Morgunblaðið - 17.05.1989, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1989
47
Jómfrúræða Sigrúnar Helgadóttur á Alþingi:
Sá höfiiðstóll sem
skíptir máli er Jörðin
Hér fer á eftir fyrsta þingræða
Sigrúnar Helgadóttur, varaþing-
manns Kvennalista, flutt 14.
febníar sl.:
„Eg hóf þingsetu mína fyrir
nokkrum dögum með því að hlusta
á háttvirta þingmenn skattyrðast
um það, hvort við hæfi væri að
ráðherra segði að ákveðnir ein-
staklingar nöguðu blýanta. Að lok-
inni þeirri umræðu var gengið til
atkvæða um kjörbréf mitt sem var
samþykkt með öllum greiddum at-
kvæðum. Þar sem ég er fjórða
varaþingkona Kvennalistans taldi
virðulegur forseti sameinaðs þings
sér skylt að geta þess, að engin
störf í þjóðfélaginu væru þess eðlis
að annir við þau réttlættu leyfi frá
þingstörfum. Þessi orð virðulegs
forseta, sem í raun má túlka svo
að engin störf í þjóðfélaginu séu
merkilegri og mikilvægari en þing-
störf, hafa verið mér mjög hugstæð
þessa daga sem ég hef setið hér
og hlustað og horft, sífellt meira
og meira undrandi á vinnubrögðum
og orðalagi og ekki síst verðmæta-
mati sem endurspeglast mæta vel
í allri þessari endalausu efnahags-
umræðu. Ég minnist þess, þegar
ég rétt rúmlega tvítug stóð fyrir
framan heilan bekk af börnum sem
voru að koma í fyrsta sinn í skólann
sinn. Þetta var í litlu þorpi vestur
á fjörðum. Ég horfði framan í 20
lítil eftirvæntingarfull andlit og ég
vissi að það var undir mér komið
hvort eftirvæntingin yrði þarna
áfram og kæmi fram í vinnugleði
og árangri, eða hvort glampinn í
augunum dofnaði og eftirvæntingin
breyttist í kæruleysi og leiðindi.
Ég átti að kenna þessum börnum
að lesa, leggja grunn að allri þeirra
skólamenntun, móta afstöðu þeirra
til skóla, menningar og ótal margs
annars. Þá fann ég sannarlega til
meiri ábyrgðar en ég fann undir
orðum virðulegs forseta eftir að
hafa hlustað á klukkutimaþras um
blýantanag.
Ég vissi líka mæta vel að þær
þijár konur sem deilt var á vegna
þess að þær óskuðu eftir því að fá
að halda áfram skyldustörfum
sínum úti í þjóðfélaginu frekar en
koma til starfa hér í þingsölum í
tvær vikur, eru líka allar kennarar.
Hver á sínu sviði kenna þær bæði
ungu fólki og fullorðnu, ungu fólki
sem e.t.v. veitir ekki af styrkri
handleiðslu í ólgusjó unglingsár-
, anna og fullorðnu fólki sem margt
hvert hefur á einhveiju stigi lífs
síns dottið út úr skólakerfinu og
er nú hikandi og fullt vantrausts á
sjálft sig að reyna að fóta sig þar
að nýju. Allir vita hversu erfitt og
illa borgað kennslustarfið er og það
er hreint ekki auðvelt að fá forfalla-
kennara til að hlaupa í kennslu í
hálfan mánuð og þó svo það hefði
tekist þá hefði það án efa komið
róti á nemendur og losi á kennsl-
una. Kannski hefði þingseta ein-
hverra þessara kvenna orðið til
þess að einstaklingur úti í þjóð-
félaginu hefði fallið út úr námi.
Hefði það ekki skipt máli, getur
verið að afstaðan hér sé sú að bara
sumir einstaklingar skipti máli?
Getur verið að börn, unglingar,
fólk sem á að einhveiju leyti erfitt,
hefur t.d. dottið út úr námi, gamal-
menni og e.t.v. stór hluti kvenna
skipti ekki máli, eða skipti alla
vega miklu minna máli en stjórn-
málamenn, hagspekingar, banka-
stjórar og útgerðarmenn. Hin ráð-
andi umræða hér á þingi bendir
sannarlega til þess að svo sé. Hún
er einhvern veginn ekki í neinum
tengslum við lífið hér fyrir utan,
hvorki fólk né umhverfi, hún er
jafnvel ekki á tungumáli sem fólk
skilur. Hér er endalaust talað um
hag fyrirtækjanna en minna um
hag heimilanna. Það er þó á heimil-
unum sem mesta verðmætasköpun-
in fer fram. Þar vinna fyrst og
fremst konur við að gera umhverf-
ið vistlegt, annast börn og aðra í
ijölskyldunni, viðhalda máli, hefð-
um og siðum, íslenskri menningu,
og mörg fleiri eru þeirra störf, en
vegna þess að verðmætin eru ann-
aðhvort ekki hlutbundin eða þau
eru jafnóðum étin upp, slitin út eða
skitin út þá eru þau ekki talin
með. En samt er þessi vinna þess
eðlis að ef enginn ynni hana, þá
væri lífið ekki þess virði að því
væri lifað, jafnvel þótt alls staðar
væru öflug fyrirtæki sem gæfu af
sér mikinn arð í peningum talinn.
