Morgunblaðið - 18.07.1989, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 18.07.1989, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1989 37 Foreldrafélag - foreldrastarf eftir Þorvald ■ Oskarsson Foreldrastarf í grunnskólum er fyrirsögn á grein í Morgunblaðinu miðvikudaginn 12. júlí (og 13.) og er höfundurinn Jón Steinar Guð- mundsson. Greinin gengur mest út á ýmsar neikvæðar athugasemdir um Breiðholtsskóla og stjómendur hans. Tilgangurinn er óljós en fyrst svona er borið á borð fyrir almenn- ing þarf örlitla viðbót. Heimkoman Eftir fjögurra ára nám í barna- skóla í Bandaríkjunum eru synir hans tveir svo óheppnir að lenda í Breiðholtsskóla, sem eins og seg- ir í greininni stenst ekki saman- burð við barnaskóla í Bandaríkjun- um frekar en aðrir grunnskólar í Reykjavík. íslenska skólakerfið Jón Steinar hefur þessa skoðun á íslenska skólakerfinu: „Gmnn- skólar á íslandi em ekki sambæri- legir við skóla í nágrannalöndun- um.“ Og „skólar á Islandi era illa settir og vanræktir, bæði hvað varðar almennt skólastarf og for- eldrastarf. Við verðum að leita til fjarlægra landa, jafnvel þróunar- landa til að finna sambærilega skóla.“ Em ekki allir sammála? Nú kemur sér vel hvað íslendingar era greindir að eðlisfari, annars gæti kannski illa farið miðað við boðað- an niðurskurð til menntamála, sem þörf hefði verið á að ræða frekar. Skarðið fyllt Með þessa skoðun á skólakerfi okkar og svo yfirgripsmikla þekk- ingu á skólum og foreldrasam- starfi þá er skiljanlegt að Jón Steinar brenni í skinninu að taka til hendinni þegar hann snýr heim til síns vanþróaða fósturlands. Og tækifærið beið. Starfsemi Foreldra- og kennarafélags Breið- holtsskóla hafði legið niðri í tvö ár. Undirritaður hafði á sínum tíma beitt sér fyrir stofnun þess til sam- vinnu við foreldra og hagsbóta fyrir skólastarfið almennt. Gekk starf þess félags með ágætum nokkur ár en lognaðist svo út af. Foreldrafélag var aftur stofnað við skólann fyrir um einu og hálfu ári og nú í nýrri mynd — kennar- arnir vora ekki hafðir með og fund- araðstaða í skólanum var afþökk- uð. Formaður varð Jón Steinar Guðmundsson. Það kom fljótt í ljós ný stefna í vinnubrögðum, ekki í samvinnu við skólann heldur yfir honum. Nýtt „ráðuneyti" var kom- ið til sögunnar. Heimtuð vora afrit af stundatöflum skólans til úttekt- ar. Óskað var eftir skriflegum upp- lýsingum um eitt og annað og fundarhöld ákveðin fram í tímann með foreldram og kennuram án nokkurs samráðs. Framkoma Jóns Steinars frá fyrstu kynnum gaf ekki ástæðu til mikils samstarfs og ég er mjög hissa á því framkvæði hans að tíunda þetta starf sitt í nafni for- eldra í fjölmiðlum. Eftirlit með skólastarfi Eftirfarandi kafli úr grein Jóns Steinars sýnir kannski vel það eft- irlitshlutverk sem hann telur sitt vera sem formaður foreldrafélags- ins: „Lítið sem ekkert eftirlit er haft með starfi einstakra grannskóla í Reykjavík og kannski víðar. Kenn- arar fara sínu fram í sínum stofum og skólastjórar fara sínu fram f sínum skólum. Skólayfirvöld hér á landi virðast gera lítið annað en að skammta peninga. Víða erlend- is er lögbundið eftirlit með skóla- starfi. I Bretlandi til dæmis hafa eftirlitsmenn „hehnar hátignar" mikil áhrif á skólastarf. Þeir fylgj- ast með daglegu skólastarfi og beita sér fyrir nýjungum.