Morgunblaðið - 17.05.1989, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAI 1989
51
um og litlu stúlkunni hans heimili
og hlýju og friðar, sem veitti skjól
og öryggi í amstri daganna. Hennar
hlutur er því stór og hann hefur
Magnús metið og þakkað að verð-
leikum. Og virðing okkar og aðdáun
hefur vaxið fyrir þessari hógværu
og hjartahlýju konu, sem nú sér að
baki eiginmanni og tryggum vini,
en hún taldi aldrei eftir sér að gjöra
það besta úr öllum hlutum er að
gagni máttu koma og í hennar valdi
stóðu. Minningin lifir um góðan
dreng og við sendum á kveðjustund-
inni samúð okkar til ástvina hans,
eiginkonu og dóttur, maka hennar
og afabarna.
Guð blessi þeim minningar sam-
verustundanna og gefi þeim styrk
í sorg þeirra og söknuði.
Guðrún og Ólaftir Öm
Mig langar að minnast heiðurs-
mannsins Magnúsar Sveinssonar
kennara frá Hvítsstöðum á Mýrum
með nokkrum orðum.
Magnús var fósturbróðir móður
minnar, Guðnýjar Kristrúnar Níels-
dóttur, og ólust þau upp hjá ömmu
minni og afa, Soffíu Hallgríms-
dóttur og Níelsi Guðnasyni, að Vals-
hamri á Mýrum.
Ég man eftir Magnúsi frá því ég
var drengur, þá bjó hann ásamt
fyrri konu sinni, Guðnýju Margréti
Bjömsdóttur, vestur á ísafirði og
þau hjónin komu oft á sumrum til
Reykjavíkur og bjuggu þá stundum
hjá foreldrum mínum, okkur öllum
til mikillar gleði.
Vorið 1953 lést Guðný kona
Magnúsar frá dóttur sinni fjögurra
daga gamalli og hlaut hún nafn
móður sinnar, Guðný Margrét, við
kistulagningu hennar. Eftir lát
Guðnýjar, sem varð Magnúsi mikill
harmdauði, bjó hann á Isafirði tvo
vetur og hélt heimili með ráðskon-
um og dótturinni litlu, sem varð
gleðigjafi og augasteinn föður síns
og hefur verið ætíð síðan.
Guðný Margrét sem nú er þekkt
myndlistarkona er gift Helga Guð-
bergssyni lækni og eiga þau þrjú
mannvænleg börn.
Tvö fyrstu sumur eftir andlát
konu sinnar dvaldi Magnús í
Reykjavík með Guðnýju' Margréti
yngri á heimili foreldra minna. Á
þriðja vetri fékk Magnús leyfi frá
störfum og dvaldi þá mikið erlend-
is, en Guðný Margrét var í fóstri
hjá foreldrum mínum, Stefáni Páls-
syni tannlækni og Guðnýju móður
minni. Síðan hafa Magnús og
Guðný verið mér og systrum mínum
mjög kær og eignuðumst við góðan
frænda og systur.
Magnús var kennari að mennt
og starfaði við kennslu alla sína
starfsævi, en hann var áræðinn og
duglegur við margt fleira og byggði
sér íbúð af miklum dugnaði vestur
á Hagamel og þar var hann allt í
senn, smiður, pípulagningamaður,
múrari, málari og dúklagningamað-
ur.
Samt held ég að Magnús hafi
alltaf langað til að verða bóndi, og
skil ég það vel, því ég hef alltaf
litið til þeirrar stéttar með aðdáun
og virðingu. Ekki varð samt af því
að sá draumur hans rættist. En
hann var alla tíð mikill aðdáandi
íslenskrar náttúru og ferðaðist mik-
ið um landið, jafnt byggðir sem
óbyggðir, og fór oft í Iangferðir
fótgangandi.
Magnús var mjög einlægur mað-
ur og trúr því sem hann tók ást-
fóstri við. Þannig var einnig um
stjórnmálaskoðanir hans, en þar
studdi hann Framsóknarflokkinn
alla tíð. Það var oft og einátt mjög
fjörug stjórnmálaumræða milli föð-
ur míns og Magnúsar og þótti mér
mjög gaman á að hlýða fyrst í stað
og seinna að taka þátt í slíkum
samræðum.
