Morgunblaðið - 17.05.1989, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1989
33
Morgunblaðið/Bjami
Forsætísráðherrar Svíþjóðar og íslands, Ingvar Carlsson og
Steingrímur Hermannsson, ræða við fréttamenn að loknum viðræðu-
fundi í Ráðherrabústaðnum í gærmorgun.
Viðræður EFTA og EB;
Samstarf við EB verði
svo náið sem unnt er
- segir Ingvar Carlsson
EFTIR viðræðufund þeirra í Ráðherrabústaðnum í gærmorgun ræddu
Ingvar Carlsson, forsætísráðherra Svíþjóðar, og Steingrímur Her-
mannsson forsætísráðherra við fréttamenn. Carlsson var spurður hvort
hugsanlegt væri að innganga ríkja Fríverslunarsamtakanna (EFTA)
í Evrópubandalagið (EB) yrði smám saman að einskæru formsatriði,
þar sem ráðgert væri að stórauka samvinnu og samræmingu á milli
ríkjasambandanna. „Nei, markmið okkar er ekki að EFTA-löndin
gangi í EB,“ sagði Carlsson. Hann sagði að á fúndi forsætisráðherra
EFTA-landanna í Ósló hefði verið ákveðið að halda áfram samstarfinu
en um leið að semja um eins nána samvinnu við EB og mögulegt er.
Komið yrði á fót sérstökum stofnunum EFTA til að annast þessi mál.
Ingvar Carlsson vísaði algjörlega
á bug að Svíar Hefðu einhveijar efa-
semdir um getu íslendinga til að
taka að sér forystu í ráðherranefnd
EFTA. Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra mun gegna þvi
embætti frá 1. júní til áramóta, að
Svíar taka við. „Á næstu tólf mánuð-
um mun reyna hvað mest á þessa
nefnd í samningaviðræðum við EB,“
sagði Carlsson. Hann sagði að Sviar
vonuðust til að EFTA yrði með
ýmsum ráðum gert kröftugra og
hæfara til að semja við EB, t.d.
kæmi til greina að styrkja skrifstofu
ráðherranefndarinnar, fundir for-
sætisráðherra samtakanna yrðu
tíðari og sérstakir sendiherrar skip-
aðir til að fást eingöngu við sam-
skipti ríkjasambandanna tveggja.
Ráðherramir vom spurðir um
hvalveiðar. Carlsson sagði að af-
staða Svía væri að banna ætti veið-
ar, ef stofnar væm í útrýmingar-
hættu en þeir væm ekki í gmndvall-
aratriðum á móti hvalveiðum.
Steingrímur Hermannsson útskýrði
afstöðu íslendinga: „Við erum ekki
hvalveiðiþjóð. Hvalveiðar skipta
engu máli fyrir efnahag Islands, en
við álítum að jafnvægi verði að ríkja
í náttúmnni, að hvalir geti ekki ver-
ið undanskildir i því jafnvægi."
Ráðherrarnir kváðust vona að
aukið jafnvægi geti komist á við-
skipti milli landanna, en íslendingar
kaupa mun meira af Svíum en þeir
af okkur. Steingrímur hafði þetta
um viðskiptin að segja: „Það ríkir
jú frjáls verslun á milli landanna og
nú verða útflytjendur okkar bara að
vera duglegri en þeir hafa verið.“
i Reuter
Sjálfboðaliðar huga að kínverskum námsmönnum sem verið hafa í
mótmælasvelti frá því í síðustu viku til að leggja áherslu á kröfúr
sínar um umbætur á sviði efnahags- og stíórnmála.
mótmælum umbótasinna. í gær-
kvöldi hafði verið ákveðið að Gorb-
atsjov héldi á fund Li Peng, forsætis-
ráðherra Kína, í Alþýðuhöllinni en
vegna mótmælanna var talið heppi-
legra að forsætisráðherrann sækti
Gorbatsjov-hjónin heim í gestabú-
staðinn. Er þeir Gorbatsjov og Li
Peng skáluðu fyrir vináttu ríkjanna
tveggja í gærkvöldi ríkti sama hátí-
ðarstemmningin á Torgi hins him-
neska friðar. ,',Eftir þetta verður
ástandið í ríkjunum tveimur aldrei
aftur það sama,“ sagði sovéskur
blaðamaður við breskan starfsbróður
sinn. „Líkt og heima er lýðræðið í
sókn hér. Kerfið sem fyrri leiðtogar
töldu að þeir hefðu þröngvað upp á
okkur um aldur og eilífð riðar til
falls“.
Kauptu ekki
vatnsrúm fyrr en þú
hef ur prófaö
AVANTI-7
mm
Avanfi-!
nýjasta o
vatnsdýn
Hún hefu
inleika oc
tica
vatni
AVANTI-T dýnan kostar:
Stærð cm 180 x 200 120 x 200 90 x 200
Verð
LaPPir.
Höfóaqafl
2 náttborð
58.830,-
3.200,-
8.080,-
8.720,-
78.830,-
46.790,-
1.600,-
11.150,-
8.720,
68.260,-
38.750,-
1.600,-
4.480,-
4.360,-
49.190,-
Hvergi eru hagstæóari
afhorgunarskilmálar.
Komdu og veltu þér
heimsins bestu vatnsdýnu.
lítrum íaðrargerðir.
Þess vegna er hægt að
setja hana í hvaða
sterkt rúm sem er.
AVANTI-7 dýnan er
með stífan kant eins og
hvert annað rúm.
AVANTI-7 er með
þykka yfirdýnu sem þú
getur þvegið.
AVANTI-7 dýnan er
rúm því að þú þarft að-
einsað kaupaundir
hana lappirnar og velja
höfðagafl og náttborð.
Kannski áttu þetta allt
saman í gamla rúminu.
AVANTI-7 selst með
skiptirétti Ef þú ert ekki
ánægð(ur) þá velur þú
þér bara nýja dýnu -
vatnsdýnu, fjaðradýnu,
springdýnu, svamp-
dýnu eða latexdýnu.
JÚrvalid er hvergi
meira en i
Húsgagnahöllinni.
Húsgagna-Siöllin
REYKJAVÍK