Morgunblaðið - 08.02.1990, Side 26

Morgunblaðið - 08.02.1990, Side 26
26 MÓRGÚNBLAÐIð’fÍMMTUDÁGUR'8.' FEBRÚÁR 1990 Útgefandi Frarnkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsihgastjóri Árvakur, Reykjavík HaraldurSveinsspp. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Rekstur opinberra fyrirtækja Itengslum við nýgerða kjara- samninga kom fram, að hækki ýmis opinber fyrirtæki ekki gjaldskrár sínar á þessu ári þýði það um 630 milljóna króna hallarekstur þeirra. Við gerð fjárlaga var ráðgert, að þessi fyrirtæki, þ.e. Ríkisút- varpið, Áburðarverksmiðjan, Póstur og sími og Sements- verksmiðjan fengju 6-12% hækkun á árinu. Morgunblaðið beindi þeirri spurningu til forstöðumanna tveggja þessara fyrirtækja sl. sunnudag, hvort hægt væri að mæta þessari hækkunarþörf með niðurskurði á útgjöldum en þau hafa verið viðbrögð stjórnenda fjölmargra einka- fyrirtækja síðustu misseri frammi fyrir samdrætti í við- skiptum. Olafur Tómasson, póst- og símamálastjóri, svaraði þessari spurningu á þá leið, að auðvitað væri hægt að skera niður þjón- ustu og fjárfestingu. En hann benti jafnframt á, að tekjur og afkoma stofnunarinnar byggð- ist á fjárfestingum, sem hefðu skilað arði. Ef dregið yrði úr fjárfestingum á þessu ári mundi það koma niður á arði af fyrirtækinu á næstu árum. Þá benti póst- og símamála- stjóri á, að frá 1984 hefðu símagjöld hækkað um 75% á sama tíma og framfærsluvísi- talan hefði hækkað um 200%. Markús Örn Antonsson, út- varpsstjóri, svaraði þessari spurningu á þá leið, að Ríkisút- varpinu væri að óbreyttu gert að tapa 200 milljónum króna á rekstri þessa árs. Allt afskrift- arfé stofnunarinnar færi til þess að mæta þessum halla og ekkert yrði eftir til endurnýjun- ar á tækjum. Niðurskurður frá því, sem nú væri gert ráð fyr- ir, mundi þýða, að gengið yrði á dagskrá Ríkisútvarpsins. Morgunblaðið hefður hvað eftir annað lagt áherzlu á, að lítið vit væri í því að halda vísi- tölu niðri með því að reka ríkis- fyrirtæki með halla og hækka svo gjaldskrár þeirra enn meir síðar en ella hefði þurft að gera. Reynslan af slíkum vinnubrögðum er vond. Hins vegar hljóta ríkisfyrirtæki að lúta sömu lögmálum og einka- fyrirtæki að því leyti til, að þau eiga ekki að ýta öllum útgjalda- auka yfir á viðskiptamenn sína. Þegar hart er í ári eins og nú verður sú krafa gerð til-þeirra, að þau skeri niður útgjöld alveg með sama hætti og einstakling- ar og einkafyrirtæki hafa orðið að gera. Þau svör póst- og símamála- stjóra og útvarpsstjóra, sem hér hefur verið vitnað til, gefa tilefni til spurninga. í fyrsta lagi má spyrja: Hvað er að því, að Póstur og sími fresti framkvæmdum og fjárfesting- um í einhvern tíma? Þetta hafa einkafyrirtæki orðið að gera og verða þá af arði af slíkum fjárfestingum um skeið. Ef um það er að ræða í því efnahags- ástandi, sem nú ríkir, að Póstur og sími hækki gjaldskrá eða fresti framkvæmdum er auðvit- að sjálfsagt, að stofnunin fresti framkvæmdum. Þjóðin mun lifa það af í nokkur misseri. í öðru lagi: Hvað er athugavert við það, að Ríkisútvarpið skeri niður dagskrá sína í einhvern tíma? Ef um það er að ræða, að skera niður dagskrá þeirrar stofnunar eða hækka gjaldskrá er auðvitað sjálfsagt að skera niður dagskrá að einhveiju marki. Það er svo mikið fram- boð af sjónvarps- og útvarps- efni, að