Morgunblaðið - 18.07.1989, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1989
Sigmjón
Hailbjöms■
son látinn
SIGURJÓN Hallbjörnsson
símvirkjameistari lést í
Reykjavík laugardaginn 15. júlí
72 ára að aldri.
Sigurjón fæddist 7. ágúst árið
1916. Hann hóf störf hjá Pósti
og síma árið 1929, þá sem sendill.
í ársbyijun 1933 hóf hann nám
á verkstæði Bæjarsímans.
Símvirkjaprófi lauk Siguijón 1.
janúar 1945 og var þá skipaður
símvirki hjá Landsímanum.
Árið 1966 lauk hann símvirkja-
meistaraprófi. Siguijón vann hjá
Pósi og síma í 57 ár og lét af
störfum fyrir aldurs sakir í árslok
1986.
Siguijón var landsþekktur golf-
leikari og heiðursfélagi í Golf-
klúbbi Reykjavíkur. Hann keppti
VEÐUR
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra:
Alþjóðadeild ráðuneytisins
sinnir verki heimasendiráða
Utanríkisráðherra segir að alþjóðadeild utanríkisráðuneytisins
muni hér eftir sinna stjórnmálasamskiptum við þau ríki sem ísland
hefiir haft heimasendiherra hjá. Heimasendiráðin verða lögð niður
síðar í sumar.
Siguijón Hallbjörnsson.
á landsmóti í golfi á hveiju ári í
um hálfa öld og vann til margra
verðlauna.
Siguijón kvæntist Sigríði Sig-
urðardóttur en hún lést á síðasta
ári. Þau eignuðust 3 böm og eru
tvö þeirra á lífi.
ísland hefur haft heimasendi-
herra hjá nokkrum fjarlægum Asíu-
löndum, Mið-Austurlöndum og
Afríkuríkjum og hafa Benedikt
Gröndal og Hannes Jónsson gegnt
þessum embættum, sem nú verða
lögð niður.
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra sagði við Morgun-
blaðið, að stefnt væri að því að sinna
þeim ríkjum sérstaklega, sem ís-
lendingar hefðu mikil og vaxandi
viðskipti við. Þannig væri unnið að
stofnun sendiráðs í Japan, sem
einnig sinnti Kóreu, en það réðist
af niðurstöðum fjárlagaafgreiðslu
fyrir næsta ár hvernig það gengi.
„Það er á hinn bóginn talsvert
viðamikið mál og ekkert víst að
niðurstaðan verði sú að við opnum
sendiráð með sendiherra heldur
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 I gær)
gæti það verið með viðskiptafull-
trúa,“ sagði utanríkisráðherra.
Sú spurnig hefur vaknað hvort
það gæti verið túlkað sem slit á
stjómmálasambandi að leggja á
þennan hátt niður heimasendiráð.
Utanríkisráðherra sagði það af og
frá og benti á að Danir, sem nú
væru að endurskipuleggja sína ut-
anríkisþjónustu, hefðu undanfarið
lokað hveiju sendiráðinu á fætur
öðru af sparnaðarástæðum.
„Þeir gera það að sjálfsögðu með
vísan til skipulagsbreytinga og
halda stjórnmálasamskiptum í
fyrsta lagi í gegnum utanríkisráðu-
neytið og í öðm lagi með því að
efla konsúla. Að því stefnum við
einmitt," sagði Jón Baldvin.
Hannes Jónsson baðst lausnar
úr utanríkisþjónustunni sl. föstu-
dag, í kjölfar þess að utanríkisráð-
herra sagði honum upp embætti
heimasendiherra. Á fréttamanna- •
fundi sagði Hannes meðal annars
að utanríkisráðherra væri að vinna
skemmdarstarfsemi á utanríkis-
þjónustunni með skipulagstillögum
sínum.
Jón Baldvin sagði um þetta, að
breytingar á skipulagi utanríkis-
þjónustu yrðu ekki ræddar við
Hannes Jónsson í fjölmiðlum. Þær
yrðu ræddar innan ráðuneytis, í
ríkisstjórn og í utanríkismálanefnd,
og þar hefði verið gerð fullnægj-
andi grein fyrir þeim.
Að öðm leyti sagði utanríkisráð-
herra, að ummæli Hannesar Jóns-
sonar á blaðamannafundinum væm
ekki svaraverð.
„Þessi maður hefur að eigin sögn
verið starfslaus í nokkur ár. Það
er út af fyrir sig viðurkenningar-
vert að hann hefur tekið á sig rögg
að segja af sér, en hann hefði mátt
gera það fyrr, því sannleikurinn er
auðvitað sá að hann hefur verið
áskrifandi að kaupinu sínu,“ sagði
Jón Baldvin Hannibalsson.
Flugleiðir:
Tilboð um 6,7 millj-
arða lán til vélakaupa
FLUGLEIÐIR hafa tryggt sér lánsrétt vegna kaupa þriggja nýrra
flugvéla á næsta ári að jafiivirði um 6,7 miHjarða íslenskra króna.
Það eru bankar í Bandaríkjunum og Japan sem standa að lánatilboð-
inu. Um er að ræða fjármögnun á 90% kaupverðs vélanna.
