Morgunblaðið - 17.05.1989, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 17.05.1989, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17.i MAÍ 1989 IFPL á Japansmarkaði: Allgóðar pantanir hafa þegar borizt „VIÐ höfuni þegar fengið all- góðar byijunarpantanir fiá Japan í kjölfar kynningar Nic- herei á vörum okkar. Fyrstu vísbendinga um framhaldið er siðan að vænta í lok april eða maí, þá kemur í ljós hvernig salan hefur gengið og varan fallið japönskum neytendum í geð,“ segir Ingólfiir Skúlason, forsljóri Icelandic Freezing Plants Ltd, dótturfyrirtækis SH í Grimsby. Ingólfur og hans fólk í Grimsby er nú að heíja sókn inn á jap- anska markaðinn í samvinnu vió stórfyrirtækið Nicherei. Morgun- blaðið fylgdist með því í febrúar- byijun er fiskifingur og sérmótuð flakastykki í brauðmylsnu voru kynnt 1.400 viðskiptavinum Nic- herei á stóru hóteli í Tókýó. Há- punktur þeirrar sýningar var þátt- taka fegurðardrottningarinnar Lindu Pétursdóttur, sem vann hug og hjörtu Japananna og dró at- hyglina að íslandi. Ingólfur segir að þáttur Lindu hafi verið ómetan- legur. IFPL í Grimsby þróaði þessa tilbúnu fiskrétti í samvinnu við Japani og áfram er unnið að þró- un fleiri rétta. Ingólfur Skúlason segir, að framleiðsla fyrir þennan mikla markað geti orðið snar þátt- ur í starfsemi fyrirtækisins. „Þetta verður vonandi eins og með snjóboltann. Honum veltum við áfram og bætum stöðugt á hann einu lagi í hveijum hring. Meðal annars vegna þessara við- skipta og vaxandi umsvifa á öðr- um sviðum erum við að §ölga starfsfólki í verksmiðjunni um 50 manns um þessar mundir. Sýning- amar í Tókýó og Ösaka gengu mjög vel og smærri kynningar víða um landið sömuleiðis. Byijun- arpantanir hafa verið meiri en við áttum von á, en samkeppnin á markaðnum er hörð svo erfitt er að spá nokkru um framhaldið. En hvað sem öðru líður er þetta spennandi og verðugt verkefni," segir Ingólfur Skúlason. Frá kynningu Nicherei. Jane Howse, vöruþróunarstjóri IFPL, Ingólfur Skúlason, forstjóri, Linda Pétursdóttir, ungfrú heimur og Roger Preston, framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála. Utflutningsráð íhugar opnun skrifstofu í Japan ÚTFLUTNINGSRÁÐ íslands er nú að kanna hug íslenzkra fyrirtækja á stofnun skrifstofu á vegum ráðsins f Japan. Jafii- framt er á vegum ráðsins verið að kanna markaðinn þar og í nálægum löndum og þegar er byijað að aðstoða íslenzk fyrir- tæki við markaðssetningu eystra. Ingjaldur Hannibalsson, for- stjóri Útflutningsráðsins, segir að næsta skrefið sé að boða til fund- ar með þeim fyrirtækjum, sem áhuga hafi á stofnun markaðs- skrifstofu á þessu svæði og hefj- ast síðan handa, verði niðurstaðan á þá leið. „Við vitum tiltölulega lítið um markaðinn í Austurlönd- um fjær,“ sagði Ingjaldur, „hlut- verk skrifstofu þama er því upp- lýsingaöflun um möguleikana og síðan aðstoð við fyrirtæki í sam- ræmi við það. Við höfum þegar veitt ullariðnaðinum aðstoð og þó nokkur fyrirtæki hafi þegar náð fótfestu á markaðnum, fylgja vafalaust fleiri í kjölfarið. Eiginlega má skipta heiminum í þijú markaðssvæði, Evrópu, Bandaríkin og Austurlönd ijær. Nú fara 50 tií 60% af útflutningi okkar til Evrópu, 12 til 15% til Bandaríkjanna, en aðeins 8% til Japans. Japan og löndin í kring eru mjög áhugavert markaðs- svæði. Japan er stærsti markaður í heimi fyrir sjávarafurðir og inn- flutningur sjávarafurða er þar meiri en annars staðar. Verðlag er mjög hátt og möguleikar þvi nokkrir þrátt fyrir mikinn