þjóðin lifir það af, þótt framboðið minnki eitthvað um skeið. Hér er komið að því, sem vikið var að í forystugrein Morgunblaðsins fyrir skömmu, að hugsunarháttur manna í opinbera kerfínu yrði að breyt- ast. Einkafyrirtæki eiga ekki annarra kosta völ en að draga saman seglin í erfiðu árferði. Þau kunna að draga úr þjón- ustu við viðskiptamenn um skeið en með því komast þau hjá hallarekstri og leggja grundvöll að enn betri þjónustu síðar. Nákvæmlega sami hugs- unarháttur á að ríkja hjá stjórn- endum opinberra fyrirtækja nú. Þeir eiga ekki að segja við ríkis- stjórnina: Við þurfum að hækka gjaldskrár vegna auk- inna útgjalda. Þeir eiga þvert á móti að segja: Við ætlum að draga saman seglin í fjárfest- ingu og þjónustu um skeið til þess að mæta auknum útgjöld- um. Þetta er hægt og þetta er fyrst og fremst spurning um breytt hugarfar, sem stjórn- málamenn, embættismenn og stjórnendur opinberra fyrir- tækja þurfa að tileinka sér. in,“ segir Eiríkur. Gjöfln f heild er um 340 myndir. fpiiffliilgar, yatnslitamyndir, Bastplmyndir og otínmSivPFÍf: IfíHhf ísegist- Hafe nptað aiin þesss tekni frá byÚHB' „Að YfsRl fflína sp|nn| árin hefur það þp aðallega vétíð vatnsiitir og olía,“ segir hann. Elstu myndirnar eru krítarteikn- ingar frá 1948. „Þetta spannar allan minn feril, allavega meirihlutann," segir Eiríkur. Pétrún tekur undir og segir eitt það skemmtilegasta við þessa gjöf vera, að sjá megi allar þær breyting- ar sem Eiríkur hafi farið í gegn um. „Meira að segja sér maður í lok hvers skeiðs, hvað er að byrja að geijast og er að gerast í list hans. Það er alltaf einhver vísbending í síðustu mvndum hvers skeiðs um hvað taki við.“ Eiríkur segist vilja efla safnið, sem Sverrir Magnússon kom á fót, þegar hann gaf eigið málverkasafn. „Og þá er ekkert verið að skipta þessu eftirá neitt að ráði, allavega ekki þessum tímabilum," segir hann. Pétrún segir gjöfina vera ómetan- lega til fjár, „en þetta eru mikil verð- mæti,“ segir hún. „Við höfum hérna allan feril eins fremsta listamanns landsins, sem við eignum okkur Hafnfirðingar. Þetta eykur umfang safnsins um helming. Við erum ung stofnun og þessi gjöf er okkur gífur- lega mikil lyftistöng. í framtíðinni getum við sýnt úr þessu safni Eiríks svo margar skemmtilegar og fjöl- breyttar sýningar." Eiríkur var spurður að lokum, hvað er hann að mála, þegar hann málar. „Sannleikurinn er nú sá,“ segir hann, „að ég hef verið að baksa við alls konar stíltegundir eins og kemur mjög vel fram með þessari sýningu. Mitt lífshlaup, sem málari, hefur verið á þann máta að margir hafa legið mér á hálsi fyrir það að Vera svona margbreytilegur í staðinn fyrir að halda svona dálítið huggu- legri einni línu, en ég er nú bara svona. En, þrátt fyrir allt þetta brölt og í gegn um allt þetta brölt, bæði abstraksjónina og það fígúratíva og þar á milli, þá hef ég í raun og veru alltaf málað umhverfi mitt og landið mitt,“ sagði Eiríkur Smith. Mikill vegsauki að Eiríkur treystir okkur fyrir að varðveita sögu sína - segir Pétrún Pétursdóttir forstöðumaður Hafiiarborgar EIRÍKUR Smith listmálari hefur gefið heimabæ sínum, Hafnarfirði, meginhluta málverkasafns síns, um 340 myndir. Myndirnar spanna nánast allan hans listamannsferil og er hin elsta frá 1948. Myndirn- ar verða í vörslu og umsjón Hafh- arborgar, menningar