Morgunblaðið - 18.07.1989, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1989
Kirkjubæjarklaustur:
*
A annað þúsund manns
nutu veðurblíðunnar
Kirkjubæjarklaustri.
Á ANNAÐ þúsund manns gistu á Kirkjubæjarklaustri um síðustu
helgi. Ferðalangarnir gistu á hóteli, á ferðaþjónustubæjum og í tjöld-
um. Það sem olli þessum íjölda var mikil veðurblíða sem hér hefiir
verið síðustu daga.
Þrátt fyrir mikla örtröð gekk allt
vel fyrir sig. Greiniiegt var að flest-
ir lágu bara í sólinni þó svo að
ýmiss konar dægrastytting standi
til boða, svo sem minigolf, snóker,
veiði- og gönguferðir um sögufræg-
ar slóðir. Þá hefur nýlega verið tek-
inn í notkun 9 holu golfvöllur í
nágrenni Klausturs. Sundlaugin var
mikið notuð og mátti segja að hún
liti út eins og einn allsheijar heitur
pottur.
Einnig er búist við miklum fjölda
um næstu helgi og hefur t.d. 170
manna hópur pantað á tjaldstæð-
inu. í félagsheimilinu Kirkjuhvoli
verður stórdansleikur þar sem koma
fram fjórar eða fimm hljómsveitir.
Þar er um að ræða hljómsveitir sem
hafa leikið í héraðinu síðustu 20-30
ár, m.a. má þar nefna Tónabræður,
sem voru mjög vinsælir á 7. ára-
tugnum. - HSH
Kjóadalur:
Brotíst inn
í hesthús
BROTIST var inn í hesthús
í Kjóadal um helgina. Hurð-
inni á húsinu var sparkað
upp og þaðan stolið tveimur
hnökkum og sex beislum.
Þijú önnur innbrot voru til-
kynnt um helgina. Brotist var
inn í íbúðarhús í Garðabæ og
þaðan stolið tæplega 200.000
krónum. Einnig var brotist inn
í íbúðahús við Hverfisgötu og
í matvöruverslun í Breiðholti.
Af Hverfisgötunni var stolið
myndbandstæki og upptökuvél
en úr versluninni 20.000 krón-
um og töluverðu magni vindl-
inga.
íslandsmótið í skák:
Bráðabana
var frestað
JÓN L. Árnason og Margeir Pét-
ursson voru jafnir eftir sex skák-
ir, í einvígi þeirra um Islands-
meistaratitilinn í skák. Sam-
kvæmt reglugerð tekur þá við
bráðabani, sem vegna anna skák-
mannanna næstu vikur, hefiir
verið frestað.
Einvígið var upphaflega fjórar
skákir, en þar sem skákmennimir
vom þá jafnir, bættust tvær skákir
við. Þær enduðu báðar með jafn-
tefli og hefði bráðabani átt að hefj-
ast í dag. í gærmorgun fóru bæði
Jón og Margeir, ásamt Helga Ólafs-
syni, til Esbo í Finnlandi til keppni
á Norðurlandamóti, sem jafnframt
er svæðamót fyrir næstu heims-
meistarakeppni.
Því móti lýkur um mánaðamótin.
Strax eftir mánaðamót keppir Tafl-
félag Reykjavíkur við Bayern
Munchen í Evrópukeppni skákfé-
laga og þar tefla Jón og Margeir
báðir.
Að sögn Ólafs Ásgrímssonar hjá
Skáksambandi íslands hefst bráða-
baninn að þessum keppnum loknum
en dagsetning er ekki endanlega
ákveðin. Teflt verður í húsi Útsýnar
í Mjódd.
Sjá nánar í skákþætti bls. 22.
Morgunblaðið/RAX
Humarvertíð gengur þokkalega:
Um 1.120 tonn veiddust
af humri í maí og júní
HUMARVERTIÐ hefúr nú stað-
ið um nokkurt skeið, og hefúr
veiðin gengið bærilega, að sögn
tíðindamanna Morgunblaðsins.
1.126 tonn af heilum humri hafa
komið á land það sem af er, en
á sama tíma í fyrra höfðu veiðst
1.046 tonn. Þó skal á það bent,
að vertíðin í fyrra þótti með
versta móti. Humarinn hefiir að
miklu leyti borist á land í tveim-
ur verstöðvum, í Þorlákshöfii
434 tonn, og í Höfii í Hornafirði
263 tonn. Slæmu tíðarfari er
einna helst um að kenna að afl-
inn er ekki meiri það sem af er,
V estur-Húnavatnssýsla:
Lagningu bundins slitlags lokið
LOKIÐ ER lagningu bundins slitlags á hringveginn, þjóðveg 1, i
gegnum Vestur-Húnavatnssýslu. Jafnframt er verið að Ijúka lagningu
bundins slitlags á allar stofiibrautir í Vestur-Húnavatnssýslu og mun
því verki ljúka nk. þriðjudag. Þar með eru vegir, þjóðvegur og stofn-
brautir, í Vestur-Húnavatnssýslu fyrstir til að klæðast algjörlega
bundnu slitlagi, að sögn Jónasar Snæbjörnssonar, uindæmisstjóra
Vegagerðar ríkisins í Norðurlandi vestra.
