Morgunblaðið - 18.07.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1989
5
Opið skákmót í Frakklandi:
Sr. Pálmi
settur
inn í embætti
Síðastliðinn sunnudag var
séra Pálmi Matthíasson
settur inn í embætti sókn-
arprests í Bústaðasókn við
fjölmenna guðsþjónustu í
Bústaðakirkju. Hann tekur
við embættinu af hr. Olafí
Skúlasyni, sem kjörinn hef-
ur verið biskup. Sr. Pálmi
var áður prestur í Glerár-
sókn á Akureyri. Það var
séra Guðmundur Þor-
steinsson, dómprófastur,
sem setti séra Pálma inn í
embættið.
Karl Þorsteins
með 5 vinninga
KARL Þorsteins er með fimm
vinninga eftir sjö umferðir á
alþjóðlegu opnu skákmóti, sem
Slökkvilið
Reykjavíkur:
Ráðningu
afleysinga-
manns
nú stendur yfir í borginni
Clermont-Ferrand í Frakklandi.
Keppendur eru alls um 120 tals-
ins og er Karl Þorsteins eini kepp-
andinn frá íslandi. Samtals verða
tefldar sjö umferðir og verða 8.
og 9. umferðir tefldar í dag og á
morgun. Karl mun vera í um það
bil tíunda sæti ásamt fleiri kepp-
endum. Jafnir í efsta sætinu eftir
sjö umferðir eru sovéski stórmeist-
arinn Dorfman og júgóslavneski
stórmeistarinn Kozul.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
GAR
SIG
riEKLAHF
Laugavegi 170 172 Simi 695500
15i«í3iiíisaáuLÍáÍ I
SHSHHðÍ
r/ r-l / { r ) j
&
Bíllinn, sem sæmdur var GULLNA STÝRINU í ár
VERÐ FRÁ KR. 798.000
.
Innifalinn í verðinu er m.a. eftirtalinn búnaður: Vökvastýri/veltistýri — Rafdrifnar
rúðuvindur — Rafstýrðir útispeglar — Dagljósabúnaður — Samlæsing á hurðum
mótmælt
SLÖKKVILIÐSMENN í Reykjavík
hafa sent borgarráði bréf, þar sem
mótmælt er ráðningu manns til
sumarafleysinga á Slökkvistöðina
á þeirri forsendu að hann uppfylli
ekki þau skilyrði, sem sett hafa
verið um menntun slökkviliðs-
manna. Er þetta í þriðja sinn sem
ráðningunni er mótmælt bréflega.
Samkvæmt nýjum reglum um
ráðningu slökkviliðsmanna, sem
borgarráð samþykkti 18. maí
síðastliðinn er meðal annars kveð-
ið á um að þeir skuli hafa lokið
námi í einhverri iðngrein er nýtist
þeim í starfi.
„Við lítum á þetta sem hluta af
kjarabaráttunni," sagði Jón Friðrik
Jóhannsson, trúnaðarmaður slökkvi-
liðsmanna. „Með þessum nýju regl-
um er verið að reyna að hefja starf-
ið upp þannig að hver sem er verði
ekki ráðinn. Það hefur verið vinnu-
regla hjá yfirmönnum hér á stöðinni
að ráða ekki aðra en iðnaðarmenn
til starfa og eru nú um 70% starfs-
manna iðnaðarmenn. Við teljum að
úr því að farið er fram á iðnnám þá
munum við geta farið fram á betri
kjör í framtíðinni."
Jón sagði að ljóst væri að borgar-
ráð gæti ráðið hvern sem er til hvaða
starfa sem er, þrátt fyrir fyrri sam-
þykktir. Það væri óskiljanlegt hvers
vegna borgarráð hefði lagt í þá vinnu
að setja vinnureglur fyrir slökkviliðið
og samþykkja ef ekki ætti að fara
eftir þeim, sérstaklega með tilliti til
þess að hæfir menn hefðu sótt um
starfið en verið vísað frá. „Vonandi
verður hægt að komast að einhvers
konar samkomulagi eftir fund borg-
arráðs á þriðjudag," sagði Jón.
„Þetta eru mistök sem við vonumst
til að verði leiðrétt."
Gjaldþrot
kosta 4-6 þús-
und krónur
ÞEIR sem Ieita eftir gjaldþrota-
úrskurði hjá borgarfógeta þurfa
að leggja út nokkra fjárhæð vegna
þess. Ef um fyrirtæki er að ræða
kostar gjaldþrotið 6.000 krónur
en 4.000 krónur ef um einstakling
er að ræða.
Ingveldur Einarsdóttir fulltrúi hjá
borgarfógeta segir að þarna sé um
kostnað að ræða sem embættið þarf
að leggja út fyrir vegna gjaldþrotaúr-
skurðarins. Þar koma inn liðir eins
og innköllun í Lögbirtingarblaðinu,
auglýsing um skiptafund, vottalaun
og fleira.
„Það er nauðsynlegt fyrir embæt-
tið að innheimta þennan kostnað þar
sem það hefur enga sjóði sjálft til
að mæta honum,“ segir Ingveldur.
Aðspurð um hvort hún viti til þess,
þótt ekki sé um háar upphæðir að
ræða, hvort einhver aðili hafi ekki
haft efni á því að verða gjaldþrota,
segir Ingveldur svo ekki vera.