og lista- stofhunar Hafharfjarðar, og þar verður næstkomandi laugardag opnuð sýning á um 80 þessara mynda. Morgunblaðið ræddi við Eirík og Pétrúnu Pétursdóttur forstöðumann Hafnarborgar, þeg- ar þau voru að koma fyrir mynd- um á sýninguna í gær. Pétrún segir gjöfina vera gífurlega mikil- væga, „og ég tel það vera vegs- auka bæði fyrir safnið og fyrir Hafnfirðinga að Eiríkur skuli treysta okkur til að varðveita sögu sína,“ sagði Pétrún. Eiríkur kveðst hafa fengið hug- myndina að þessari gjöf fyrir nokkr- um árum og þá orðað hana við Sverri Magnússon lyfsala sem þá var að hrinda í framkvæmd áformum um listasafnið. Sverrir gaf Hafnarfjarð- arbæ húsnæði Apoteksins og mál- verkasafn sitt árið 1983 á 75 ára afmæli bæjarins. Með fylgdu teikn- ingar að stækkun hússins sem byggt var eftir. Safnið var síðan vígt árið 1988, með sýningu Eiríks sem hófst 21. maí það ár. „Þegar ég sá að úr þessu ætlaði að verða safn, þá akvað ég að gefa megnið af þessum mynd- um mínum, sem ég hef verið að hafa mikið fyrir að geyma í gegn um ár- Eiríkur Smith og'Pétrún Pétursdóttir við verk Eiríks. Eiríkur Smith gefiir Haftifírðingum 340 myndir; 4.212 sjómenn hafa sótt námskeið Slysavamaskóla sjómanna: Fræðsla en ekki reglu- gerðir bjarga mannslífiim - segir Þórir Gunnarsson skólastjóri 4.212 sjómenn hafa nú sótt námskeið hjá Slysavarnaskóla sjómanna, en í vor verða liðin fimm ár frá því að hann tók til starfa. A starfstíma skólans hefur alvarlegum vinnuslysum á sjó fækkað stórlega, samkvæmt upplýsingum sem Siglingamálastofnun kynnti nýlega. Þórir Gunnarsson er skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna og hann segist sjá þess glögg merki í flotanum að starfið hafi borið árangur þó mikið vanti á að ástandið sé eins og best verður á kosið. „Við erum farnir að sjá að menn hugsa öðruvísi og betur um skipin og búnaðinn í þeim en áður. Það er okkar hlutverk að breyta hugarfari, með aukinni fræðslu, það skiptir mestu máli, reglugerðirnar bjarga engum. En ennþá má segja að við séum að mestu leyti með góðu áhafnirnar.“ Þórir segir að samstarf skólans við mörg útgerðarfyrirtæki á landinu sé til mikillar fyrirmyndar, dæmi séu um að sömu áhafnirnar hafi sótt þijú námskeið til að auka við þekk- ingu sína og sumar útgerðir hafi stillt sjómönnum upp við vegg; sagt þeim að fara á námskeið í skólanum eða taka pokann sinn. Þá komi fyrir að fulltrúar útgerðar sitji námskeiðin og panti að þeim loknum allan full- komnasta eldvarnar- og öryggis- búnað, Iangt umfram það sem reglu- gerðir krefjist. Þennan búnað hafi viðkomandi áhafnir lært að með- höndla en Þórir segir að enn vanti mikið á í mörgum íslenskuin skipum að sjómenn viti hvemig nota eigi þann öryggisbúnað sem til staðar er, ekki síst eldvarnar- og reykköfunar- búnað. „Á námskeiðum okkar kemur iðulega fyrir að menn segi: Ég hef verið á sjó í áratugi en hef aldrei séð slökkvitæki notað. Enda sjá menn oft þegar á hólminn er komið að þeir hafa sett meira traust á ýmsan búnað, svo sem handslökkvitæki, en hann stendur undir. En það er þekk- ing á meðferð þessara tækja og ekki síður á því hvernig haga eigi málum og ganga eigi um skipið til þess að aldrei þurfi að nota þau sem skiptir höfuðmáli. Ef umgengnin er eins og hún á að vera fer ekkert úrskeiðis. Og við bendum mönnum á að búnað- ur