Morgunblaðið - 17.05.1989, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 17.05.1989, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAI 1989 41 Þorvaldur G. Kristjánsson um verkfalls- rétt opinberra starfsmanna: Rýrari kjör eftir en áður Verklag- fjármálaráðherra lengir deiluna „Hvernig hafa laun ríkisstarfs- manna þróast miðað við laun á hinum almenna vinnumarkaði síðan ríkisstarfsmenn fengu verkfallsrétt"? Hvaða árangri hefur verkfallsrétturinn skilað þeim? Þannig spurði Þorvaldur Garðar Kristjánsson í þingræðu fyrir helgina. Hann hélt því fram að verkfallsréttur hefði ekki fært opinberum starfsmönnum betri kjarastöðu heldur hið gagn- stæða. Verkfallsrétturinn og BSRB Þorvaldur Garðar Kristjánsson sagði orðrétt í þingræðu: „Þannig kemur í Ijós að laun hjá BSRB eru 1976 1% hærri en iaun verkafólks og iðnaðarmanna. Næstu ár eykst þetta forskot BSRB nokkuð en tekur síðan að minnka og svo er komið á síðasta ári, 1988, að laun BSRB eru 5,4% lægri en laun þessara viðmiðunarstétta. I þessum samanburði er því hlutur BSRB 6,4% hundraðshlutum lakari á síðasta ári en þegar verkfallsrétt- urinn kom til... Árið 1981 eru laun BSRB ekki nema 89,7% af launum skrifstofu- fólks á almennum vinnumarkaði. Og ekki tekur betra við fyrir BSRB næstu árin heldur þvert á móti. Og svo er komið á síðasta ári, 1988, að laun BSRB eru aðeins 78,5% af launum skrifstofufólksins og hefur hlutur BSRB því vernsað á þessu tímabili um 11,2 hundraðshluta.“ V erkfallsrétturinn og BHMR Síðar sagði þingmaðurinn: „Arið 1986 þegar BHMR fær verkfallsréttinn eru laun þess 36,1% hærri en laun verkafólks og iðnað- ■armanna. Hlutur BHMR versnar síðan strax og eru laun þess orðin á síðasta ári, 1988, aðeins 24,4% hærri en laun verkafólks og iðnað- armanna. Og er því um 11,7 hundr- aðshluta lækkun að ræða á þessum stutta tíma. Sama þróun kemur í ljós þegar skoðaður er samanburður töflunnar milli BHMR og skrifstofufólks á hinum almenna vinnumarkaði. Arið 1986 eru laun BHMR 23% hærri en laun skrifstofufólksins en árið 1988 aðeins 3,3% hærri. A tveimur árum lækkaði hlutur BHMR um 9,7 hundraðshluta. Þessar tölur sem ég hefí hér rak- ið segja mikla sögu ... Af þeim verður að draga þá Breyttar reglur um húsnæðisbætur Efri deild Alþingis samþykkti i siðustu viku frumvarp um breyt- ingu á lögum um tekju- og eignarskatt. Flutningsmaður er Salóme Þorkelsdóttir (S/Rn). í breytingunni felst, að þeir menn geti öðlast rétt til húsnæðisbóta, sem byggja hús í stað húsa sem úrskurðuð hafa verið óhæf til íbúðar, verðlaus og til niðurrifs, enda sé það stað- fest með tilskildum vottorðum opinberra aðila. Ólafúr Ragnar Grímsson gármálaráðherra mælti gegn þessari breytingu en Margr- ét Frímannsdóttir, formaður þingflokks Alþýðubandalagsins studdi frumvarpið. Meirihluti fjárhags- og viðskipta- nefndar efri deildar mælti með sam- þykkt frumvarpsins en að meiri- hlutaálitinu stóðu þingmenn stjóm- arandstöðunnar og Margrét Frímannsdóttir. Aðrir stjómarþing- menn í nefndinni lögðu til að fram- varpinu yrði vísað til ríkisstjórnar- innar með vísan til umsagnar emb- ættis ríkisskattstjóra, þar sem lagst var gegn breytingunni sem fram- varpið gerir ráð fyrir. Framvarpið var samþykkt