri, Andrés Valdimarsson, Hreinn Pálsson og Jónas Hallgrimsson stjómarmenn og Þórður Þórðarson í skírteinadeild.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.