skipsins þarf ekki að vera í lagi vegna skoðunarmannsins eða Slysa- varnafélagsins heldur vegna þeirra sjálfra." Starfsemi Slysavarnaskólans skiptist í nokkra meginþætti. Höf- uðáhersla er annars vegar lögð á fjöl- þætta slysa- og neyðarhjálpar- kennslu og hins vegar á sjökkvistarf og brunavarnir og björgun og við- brögð við sjávarháska og kennslu í notkun nauðsynlegs búnaðar. Þórir segir að eina leiðin til að tryggja að menn geti brugðist rétt við á hættu- stundu sé að þeir hafi fengið þjálfun við raunverulegar aðstæður. I þessu skyni hefur meðal annars verið kom- ið fyrir um borð í skólaskipinu Sæ- björgu reykköfunaraðstöðu þar sem nemendur eru látnir vaða reyk og sækja mann í koju. Þá eru menn settir í björgunarbáta og látnir bíða eftir björgun jafnt í lygnum sjó sem í átta vindstigum. Þórir segir að það sem skólann vanti helst sé góð æf- ingaaðstaða í landi fyrir almennt slökkvistarf. Þá aðstöðu gæti skólinn nýtt í samvinnu við slökkvilið lands- ins og fjölmarga aðra aðila, enda séu ærin verkefni óunnin í brunavarna- málum landsmanna. Námskeið slysavamaskólans, sem snúa að sjómönnum, skiptast í aðal- atriðum í þrennt. Haldin eru fjögurra daga almenn námskeið fyrir sjó- menn, þriggja daga kvöld og hel- garnámskeið fyrir sjómenn á smá- bátum og vaxandi þáttur í starfsem- inni er þjónusta við sjómanna-, vél- og fjölbrautaskóla, samkvæmt samn- ingi sem gerður hefur verið við menntamálaráðuneytið. Auk fræðslu og fyrirlestra er þar eins og í öðrum námskeiðum skólans lögð áhersla á verklega þáttinn, það að menn sjái og kynnist af eigin raun á hverju þeir geta átt von. Eftir því sem námi skipstjórnarnema vindur áfram eru þeir látnir takast á við erfiðari verk- efni, sem felast meðal annars í stjórn- un skips og áhafnar við hættuað- stæður. Þórir Gunnarsson segist binda mestar vonir við að þegar til langs tíma sé litið muni þessi þáttur starfseminnar skila mestum ávinn- ingi fyrir öryggismál sjómanna. „Þar náum við tit framtíðaryfirmanna á skipum landsins þegar þeir eru að heQa sinn feril og reynslan sýnir að það sem þeir læra hér mótar og breytir þeirra fyrri viðhorfum og eykur skilning þeirra á öryggismál- um. Það sjást þegar um þetta dæmi og þarf ekki að nefna annað en það að söfnunin fyrir þyrlusjóð Land- Morgunblaðið/Sverrir Þórir Gunnarsson skólastjóri helgisgæslunnar hófst meðal nem- enda sjómannaskóla, sem höfðu verið hér, unnið með áhöfn Landhelgis- gæslunnar og séð hvað þeir menn geta og kynnst því af eigin raun hversu mikilvægt þeirra starf er.“ Yfir sumartímann er skólaskipið Sæbjörg nýtt til ferða umhverfis landið í helstu verstöðvar til nám- skeiðshalds. Þátttakan er góð og starfið og undirbúningurinn í pláss- unum í góðri og vaxandi samvinnu við slysavarnafélagsfólk á staðnum. Starfsmenn skólans hafa einnig farið út um landið til námskeiðshalds og að sögn Þóris nú er unnið að því efla úti á landi þátt slysavarnafélags- deildanna þannig að um allt land hafi þær á að skipa mönnum sem geti verið sjómönnum og skipstjórn- armönnum innan handar við skipu- lagningu og framkvæmd björguna- ræfinga, sem nú er skylt að halda með reglubundnu millibili. „Það er gaman að vinna fyrir Slysavarnafé- lagið, manni standa allar dyr opnar og skólinn og Slysavarnafélagið njóta mikillar velvildar um allt land, ekki síst meðal sjómanna sjálfra og aðstandenda þeirra.