Morgunblaðið - 17.05.1989, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1989
EB-aðild - hví
í ósköpunum?
eftir Jón Gunnarsson
Kyndugar tölur gat að líta í
^Morgunblaðinu laugardaginn 6.
maí. Félagsvísindastofnun hafði
kannað hug 1.500 íslendinga til
Evrópubandalagsins, og niðurstöð-
umar komu sannarlega á óvart.
54% þeirra, sem afstöðu tóku,
reyndust beinlínis hlynntir aðild
íslands að EB; töldu að rétt væri
að sækja nú bara um umsókn sem
fyrst. Ekki vakti það minni furðu
hjá mér, að það var einkum yngsta
fólkið, sem nú virðist bráðliggja á
að ganga í Evrópubandalagið. Þetta
þurfti ég nú að lesa tvisvar. Hringdi
svo í kunningja minn, borgara í
einu EB-ríkjanna, og sagði tíðindi.
Oldungis varð maðurinn orðlaus,
áttaði sig þó á því, að það var ekki
-.1. apríl, og gat sér þess svo til, að
líklega væri ég bara svona hrað-
lyginn. „Nú, kauptu Moggann og
lestu þetta sjálfur, ef þú trúir mér
ekki,“ sagði ég og það gerði hann
raunar. Hálftíma síðar talaði hann
svo aftur við mig, röddin því líkust
sem hann hefði verið að lesa and-
látsfregn: „Hvernig í ósköpunum
stendur á þessu?“. Heldur varð mér
svarafátt. Og spurningarnar dundu
á mér: „Líst þessu unga fólki svona
vel á atvinnuleysið hjá okkur? Vill
það sökkva sér í sama fenið og við
emm að drukkna í? Er það orðið
leitt á sjálfstæði landsins? Hefur
ekki ísland þolað erlend yfirráð
nógu lengi? Langar ykkur að fylla
allt hér af erlendum fyrirtælq'um
og farandverkamönnum? Viljið þið
leggja niður lýðveldið og íslensk
lög? Já, og menninguna og mál-
ið?...“
Virði menn mér til vorkunnar
þótt fátt yrði um svör; ég gat lítið
sagt löndum mínum til afsökunar
annað en það, að þetta væri nú
ungt fólk og ekki ýkja lífsreynt,
eins hefðu menn hér skelfing þoku-
kenndar hugmyndir um EB, héldu
líkast til flestir að þetta væru ein-
hvers konar samtök góðhjartaðra
kaupsýslumanna, sem öllum vildu
vel, og gott að komast í notalegan
selskap grannþjóða. Líklega teldu
menn að hér væri um að ræða
áþekkt fyrirbæri og samvinnu
Norðurlanda. En langan fyrirlestur
fékk ég um EB, auk nokkurra mið-
ur prenthæfra orða um gáfnafar
íslendinga, áður en samtalinu lauk.
„Hvemig stendur á þessu?“
spurði maðurinn. „Og hvers vegna
einmitt unga fólkið?" Ég spyr sjálf-
an mig hins sama og þau fara held-
ur í þurrð, svörin. Hvers vegna
unga fólkið? „Ef æskan vill rétta
þér örvandi hönd...“, kvað
skáldið, en það er nú orðið nokkuð
langt síðan það kvæði var ort. Töl-
urnar virðast hins vegar tala nokk-
uð skýru mali. Mönnum líst þá
svona vel á Evrópubandalagið, ekki
síst ungviðinu. Og hvað skyldi það
nú vera sem laðar og lokkar svo?
