Morgunblaðið - 17.05.1989, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MAI 1989
Guðrún Níels-
dóttir - Minning
Fædd 8. júní 1894
Dáin 17. janúar 1989
Laugardaginn 28. janúar sl. var
jarðsett frá Kvennabrekkukirlq'u
amma okkar, Guðrún Níelsdóttir,
sem andaðist 17. janúar á sjúkra-
húsinu í Stykkishólmi. Amma fædd-
ist í Goðadal í Strandasýslu 8. júní
1894. Foreldrar hennar voru Ingi-
björg Jónsdóttir og Níels Hjaltason.
Eignuðust þau tvö böm, ömmu og
Jón, fæddan 1896 sem nú er látinn,
hann var ókvæntur, en átti einn
son. Hálfbróðir þeirra, samfeðra,
Jóhann, hann er látinn, hann var
ókvæntur en átti einn son. Amma
giftist 1923 Karli Jónssyni fæddur
22. júní 1899, dáinn 23. október
1968 frá Víðivöllum í Strandasýslu,
foreldrar hans vom Katrín Jóns-
dóttir og Jón Jóhannsson. Afa og
ömmu varð sjö bama auðið: Tvö
elstu, fædd 1924 og 1925, fæddust
andvana. Katrín f. 1926, verkakona
í Búðardal, gift Vigfúsi Baldvins-
syni; Ingi Níels f. 1926, dáinn 1976,
bóndi á Breiðabólsstað, kvæntur
Huldu Hlíf Kristjánsdóttur, dáin
1964; Jón Svanberg f. 1931 bóndi
á Breiðabólsstað, kvæntur Kristínu
Guðmundsdóttur. Yngstir era
tvíburamir Pétur Hoffman og Egg-
ert Sigurðs, fæddir 1936, þeir era
báðir rútubílstjórar og búa í
Reykjavík. Pétur er kvæntur Lydiu
Kristóbertsdóttur og Eggert er
kvæntur Elínu Hassing. Þá ólu afí
og amma upp bróðurson hennar,
Kristján Ingibjöm Jóhannsson f.
1945, bílstjóri í Búðardal, kvæntur
Sigurlaugu Jónsdóttur. Bamaböm-
in era 21 og langömmubörnin 12.
Frá 1926-’37 bjuggu afi og amma
á Fitjum í Strandasýslu, 1937-’48
á Vatnshomi og á Hólmavík
1948-’52, þá flytja þau að Breiða-
bólsstað í Sökkólfsdal í Dalasýslu.
Þar bjuggu þau í sambýli við syni
sína þar til heilsu afa fór að hraka.
Tóku þeir þá við öllum búskap á
jörðinni. Amma átti áfram heimili
þar allt til síðla árs 1981. Eftir það
dvaldi hún að mestu á dvalarheimil-
inu Fellsenda.
Amma var alla tíð mjög trúuð,
ósérhlífin og dugleg kona. Hún tók
öllu mótlæti í lífinu með stillingu
og jafnaðargeði. Það var henni mik-
il sorg þegar afi dó og 8 áram síðar
sonur hennar aðeins 47 ára að aldri
frá tveimur sonum, annar 15 ára
og hinn á 17. ári, sem höfðu áður
misst móður sína, þá aðeins 3ja og
5 ára.
Þetta fannst ömmu óréttlátt að
hún skyldi fá að lifa þó búin að
missa manninn og orðin ein. En
ekki skyldi fást um það þannig
skyldi það vera.
Alltaf hlökkuðum við systumar
til þegar von var á ömmu í heim-
sókn. Hun gaf sér alltaf tíma til
að lesa fýrir okkur eða segja okkur
sögur og ætíð hafði hún pijóna sína
meðferðis enda skorti okkur aldrei
ullarsokka og vettlinga. Ekki skorti
ömmu þolinmæði, hún kenndi okkur
að lesa og ekki var áhuginn alltaf
________________________ 63
mikill við námið. Svo við tölum nú
ekki um allar heimsóknimar til
hennar, þar var alltaf hlaðið borð
af kökum og ýmsu góðgæti, enda
myndarleg húsmóðir alla tíð hún
amma. Það var henni mikil gleði
þegar haldið var upp á 90 ára af-
mæli hennar á Breiðabólsstað hjá
Jóni og Kristínu. Þar var öll fjöl-
skyldan saman komin. Ekki komst
hún þó upp til sín, til að sýsla eitt-
hvað í sínu dóti, eins og hún var
vön þegar hún skrapp heim. Ekki
urðu ferðirnar margar eftir þetta
því heilsu hennar fór að hraka. Svo
var það nokkram dögum eftir 91
árs afmæli hennar að hún veiktist
mikið og náði sér aldrei að fullu
síðan, þó var hún alltaf rólfær þar
til á sl. ári. Guði sé Iof að hún kvald-
ist lítið í þessum veikindum sínum. \
Að kvöldi 17. janúar sl. sofnaði
amma og vaknaði ekki aftur. Hún
var loks búin að fá langþráða hvíld.
