Morgunblaðið - 18.07.1989, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1989
55
Sigurlína Davíðsdóttir formaður og Snorri Welding, framkvæmda- Þijátíu krakkar frá Haftiarfirði starfa að miklu hreinsunar- og umhverfisátaki í Krýsuvík um þess-
stjóri Krysuvíkursamtakanna, fyrir framan skólahúsið. Þau sögð- ar mundir og er myndin tekin af hluta af hópnum þegar hann gerði matarhlé á vinnu sinni.
ust geta hafið móttöku unglinga sem ánetjast hafa vímueftium
með mánaðarfyrirvara.
Krýsuvíkurskóli;
Þrjátíu unglingar vinna að
hreinsunar- og umhverfisátaki
Enn er beðið eftir
starfeleyfi yfírvalda
Keflavík.
„Krýsuvíkurskóli og ná-
grenni hans mun taka miklum
stakkaskiptum að loknu þessu
átaki og þetta er aðeins byijun-
in,“ sagði Trausti Valsson arki-
tekt og skipulagsfræðingur sem
um þessar mundir stjórnar
umfangsmiklu hreinsunar og
umhverfis- átaki við Krýsuvík-
urskóla. Ætlunin er að koma á
fót ferðamannaþjónustu í
gamla fjósinu og sagði Trausti,
sem hefur skipulagt svæðið, að
mikilvægast væri að staðurinn
og starfsemin þar fengju sem
jákvæðasta ímynd. Undir stjórn
Trausta starfa 30 ungmenni frá
Hafiiarfirði við fegrun staðar-
ins, en laun þeirra eru greidd
af ríkinu og munu haftifirsku
unglingamir starfa í 7 vikur í
Krýsuvík. Hugmynd Trausta er
í stuttu máli sú, að samræma
svæðið með því að mála húsa-
kost í samræmdum náttúruleg-
um litum og tengja það saman
með hleðslum.
Sigúrlína Davíðsdóttir er for-
maður Krýsuvíkursamtakanna
sem voru stofnuð 1986 með það
markmið að veita unglingum, sem
hafa ánetjast vímuefnum, hjálp
og húsaskjól. Sama árið og sam-
tökin voru stofnuð keyptu þau
Krýsuvíkurskólann af ríkissjóði
og sveitarfélögum á Reykjanesi
fyrir 7 milljónir króna. „Skólinn
var þá ákaflega illa farinn og
ástandið nær ólýsanlegt. Neðri
hæð hússins hafði verið notuð
undir svín, búið var að bijóta allar
rúður og stela öllu sem hægt var
að stela úr húsinu. Þar á meðal
öllum ofnum og sólbekkjum,“
sagði Sigurlína Davíðsdóttir í
samtali við Morgunblaðið. Sig-
urlína sagði að þegar hefði verið
hafíst handa með endurbætur'á
skólahúsinu sem væri 2.000 fer-
metrar að stærð og nú væri húsið
metið á um 60 milljónir króna að
endurstofnsverði samkvæmt fast-
eignamati.
Sigurlína sagði að þrír megin-
þættir myndu einkenna meðferð-
arsamfélagið í Krýsuvík, sem yrði
byggt á meðferð — skóla og
starfsþjálfun. Einnig yrði tekið
mið af hinu svokallaða 12-spora-
kerfi sem væri notað af þúsundum
íslendinga í dag. í þessu sam-
bandi hefðu samtökin stofnað fé-
lag til að kaupa gamla fjósið í
Krýsuvík. Hafnarijarðarbær hefði
veitt afnot af starfsmannahúsinu
og nú væri verið að breyta refa-
húsum við bæinn í gróðurhús. Þar
væri verið að gróðursetja 10.000
valdar birkiplöntur úr Skaftafelli
undir stjórn Braga Þórarinssonar,
sem þar var landvörður um 10
ára skeið. Gert er ráð fyrir að
vinna í gróðurhúsunum og i ferða-
mannamiðstöðinni verði síðan
einn liðurinn í endurhæfingu ungl-
inganna.
