Morgunblaðið - 18.07.1989, Blaðsíða 43
MQRQWNSLAÐIÐ 1>K11).ÍU1)AGUK 18, JÚLÍ 1983
Guðný H. Péturs-
dóttir - Minning
Fædd 6. maí 1935
Dáin 3. júlí 1989
Með örfáum orðum langar mig
til að kveðja elskulega vinkonu og
samstarfssystur Guðnýju Péturs-
dóttur sem lést á Landspítalanum
hinn 3. þessa mánaðar eftir stutta
en erfiða sjúkdómslegu.
Mikil er sorgin og söknuðurinn
hjá okkur sem eftir stöndum yfir
ótímabæru fráfalli þessarar dásam-
legu konu sem var lífið og gleðin
sjálf, kraftmikill og gefandi per-
sónuleiki sem aldrei lét bilbug á sér
finna þótt á móti blési í lífsins ólgu-
sjó.
Guðnýju kynntist ég á Umferðar-
miðstöðinni þar sem við unnum
saman. Fljótlega þróaðist einstakur
vinskapur okkar í milli því að Guðný
hafði allt það að bera er laðar fólk
að. Framkoma hennar var allt í
senn traust, heiðarleg og látlaus.
Vaktirnar urðu einfaldlega mun
léttari og skemmtilegri ef við mér
blasti brosmilt andlit Guðnýjar þeg-
ar ég kom til vinnu og laumaðist
ég ósjaldan til hennar á milli anna
þar sem við kunnum að kætast og
grínast saman svo að hlátrasköllin
glumdu um salinn.
Ljúfust er minning mín um
Guðnýju er við fórum tvær saman
síðastliðið haust í nokkurra daga
utanlandsferð. Það rann þá upp
fyrir mér að betri vinkonu og
skemmtilegri ferðafélaga er ekki
hægt að hugsa sér. Var sem við
upplifðum á ný æskublóma lífsins.
Guðnýju var það svo eiginlegt að
geisla af gleði og hressandi andblær
fylgdi henni hvar sem hún kom.
Niðurstaða þessarar ógleymanlegu
ferðar var sú að við afréðum að
eyða fríum okkar saman einnig
þetta árið. Við hlökkuðum mikið til
að fara saman norður í land nú í
júlíbyrjun og hitta þar sameiginlega
vini. Önnur utanlandsferð með
haustinu var einnig fyrirhuguð hjá
okkur en þessum ferðum hafa æðri
máttarvöld afstýrt á miskunnar-
lausan hátt.
Guðný hafði fundið til illkynja
meins fyrir rúmu ári sem hún hristi
af sér eins og önnur óþægindi
lífsins. Hún átti auðvelt með að
sannfæra sig og annað fólk um að
veikindin væru um garð gengin og
lét aldrei bugast. Guðný vann oft
tvöfalda vinnu jafnvel eftir að hún
fór að kenna sér meins á ný sem
sýnir glöggt hversu sterkan
lífsneista þessi hugrakka kona bar
í brjósti sínu. Aðfram komin og
aðeins þremur vikum fyrir andlát
sitt lagðist hún á ný inn á sjúkra-
hús þaðan sem hún átti ekki aftur-
kvæmt. Ég minnist síðasta fundar
míns við hana er hún tjáði mér hve
mikla gleði það nú færði henni að
hafa mátt dvelja síðastliðna mánuði
með ástkærum eiginmanni sínum á
heimili einkadóttur sinnar og barna-
barna sem hún unni svo heitt. Ég
vil biðja góðan guð að styrkja og
vernda Gunnar eiginmann Guðnýj-
ar, Guðrúnu dóttur þeirra, móður
og barnabörn í sárum harmi þeirra.
Minningin um þessa góðu konu mun
ávallt lifa með okkur sem þekktum
hana.
Birgitta Jónsson
Þegar góðir vinir hverfa úr lífi
manns koma margar spurningar
upp í hugann en fátt er um svör.
Okkur langar að minnast
Guðnýjar í nokkrum orðum sem þó
virðast fátækleg á þessari stundu.
Guðný var lífsins manneskja og
naut þess hverja stund. Hún var
okkur svo miklu meira en vinnufé-
lagi og gaf okkur svo ríkulega af
sjálfri sér — lífsgleði, mannlegt inn-
sæi, einlægni og óendanleg hlýja
voru eiginleikar sem henni voru í
blóð bornir í ríkum mæli og við, sem
og allir aðrir sem umgengust hana,
nutum góðs af. Guðný hafði þann
fágæta kost að geta þrátt fyrir sín
eigin vandamál lifað sig af einlægni
inn í sorg og gleði annarra. Minn-
ingarnar sem koma upp í hugann
eru svo ótalmargar og allar góðar.
Guðný var elst okkaren aldrei fund-
um við fyrir þeim mun nema síður
væri. Hún tók þátt í öllum okkar
hugleiðingum um lífið og tilveruna
og vildi öll vandamál leysa, bæði
stór og smá. Sem vinnufélagi var
hún einstök, hlífði sér aldrei og var
alltaf tilbúin að fórna sínum frítíma
til að við misstum örugglega ekki
af neinu gamni.
Guðný var mikil fjölskyldumann-
eskja og kynntumst við manni
hennar, dóttur og dótturbörnum vel
í gegnum frásagnir hennar sem
allar lýstu ást hennar, fórnfýsi og
væntumþykju á þessum sem allt
hennar líf snerist um. Þeirra missir
er mikill á þessari stundu en þó var
öll tilvera Guðnýjar þess eðlis að
hún lifir sterkt í hugum okkar allra
sem kynntumst henni þó að þau
kynni okkar og hennar yrðu allt of
stutt.
Við vottum Gunnari, Guðrúnu,
Helgu, Gunnari og Hákoni okkar
innilegustu samúð og minnumst
elsku Guðnýjar með virðingu og
þakklæti
Hulda, Helena, Aslaug,
Rán, Bryndís og Svava
Valgerður.
t
Faðir minn,
GUÐMUNDUR HAGALÍN GUÐMUNDSSON,
fyrrum bóndi að Hrauni,
ingjaldssandi,
andaðist í Landakotsspítala að kvöldi 15. júlí.
Fyrir hönd barna og tengdabarna,
Margrét Hagalínsdóttir.
t V:
Maðurinn minn,
GUÐJÓN HALLDÓRSSON
húsgagnasmiður,
Höfðatúni 9,
andaðist í Landakotsspítala 14. júlí.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigrfður Jóhannsdóttir.
COMMODORE AMIGA 500
Ert þú haldin(n) tölvuhræðslu?
Vilt þú læra á vingjarnlega og
skemmtilega tölvu?
Vilt þú bestu fáanlega grafík og hljóð?
Gluggavinnsla
Mús
68000 Motorola örgjörfi, 16/32 bita
512Kb vinnsluminni, innbyrðis stækkanlegt í
1Mb, utan á liggjandi í 9Mb
Hámarksupplausn 640x512 punktar á skjá
4096 litir mögulegir á skjá í einu
4-rása stereohljóð með innbyggðum talhugbúnaði
Fjölverkakerfi (MULTITASKING), sem gerir þér
kleift að keyra mörg aðskilin forrit í einu
m
M
sm
UUNN
ÞINN?
Síöasta tala
númersins segir
til um
skoðunarmánuðinn.
Láttu skoða í tíma
- öryggisins vegna!
BIFREIÐASKOÐUN
ÍSLANDS HF.
Hægt er að panta skoðunartíma,
pöntunarsími í Reykjavík
er 672811'
YDDA Y6. 17/SlA