Samfellt slitlag er komið á þjóð- liggur frá Svartadal og upp á
veginn frá Brú í Hrútafirði og inn Vatnsskarð. Sú framkvæmd er ekki
af Húnaveri í Langadal, um 105
km leið. í Austur-Húnavatnssýslu
er aðeins eftir að leggja bundið slit-
lag í Bólstaðarhlíðarbrekkuna, sem
á áætlun fyrr en eftir fjögur til fimm
ár.
Vegagerðarmenn vinna nú að
lagningu bundins slitlags á stofn-
brautinni frá þjóðvegi 1 til
Hvammstanga og lýkur því verki á
þriðjudag.
í sumar er fyrirhugað að leggja
bundið slitlag um Hegranesið að
Sauðárkróksbraut og um 5 km leið
á Siglufjarðarveg frá bænum
Vatnsleysu að Kýrholti. Áætlaður
kostnaður við lagningu bundins slit-
lags í umdæminu í sumar nemur
um 50 millj. kr., að sögn Jónasar,
en umdæmið nær yfir Húnavatns-
og Skagafjarðarsýslur.
en veiðarnar útheimta sæmilegt
veðurfar.
Að sögn Hjörleifs Brynjólfsson-
ar, framleiðslustjóra hjá Bakka-
fiski á Eyrarbakka, hefur fyrir-
tækið fleiri báta á veiðunum í ár
en í fyrra. Kvóti fyrirtækisins er
92 tonn af slitnum humri, en
þyngd slitins humars nemur um
37% af þyngd heils humars.
Bakkafiskur hefur þegar vejtt
tæplega 70 tonn af kvóta sínum,
en veiðileyfi humarbátanna renna
út um miðjan ágúst. Hjörleifur
sagði, að tíðarfar hafi verið afar
risjótt það sem af er vertíð, og
aflinn minni en vonast var til.
„Mér heyrist hljóðið vera ansi
dauft í mönnum. Hins vegar hefur
oft ræst úr humarveiðum upp úr
miðjum júlí,“ sagði hann.
Viðar Elíasson hjá Vinnslustöð-
inni í Vestmannaeyjum sagði, að
humarveiðar hefðu ekki gengið
nógu vel hjá þeim bátum sem
leggja upp hjá fyrirtækinu og
væru þeir rétt hálfnaðir með þann
kvóta sem þeir hafa til umráða.
Hins vegar hefði vinnsla á humrin-
um gengið vel, en Vinnslustöðin
frystir humarinn bæði heilan og
slitinn. Fimmtán bátar stunda
humarveiðar frá Vestmannaeyj-
um. Viðar sagðist vona, að veiði-
leyfi humarbátanna yrðu fram-
lengd þegar vertíðinni lýkur ef
þeir hafa þá ekki lokið við kvóta
sinn. Hann var þó ekki bjartsýnn
á að það yrði til mikilla bóta, þar
sem ágúst hefði aldrei reynst mik-
ill humarmánuður.
Tryggingar
Olís metnar
á 251 milljón
TRYGGINGAR þær sem OIís hef-
ur lagt fram til að afstýra kyrr-
setningarbeiðni Landsbankans á
hendur félaginu hafa nú verið
að fúllu metnar af virðingar-
mönnum fógeta, og er matsupp:
hæðin rúm 251 milljón króna. í
gær staðfesti Hæstiréttur tvo
úrskurði borgarfógeta í málinu,
sem Olís kærði í liðinni viku.
Annar úrskurðanna sem Hæsti-
réttur staðfesti var á þann veg að
Olís skyldi benda á lausafé til kyrr-
setningar áður en bent yrði á fast-
eignir. Málinu verður fram haldið
hjá fógeta í dag, en þá mun Olís
halda áfram að benda á eignir til
kyrrsetningar. Kyrrsetningarkrafa
Landsbankans hljóðaði við upphaf
málsmeðferðarinnar upp á 438
milljónir. Vextir og annar kostnaður
hefur síðan bæst við kröfuna, en
tryggingaupphæðin, 251 milljón,
dregist frá henni.
Steinakrýl
Fyrir þá sem vilja mála sjaldan
en gera það vel
Þú vandar til vcrksins, þcgar þú málar húsið
með Steinakrýll frá Málningu hf. Stein-
akrýl veitir steininum ágæta vatns-
vörn og möguleika á að að
„anda“ betur en hefðbundin
plastmálning. Viðloðun
Steinakrýls er gulltrygg og
því getur þú einnig notað
það scm grunn undir Kópal-Stcintex. Þú
getur málað með þessari úrvalsmálningu við
lágt hitastig, jat'nvel í frosti. Hún
þolir vætu cftir um eina
klst., hylur fullkomlega í
tveimur umferðum, veðr-
unarþol er frábært og litaval
gott.
Næst þegar þú sérð fallcga málað hús - kynntu þér þá hvaðan málningin er
Imálning'lf
-það segir sig sjálft -