Vorið 1957 flutti Magnús í eigin
íbúð á Hagamel 41 í Reykjavík og
réð til sín ráðskonu, Guðnýju
Sveinsdóttur ljósmóður frá Eyvind-
ará á Héraði, og varð það þeim
feðginum mikið gæfuspor, því
Magnús og Guðný giftu sig 12. júní
1958 og var hjónaband þeirra mjög
farsælt og lifir Guðný Sveinsdóttir
mann sinn.
Við Magnús hittumst oft á seinni
áruni á laugardags- eða sunnudags-
morgnum í kaffisopa í gamla fal-
lega húsinu hennar mömmu við
Stýrimannastíg, þar sem við kynnt-
umst fyrst fyrir 40 árum. Þá var
oft ýmislegt spjallað, þar á meðal
um landsins gagn og nauðsynjar.
Magnús alltaf trúr sínum flokki og
hugsjón, ég meira reikandi og dálít-
ið í vafa um ágæti landsfeðranna.
Ásamt því að vera einstaklega hlýr
og einlægur, var Magnús einnig
hógvær og sparsamur. Hann hlúði
vel að sínu og var ánægður með
það. Eiginleikar, sem óskandi væri,
að væru meira ríkjandi meðal okkar
• dag.
Ég kom við hjá mömmu að
morgni 4. maí síðastliðinn og þegar
Talaðu við
obfeur um
uppþvottavélar
SUNDABORG 1 S. 68 85 88 -68 85 89
við vorum að fá okkur kaffisopa
saman spurði ég hana hvort Magn-
ús hefði ekkert komið til hennar
nýlega. Ég vissi ekki þá, að á þeirri
stundu var hann að hlúa að garðin-
um sínum í síðasta sinn og að við
myndum aldrei framar hittast A
Stýrimannastígnum. Þess sakna ég
mikið. Hann var heill maður.
Páll Stefánsson
Talaðu við
ofefeur um
ofna
SUNDABORG 1 S. 68 85 88 -6885 89
Peugeot 405 stórglæsilegur og margverðlaunaður fólksbíll.
Varmeðal annars kosinn bíll ársins í Danmörku og Noregi auk
þess að vera valinn bíll ársins í Evrópu 1988 með mestu yfir-
burðum í sögunni.
Peugeot 405 GL
4ra dyra, 5 gíra, 1580 cc.
Verð áður
VORverð
884.200.
824.200.
VORafsláttur
Peugeot 405 GR
4ra dyra, 5 gira, 1905 cc.
Verð áður
VORverð
Kr. 60.000.-
Kr. 1.030.200.
Kr. 960.200.
NÝJUNG I
BÍIAVIÐSKIPTUIVI!
Sól hækkar stöðugt á lofti og allir komnir í VORskap. Og við
höldum áfram með VORafslátt og VORgreiðslukjör.
VORsalan á Peugeot 205 og 309 hefur fengið frábærar viðtök-
urog þarsem við höfumfengið ítrekaðarfyrirspumirum VOR-
sölu á Peugeot 405, höfum við nú ákveðið að slá til, en aðeins
þessa viku!
Allir bílar á TMtéLI eru af
árgerð 1989.
VORafsláttur
Kr.
70.000.-
Peugeot 405 GR BREAK (station)
4ra dyra, 5 gira, 1905 cc.
Verð áður
VORverð
Kr. 1.131.000.
Kr. 1.061.000.
VORafsláttur
Kr. 70.000.-
Við tökum allar tegundir eldri bila i
skiptum en Peugeot er sérstaklega
velkominn í skiptum og þá getum
við lánað alian mismuninn í allt að
átján mánuði.
Líttu við og þú sannfærist!
JÖFUR HF
NÝBÝLAVEGI 2 • SÍMI 42600
^ ifffi atsti nflTti tiffr ifiSðii
JÖFUR- ÞEGAR ÞU KAUPIR BÍL
ATHUGIÐ! AÐEINS
VIKU.
c