Morgunblaðið - 08.02.1990, Síða 15
Morgnnblaðsgrein sinni með svo-
felldri athugasemd: „í pólitísku til-
liti verður þó ekki betur séð en að
breytingin hafi verið eðlileg þegar
haft er í huga stórfellt misgengi
launa og lánskjara í tíð eldri
reglna.“ Ekki er fullljóst hvað felst
í hinum tilvitnuðu orðum. Á póli-
tískt tillit eitthvert erindi í mál af
þessu tagi? Eigi Davíð við að „mis-
gengi“ sé gildishlaðið hugtak og
ónothæft nema í reiptogi hags-
munaafla og í stjórnmálaskaki er
ég honum sammála. Felist í orðum
hans einhvers konar ráðagerð um
að samningar skv. eldri reglum um
verðtryggingu fjárskuldbindinga
séu að einhverju leyti ógildir vegna
„stórfellds misgengis launa og láns-
kjara“ gegnir öðru máli. Misgengi
er ekki vel skilgreint hugtak (og
því erfitt að mæla það eða ákvarða
af nákvæmni). Þó má ætla að í
því felist vísan til ólíkrar þróunar
verðlags- og launamælikvarða yfir
tiltekið tímabil. En þá skiptir máli
mælikvarðinn sem notaður er og
tímabilið sem reiknað er yfir. Frá
hvaða tíma reiknar Davíð misgeng-
ið? Kallar hann það stórfellt mis-
gengi sem varð milli áranna 1986
og 1987 þegar ráðstöfunartekjur á
mann hækkuðu meira en tvöfalt á
við lánskjaravísitölu á sama tíma?
Best fer á því að einskorða umfjöll-
un á þessu sviði sem öðrum við
efni málsins og nota einungis hlut-
læga og viðurkennda efnislega
mælikvarða til að bregða ljósi á
flókin málefni.
V
____MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1990 _
HINNEINIOG SANNI
BÍLDSHÖFDA 10
í sögu Árna biskups Þorláksson-
ar, sem rituð er skömmu eftir alda-
mótin 1300, er greint frá viðtökum
íslendinga við Jónsbók á Alþingi
1281. Bar það m.a. til tíðinda að
til snargra orðaskipta kom milli
þeirra Árna biskups og Loðins
lepps, sendimanns Noregskonungs.
Sjónarmið bænda gagnvart hinni
nýju lögbók birtast m.a. í þessum
orðum Áma sögu: „Bændur höfðu
og það ritað í rollu, að öll falslaus
kaup skyldu föst vera, þau sem
einskis manns rétti væri hrundið í,“
þ.e. þau kaup „sem vottar vissu og
handsöluð væru prettlaus og vél-
laus, og þeir menn keyptust við
sem kaupum ætti að ráða“. Afstöðu
bænda skýrir prófessor Sigurður
Líndal svo (Lögfesting Jónsbókar,
Tímar. lögfr. 4, 1982): „Þeir leitast
við að tryggja sér frelsi til að skipa
málum sínum með samningum án
íhlutunar konungsvalds og eftir
því sem tíðkazt hefði; þeir vilja vera
frjálsir að því að nýta eignir sínar
og ráða athöfnum sínum."
Þessi voru viðhorf íslendinga á
13. öld. Enn er sama efni uppi:
staða og hlutverk ríkisvalds gagn-
vart einstaklingum. Vafalaust
munu margir fylgjast með því
hvernig Hæstiréttur leysir úr þeim
álitaefnum sem uppi eru í fyrr-
greindu dómsmáli.
Höfundur er hagfrseðingur.
komið fram sem einleikari með
Sinfóníuhljómsveitinni, íslensku
hljómsveitinni, Kammersveit
Reykjavíkur og starfað sem flautu-
leikari í hljómsveit íslensku ópe- )
runnar.
Osmo Vanska er einn þeirra ungu
hljómsveitarstjóra, sem hlutu
kennslu sína hjá Jorma Panula í
Sibeliusarakademíunni. Hann er
einnig klarinettuleikari og var m.a.
fyrsti klarinettuleikari í Sinfóníu-
hljómsveit Turku. Vegur hans sem
hljómsveitarstjóra hefur farið ört
vaxandi og auk þess að stjóma
öllum hélstu sinfóníuhljómsveitum
á Norðurlöndum hefur hann stjórn-
að Sinfóníuhljómsveit Parísarborg-
ar, Fílharmóníusveit Antwerpen og
Hollensku útvarpshljómsveitinni.
Auk þessa hefur hann stjórnað
þekktum hljómsveitum við hljóðrit-
un tónverka. Osmo Vanska var sl.
haust ráðinn aðalstjórnandi Espoo-
kammersveitarinnar, sem er álitin
ein besta kammersveit Finnlands.
Höfundur er blaðafulltrúi
Sinfóníuh\jómsveitarinnar.
hefst í dagkl. 13.00
OTRÚLEGT
VERÐ
1/ícUálwut fanin favwin.
W
0
Fósw^f-:
v\ \V-'*
v\ \%-fc
'• y\ \v*
Hljómplötur - kassettur
Tískufatnaður herra og dömu
DSS
Tískufatnaður
Sportvörur alls konar
Fatnaður á alla fjölskylduna
mrum
■ÍÉtÉÉÉÉM
Fatnaður
PARTY
BOMBEY
Tískuvörur
BLOMALIST
Barnafatnaður
•TiTTTTTl
Barnaskór
Alls konar efni
Skófatnaður
Blóm og gjafavörur
Fatnaður
Snyrtivörur - skartgripir
Kventískufatnaður
THEODORA
SPARTA
Iþróttavörur
Fj'óldifyrirtœkja — gífurlegt vöruúrval
STÓRÚTSÖLUMARKAÐUR