„Á .næsta ári fá Flugleiðir ríkisábyrgð," segir í frétt frá félag-
757-200- flugvélar til flugs á Norð-
ur-Atlantshafsleiðum og eina
737-400- flugvél til viðbótar þeim
tveimur sem keyptar vom til lands-
ins á þessu ári og lánsrétturinn nú
er tryggður vegna þeirra. Þá verður
allur millilandafloti félagsins innan
við eins árs gamall og sennilega
hinn yngsti í Evrópu. Við tryggingu
lántökunnar hafa Flugleiðir ekki
þurft að leita eftir ábyrgðum frá
ríkinu eða öðmm. Lánin yrðu
tryggð með veði í vélunum. Kjörin
á þessum lánum em einnig góð og
teíjast svipuð og ef þeim hefði fylgt
mu. #
„Þótt Flugleiðir hafi tryggf sér
lánsrétt vegna vélakaupanna hefur
ekki verið tekin ákvörðun um hvort
þessi réttur verður nýttur. Einnig
kemur til greina að fjármagna þær
með öðmm hætti, til dæmis í gegn-
um kaupleigu. Með lánatilboði sínu
hafa bankamir sem hér um ræðir
hins vegar lýst ákveðnu trausti á
félaginu og það hefur tryggt fjár-
mögnun þeirra hvaða leið sem verð-
ur svo farin,“ segir ennfremur í
fréttinni.
VEÐURHORFUR í DAG, 18. JÚLÍ
YFIRLIT I GÆR: Kl. 15 var suðaustanátt, kaldi eða stinníngskaldi
og dálrtil rigning suðvestan- og vestanlands en hægari sunnanátt
og að mestu úrkomulaust annars staðar.
SPÁ: Suðvestanátt um allt land, kaldi eða stinningskaldi og súld
með köflum eða skúrir á Suður- og Vesturlandi en hægari og úr-
komulaust á Norður- og Austurlandi. Hiti 11-16 stig, hlýjast norð-
austanlands
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suðvestanátt, skúrir suðvestan- og
vestanlands og líklega einnig á vestanverðu Norðurlandi. Annars
staðar skýjað en úrkomulaust. Hiti 8-14 stig.
HORFUR Á FIMMTUDAG :Fremur hæg suðaustanátt, rigning um
sunnan- og austanvert landið, en þurrt í öðrum landshlutum. Hiti
10-16 stig.
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
\J Skúrir
* .
V Él
EE Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
I
—Skafrenningur
R Þrumuveður
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
a Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vínd-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* # *
* * * * Snjókoma
* * *
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hltl 18 14 veður skýjaö þokumóða
Bergen 10 súld á slð. klst.
Helsinki 19 hálfskýjað
Kaupmannah. 18 skýjað
Narssarssuaq 9 skýjað
Nuuk 2 þoka
Osló 15 skýjað
Stokkhólmur 16 skýjað
Þórshöfn 12 skýjaö
Algarve vantar
Amsterdam 17 skýjað
Barcelona 27 helðskirt
Berlín 17 skýjað
Chicago 17 mistur
Feneyjar 26 þokumóða
Frankfurt 20 léttskýjað
Glasgow 19 skýjað
Hamborg 15 skýjað
Las Palmas 26 léttskýjað
London 26 skýjað
Los Angeles 18 léttskýjað
Lúxemborg 18 alskýjað
Madríd 34 heiðskírt
Malaga 27 heiðskirt
Mallorca 30 léttskýjað
Montreal 19 léttskýjað
New York 18 skýjað
Orlando 26 léttskýjað
Parfs 23 skýjað
Róm 27 léttskýjað
Vín 19 Skýjað
Washington 19 þokumóða
Winnipeg vantar
Samtök um jaftirétti og félagshyggju:
Viðræður við
5 ráðherra í gær
STEFÁN Valgeirsson, alþingis-
maður, segir að áframhaldandi
stuðningur Samtaka um jafnrétti
og félagshyggju við ríkisstjórnina
sé kominn undir því, að hún bæti
úr því sem aflaga hefur farið við
framkvæmd stjórnarsáttmálans.
Stefán og nokkrir aðrir fulltrúar
samtakanna áttu í gær ftmd með
fimm ráðherrum, þar sem farið
var yfir ýmsa þætti sáttmálans
og framkvæmd þeirra. Gert er ráð
fyrir að framhald verði á þessum
viðræðum og munu þeir Stefán
og Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, hittast aftur
fyrir næstu helgi.
Þetta var þriðji fundurinn sem
fulltrúar Samtaka um jafnrétti og
félagshyggju eiga með ráðherrum í
ríkisstjóminni í sumar. Stefán Val-
geirsson, þingmaður samtakanna,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að þessir fundir hefðu skilað
nokkrum árangri og menn hefðu
haft gott af því að skiptast á skoðun-
um. Farið hefði verið yfir stjórnar-
sáttmálann og hvernig þau mál
standi, sem þar hafi verið lögð
áhersla á.
Sagði Stefán sum þessara mála
ekki standa nógu vel, en önnur bet-
ur. Stigin hefðu verið spor í rétta
átt, til dæmis með því að jafna
símkostnað og raforkuverð, en þau
spor væru smá. Enn fremur sagðist
hann vonast til þess að þau mark-
mið sem stefnt hefði verið að með
stofnun Atvinnutryggingarsjóðs út-
flutningsgreina næðust með haust-
inu.
Varðandi vaxtamál sagði Stefán,
að samkvæmt stjórnarsáttmálanum
hefðu þeir átt að vera komnir niður
í 6% fyrir síðustu áramót. Hins veg-
ar væri staðan nú sú, að ef skuld-
breytt væri hjá mönnum gætu raun-
vextir farið upp í allt að 9,5%. Þetta
væri algerlega óviðunandi. Enn
fremur nefndi hann að úthlutun
stjórnar Húsnæðisstofnunar ríkisins
væri fáránleg og alls ekki í samræmi
við stjórnarsáttmálann.
Stefán Valgeirsson sagði að
áframhaldandi stuðningur Samtaka
um jafnrétti og félagshyggju við
stjórnina væri undir því kominn að
staðið yrði við ákvæði stjórnarsátt-
málans.