“ MORGUNBLAÐÍÐ FIMMTUÐAGUR 8.- FEBÍtÚAR 1990 Fréttaritari Morgunblaðsins í Búkarest ríki af arftökum Ceausescus Reuter Foreldrar í Búkarest með kistu og kross á leið til sjúkrahúss til að ná í lík barns síns. Það lést úr alnæmi 6. febrúar. Hundruð alnæmissmitaðra barna eru á sjúkrahúsum landsins, mörg langt leidd, en í tíð Ceau- sescus var því vísað á bug að sjúkdómurinn þekktist í landinu. • • eftir Onnu Bjarnadóttur GALVASKUR hópur ungs menntafólks með heimagerð kröfuspjöld skundaði í átt að sjón- varpsstöðinni í Búkarest í gráu og köldu veðri síðastliðinn sunnu- dag. Einn úr hópnum sagði mér að hann ætlaði að taka þátt í mótmælum gegn Dragos Munte- anu, sjónvarpsstjóra, sem hóf störf eftir byltinguna, en tækni- menn sjónvarpsins fullyrða að hann beiti gömlum brögðum kommúnista við fréttaflutning. Tæknimennirnir segjast meðal annars hafa myndefhi frá mót- mælum gegn Þjóðarráðinu sunnu- daginn 28. janúar undir höndum sem Munteanu neiti að sjónvarpa. Hann hefur sagt sig úr Þjóðarráð- inu en andstæðingar hans vilja að hann láti af embætti. Viðmæl- andi minn sagði að fjölmargir álitu hann og félaga Þjóðarráðs- ins hreinræktaða kommúnista. „Fólk er orðið langþreytt á stjóm slíkra náunga og við viljum koma í veg fyrir að þeir geri von rúm- ensku þjóðarinnar um frelsi og heiðarlegt lýðræði að engu.“ Ýmsar fylkingar, þar á meðal Hópur um þjóðfélagslega umræðu og gömlu stjórnmálaflokkarnir þrír, Bændaflokkurinn, Fijálslyndi flokkurinn og Jafnaðarmannaflokk- urinn, sem voru bannaðir eftir að kommúnistar hrifsuðu til sín völdin 1948, tóku þátt í mótmælunum 28. janúar. Þau voru enn efst í huga þátttakenda viku seinna, eða um síðustu helgi. Tugir þúsunda höfðu safnast saman fyrir framan virðu- legt og hervarið stjórnarsetur Þjóð- arráðsins til að mótmæla einræði þess. Því var líkt við kommúnista- flokkinn á fjölda spjalda og sam- steypustjórnar krafist á öðrum. Ofríki Þjóðarráðsins Þátttakendur í mótmælunum sögðu að þau hefðu farið friðsam- lega fram þangað til stuðningsmenn Þjóðarráðsins mættu til leiks hróp- andi „Líflátið menntamenn" og annað álíka. Stórum vögnum hefði verið ekið inn á torgið og þar hefði myndast troðningur. Sjónvarpið sagði ekki frá friðsamlegri hlið mótmælanna en lét eins og Þjóðar- ráðinu stafaði hætta af múgnum eftir að leikurinn tók að æsast. Inn- an dyra sakaði Ion Iliescu, forseti Þjóðarráðsins, Corneliu Coposu, 73ja ára formann Bændaflokksins, sem sat 17 ár í fangelsi og þar af rúm átta í einangrun vegna stjórn- málaskoðana sinna, um að standa fyrir óeirðum og sagði hann einan ábyrgan ef illa færi. - Ung kona sem tók þátt í uppreisninni gegn Ceausescu og starfar nú fyrir Caz- imir Ionescu, varaformann Þjóðar- ráðsins, sagðist hafa verið hrædd þetta kvöld. „Múgurinn kom alveg upp að byggingunni o g stundarkorn varð mér hugsað til Ceausescus og hans manna í höllinni fyrir nokkrum vikum. Ég vonaði að okkar tími væri ekki kominn.