Morgunblaðið - 23.02.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1990
5
Þjóðleikhúsið:
Lokun frestað
vegna góðr-
ar aðsóknar
Fyrirhugaðri lokun Þjóðleik-
hússiiis hefúr verið frestað til 4.
mars vegna mikillar aðsóknar.
Gísli Alfreðsson Þjóðleikhússtjóri
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að hann hefði farið þess á leit við
byggingamefnd Þjóðleikhússins að
framkvæmdum við húsið yrði fre-
stað til 4. mars þar sem rífandi
gangur væri í starfseminni.
Aðsókn var einnig mikil á síðasta
ári og varð aðsóknarmet í október-
mánuði þegar alls 17.558 leikhús-
gestir sóttu sýningar leikhúss-
ins.Gísli sagði að hin mikla aðsókn
væri í takt við aukinn leikhúsáhuga
hvarvetna í Evrópu. Taldi hann
skýringuna vera þá að áhrif sjón-
varps á minnkandi leikhússókn
væri liðin tíð.
Söngleikurinn Oliver Twist hlaut
mestu aðsókn á síðasta ári og einn-
ig hefur Lítið fjölskyldufyrirtæki
og Bílaverkstæði Badda notið mik-
illa vinsælda.
Snælandsskóli:
Útvarpað á
Stuðbylgjunni
NEMENDUR níunda bekkjar
Snælandsskóla í Kópavogi hyggj-
ast útvarpa á FM 88,6 frá klukk-
an fimm föstudaginn 2. mars til
miðnættis sunnudaginn 4. mars.
Útvarpsstöð þeirra heitir Stuð-
bylgjan og mun senda út tónlist og
tal.
Með þessari starfsemi ætla nem-
endur níunda bekkjar að safna sér
fjár til ferðalags.
Byggðastofiiun
og Fiskveiðasjóð-
ur bjóða 1 Arlax
BYGGÐASTOFNUN og Fiskveiðisjóður hafa boðið sameiginlega í fast-
eignir þrotabús fiskeldisstöðvarinnar Árlax hf. í Kelduhverfi. Tilboðið
felur í sér að stofnanirnar yfirtaki eignir þrotabúsins en Byggðastofn-
un og Fiskveiðisjóður eiga samtals um 114 milljóna króna veðkröfur
í þrotabúið.
Kröfur Fiskveiðasjóðs í þrotabú
Árlax nema 72,9 milljónum króna
en Byggðastofnunar 41,7 milljónum
króna og er veðrétturinn sá sami.
Tilboðið er í fasteignir þrotabúsins
á Kópaskeri, í Ártungu og Lindar-
brekka. Ólafur Stefánsson hjá Fisk-
veiðasjóði sagði við Morgunblaðið
að tilboðið samsvaraði nokkurn veg-
inn því að stofnanirnar hefðu fengið
eignirnar á nauðungaruppboði.
Loðnumæl-
íngum frestað
EKKI verða gerðar í frekari
rannsóknir á loðnunni út af sunn-
anverðum Vestfjörðum fyrr en í
fyrsta lagi um næstu mánaða-
mót. Loðnu hefúr orðið vart á
þessum slóðum, en Jakob Jakobs-
son forstjóri Hafrannsóknastofn-
unar segir hugsanlegt að loðnan
sé enn að ganga á þessar slóðir
og eftir fúndi með hagsmunaðil-
um hefði verið ákveðið að bíða
með mælingar.
Hafrannsóknaskipið Bjarni Sæ-
mundsson fór á þriðjudag í áriega
sjómælingaferð. Farið verður hring-
inn í kring um landið. Jakob segir
að skipið verði ekki komið úr ferð-
inni um mánaðamót og óákveðið
hvernig staðið yrði að loðnumæling-
um ef ákveðið yrði að gera í þær
áður en Bjarni lýkur rannsóknum.
Byggðastofnun hefur undanfarið
auglýst til sölu ýmsar fasteignir sem
stofnunin hefur leyst til sín til að
tryggja veð sín. Páll Jónsson hjá
Byggðastofnun sagði við Morgun-
blaðið, að spurst hefði verið fyrir
um nokkrar fasteignanna, en engin
þeirra hefur selst enn. Þar á meðal
er Hótel Akureyri, Hraðfrystihús í
Höfnum og ísborg í Garði.
Árlax var tekinn til gjaldþrota-
skipta í nóvember sl. Hefur stöðin
verið rekin á ábyrgð Samvinnubank-
ans sem hefur veð í fiskinum. Kröf-
ur í búið nema samtals um 234 millj-
ónum króna. Þar af eru almennar
kröfur 39,7 milljónir, veðkröfur eru
189,6 milljónir og forgangskröfur
nema 4,9 millj'onum. Búist er við
að afstaða til tilboðs Byggðastofnun-
ar og Fiskveiðisjóðs verði tekin á
skiptafundi þrotabúsins 1. mars.
Á bókamarkaðnum.
Morgunblaðið/Þorkell
Bókamarkaður Félags ísl. bókaútgefenda:
5.000 titlar - meðalverð bóka 240 kr.
Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda hófst í gær á þriðju
hæð Kringlunnar. Um 5.000 titlar verða falboðnir á markaðnum.
Ódýrasta bókin kostar 50 kr. en meðalverð bóka er 240 kr. Kjörorð
markaðsins er sem fyrr „Gamla krónan í fúllu giidi.“
Bókamarkaðurinn verður einnig
opinn á sunnudögum og verða veit-
ingahús í Kringlunni opin á þeim
tíma.
Bókamarkaður Félags íslenskra
bókaútgefenda hóf göngu sína árið
1961 í Listamannaskálanum við
Alþingishúsið og hefur hann allar
götur síðan verið árviss viðburður.
Boðið verður upp á sérstaka
bókapakka á markaðnum, þ.e. bæk-
ur sem eru flokkaðar eftir efni og
aldurshópum og seldar nokkrar
saman í pakka.
Markaðurinn stendur yfir frá 22.
febrúar til 4. mars og verður opið
frá kl. 10-19, en frá 10-20 á föstu-
dögum og 10-18 á laugardögum
og sunnudögum.
TVISVAR TVEIR A TOPPNUM
í gær komu út tvær toppmyndir um tvo á toppnum. Á sínum tíma sló Lethal Weapon öll leigumet
og er endurútgefin vegna fjölda áskorana. Það efast hinsvegar enginn um að Lethal Weapon II á
eftir að gera enn betur.
^ M- Y N D I R
myndbandaleigur
bjóða upp á mikið úrval kvikmynda ásamt öllu því sem
hægt er að kalla sjálfsagða þjónustu og rúmlega það.
19. NAKED GUN
20. THROW-AWAY WIVES
MYNDIRSEM ENGINN
MÁMISSA AF
CROSSING DELANCEY
BETRAYED
POLICE ACADEMY
FEDS
KISS OF THE SPIDER-
WOMAN
MYNDI-R
Alfabakka 14
sími 79050
Austurstræti 22
sími 28319
Reykjavíkurvegi 64
sími 651425
Skipholti 9
sími 626171
6. KISS OF THE SPIDER
WOMAN
7. CROSSING DELANCEY
8. BURBS
9. MY STEPMOTHER IS AN
ALIEN
10. RIKKY&PETE
11. BARON MUNCHAUSEN
12. HERALIBI
13. STONING
14. CANONBALL FEVER
15.SPY
16. TWIN PEAKS
17. TORCH SONG TRILOGY
18. WITHOUT A CLUE
WHO
OKE 1000 CHAIIMS
Spennandi mynd um óbilandi hugrekki
ungs manns sem hnepptur er í fang-
elsi saklaus. Þoð tekur nokkurn tíme
að venjast ylirgangi og þjösnoskap
sem síðar ieiðir til ævintýrelegrar
flótta-tilrounar.
(Væntonleg 26. febrúar)
Það er samdóma ólit gagnrýnenda Jarðfræðingurinn Rikky eyðir öllum
aö ótrúlega vel hafi tekist aö skapa
stemmningu seinni hluta sjöundo óra-
tugorins. Öllu eru geró skil, blómabörn-
unum, eiturlyfjunum, Víetnam og tón-
listinni.
stundum til aö fó úfrós fyrir miklar
tónlistargófur. Bróðir hennar, sérvitr-
ingurinn Pete, er upptekinn af gagns-
lausum uppfinningum. Þrælmögnuð
gamanmynd um ótrúlegar ofleiðingar
skemmtilegra uppótækja.
Þar sem myndirnar fást
TOPP TUTTUGU
1. BETRAYED
2. DIRTY ROTTEN
SCOUNDRELS
3. FEDS
4. POLICE ACADEMY 6
5. WORKING GIRL
LETHAL WEAPON
Innan skamms kemst Danny Glover ó
eftirlaun, en nýr félogi, Mel Gibson
sem holdinn er sjólfseyðingarhvöt
gæti orðið til þess að liann nói ekki
eftirlaunaaldrinum. Frábær spennu-
mynd.
LETHAL WEAPOIM II
Nú eiga þeir Martin Riggs og Roger
Murtaugh við erlendan glæpahring sem
svífst einskis. Á spennandi hátt fram-
kvæma þeir það sem enginn þorir
að hugsa um. Spennumynd í sérflokki.
EWOKS 1
Mjög vandaðar teiknimyndir unnar
eftir hugmyndum George Lucas, höf-
undar stjörnustríðsmyndanna. Að þessu
sinni er viðfangsefnið ólfar og tröll
og aðrar góðkynja verur. U.þ.b. 90
mínútur af skemmtilegu hornaefni.
MURDER
Spennumynd um lækni, sem beitir
sömu aðferðum og kollegar hans á
miðöldum. Donald Sutherland ferst vel
úr hendi hlutverk læknisins og sýnir
afburða leik. Rob Lowe þarf ekki oð
skammast sín fyrir Chad bróður sinn,
sem sýnir hér snilldartakte.