í efri deild á fimmtudag og bíður nú fyrstu umræðu í neðri deild. Mjólkurbú: Undanþága frá aðstöðugjaldi nái aðeins til mjólkurframleiðslu Neðri deild Alþingis samþykkti á fostudaginn breytingartillögu Geirs H. Haarde (S/Rvk) við fimmvarp um tekjustofna sveitarfélaga, þar sem gert er ráð fyrir því að mjólkurbú verði ekki lengur undan- þegin aðstöðugjaldi og hefúr frumvarpið nú verið sent efri deild svo breytt. Þar hefúr hins vegar komið fram breytingartillaga sem mið- ar að því að mjólkurbú greiði aðeins aðstöðugjald af þeirri fram- leiðslu, sem ekki telst til mjólkurafurða. Geir H. Haarde sagði er hann mælti fyrir breytingartillögu sinni að með því að veita fyrirtækjum í tilteknum atvinnurekstri undan- þágu frá greiðslu aðstöðugjalda væri ekki einungis verið að mis- muna fyrirtækjum, heldur og sveit- arfélögum. Benti hann meðal ann- ars á, að fyrirtæki í sjávarútvegi væra ekki undanþegin aðstöðu- gjaldi. Framvarpið er nú aftur komið til efri deildar þar sem það bíður einn- ar umræðu. Félagsmálanefnd deild- arinnar hefur fjallað um málið og er meirihluti hennar ósammála breytingu neðri deildar. í nefndará- liti meirihlutans, sem fulltrúar stjórnarflokkanna skipa, segir að til að koma til móts við sjónarmið neðri deildar flytji nefndin breyting- artillögu, sem hún vænti að sé við- unandi fyrir flesta aðila. Þessi breytingartillaga er á þá leið, að undanþága mjólkurbúa frá greiðslu aðstöðugjalds n'ái einungis til fram- leiðslu mjólkur og mjólkurafurða. Segir meirihlutinn, að með þessari breytingu séu tekin af öll tvímæli um að undanþágan nái ekki til ann- arrar framleiðslu mjólkurbúa, svo sem framleiðslu ávaxtagrauta og víns. l'W*U ÍPGf',; ályktun að verkfallsrétturinn hafi ekki megnað að bæta hlut opin- berra starfsmanna og ekki einu sinni að koma í veg fyrir að launa- kjör þeirra versnuðu borið saman við laun á hinum almenna vinnu- markaði.“ Ráðherra magnaði upp átökin í lok ræðu sinnar vék Þorvaldur Garðar að verklagi fjármálaráð- herra og sagði: „Það tjóar ekki að ræða þessi mál við fjármálaráðherra í víðu samhengi með hag alþjóðar fyrir augum. Hann sér ekkert nema þrætumál sín sem hann hefur magnað upp í verkfalli háskóla- menntaðra manna sem nú stendur yfír. Það besta sem hægt er að vænta af fjármálaráðherra er að honum vinnist ekki tími með ráðs- lagi sínu og áráttu til að vinna óbæt- anlegt tjón svo sem að leggja menntakerfi þjóðarinnar í rúst. Þess vegna hefði nú átt að vera til umræðu vantraust á fjármála- ráðherra og ríkisstjórnina í heild. Það er ekki aðeins vegna þeirrar kjaradeilu sem við nú ræðum og væri þó ærið tilefni heldur einnig vegna þess háska sem þjóðinni stendur af ástandi efnahagsmál- anna og öðra ráðslagi ríkisstjómar- innar sem er utan umræðuefnis míns í dag.