„Krýsuvíkurskóli verður rekinn
sem sjálfstæð eining og við vorum
tilbúin að hefja þar starfsemi i
hluta skólans þegar á síðastliðnu
hausti, en við höfum enn ekki
fengið starfsleyfi sem er ákaflega
bagalegt, því við vitum að þörfin
er brýn. Sviar sendu hingað full-
trúa sína og hafa þeir lýst yfir
vilja sínum á að senda hingað
unglinga til meðferðar. Innan
fárra vikna verða Krýsuvíkursam-
tökin að taka ákvörðun um hvort
fyrirhuguð starfsemi í Krýsuvik
verði skipulögð með rekstur vist-
unar erlendra unglinga að megin-
markmiði, eða hvort þar verður
byggt upp í samvinnu við og í
þjónustu islenskra heilbrigðis- og
menntamála,“ sagði Sigurlína
Davíðsdóttir ennfremur.
BB
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Ungar stúlkur úr Haftiarfirði gróðursetja birki-
plöntur í einu af gróðurhúsunum sem áður gegndu
því hlutverki að hýsa refi.
Krýsuvíkurskóli og umhverfi hans
fræðingur hugsar sér staðinn.
eins og Trausti Valsson arkitekt og skipulags-
Fékk lax á veiði-
svæði unglinga
Selfossi.^
„ÉG SÁ hanr. stökkva og kastaði á hann,“ sagði
Steingrímur Brynleifsson 12 ára og hampaði hróðugur
vænum laxi sem hann fékk í Fagurgerðinu, en svo nefii-
ist veiðistaður ungra Selfyssinga á austurbakka Ölfúsár.
Þetta var maríulaxinn hjá Steingrími og þess vegna til-
efni til að fagna. „Og það var ekkert mál að landa hon-
um,“ sagði hinn ungi veiðimaður.
Steingrímur sagðist hafa Það er nokkuð óvenjulegt
misst þrælvæna bleikju rétt að lax taki á þessum veiðista,ð
áður en laxinn beit á. En
þegar Steingrímur lyfti laxin-
um upp tók hann kipp og
spriklaði. Veiðimaðurinn ungi
var þá ekki seinn á sér að
afgreiða málið með hand-
bærum steini. Síðan hraðaði
hann sér heim með þennan
dýrmæta feng úr Ölfusá.
en þó er það alltaf draumur
ungra veiðimanna að setja í
lax líkt og stangveiðimenn-
irnir sem blasa við á hinum
bakkanum. Annars er það
helst sjóbirtingur sem unga
fólkið fær, sýni það þolin-
mæði við veiðiskapinn á þess-
um stað. — Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Steingrímur Brynleifsson hampar laxin-
um.
Héraðsnefiid Isafjarðarsýslu:
Hætta á verulegri byggða-
röskun á Vestfjörðum
FUNDUR Héraðsnefndar Ísaíjarðarsýslu var nýlega haldinn á ísafirði,
en þetta var fyrsti fúndur nefhdarinnar frá því hún var stofhuð við
sameiningu héraðsnefnda Norður- og Vestur ísafíarðarsýslu. Á fundin-
um var samþykkt ályktun þar sem vakin er athygli á að ríkjandi fram-
leiðslutakmörkun og kvótakerfi i sjávarútvegi og landbúnaði hafi kom-
ið liarkalega niður á afkomu atvinnulífe á VestQörðum, og hætta sé á
verulegri byggðaröskun og jafiivel yfirvofandi að sum byggðarlög legg-
ist í auðn.
í ályktuninni segir meðal annars
að afleiðingar rangrar gengisskrán-
ingar síðustu misseri hafi verið þær,
að flestar útflutningsgreinar á Vest-
fjörðum hafi safnað skuldum, sem
séu nánast að sliga starfsemi þeirra,
og ekki megi lengur dragast áð
stjórnvöld skapi þannig rekstrarskil-
yrði, að almenningur og þeir sem
yfir fjártnunum ráði sjái sér hag í
að leggja fé sitt í undirstöðuatvinnu-
vegi þjóðarinnar.
Á fundi héraðsnefndarinnar var
afgreidd ijárhagsáætlun sýsluvega-
sjóðs og samþykkt fjögurra ára áætl-
un um framkvæmdir á sýsluvegum.
Einnig var gengið var frá fjárhagsá-
ætlun héraðssjóðs fyrir árið 1989,
og ákveðið var að styrkja Ferðamála-
samtök Vestfjarða sérstaklega á
þessu ári og Héraðsskjalasafnið við
uppbyggingu nýrrar aðstöðu fyrir
safnið í gamla sjúkrahúsinu á
ísafirði. , i