flutn- ingskostnað. Við vitum um áhuga á útflutningi á rækju, humri, lax og silungi svo og á lifandi fiski, sem selzt fyrir mjög hátt verð,“ sagði Ingjaldur. í þessum umbúðum selst íslenzki þorskurinn í Japan. Ævar Guðmundsson hjá Seifi hf.: Hæfilega bjart- sýnn á þetta SEIFUR hf. er eitt þeirra fyrir- tækja, sem hefiir verið að þreifa fyrir sér á ísfiskmarkaðnum í Tókýó. Seifur hefiir sent rækju og svil austur með þokkalegum árangri. Ævar Guðmundsson, forstjóri Seifs, segist hæfilega bjartsýnn á þennan útflutning. Ævar sagði að útflutningur á ferskri rækju virtist mögulegur og sömu sögu mætti segja um svilin. Hann hefði tvívegis sent svil til Japans og í annað skiptið hefði það farið ágætlega en miður í hitt. Sér sýndist að við óbreytta fragt væri ekki um marga mögu- leika að ræða. Til dæmis væri lítið sem ekkert vit í að senda héðan ferskan lax því skilaverð fyrir hann væri aðeins um 200 krónur á kíló. Það dæmi gæti þó breytzt með lækkandi flutningskostnaði. Ævar sagðist telja að mögulega gæti útflutningur á flatfiski borg- að sig, sérstaklega væri hægt að halda honum lifandi. Sem dæmi um það mætti nefna að hann hefði séð þama flatfisk, líklega öfug- kjöftu, sem lifandi hefði selzt á 4.000 jen kílóið en 800 dauð. Lif- andi fískur væri rokdýr svo og fískur, sem nota mætti í hrámeti. Það væri því ferskleikinn, sem réði mestu um verðið á markaðn- um. íslenzki þorskurinn virtist falla japönsku kaupsýslumönnunum vel i geð. Þorlákshöfh: Krabbi fluttur lif- andi á markað Þorlákshöfh. TILRAUNIR með veiði á humar- krabba í gildrur sem sendur hef- ur verið lifandi á markað hafa nú staðið yfir um nokkurt skeið. Það er Fiskeldisstöðin Smári hf. í Þorlákshöfn sem stendur fyrir þessum tilraunum. Þorvaldur Garð- arsson, framkvæmdastjóri Smára, sagði að þeir hefðu leigt Bjarnar- vík, sem er 50 tonna bátur, til veið- anna. Þær hefðu gengið vel til þessa en aðeins er búið að setja út fímmt- ung af þeim gildrum sem fyrir- hugað er að vera með. Aflinn hefur verið þetta á annað hundrað kíló á dag af lifandi humri. Þegar allar gildrumar eru komnar í sjó ættu að veiðast um 500 kíló á dag, sem er gott. Humarinn er fluttur lifandi á markaðinn sem lofar góðu þó hann sé lítið kannaður ennþá. Með til- komu Flying Tigers er Japansmark- aður ofarlega á baugi. Þorvaldur sagði það furðulegt hve illa gengi að koma ráðamönnum í skilning um að það gæti borgað sig að styrkja svona tilraunastarf- semi. „Það er sama sagan og þegar við hófum tilraunaeldi á bleikju, þá fengum við engan styrk en aðrir sem á eftir komu hafa margir hveij- ir fengið styrk." - J.H.S. Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson Guðmundur Kristjánsson, skipstjóri á Bjarnarvík, ásamt skipshöfii sinni að landa afla dagsins. Ljóðabók- in „Kver sem er “ komin út ÚT ER komin ljóðabókin „Kver sem er“, eftir Björn Þorsteinsson. Björn fæddist árið 1967 í Kaup- mannahöfn og lauk stúdentsprófi frá eðlisfræðibraut Menntaskólans við Hamrahlið árið 1986. Hann vinnur nú að alfræðibók Arnar og Örlygs. Bókin er 52 bls. og í henni eru 35 Ijóð, öll órímuð og yfirleitt óstuðl- uð. Kápumynd er eftir Þórdísi Katrínu Þorsteinsdóttur. Bókin er gefin út á kostnað höfundar og fæst hjá honum, í Bókabúð Eymundsson, hjá Máli og menningu á Laugavegi og í Bóksölu stúdenta. Bjöm yrkir m.a. um flölmiðla og flrringu, tæknibrellur og kjam- orkuvá, en inn í Ijóðin fléttast einnig sígild yrkisefni eins og ást og ein- semd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.