Hvers virði væru fyrirtækin ef þeir
sem þar ynnu ættu ekki góð heim-
ili, heilbrigð börn, væru hamingju-
samir einstaklingar. En samt er sú
vinna sem að þessu miðar ekki tal-
in til verðmæta í hagskýrslum, hún
hækkar þar hvorki þjóðartekjur né
þjóðarframleiðslu. Það gera hins
vegar þau störf sem hér eru unnin.
Hvað ætli þær kosti allar þessar
ræður sem margar hveijar breyta
engu og virðast fyrst og fremst
vera fluttar til að tefja mál og koma
höggi á pólitískan andstæðing.
Hvað ætli blýantaumræðan í
klukkutima hafi kostað t.d. eftir
að lika var búið að sjónvarpa henni
í ríkissjónvarpinu um allt land?
Hvemig væri að snúa hlutunum
við — byija á því sem skiptir mestu
máli og vinna út frá því, vinna út
frá hagsæld heimilanna, fjölskyldn-
anna, bamanna.
Því má bæta við, svona til að
setja hlutina í samhengi sem menn
skilja, að í Danmörku hefur það
verið reiknað út, hve miklum tíma
er varið í heimilisstörf og hve mik-
ið þyrfti að borga fýrir þau, ef fólk
á launum væri fengið til að vinna
þau. Það er sannarlega fróðleg
samantekt, en niðurstaða hennar
er, að heimilisstörfin, það em þá
auðvitað þessi hlutbundnu sem
hægt er að meta til ijár, séu jafn-
virði fjörutíu og þriggja prósenta
af þjóðarframleiðslu Dana og 50
prósenta þjóðartekna. Búast má við
að tölumar séu eitthvað svipaðar
hér og spyija má, er eitthvert vit
í umræðum um þjóðartekjur og
þjóðarframleiðslu, umræðum um
hagfræði almennt, ef horft er fram
hjá svo stómm þáttum hennar.
Þjónusta heimilanna, sem er undir-
staða lífshamingju þjóðarinnar, er
ekki talin með vegna þess að hún
er ókeypis. Það tekur heldur enginn
eftir þessum störfum fyrr en þau
era ekki ynnt af hendi. Ef svo
væri almennt þá þyrfti að borga
of fjár fyrir að þau væm unnin
samanber dönsku tölumar og hætt
er við að eitthvað vantaði á t.d. í
umönnunar- og uppeldisþáttinn.
Það sem hér hefur verið sagt
um þjónustu heimilanna gildir líka
um þá þjónustu sem náttúran veit-
ir. Sú þjónusta er undirstaða alls
lífs að meðtöldu mannlífi, en af því
að hún kostar okkur heldur engin
ijárútlát þá tökum við hana sem
sjálfsagðan hlut. Regnið streymir
úr himninum hreint og tært. og
kostar ekkert. Fiskur klekst út á
hrygningarstöðvum og vex, gengur
á fiskimið og kostar ekkert. Sólin
skín, úthagi grær, fuglar syngja
allt ókeypis, en hve lengi? Ekki
mjög lengi, segja margir, svo mjög
hefur gengið á þann höfuðstól sem
náttúran er. Fiskistofnar ofnýttir
og sumir jafnvel nær horfnir og
gróðurlendi landsins ekki nema
brot af því sem það gæti verið. Á
stómm svæðum heimsins streymir
regnið ekki lengur hreint og tært
heldur blandað mengunarefnum
sem gera það súrt og drepa gróður
og þess vegna allt líf bæði á landi
og í vötnum og sjálfsagt líka í hafí
þótt minna sé um það vitað. En
hagfræðispekúlantar heimsins láta
þessi sannindi sem vind um eyru
þjóta. Þeir virðast alls ekki gera
sér grein fyrir að öll hagkerfi
heimsins hvíla á vistkerfunum,
kerfum náttúrunnar og þeim lög-
málum sem þar ríkja. Þeir virðast
ekki gera sér grein fyrir því að
hrynji vistkerfið þá hrynja líka hag-
V/fSSöEpjjBUK
TENGSL
Í40ÁR
f tllefni 40 ára afmælis Sambandslýbveldlsins Þýskalsnds
verður haldib málþing é Hótel Sögu, föstudaginn 19. maf kl.
13.00-17.00. Á málþlnginu veröur fjallaö um samsklptl fslands
og Sambandslýöveldisins Þýskalands undanfarna fjóra áratugi
og framtlö þelrra.