Við kveðjum okkar elskulegu ömmu
og vottum börnum, fóstursyni og
fjölskyldum þeirra samúð okkar.
Hvíli elsku amma okkar í friði.
Kveðja frá dótturdætrum
og ljölskyldum þeirra.
Minning:
Sigurgeir Guðbrands-
son - Heydalsá
Fæddur 13. maí 1936
Dáinn 10. april 1989
Sigurgeir föðurbróðir minn er
dáinn. Geiri eins og hann var ætíð
kallaður, fæddist á Heydalsá í
Steingrímsfirði. Foreldrar hans
vora Guðbrandur Bjömsson frá
Smáhömram í sömu sveit og Ragn-
heiður Guðmundsdóttir frá Ófeigs-
firði á Ströndum.
Geiri var yngstur tíu systkina
sem komust til fullorðinsára. Það
var mikið sungið á Heydalsárheimil-
inu og þar var oft glatt á hjalla,
þrátt fýrir að veikindi settu svip
sinn á heimilið um skeið. Fjögur
elstu systkinin dvöldu á sjúkra-
stofnunum vegna berkla og síðar
amma mín af sömu ástæðum. En
það vora ekki einu áföllin sem á
heimilið dundu. Þegar Geiri var
aðeins 10 ára deyr afí minn eftir
ströng veikindi. Þá taka tveir elstu
bræðumir við búinu. En aðeins fjór-
um áram seinna drakkna þeir báðir
er bátur þeirra, Svanurinn, fórst á
Húnaflóa í desember 1950. Það
kom þá í hlut Geira og Braga bróð-
ur hans að taka við búinu aðeins
14 og 17 ára gamlir ásamt systram
sínum þeim Vigdísi og Matthildi.
Ásamt móður sinni ráku þau búið
næstu árin af mikilli atorku og
myndarskap. Einnig héldu bræð-
umir áfram ræktun og uppbygg-
ingu jarðarinnar þó ungir væra.
1964 giftist Geiri eftirlifandi
konu sinni, Halldóra Guðjónsdóttur
frá Heiðarbæ í Steingrímsfirði. Þau
eignuðust fjóra drengi, Guðbjörn,
Guðjón, Guðbrand Ásgeir og Hrólf.
Mikill myndarskapur einkenndi
ávallt heimili þeirra og þangað var
ætíð gott að koma.
Geiri var mjög félagslyndur og
mikill áhugamaður um íþróttir og
hestamennsku. Þegar við systkinin
fórum á héraðsmót í Sævangi var
Geiri frændi þar alltaf mættur til
starfa, því hann var ósérhlífinn í
öllu sem hann tók sér fyrir hendur.
Hann átti marga góða hesta og var
t.d. formaður hestamannafélagsins
Blakks.
Hann var vinmargur enda skap-
góður og hvers manns hugljúfi.
Hann sá ætíð skoplegu hliðina á
málunum og hafði lag á að koma
fólki í létt skap. Þegar hann tók
sjúkdóminn sem leiddi hann til
dauða kom í ljós að hann bjó yfír
hugarró og miklum sálarstyrk.
Hann háði sína þöglu baráttu er
stóð í tvö ár með aðdáanlegu hug-
rekki og þolinmæði uns líkams-
kraftar þrutu en sálarþrekið var
óbugað til hinstu stundar og í þeim
skilningi vann hann stóran sigur í
dauðastríðinu. Hann kvartaði aldrei
yfir hlutskipti sínu og ef ættfólk
og hjúkranarlið var guggið og eitt-
hvað áhyggjufullt í návist hans
reyndi hann að brosa til viðstaddra
og slá á léttari strengi. Þannig
minnist ég hans.
Elsku Dóra og synir, guð blessi
ykkur og styrki í sorginni.
Fríða Torfadóttir
Jón Sigurðsson,
Rjóðri - Minning
Jón Sigurðsson, Rjóðri, Djúpa-
vogi, andaðist skyndilega á pálma-
sunnudag sl. Hress og kátur eins
og venjulega var hann er ég hitti
hann á fömum vegi fyrir helgina.
Sá hinn sami og við höfðum þekkt
hann í mörg ár með bros á vör,
vísu og glettniyrði á hraðbergi. Ég
ætla ekki að rekja æviatriði Jóns í
Rjóðri í smáatriðum. Það hefur
Brynjólfur bróðir hans gert vel og
smekkvíslega í blaðagrein. En skylt
er mér að mæla nokkur kveðjuorð
eftir þennan vin minn og félaga.
Svo löng og góð var viðkynning
okkar orðin og verður aldrei full-
þökkuð.
