Morgunblaðið - 13.06.1989, Qupperneq 14
13."JÚNÍtl989
kr.195
Á NÆSTU SHELLSTÖÐ
Blue Coral SuperWaxer
sannkallað ofurbón.
Bónið er borið á og síðan
þurrkað yfir með hreinum klút.
Ekkert nudd, ekkert puö, tekur
enga stund.
Samt er árangurinn jafnvel
betri en með venjulegu puðbóni.
S\\ \ I n
#\\ \ /\
A
’i
Línurit á fölskum forsendum
eftir Eggert Haukdal
Bjarna Braga í Seðlabankanum
virðist mikið niðri fyrir um þessar
mundir. Hann kemur aftur og aftur
fram í fjölmiðlum með þá „kenn-
ingu“ sína, að jafn hagkvæmt sé
að taka verðtryggð lán innanlands
sem erlend lán. Verðtrygging er
sem sagt góð og blessuð og kostar
ekki neitt. Verðbótaþáttur vaxta,
sem er meginhluti ijármagnskostn-
aðar, borgar sig sjálfur! Þessa kenn-
ingu sína styður hann með röð línu-
rita, sem eru reiknuð á hinn skringi-
legasta hátt. Þessi línurit hefir hann
sýnt tvívegis í sjónvarpi og verið
hreykinn af.
Hvaða rugl er þarna á ferðinni?
Líklega stafar það af því, að Bjarni
Bragi hyggur aðeins „raunvexti“
vera vexti, en svo eru nefndir nafn-
vextir að frádreginni lánskjaravísi-
tölu. Þessir raunvextir eru hins veg-
ar aðeins brot vaxtaprósentunnar,
sem fyrirtækjum og heimilum er
gert að greiða.
Ef við lítum yfir sl. 7 ár
(1982-88), sem lánskjaravísitalan
hefír gilt að fullu, þá er meðal
vaxtaprósentan þannig:
Verðbótaþáttur vaxta 34,9% á ári
Raunvextir ■ _ 6,3%áári
Nafiivextir 41,2% á ári.
Þessi vaxtaprósenta er ijórum
sinum hærri en sú, sem gildir í
Bretlandi, en hún var á sama tíma
10,5% að meðaitali. Liggur í augum
uppi, að ísienzk fyrirtæki standa
höilum fæti í samkeppni við brezk
fyrirtæki. Sama gildir um sam-
keppni þeirra við kanadísk fyrirtæki
á ÍBandaríkjamarkaði. Þau einfald-
lega standast ekki samkeppnina,
þótt varið sé fé úr ríkissjóði og
opinberum sjóðum til styrktar út-
flutningsframleiðslunni. Það eru i
raun réttri allt niðurgreiddir vext-
ir til að halda framleiðslunni gang-
andi. Byrðunum er svo velt yfir á
almenning í formi skatta og kvaða
— til þess eins að fóðra peningapú-
kann á lána- og verðbréfamarkaðn-
um. En áfram eru fyrirtækin á helj-
arþröm.
Auðvitað er ódýrara að taka Ián
erlendis með 10,5% vöxtum í stað
41,2%. En aðeins um stundarsakir.
Lánskjaravísitalan, sem leiðir til
Eggert Haukdal
okurvaxta, knýr fyrr eða síðar til
gengislækkunar. Við það vex ekki
aðems lánskostnaður, heldur allur
skuldahali útvegsins — og þurrkar
ávinninginn út.
Lánskjaravísitalan er sveiflu-
kennd verðbólguvísitala, sem felur
„Lánskjaravísitalan er
sveiflukennd verð-
bólguvísitala, sem felur
ekki í sér neina verð-
mætasköpun. Hún er
enginn mælikvarði á
raungildi peninga.“
ekki í sér neina verðmætasköpun.
Hún er enginn mælikvarði á raun-
gildi peninga. Raungildi peninga
ræðst — eins og raungengi — af
samkeppnisstöðu útflutningsat-
vinnuveganna. Óáran í landinu í
formi gjaldþrota og rekstrarstöðv-
ana mun halda áfram og versna,
unz þessi vísitöiuófreskja hefír verið
afnumin.
Læt þess getið í lokin, að ýmsar
leiðir eru til að vernda innstæður á
sparisjóðsbókum, án þess að það
valdi neinum álíka usla og láns-
kjaravísitalan.
Höfundur er alþingismaður fyrir
Sjálfstæðisflokkinn íSuðurlands-
kjördæmi.
Pú tjaldar ekki til einnar nætur
' i*_u: C..JL
1 LjcilUl iíct
Skátabúðinni
Skátabúðin býður ótrúlegt
úrval af íslenskum og erlend-
um tjöldum. Allt frá eins
manns göngutjöldum til stórra
fjölskyldutjalda. Sérþekking
okkar í sölu og meðferð á
tjöldum sem og öðrum úti-
verubúnaði er þín trygging.
Við hjá Skátabúðinni viljum
geta sagt að „þú tjaldir ekki
til einnar nætur" í tjaldi frá
okkur.
-SMRAR fWMtfR
SNORRABRAUT 60 SÍM112045