13.00 Setning. Hans Hermann Haferkamp, sendlherra
Sambandslýöveldisins Þýskalands é fslandi
13.15 Ávarp Steingrims Hermannssonar, forsætisráöherra
13.30 Erindi:
Dr. Gylfi Þ. Gíslason, prófessor Háskóla fslands
Prof. Dr. Ulrlch Groenke, frá háskólanum I Köln
Dr. Heinrich Pfelffer,
Alexander-von-Humboldt-Stiftung, Bonn
Dr. Chrlstian Roth, forstjóri ISAL
15.00 Kaffihlé
15.30 Pallborösumræöur
20.00 Kvöldveröur i Vlöey
Veislustjórar: Úlfar Þóröarson og
Þorvaröur Alfonsson
Aögangur aö málþinginu er ókeypls en fyrlr kvöldverö I Viöey
greiöast kr. 3.000.
ÞÁTTTAKA TILKYNNIST GOETHE-INSTITUT í SlMA 16061
Alexander von Humboldt félagið á fslandi,
Botschaft der Bundesrepublik Deutschland,
Daad-félagið á íslandi, Germanía og Goethe-lnstitut
Sigrún Helgadóttir, varaþing-
maður Kvennalistans.
kerfin. Þeir tala stöðugt um höfuð-
stól peninganna eða verðbréfanna
en gera sér ekki grein fyrir að sá
höfuðstóll sem skiptir mestu máli
er Jörðin sjálf og það líf sem á
henni hefur þróast. Sá höfuðstóll
hefur takmarkaða stærð og þess
vegna ríkir þar lögmálið um tak-
markaðan vöxt. Að trúa endalaust
á stöðugan vöxt, sífellt aukna þjóð-
arframleiðslu og hagvöxt virðist
beinlínis heimska, alla vega bendir
slíkt tal til skorts á þekkingu og
framsýni eða skyldi ástæðan vera
kæmleysi, skortur á ábyrgðar-
kennd gagnvart komandi kynslóð-
um, börnunum? Sú veisla sem ríkt
hefur í hinum vestræna heimi að
undanförnu og mæld hefur verið í
hagvexti, henni verður að ljúka.
Hún hefur byggst á aukinni tækni
og iðnvæðingu auk þess að gengið
hefur verið á höfuðstólinn. Tæknin
hefur gert mönnum kleift að sigr-
ast á gömlum fjendum, veikindum,
hungri og fátækt, en um leið og
menn hafa iðnvæðst hafa þeir búið
sér til nýja óvini, mengun og auð-
lindaþurrð, lífsgæðakapphlaupið er
að verða ógn við lífið sjálft.
Þannig má rökstyðja að þær
ógöngur sem mannkyn er komið í
séu afleiðingar vísinda og tækni
en einnig er hægt að vona að ein-
mitt með vísindum og tækni megi
snúa þessari öfugþróun við. En
forsendur þess að það verði hægt
er þó að menn temji sér önnur
gildi. Hætti að líta á náttúmna sem
eitthvert fyrirbæri sem endalaust
mun veita sína ókeypis þjónustu,
óháð því hvernig farið sé með hana.
Það verða allir og þá ekki síst
stjómmálamenn að temja sér aðra
lífssýn, annan lífsstíl sem byggist
á þeim skilningi að við verðum að<
geta stjórnað, ekki náttúmnni held-
ur okkur sjálfum í samræmi við
lögmál vistfræðinnar.
í dag er hér á þinginu enn og
aftur umræða um efnahagsaðgerð-
ir, umræðan sem búin er að vera
í gangi í allan vetur. Ekki bara í
þingsölum, heldur líka á nefndar-
fundum, á ráðstefnum, fundum og
í íjölmiðlum, alls staðar endalaus
umræða um peninga, verðbréf,
vexti, lán, skuldir, sjóði og svo
framvegis, allt annað hefur meira
eða minna orðið að víkja. Það laga-
fmmvarp sem nú er til umræðu
kom fyrst fram sem bráðabirgðalög
og í raun er bráðabirgða- það for-
skeyti sem setja mætti framan við '
allar þær ráðstafanir sem ræddar
hafa verið og þær ákvarðanir sem
teknar hafa verið. Þetta era því
miður bráðabirgðalausnir á brauð-
fótum. Framtíðarlausnir byggjast á
skilningi á undirstöðuatriðum. Þau
undirstöðuatriði em, að við skiljum
og virðum þau náttúmlögmál sem
setja okkur takmörk og við sjáum
og viðurkennum þau störf serh ráða
velferð þjóðarinnar.
STEYPT
NIÐURFÖLL,
RISTAR,
KARMAR
0GL0K i
Sérsteypum einnig annað eftir pöntun.
JÁRNSTEYPAN HF.
ÁNANAUSTUM 3, SÍMAR 24407 - 624260
JÁRNSTEYPA - ÁLSTEYPA - KOPARSTEYPA