“ Símahleranir: 132 úrskurðir á 10 árum íslenskir dómstólar hafa 132 sinnum úrskurðað símahleranir heim- ilar á síðustu tíu árum. Tvívegis hefúr slíkur úrskurður verið kveð- inn upp vegna beiðni frá Rannsóknarlögreglu ríkisins en í öllum öðrum tilvikum hefúr verið um að ræða beiðnir frá lögreglustjóra- embættinu í Reykjavík. Allir úrskurðirnir hafa verið kveðnir upp vegna rannsóknar á fíkniefnamálum. Þetta kemur fram í svari Hall- dórs Ásgrímssonar dómsmálaráðherra við fyrirspum frá Kristínu Halldórsdóttur (Kvl/Rn), sem lagt var fram á Alþingi í gær. Þingmaðurinn spurði meðal ann- ars um þær reglur, er gilda um símahleranir hér á landi. í svari ráðherra kemur fram, að dómari geti heimilað slíkar hleranir með vísun í lög um meðferð opinberra mála, ef öryggi ríkisins krefst þess eða ef um mikilsverð sakamál er að ræða. Fram kemur, að frá 1979 hafa verið kveðnir upp 132 úrskurðir af þessu tagi, flestir árið 1985 eða 32. Á yfirstandandi ári hafa verið kveðnir upp 6 úrskurðir. Rannsókn- arlögregla ríkisins hefur tvívegis beðið um heimild til hlerana á þessu tímabili, annars vegar vegna stór- fellds innbrotsþjófnaðar og grans um fíkniefnabrot og hins vegar vegna sama þjófnaðar, íjárkúgunar og heitinga um ófarnað. í öllum öðram tilvikum hefur verið um að ræða beiðnir frá lögreglustjóraemb- ættinu í Reykjavík vegna rann- sókna á meiriháttar fíkniefnamis- ferli. Ráðherra getur þess í svari sínu, að til skýringar á fjölda úrskurða ■■ beri að taka tillit til þess, að oft sé um að ræða framlengingu á heimild til hlerana með nýjum úr- skurði. Einnig geti margir úrskurð- ir verið vegna rannsóknar á sama máli vegna tengsla og fjölda gran- aðra. Verkiin þuirkaðra þorsk- hausa hafín á Héraði A að vinna 2.300 tonn á ári Egilsstöðum. NÝSTOFNAÐ fyrirtæki í Fellabæ á Fljótsdalshéraði, Herðir hf., er tekið til starfa. Meginverkefni fyrirtækisins verður að þurrka þorskhausa. Gert er ráð fyrir að vinna úr um 2.300 tonnum af hausum á ári. Ur þeim fást um 600 tonn af fúllverkuðum hausum til út- flutnings. Hausarnir verða seldir til Nígeríu og eru söluhorfur góðar. Hausunum er safnað saman frá Seyðisfirði og allt suður til Djúpa- vogs. Það sem einkum réð því að fyrirtækinu var valinn staður á Fljótsdalshéraði er aðgangur að hagkvæmri orku frá hitaveitunni en þurrkunin fer fram í sérstökum þurrkklefum við heitan blástur. Með tilkomu þessa nýja fyrirtækis sköpuðust 10 ný framleiðslustörf á Héraði. Herðir hf. er í nýju 700 fer- metra húsnæði sem byijað var að byggja eftir áramótin. Stofnkostn- aður við hús og búnað er áætlaður 24 milljónir. Hlutafjárloforð era 8 milljónir og era hluthafar 36 fyrir- tæki og einstaklingar á Héraði og nærliggjandi fjörðum. M.a. era margir útgerðarmenn og hráefni- seigendur aðilar að fyrirtækinu. Hráefnið er fengið frá Seyðisfírði og allt suður á Djúpavog en þang- að eru um 140 km. Pálmi Kristmannsson, fram- kvæmdastjóri Herðis, sagðist gera ráð fyrir að flutningskostnaður hráefnis verði um 2,5 milíjónir á ári. Sá kostnaður ynnist upp með annarri hagkvæmni af þessari staðsetningu fjarri sjó. Einnig væri á það að líta að hvergi á ein- um útgerðarstað á Austurlandi féllu til þorskhausar í þetta miklu magni þannig að flutningur á hrá- efni væri óhjákvæmilegur og Hér- aðið því heppileg staðsetning. Asíufélagið sér um sölu fram- leiðslunnar til Nígeríu. Kjartan Jónasson, framkvæmdastjóri þess, sagðist ekki trúaður á vandkvæði við sölu eða greiðslu afurðanna. - Bjöm Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson Pálmi Kristmannsson, framkvæmdastjóri Herðis, og Gunnlaugur Ingvarsson stjórnarformaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.