Eftir nokkrar vangaveltur kom mér
einkum tvennt í hug: 1. Fávísi æsk-
unnar. Hana má svo sem fyrirgefa,
það kemur fyrir að menn vitkist
með aldrinum. 2. Sú sáralitla um-
ræða, sem hér hefur farið fram um
EB, eðli þess fyrirbæris, ástandið í
ríkjum Evrópubandalagsins og þá
skipan allra mála, sem þar er nú
verið að koma á. Menn virðast ekki
átta sig á því, að þar er að mynd-
ast annað og meira en venjulegt
markaðsbandalag. Þar er ríki í
smíðum, nýtt risaveldi, sem sumir
vilja nefna Bandaríki Evrópu en
aðrir Fjórða ríkið. Menn tala yfir-
leitt um þann „innri markað" EB,
sem komið skal á árið 1992. Verra
rangnefni hef ég naumast heyrt.
Þá segja hin heitin tvö þó öllu sann-
ari sögu.
Þessi síðari ályktun mín hygg ég
að sé ekki fjarri lagi, þ.e. að hér-
lendis sé almenningur helst til fá-
fróður um eðli og þróun EB. Og
úr því þarf að bæta. Þá eru líkur
á að niðurstöðutölur næstu skoð-
anakannana kunni að verða með
nokkuð öðru móti. En nú hef ég
fremur efasemdir um réttinæti fyrri
ályktunar minnar, þ.e. að áhuga
ungviðis landsins á EB sé rétt að
skrifa einvörðungu á reikning æsku
og skorts á lífsreynslu. Hér er einn-
ig til fullorðið fólk, lífsreynt, há-
menntað jafnvel og hefur þó áhuga
að sækja beinlínis um aðild að EB.
Þar er hvorki æska né fáfræði til
afsökunar. Og ég spyr þá enn:
“Hvað sjá þeir íslendingar við EB?“
Líklega sjá þeir glytta í peninga,
flestir hveijir. Peninga handa sum-
um, peninga handa sárafáum í
raun, ef nánar er að gáð. Allgott
yfirlit yfir sjónarmið hérlendra holl-
ustumanna EB var að finna í blaði,
sem Félag viðskiptafræðir.ema við
Háskólann gaf út nú fyrir
skemmstu. Þar er vert að grípa upp
nokkrar tilvitnanir, sem gætu orðið
til að skýra ýmis atriði nánar. (Af
tillitsemi við höfunda læt ég nafna
þeirra ógetið.) En hvernig líst
mönnum til dæmis á málsgrein á
borð við þetta: „Tilskipanir banda-
lagsins eru bindandi gagnvart
aðildarríkjunum og þeim ber
skylda til að sjá til þess að lands-
lög séu í samræmi við þær. (Feit-
letrun mín — JG.) Þannig voru jafn-
launalög Dana t.d. ekki talin vera
í samræmi við rétt Evrópubanda-
lagsins og var þeim breytt eftir dóm
dómstóls bandalagsins." (Skjótum
því hér að, að Danir eru u.þ.b. 1,5%
af þjóðum Evrópubandalagsins og
vægi þeirra eftir því; værum við
aðilar, mundum við ekki ná einu
prómille og yrðum eftir því léttir á
metaskálunum). En ofangreind til-
vitnun er af lögfræðingi samin, og
ekki að sjá að höfundur sjái nokk-
urn skapaðan hlut athugaverðan
við það, að ríki afsali sér sjálfs-
ákvörðunarrétti til ytri aðila með
þessum hætti. Og sérfræðingar um
evrópsk lög telja, að áður en áratug-
ur líður, verði á að giska 70% laga
innan EB sett af valdhöfum í Bruss-
el; einstök þjóðríki verða þá sam-
kvæmt því að endurskoða lög sín
eftir því hvaðan vindar blása í
Brussel hveiju sinni. Hyggi menn
Jón Gunnarsson
„Tölurnar virðast hins
vegar tala nokkuð
skýru máli. Mönnum
líst þá svona vel á Evr-
ópubandalagið, ekki
síst ungviðinu.