“ Jóni Steinari var boðin aðstaða í skólanum til athugana sinna á stundarskránum sem var fyrsta verk hans sem formaður þessa nýja foreldrafélags. En hann heimtaði ljósrit með sér heim. Þá var honum bent á að hann væri fullmikið farinn að skipta sér af innri málefnum skólans sem ekki væri í verkahring foreldrafélags, en hlutlausri úttekt Skólaskrifstofu Reykjavíkur á stundatöflunum var hafnað og þar með sagðist ég ekki koma nálægt frekari tiltekt hans á þessu máli. Og verkfræðingurinn fer all- fijálslega með tölur. Þegar hann ber sínar tölur um samfelldni sam- an við viðmiðunartölur frá Skóla- skrifstofu Reykjavíkur, þá sleppir hann tveimur árgöngum af tíu og rýrir þar með hlut skólans um 20% og era þá ekki taldir með hlutir sem ólíkt eru metnir. Starf foreldrafélaga í október sl. sendi almennur kennarafundur í Breiðholtsskóla frá sér ályktun til foreldrafélags- ins. Lokaorðin þar voru þessi: „Kennarar skólans telja að verk- efni foreldrafélags hljóti fyrst og fremst að felast í stuðningi við skólastarf með jákvæðum sam- skiptum.“ Af fyrri reynslu veit ég hve skól- um er mikill styrkur að góðu for- eldrafélagi. En ef ekki velst hæfur formaður getur orðið kreppa í sam- skiptum þótt aðrir stjómarmenn vilji vel og reyni að gera sitt besta. Bréf eins stjómarmanns foreldra- félagsins, sem fyrir riynu ári sagði sig úr stjórninni og gerði í 5 atrið- um grein fyrir þeirri ákvörðun sinni og 'sagðist auk þess ekki vilja hætta mannorði sínu með áfram- haldandi setu þar, vitnar best um þetta. Ilöfundur er skólastjóri Breiðholtsskóla. Bjorn Bjamason Jón Jónsson, tré- smiður — Minniner Birting atmætis- ogminning- argreina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningurgreinar tíl birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjóm blaðsins á 2. hæð i Aðal- stræti 6, Reykjavik og á skrif- stofii blaðsins f Hafharstræti 85, Akureyri. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birt- ur. Meginregla er sú, að minn- ingargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar aftnælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. SVEFN- HERBERGIÐ Að menneskjan soíi einn þriðja hluta ævinnar er í fyrsta lagi satt, — í öðru lagi leiðinlegt, — og í þriðja lagi áhugaverð staðreynd fyrir okkur í Húsgagnahöllinni sem höfiim stærsta og besta úrval hjónarúma á öllu íslandi. Hefurðu prófað að sitja í stól í 8 klukkustundir samflellt? Er þér sama hvernig sá stóll er? — En dýnan sem þú sefur á 8 klukkustundir á sólarhring? — Er þér sama hvemig hún er? Nei, nei, engum er sama hvemig hann liggur í þriðjung ævinnar. Það er býsna dýrt að sofa vel, svona ca. sex krónur á sólarhring ef þú kaupir dýrustu dýnuna sem hægt er að kaupa á íslandi. LUX ULTRAFLEX 90x200 cm kr. 32.520,- 105x200 cm kr. 30.340,- 120x200 cm kr. 43.590,- 140x200 cm kr. 49.630,- 160x200 crn kr. 55.660,- Þessi stórkostlega dýna býður upp á einstök þægindi og fæst í mjúkri og stífri gerð. Tvöföld ijaðramotta, 337 fjöður á fermeter. Stífir kantar, stunginn dúkur, þykk þvottekta yfirdýna. HÚSGÖGN Á 7600 FERMEIRUM Ví Húsgagna-höllin REYKJAVÍK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.