Jón ólst upp á Melrakkanesi í
Álftafirði hjá góðu fólki, Sigþóra
Guðmundsdóttur og Helga Einars-
syni. Mörg vora spor hans um þess-
ar æskuslóðir og þar þekkti hann
hvem stein. Margsinnis leitaði hann
á vit náttúrunnar, annaðhvort einn
síns liðs eða sem fræðari og leið-
sögumaður annarra. Jón var fyrsti
bflstjóri á Djúpavogi. Hann ók um
skeið vörubfl sem Kaupfélag Beru-
ijarðar fékk vorið 1942. Stundaði
hann akstur og ökukennslu um
skeið, en annars ýmsa vinnu er til
féll. Jóni í Rjóðri var margt til lista
lagt. Kunnastur var hann fyrir
kvæði sín og vísur. Oft var hann
beðinn að yrkja ljóð við ýmis tæki-
færi. Kom reyndar oft ótilkvaddur
er mest lá við og flutti snjallt
kvæði. Lausavísur gerði hann fjöl-
margar af ýmsu tilefni. Hann hafði
gott vald á móðurmáli sínu og setti
saman ljóð af einstakri smekkvísi,
enda þaullesinn í verkum hinna eldri
meistara. íþróttir hugans vora hon-
um tamar og kærar og hög var
einnig hönd hans. Á síðari árum
smíðaði hann báta- og skipalíkön
af einstökum hagleik. Dvaldi löng-
um í kjallaranum í Rjóðri við þá
iðju er frístundir gáfust. Hafa skip
hans víða farið. Jón var eftirsóttur
félagi á mannamótum. Hafði hann
alltaf á takteinum eitthvert efni til
að gera fólki glatt í geði, frásögn,
kvæði eða vísu. Lionsmenn á Djúpa-
vogi þakka honum sérstaklega sam-
fylgd og samstarf í 16 ár. Alltaf
var hann hinn óeigingjarni og góði
félagi tilbúinn að leggja góðu máli
lið.
Það er bjart yfir minningu Jóns
í Rjóðri. Lítið sjávarþorp á Aust-
fjörðum er eyðilegra og fátækara
eftir að þorpsskáldið og sögumaður-
inn er burt kallaður. Ég og fjöl-
skylda mín vottum Jónínu, börnum,
tengdabömum og bamabömum
innilega samúð okkar.
Ingimar Sveinsson
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SNORRI ÁSGEIRSSON
rafverktakl,
Þinghólsbraut 37,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni i dag, miðvikudaginn
17. maí, kl. 13.30.
Kristjana Heiðberg Guðmundsdóttir,
Björgvin Gylfi Snorrason, Guðfinna Alda Skagfjörð,
Ásgeir Valur Snorrason, Hildur Gunnarsdóttir
og sonardætur.
t
Hjartkær móðir okkar,
INDÍANA KATRÍN BJARNADÓTTIR,
Ljósheimum 4,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju fimmtudaginn 18. maí
kl. 15.00.
Þeir, sem vilja minnast hinnar látnu, er vinsamlegast bent á líknar-
félög.
Albert Guðmundsson,
Gfsli Guðmundsson,
Guðjón Guðmundsson,
Skarphéðinn Guðmundsson,
Erla S. Guðmundsdóttir,
Valentinus Guðmundsson,
Steinþór Guðmundsson,
Ingólfur Jónsson,
Inga Magnúsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
Brynhildur Jóhannsdóttir,
Þóra Sigurjónsdóttir,
Guðbjörg Axelsdóttir,
Þorbjörn Pétursson,
Hafdfs Eggertsdóttir,
Anna Georgsdóttir,
Ingibjörg Arilfusardóttir,
, og barnabarnabarnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HALLBORG SIGURJÓNSDÓTTIR,
Holtsbúð 49,
Garðabæ,
sem lést i Landspítalanum 6. maí, verður jarðsungin frá kirkju
Óháða safnaðarins fimmtudaginn 18. mai kl. 15.00.
Haraldur Guðmundsson,
Sigurjóna Haraldsdóttir, Örn Zebitz,
Ágústa Haraldsdóttir, Hafsteinn Gilsson,
Eiður Haraldsson, Hrafnhildur Sigurbjartsdóttir,
Ester Haraldsdóttir, Siggeir Ólafsson,
Jón Ingvar Haraldsson, Edda Jóhannsdóttir,
Hólmfrfður Haraldsdóttir, Helgi Lárusson,
barnabörn og langömmubörn.
4
t
Þakka innilega auðsýnda samúö og vinarhug vegna andláts og
útfarar systur minnar,
MATTHILDAR FRIÐRIKSDÓTTUR TINSAND.
Sigrfður Friðriksdóttir.
t
Þökkum af alhug auðsýnda hlutteknlngu og samúð við andlát og
útför konunnar minnar, dóttur okkar, móður, tengdamóður og
ömmu,
ELSU VALDÍSAR ENGILBERTSDÓTTUR,
Bæ f Reykhólasveit.
Jón A. Guðmundsson,
foreldrar, börn, tengdabörn
og barnabörn.