“ Hræðsla við Iliescu Þjóðarráðið sagði á fundinum með Coposu að stuðningsmenn þess myndu sýna hollustu sína og næsta dag streymdi fólk úr öllum áttum til Búkarest. Andstæðingar ráðsins fullyrtu að koma mannfjöldans hefði verið skipulögð, sömu aðferð- um hefði verið beitt og þegar liðs- mönnum Ceausescus var smalað saman til að fagna honum. Aðrir sögðu að hluti fjöldans, að minnsta kosti, hefði komið sjálfviljugur. Sagt var að Iliescu hefði verið dáð- ur í borginni Iasi, þar sem hann varð flokksritari eftir að hann féll í ónáð hjá Ceausescu á áttunda áratugnum, og almenningur á að hafa heimtað sérstaka lestarferð til Búkarest til að styðja við bakið á forsetanum. Sjónvarpið sýndi beint frá stuðn- ingsfundinum og Iliescu gaf sér tíma til að heilsa nokkrum sinnum upp á mannijöldann og ávarpa hann. Sorin Botez, einn af frammá- mönnum Fijálslynda flokksins, sem var handtekinn fyrir stjómmála- skoðanir sínar 18 ára gamall árið 1948 og látinn afplána 14 ár, þar af sjö í hlekkjum, sagði í fátækleg- um höfuðstöðvum flokksins að Ilies- cu hefði minnt ískyggilega á síðasta forseta. „Hann var eins klæddur, flutti ávarp af sömu svölunum og notaði sömu frasana. Höfðaði til útlendingahræðslu og sagði and- stæðingana ætla að selja landið. Hann lét eins og Þjóðarráðið hefði einkarétt á dyggðum en stjórnar- andstaðan á löstum." Emerich Reic- hrath, sem hefur aðallega þýtt ræð- ur og áróður Ceausescus undanfar- in 25 ár sem aðstoðarritstjóri eina þýska dagblaðsins í Rúmeníu,Aíeuer Weg, sagði að Iliescu hefði ekki verið alveg svona slæmur. „En það var augljóst að hann fékk þjálfun í kommúnistaflokknum og komst ekki til valda fyrir ræðusnilld í þing- sölum. Hann hefði átt að hvetja mannfjöldann til að fara heim og láta vera að þakka honum fyrir að koma.“ Ráðist á flokksskrifstofu frjálslyndra Sama dag og stuðningsfundurinn var haldinn, hinn 29. janúar, réðst múgur inn í höfuðstöðvar Fijáls- lynda flokksins. Botez sagði að húsvörður hefði bent leiðtogum og stuðningsmönnum flokksins á bak- dyr og þar komust þeir undan. Fjöl- miðlar fullyrtu að formaðurinn hefði flúið út um glugga en Botez sagði það uppspuna til að kasta rýrð á hann. Fjórir starfsmenn flokks- blaðsins, Liberalul, sem hefur að- eins komið út tvisvar og á í erfiðleik- um af því að prentarar þjóðprent- smiðjunnar eru sagðir neita að prenta „öfgafullan áróður" flokks- ins, sögðu að skríllinn hefði ráðist inn en róast þegar hann fann hvergi „körfur fullar af dollurum, viskí- flöskur eða amerískar sígarettur,“ eins og Ciomac Simion, ritstjóri, komst að orði um leið og hann kveikti sér í rúmenskri Unirea-sígarettu. Lýður- inn hafði sig á brott en stal mynd- segulbandi með upptöku frá mót- mælafundinum frá deginum áðu-r. Sótt að Bændaflokknum Skrifstofur Bændaflokksins, sem hefur þegar yfir 400.000 skráða flokksmenn, eru til húsa í gamalli, hrörlegri villu. Stór hópur fólks safnaðist einnig fyrir framan hana hinn 29. með spjöld sem á stóð: „Farið aftur úr landi, þjóðarsvikar- ar“ og fleira í þeim dúr. Liviu Petr- ina, ritari flokksins, sagði að Petre Roman, forsætisráðherra, sem flestum konum kemur saman um að sé nokkuð laglegur, og Cazimir Ionescu hefðu gert flokknum þann heiður að koma óboðnir í höfuð- stöðvarnar til að bjóða leiðtogum hans aðstoð við að komast undan. Leiðtogarnir afþökkuðu gott boð en bentu honum á að leiðrétta þann misskilning að meirihluti þeirra hefði verið erlendis. „Einræðisherr- ar viljá helst að andstæðingar þeirra séu innilokaðir, erlendis eða dauð- ir,“ sagði Petrini. „Aðeins einn af 24 í forystu okkar var þó í útlegð og er kominn heim aftur. Ég benti Roman á- þetta