Morgunblaðið - 18.07.1989, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 18.07.1989, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUD,AGUR 18, JÚLÍ 1989 31 Mikil röskun á milli- landaílugi um liðna helgi ALLT millilandaflug Flugleiða fór úr skorðum vegna þoku á Keflavíkurflugvelli á föstudag og laugardag og komst ekki í samt lag fyrr en í gær. Hugsanlegt er að sælan standi stutt því að flug- freyjur boðuðu tveggja sólar- hringa verkfall frá og með mið- nætti í nótt sem leið, hefðu samn- ingar ekki tekist. Flugleiðamenn ætla þó að reyna að halda áætlun og leigja vélar með áhöfhum. Unnið var að undirbúningi þess í gærkvöld. Ef af verkfalli flug- freyja verður er þetta í þriðja sinn á sumrinu sem félagið þarf að leigja vélar til að flylja far- þega sína milli landa. Þessa tvo daga áttu um 2.000 manns bókað far með Flugleiðum. Kostnaður vegna raskana á flugi hefur enn ekki verið tekinn saman að sögn Einars Sigurðssonar upp- lýsingafulltrúa Flugleiða. Félagið greiddi fyrir hótelgistingar 400 strandaglópa og rútuferðir 600 far- þega til Reykjavíkur frá Akureyri. Einar segir að erfiðlega hafi gengið að fá leiguvélar í stað þeirra véla sem komust hvergi vegna þokunn- ar. Hins vegar fylgi mikill kostnað- ur yfirvinnu starfsfólks og flutningi farþega með útlendum flugfélög- um. Ekki bætti úr skák um helgina að aðalbrautin á Keflavíkurfiugvelli hefur verið lokuð vegna malbikun- ar. Nokkrir úi-vinda starfsmenn Morgunblaðið/Jón G. Gunnarsson Eldur slökktur um borð í Þinganesi á laugardag. Morgunblaðið/Einar Jónsson Þyrla Landhelgisgæslunnar sækir veikan mann að Finnbogastaða- skóla í Árneshreppi á Ströndum. Sjúkraflug í Árnesi, Trékyllisvík. ÞYRLA Landhelgisgæslunnar var kvödd í sjúkraflug að Finn- bogastaðaskóla hér í Árnes- hreppi laust fyrir hádegi 9. júlí. Hafði maður um sextugt, sem hér hafði tjaldað um nóttina, fengið Arneshrepp hjartaáfall. Honum tókst að komast úr tjaldi sínu og í Finnbogastaða- skóla sem er skammt frá. Maðurinn var fluttur í sjúkrahús sýðra. Líðan hans er eftir atvikum. - Einar Fiskverð á uppboðsmörkuðum 17. júií. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn verð verð verð (lestir) Heildar- verð (kr.) Þorskur 66,50 52,00 59,18 12,676 750.247 Þorskur(smár) 35,00 35,00 35,00 0,900 31.500 Ýsa 82,00 46,00 74,95 4,240 317.820 Karfi 29,00 20,00 26,75 79,900 2.136.956 Ufsi 37,00 20,00 35,47 2,809 99.655 Ufsi(smár) 27,00 27,00 27,00 3,150 85.050 Steinbítur 47,00 41,00 46,73 11,017 514.805 Langa 39,00 35,00 38,24 2,392 91.488 Lúða 180,00 100,00 145,00 0,581 84.285 Koli 35,00 35,00 35,00 1,240 43.400 Skata 40,00 40,00 40,00 0,036 1.440 Skötubörð 126,00 126,00 126,00 0,032 4.032 Skötus.sk. 240,00 240,00 240,00 0,011 2.640 Skötuselur Samtals 140,00 100,00 125,00 1,481 36,09 120,465 185.125 4.348.403 Selt var úr Otri HF og bátum. I dag verður selt úr Otri HF, Stálvík Sl og bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 62,00 55,00 59,02 84.216 4.970.436 Þorskur(smár) 15,00 15,00 15,00 0,331 4.965 Ýsa 82,00 45,00 60,91 31,064 1.892.233 Karfi 29,00 29,00 29,00 6,285 182.266 Ufsi 39,00 20,00 37,54 18,927 710.619 Steinbítur 55,00 26,00 43,42 1,171 50.841 Langa 43,00 39,00 40,04 0,806 32.274 Lúða(stór) 210,00 30,00 122,38 0,151 18.480 Lúða(milli) 210,00 210,00 210,00 0,014 2.540 Lúða(smá) 240,00 240,00 240,00 0,011 2.640 Blandað 22,00 22,00 22,00 0,046 1.012 Sólkoli 56,00 56,00 56,00 0,064 3.584 Skarkoli 53,00 25,00 47,01 0,491 23.083 Keila 12,00 12,00 12,00 0,256 3.072 Skata 67,00 67,00 67,00 0,799 53.533 Skötuselur Samtals 305,00 305,00 305,00 55,10 0,068 144,701 20.740 7.972.719 Selt var úr Halkion VE, Heimaskaga o.fl Smáey VE o.fl. aðallega þorskur og ýsa. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. í dag verður selt úr Þorskur 60,50 55,50 57,59 10,657 613.818 Lýsa 10,00 10,00 10,00 0,095 950 Ýsa 67,00 20,00 54,13 5,032 272.444 Karfi 30,50 28,50 29,05 4,174 121.262 Ufsi 35,00 20,00 30,03 5,260 157.936 Steinbitur 53,50 11,00 47,01 6,590 309.791 Langa 40,50 30,00 37,45 2,395 89.698 Lúða 180,00 135,00 174,00 0,326 56.835 Solkoli 56,00 56,00 56,00 1,885 105.560 Skarkoli 40,00 35,00 39,10 3,168 123.855 Öfugkj. 20,00 20,00 20,00 2,356 47.120 Skata 56,00 56,00 56,00 0,012 672 Skötuselur 355,00 355,00 355,00 0,195 69.225 Langlúra 10,00 10,00 10,00 2,869 28.690 Blálanga Samtals 16,00 16,00 16,00 44,37 0,007 45,049 112 1.998.805 Höfn: Eldur í Þinganesi SF Flugleiða fóru heim að sofa á sunnudag að lokinni tveggja sólar- hringa vinnutöm, en vinnuálag var gífurlegt hjá félaginu um helgina. Farþegar hafa margir hveijir verið lúnir líka eftir margra stunda bið og þvæling milli staða. Á föstudaginn var vél frá New York, sem ekki gat lent í Keflavík, flogið til Glasgow og þaðan til Lux- emborgar. Vél sem fljúga átti til Glasgow frá Reykjavík varð að beina til Oslóar og Stokkhólms til að taka upp farþega, en henni var síðan lent í Keflavík. Einnig tókst að lenda vél með sólarlandafar- þegum á Keflavíkurflugvelli seint um föstudagskvöld. Farþegar sem biðu í Glasgow voru sóttir með vél á leið frá New York en henni lent á Grænlandi. Farþegar sem leggja áttu af stað til Kaupmannahafnar árdegis á föstudag biðu í átta klukkustundir og síðdegisvél þangað tafðist um tíu tíma. Vélar flugu til Lundúna og Osló á nokkurn veginn réttum tíma en Parísarvél fór í loftið tíu klukku- stundum síðar en áætlað var. Sú vél lenti á Akureyri á heimleiðinni, sömuleiðis vél frá Stokkhólmi. Þoku hafði ekki létt á laugardeg- inum. Tíu tíma seinkun varð á vél- um frá Stokkhólmi og Osló, vél frá Lundúnum var lent á Reykjavíkur- flugvelli og farþegar frá Orlando lentu í Prestvík. Þeir sem vildu til New York höfðu mátt bíða í sólar- hring og farþegar til Salzborgar á sunnudeginum þurftu að bíða í tíu tíma. Þa fór flug til Glasgow allt úr skorðum, vél sem þangað átti að fara á laugardag var flogið til Prestvíkur og Kaupmannahafnar. Myndavíxl Þau mistök urðu í síðasta Sunnu- dagsblaði að tvær teikningar Péturs Halldórssonar í blaðinu víxluðust þannig að teikning hans af banda- ríska rithöfundinum Jane Smiley birtist í dálkinum „Hugsað upphátt“ sem Kristín Einarsdóttir Kvenna- listakona skrifaði. Teikningin sem átti að fylgja grein Kristínar birtist með viðtali við Jane Smiley. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Höfii. ELDUR kom upp í vélarrúmi mb. Þiuganess SF 25 um kl. 17.30 sl. laugardag þar sem báturinn lá í höfii. Slökkvilið Hafiiar kom strax á vettvang og tók um tvær klukkustundir að ráða niðurlög- um eldsins. Svo virðist sem eldurinn hafi magnast mjög hratt því um 10 mínútum áður en tilkynnt var um hann hafði Gunnar Ásgeirsson, skipstjóri og einn eigenda, verið á ferð um bryggjuna og einskis orðið var. Skemmdir urðu miklar og með- Ellefu metra háum og sex tonna þungum krossi hefur verið komið fyrir við Úlfljótsvatn, þar sem miðstöð íslensku skátahreyfingar- innar er. Krossinn var hannaður og smíðaður í Póllandi og var fluttur til Islands í tilefiii páfa- heimsóknarinnar í byrjun júní sl. Gunnar Eyjólfsson, skátahöfðingi, hafði veg og vanda að því að kross- inn var fluttur að Úlfljótsvatni, reist- ur þar og tileinkaður íslenskri æsku. Það voru starfsmenn ístaks sem fluttu krossinn í lögreglufylgd frá Landakotstúni í Reykjavík að ÚI- fljótsvátni sl. föstudagskvöld. Hann var síðan reistur daginn eftir. Upp- al annars eru öll tæki í brúnni ónýt af reyk og vatni. Þinganesið er 74 tonna trébátur í eigu Þinganess hf. Eigendur eiga 150 tonna bát í smíðum í Portú- gal, en sá verður vart kominn hing- að fyrr en í febrúar eða mars á næsta ári en þá átti að úrelda Þinganesið. Þinganesið átti óveitt af kvóta sínum 1.000 tonn af síld, 200 tonn af bolfiski og 3,5 tonn af humri. - JGG haflega stóð til að grafa fyrir steyptri undirstöðu. Það reyndist þó ekki unnt svo að sprengja þurfti fyrir krossinum. Verkið mun hafa gengið ótrúlega vel þrátt fyrir þyngslin, að sögn Tómasar Tómas- sonar verkfræðings hjá ístaki. Hann sagði að þegar búið hefði verið að reisa krossinn, skorða hann og stilla af, hefði verið steypt að honum og í það fóru 25 tonn af steypu. Kross- inn ætti því að vera kyrfilega fastur fyrir enda mun Gunnar skátahöfð- ingi ætla krossinum að standa á sínum stað í að minnsta kosti þús- und ár. Morgunblaðið/Tómas Tómasson Unnið að uppsetningu krossins við Úlfljótsvatn sl. laugardag. Krossinn er ellefu metra hár og sex tonn að þyngd. Páfakrossinn settur upp íslenskur hugvitsmaður: Aðferð til að uppræta olíiunengun ÍSLENSKUR hugvitsmaður, Magnús B. Finnbogason, hefur uppgötvað efiii sem nýtist til hreinsunar olíu úr sjó. I rannsókn- um sem gerðar hafa verið á efiiinu hefur komið í ljós að það hreinsar auðveldlega olíuflekk af vatni eða sjó með afar góðum árangri. Að sögn Magnúsar, sem fengið hefur einkaleylí á efh- inu, er það auðvelt í framleiðslu. Eiginleika efnisins uppgöt- vaði hann fyrir tilviljun. „Ég var að bera saman hegð- un þessarar efnablöndu í vatni og sjó samanborið við olíu og lýsi, en missti óvart hluta hennar ofan í olíublandaðan sjó. Innan hálfrar klukkustundar hafði ef- nið gengið í efnasamband við olíuna, og hana mátti skafa ofan af sjónum," sagði Magnús í sam- tali við Morgunblaðið. Hann sagði að í þeim tilraunum sem hérlend rannsóknarstofa hefur gert með efnið hafi það reynst hreinsa yfir 99% hlutfall af ýms- um olíutegundum úr vatni og sjó. „Vatnið reynist drykkjar- hæft að lokinni hreinsun, og olí- una má skilja frá efninu í skil- vindu, og þannig nota hana á nýjan leik.“ Efnið, sem er í duft- formi, er notað á þann hátt að því er dreift yfir olíuflekkinn, látið liggja þar í innan við hálfa klukkustund, og að því loknu er efnasambandið hreinsað af yfir- borðinu. Magnús sagði að sölumögu- leikar á efnablöndunni hefðu litið verið skoðaðir, en þó væri verið að kanna áhuga hjá banda- rískum og kanadískum aðilum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.