einnig að því, hvernig ofannefndar
tilskipanir verða til. Ekki á löggjaf-
arþingum með lýðræðislegu að-
haldi, eins og menn eiga að venjast
í réttarríkjum. Þær verða til með
töluvert öðrum hætti, sem á skelf-
ing lítið skylt við það lýðræði, sem
við höfum átt að venjast. Annars
vegar er um að ræða ákvarðanir
Ráðherraráðs EB, og samkvæmt
upplýsingabæklingum Alþingis um
ísland og EB þarfnast þær „í sum-
um málum afgreiðslu réttra yfir-
valda í hveiju aðildarríki, en í
mörgum tilvikum hafa þær laga-
gildi gagnvart stofnunum eða
þegnum í einstökum bandalags-
löndum án sérstakrar staðfest-
ingar.“ (Feitletrun mín - JG.) „Ráð-
herraráðið tekur einungis ákvarð-
anir á grundvelli tillagna sem fram-
kvæmdastjórnin leggur fyrir.“ Og
Framkvæmdastjórn EB telur 17
manns, þótt aðildarríkin séu ein-
ungis 12 ennþá. „Framkvæmda-
stjórnarmenn eru tilnefndir af
bandalagsríkjunum, 1 eða 2 af
hveiju eftir stærð ríkja, til 4 ára í
senn, en eru óháðir fyrirmælum
frá heimaríkjum sínurn." (Feit-
letrun mín - JG.) Og ekki er dóm-
stóll EB í Lúxembúrg valdalítil
stofnun heldur:
„Dómstóllinn getur fellt úr gildi
stjórnvaldsákvarðanir og jafnvel lög
einstakra aðildarríkja, ef þau ganga
gegn reglum bandalagsins, og dóm-
stólar hvers aðildarríkis eru bundn-
ir af túlkun Dómstóls Evrópubanda-
lagsins á reglum þess.“
Illa trúi ég því að Thomas heitinn
Jefferson hefði nokkru sinni sam-
þykkt hugmyndir sem þessar forð-
um daga, þegar Bandaríki Ameríku
voru stofnuð. Lærdómsríkt að bera
saman, hvernig þar var leitast við
að tryggja lýðræði og tök hvers
einstaklings á því að njóta mann-
réttinda sinna á alla lund. Þá var
rætt af skynsemi og skarpri hugsun
— fyrir opnum tjöldum — um það,
að hve miklu marki og hvenær einn
maður skyldi ráða ráðum annars.
Hve mikil völd væri veijandi að fá
miðstjórn ríkis í hendur. En til
„Bandaríkja Evrópu“ virðist hafa
verið stofnað með giska ólíkum
hætti. Og einhveiju sinni þóttu það
slæm býti hér á landi að nema úr
gildi lög þjóðveldisins forna og lúta
síðar lögum Danakonungs, en
tímamir breytast og mennirnir
með, eins lögfræðingar. (En eitt-
hvað hlýtur þetta nú að kosta allt
saman. Hver borgar? Jú, „Evrópu-
bandalagið fær hlutdeild í virðis-
aukaskatti hvers aðildarríkis, og
það nýtur tekna af hinum sameigin-
legu ytri tollum bandalagsins."
Manni verður vitaskuld hugsað til
tíundanna á tímum kaþólsku kirkj-
unnar.)
Önnur tilvitnun úr feigðarspá
yfir EFTA-samtökunum: „Eftir
1992 verður orðið of seint að laga
sig að þessum breytingum og þá
verður hvert einstakt EFTA-ríki að
ákveða hvernig því verður best
borgið. EFTA á því mikilvægu hlut-
verði ykkur aó góðui
f
u
De Dietrich
Frönsku gæða
heimilistækin frá
| De Dietrich fást hjá okkur. Við höfum fyrirliggjandi
I m.a. bakarofna, helluborð og uppþvottavélar.
Skoðaðu tækin hjá okkur áður en þú ákveður annað.
Vidurkennd varahluta- og viðgerðarþjónusta.
1SUÐARVOGI 3-5,
SÍMI 687700