og bað hann um að koma því til skila til múgsins fyrir utan. Hann kvaddi sér hljóðs og sagði að „nokkrir" úr forystusveit- inni hefðu verið um kyrrt í Rúm- eníu. 23 af 24 eru fleiri en nokkrir svo að við vildum skýra málstað okkar sjálfir fyrir þjóðinni og ákváð- um að fara í sjónvarpið. Ionescu féllst á það og við fengum brynvagn til að flytja okkur þangað." Lýður- inn gerði aðsúg að þeim sem fóru og Coposu var barinn f andlitið með brauði. Petrina sagði að þeim hefði verið neitað um beina útsendingu í sjón- varpshúsinu af því að þriggja tíma dagskrá fyrir ungverska minnihlut- ann í landinu stóð yfir. Um hálftíma þáttur með ræðu formannsins og svörum við spurningum nokkurra æstra andstæðinga var tekinn upp. Sjónvarpsmenn lofuðu að senda hann út við fyrsta tækifæri - sama kvöld, næsta morgun, þá um kvöld- ið o.s.frv. - en hann hafði ekki enn verið sýndur þegar ég fór frá Rúm- eníu nú í byijun vikunnar. Ionescu sagðist ekkert geta gert þegar Bændaflokkurinn bað hann að ganga í málið. Hann sagði að Munteanu, sjónvarpsstjóri, væri hættur í Þjóðarráðinu og hélt því fram að sjónvarpið starfaði sjálf- stætt. Nýtt ráð allra flokka Gömlu flokkarnir þrír komu sér saman um að ástandið væri óþol- andi og Þjóðarráðið mætti ekki sitja eitt að völdum fram að kosningum. Fjórir stuðningsmenn Bænda- flokksins, sem voru komnir úr 12 tíma lestarferð til að minnast and- láts Iuliu Maniu, fv. formanns flokksins, sem lést í fangelsi 5. febi - úar 1953, í höfuðborginni, sögðu að Þjóðarráðið hefði aflað sér vin- sælda eftir að þjóðin reis upp gegn þrælahaldi Ceausescus. Ráðið hefð. framkvæmt sjálfsögðustu hluti eins og að veita fólki hita og raf- magn, aukið framboð á nauðþurft- um, hækkað laun og stytt vinnu- tíma. Þeim leist ekki á áhrifastöðv. Þjóðarráðsins og sögðu frammá- menn ráðsins í þeirra sveit fyrrver- andi og núverandi kommúnista. Flokkarnir áttu fund með for- ystumönnum Þjóðarráðsins í Búk- " arest í síðustu viku og það sam- þykkti að deila völdum með Þjóðein- ingarráðinu sem kemur saman ti' fyrsta fundar á morgun, föstudag. Allir flokkar landsins, sem nú eru 30 talsins, eiga þrjá fulltrúa hver í nýja ráðinu og jafnmargir einstakl- ingar úr röðum menntamanna, listamanna, verkamanna og ann- arra eiga einnig sæti í því. Þaö hefur því til að byija með alls 180 fulltrúa. Flokksleiðtogamir fögnuðu ao einveldi Þjóðarráðsins væri lokið. Einn stuðningsmaður Fijálslynd? flokksins, sem sat inni í sjö ár fyr ir skoðanir sínar, sagðist vera sann færður um að Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi hefði skipað Iliescu þeir voru á sama tíma við nám í Moskvu, að draga úr einræðislegum stjórnarháttum og heJja samstarf við stjórnarandstöðuna eftir mót- mælin gegn ráðinu og árásimar í flokksskrifstofurnar. Mönnum kon saman um að þetta framferði allt hefði verið alvarleg mistök sen komið hefðu illilega upp um komm- únistana í Þjóðarráðinu. Andúð é kommúnisma er megn í landinu og viðmælandi minn sagðist álíta að Gorbatsjov hefði bent á að engin ástæða væri að flíka hugsunar- hætti kommúnista um of fram að kosningum. Hann taldi leiðtoga Sovétríkjanna hafa nóg á. sinni könnu án þess að hans menn í ná- grannaríkinu misstu völdin í hend- umar á andkommúnistum fyrir klaufaskap.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.